Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Síða 2
I
Nýja AJAX -
uppþvottaefnið
fjaríægir fituleifar án
fyrirhafnar. Teskellur
- eggjabletti - varalit.
Vinnur bug á lykt -
jafnvel fisk- og
lauklykt - heldur
uppþvottavatninu 4V
ilmandi.
AJAX með
sítrónukeim -
hin ferska
orka.
AJAX með sítrónukeim
nýja uppþvottaefnið,
sem
fjarlægir fitu
fljóttogvel.
A HÚSAVÍK má sjá ýmis at-
hyglisverð mannvirki frá fornu
og nýju. Velmegun síðustu ára
hefur þó greinilega markað mest
spor og nægir að nefna nýtt og
glæsilegt hótel með félagsheimili,
nýtt útibú Landsbankans og
fjölda nýrra íbúðarhúsa.
En áhugamanni um arkitektúr
verður samt öllu starsýnna á eitt
af eldri húsum bæjarins: Húsa-
víkurkirkju, sem byggð var á |
árunum 1905—1907. Höfundur
hennar er Rögnvaldur Ölafsson,
arkitekt, sem dó löngu fyrir aldur
fram árið 1917. Kirkjan á Húsavík
er gott dæmi um byggingarlist
Rögnvalds. Hún er timburhús og
afkvæmi síns tíma; teiknuð og
byggð á fyrsta tugi aldarinnar,
áður en steinsteypuöldin heldur •
innreið sína. En kirkjan á Húsa-
vík er ekki aðeins bæjarprýði þar
á staðnum, en einnig með merkari
verkum íslenzkra arkitekta fyrr
og síðar.
Rögnvaldur teiknaði kross-
kirkju handa Húsvíkingum, en
turninn er settur inn í eitt hornið
og fyliir nákvæmlega út í það.
Neðantil er lárétt timburklæðn-
ing, en lóðrétt ofantil og bárujárn
á þaki. Kirkjan heyrir til tímabili
timbur- og bárujárnshúsa og
minnir talsvert í einstökum smá-
atriðum á fallegustu húsin frá
þessu timabili i Reykjavík. Kross-
formið gefur kirkju.nni aukið
innra rými, en samræmi er gott og
öll hlutföll einstaklega falleg.
Að innan er kirkjan máluð í
bláu og brúnu — andstæðulitum
— sem mér finnast fara vei
þarna, þótt ekki séu allir sammála
um það. Rögnvaldur réði þó ekki
litunum; það gerði Freymóður Jó-
hannesson, listmálari, sem málaði
kirkjuna að innan. Hann vann
líka skreytingarnar, sem laka þátt
í heildinni á látlausan hátt. En
tvennt í kirkjunni er síðari tíma
verk.