Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1972, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1972, Side 1
i *; i Lesbók birtir hér fyrstu grein af fjórum um Svíþjóð, sænskt þjóðfélag, viðhorf og líf hins ahnenna borgara í velferðarríkinu. Gísli Sigurðsson hefur verið í Svíþjóð á vegum blaðsins og rætt við fólk, vítt og breitt, einkum í þremur borgum, Stokkhólmi, Uppsölum og Málmey. í þessu og næsta blaði birtast greinar um líf manna í hinni stöðluðu veröld velferðarríkisins, síðan samtöl við Roland Huntford, fréttaritara Observers í Stokkhólmi, Gunnar Frederiksson, ritstjóra Aftonbladet, málgagns Sósíal- demókrataflokksins og Olof Lagerkrantz, ritstjóra Dagens Nyheter. í fjórða hlutanum verður rætt við nokkra íslendinga, búsetta í Svíþjóð. SVÍÞJÓÐ í DAG Teikningin til hæjrri: í miðhluta Stokkhólms hef- nr stór hluti verið rifinn niður og endurnýjaður með fremur ópersónuleg'- um og kaldranalegum byggingum úr stein- steypu, áli og gleri. Næst á myndinni er Sergels- torg, en í greininni er meðal annars sagt nokk- uð frá lífinu þar. Staðlaður heimur handa Svenson 1. HLUTI Stokkhólmur verður að telj- ast hreinleg borg, þegar frá er skilinn einstaka hundaskít- ur, sem öðru hvoru birtist á gangstéttum. En það er víst allt eins og vera ber, þar sem hundahald er leyft. Ávext- ir neyzluþjóðfélagsins birtast glæsilega í stórverzlunum, þar sem alltaf er krökkt af fólki. Mér skildist það tíðkaðist að fara milli búða og bera sam- an verð; hér tala menn framár öllu öðru um að spara. Hvergi eins og hér í þessu ríka Svia- ríki hef ég heyrt talað önnur eins ósköp um knappa af- komu, um ofboðslega húsa- leigu, sífellt hækkandi vöru- verð og að ekki sé nú minnzt á ósköpin: skattana. Undir þeirri byrði virðast allir stynja ■**,, og um leið er þessi almennasta umkvörtgn Svía verðið, sem þeir borga fyrir viðfræga vel- ferð sína. Flestir viðurkenna að velferðin sé góð, svo langt sem hún nái og að það sé gott til þess að vita, að fólk líði ekki skort. Miðstýring, stöðlun og ríkisforsjá______________ Sósialdemókratar hafa nú farið með völdin í 40 ár og er ótrúlegt að slík vanafesta eigi sér stað í lýðfrjálsu landi. Vel- ferðarríkið og félagsleg stefna hefur verið þeirra aðals merki, fullkomnar tryggingar og atvinna handa öllum. En um þessar mundir er lægð i efna- hagslífinu og stjórnarvöld- in geta hvergi nærri tryggt næga atvinnu. Jafnframt magn ast óánægja gagnvart miklum fjölda erlendra verkamanna í landinu. Menn spyrja spurn- inga, sem varla hafa verið á dagskrá fyrr, svo sem: Hvað er velferð? Er það velferð ■að hafa tryggingu fyrir að geta staðið alta ævina við færiband ið í einhverri verksmiðju? Er það velferð að leggja stund á bókmenntir eða sögu eða tungumál við háskóla og fá svo ekkert að gera sem viðkemur þessum greinum? Hvarvetna blasir við mið- stýringin, skipulagningin og stöðlunin. Kunnugir segja, að i fyrsta lagi séu Svíar snjall- ir skipuieggjarar og í öðru ia°ri hafi beir Framúrskarandi hæfi'eika til að beygja sig und ir skipulag og rikisforsjá. Hinn venjulem Svíi lifir ákaflega stöðluðu lífi. Ha-in hefur staðl aðar innv^ttinuar í sinni stöðl- uðu íbúð og ekkert er

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.