Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1972, Page 1
i *; i
Lesbók birtir hér fyrstu grein af fjórum um Svíþjóð,
sænskt þjóðfélag, viðhorf og líf hins ahnenna borgara
í velferðarríkinu. Gísli Sigurðsson hefur verið í Svíþjóð
á vegum blaðsins og rætt við fólk, vítt og breitt, einkum
í þremur borgum, Stokkhólmi, Uppsölum og Málmey.
í þessu og næsta blaði birtast greinar um líf manna í hinni
stöðluðu veröld velferðarríkisins, síðan samtöl við Roland
Huntford, fréttaritara Observers í Stokkhólmi, Gunnar
Frederiksson, ritstjóra Aftonbladet, málgagns Sósíal-
demókrataflokksins og Olof Lagerkrantz, ritstjóra Dagens
Nyheter. í fjórða hlutanum verður rætt við nokkra
íslendinga, búsetta í Svíþjóð.
SVÍÞJÓÐ
í DAG
Teikningin til hæjrri: í
miðhluta Stokkhólms hef-
nr stór hluti verið rifinn
niður og endurnýjaður
með fremur ópersónuleg'-
um og kaldranalegum
byggingum úr stein-
steypu, áli og gleri. Næst
á myndinni er Sergels-
torg, en í greininni er
meðal annars sagt nokk-
uð frá lífinu þar.
Staðlaður
heimur
handa Svenson
1. HLUTI
Stokkhólmur verður að telj-
ast hreinleg borg, þegar frá er
skilinn einstaka hundaskít-
ur, sem öðru hvoru birtist á
gangstéttum. En það er víst allt
eins og vera ber, þar sem
hundahald er leyft. Ávext-
ir neyzluþjóðfélagsins birtast
glæsilega í stórverzlunum, þar
sem alltaf er krökkt af fólki.
Mér skildist það tíðkaðist að
fara milli búða og bera sam-
an verð; hér tala menn framár
öllu öðru um að spara. Hvergi
eins og hér í þessu ríka Svia-
ríki hef ég heyrt talað önnur
eins ósköp um knappa af-
komu, um ofboðslega húsa-
leigu, sífellt hækkandi vöru-
verð og að ekki sé nú minnzt
á ósköpin: skattana. Undir
þeirri byrði virðast allir stynja ■**,,
og um leið er þessi almennasta
umkvörtgn Svía verðið, sem
þeir borga fyrir viðfræga vel-
ferð sína. Flestir viðurkenna að
velferðin sé góð, svo langt sem
hún nái og að það sé gott til
þess að vita, að fólk líði ekki
skort.
Miðstýring, stöðlun
og ríkisforsjá______________
Sósialdemókratar hafa nú
farið með völdin í 40 ár og er
ótrúlegt að slík vanafesta eigi
sér stað í lýðfrjálsu landi. Vel-
ferðarríkið og félagsleg
stefna hefur verið þeirra aðals
merki, fullkomnar tryggingar
og atvinna handa öllum. En um
þessar mundir er lægð i efna-
hagslífinu og stjórnarvöld-
in geta hvergi nærri tryggt
næga atvinnu. Jafnframt magn
ast óánægja gagnvart miklum
fjölda erlendra verkamanna í
landinu. Menn spyrja spurn-
inga, sem varla hafa verið á
dagskrá fyrr, svo sem: Hvað er
velferð? Er það velferð
■að hafa tryggingu fyrir að geta
staðið alta ævina við færiband
ið í einhverri verksmiðju? Er
það velferð að leggja stund á
bókmenntir eða sögu eða
tungumál við háskóla og fá svo
ekkert að gera sem viðkemur
þessum greinum?
Hvarvetna blasir við mið-
stýringin, skipulagningin og
stöðlunin. Kunnugir segja, að
i fyrsta lagi séu Svíar snjall-
ir skipuieggjarar og í öðru
ia°ri hafi beir Framúrskarandi
hæfi'eika til að beygja sig und
ir skipulag og rikisforsjá. Hinn
venjulem Svíi lifir ákaflega
stöðluðu lífi. Ha-in hefur staðl
aðar innv^ttinuar í sinni stöðl-
uðu íbúð og ekkert er