Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Page 16
UM OLAV DALGARD í bókinni „Skáldið frá Fagraskógi", sem rituð er af nokkrum vinum Davíðs Stefánssonar að honum látnum og kom út hjá Kvöldvökuútgáf- unni 1965, segir svo í kaflanum: „IMokkrir ævi- þættir" eftir Einar Guð- murdsson, Hraunum í Fljótum, bls. 63: „1922. Ársbyrjun i Reykjavik. Hann er þar til vors og býr aðra Ijóða- bók sína „Kvæði" til prentunar. Auk þess starfar hann eitthvað við þingskriftir. Um vorið heldur hann svo heim í Fagraskóg. Um sumarið var hann tveggja vikna tima á Hraunum. Þarvar þá líka norskur stúdent, Olav Hansen og fleiri dvalargestir. Olav tók sér síðar nafnið Dalgard og varð frægur í stríðinu 1939—45, m.a. fyrir veru sina í Grinifang- elsi." Þetta rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég var hálfn- aður að lesa stórmerki- lega bók núna i haust: SAMTID — Politikk, kunst, liv og kultur- kamp i mellomkrigs- tida, eftir norska leikhúsmanninn, rithöf- undinn og bókmennta- gagnrýnandann Olav Dalgard. Þarna var hann kominn, norski stúdent- inn, sem dvalið hafði á Hraunum sumarið 1922, kynnst þar húsbónd- anum, Guðmundi Davíðssyni, Huldu Stefánsdóttur og Davíð Stefánssyni skáldi. Dalgard er nú 75 ára að aldri, en er ódrep- andi að sálar- og likams- kröftum, gamall fót- boltafélagi Willy Brandts kanslara, brautryðjandi í norskum leikhúsmálum og kvikmyndagerð, jafn- aðarstefnunni og líklega frægastur núlifandi bók menntagagnrýnenda, elstur þeirra, sem í norsk blöð skrifa. Ég hafði þá ánægju að hitta þennan mann sem snöggvast i september s.l. í Osló. Við það tæki- færi gaf hann mér þessa nýútkomnu bók eftir sig. Ég hef nú fengið leyfi hans til að þýða fyrir Les- bók Morgunblaðsins einn kafla úr bókinni: „Islandsk mellomspel". Ég vel kafla þennan ein- göngu vegna þess, að hann fjallar um ísland og íslendinga og er því sennilega forvitnilegri öllum almenningi en annað efni bókarinnar. En SAMTID er í heild frábær minningabók og lífsuppgjör um norskt menningarlíf, stjórnmál og listir í meira en hálfa öld, full af nærmyndum af ógleymanlegum mönnum, ekki síst þeim skáldum, sem hæst bar í Noregi á fyrra helmingi þessarar aldar og eru ýms þeirra nálega jafn fræg hér á íslandi sem í heimalandi sínu. Um Olav Dalgard má vissu- lega segja með sanni, að hann hefur um langa ævi staðið mitt í stormum sinnar tíðar, gáfaður, kappsfullur og góðvilj- aður. Guðmundur Daníelsson © ■jðs. OLAV DALGARD MILLISPIL Guðmundur Daníelsson þýddi Það er nauðsynlegt hverjum stúdent að taka sér ferð á hendur og sjá sig dálítið um í veröldinni. Upp úr 1920 var Þýskaland sér- lega lokkandi sem ferðatakmark og það af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi var þýska það mál, sem við menntaskólanemar lærðum það mikið í, að við gátum gert okkur nokkurn veginn skiljan- lega. i öðru lagi — og það var þyngra á metum — hið sífellda verðfall marksins, sem innan tíð- ar gerði okkur mögulegt að fara i Þýskalandsferð fyrir nokkur hundruð króna og spara þó hvergi við okkur. Það segir sig sjálft, að þetta gat haft miður æskileg áhrif á siðgæði ungs stúdents. Ég hafði ráðgert Þýskalands- ferð vorið 1922. En á sama tima kom tilboðfrá íslandi um nánast ókeypis ferð þangað, og dvalar- kostnaður þar ekki annar en sá, að íslenskur stúdent byggi jafn lengi hjá foreldrum minum. Ís- land hafði vissulega jafn mikið aðdráttarafl fyrir norskunem- anda og Þýskaland. Með Eivindi Vagsli — sjóveik- asta manni, sem ég hef hitt — var haldið í vestur út á bládýpið á gömlum þrándheimskum dalli, sem lifað hafði sitt fegursta við norðurströndina. Á þessu sama skipi var kennari minn, Fredrik Paashe, sérfræðingur i þeim forn- norrænu fræðum, sem tengd voru islandi. Á leiðinni talaði hann um hið forna norræna menningarlíf af sama eldmóði og ég hafði fyrr heyrt hann ræða um Lessing og þýska rómantík. Ég kynntist nú betur þessum sérstæða merkis- manni í hinum fremur þyrrkings- legu högum málvísindanna og há- skólafræðanna. í meðvitund Paashe voru þeir Sverrir kon- ungur og Snorri Sturluson ná- komnir ættingjar hans, i beinu sambandi við hann, þeir jafn handgengir honum sem hann þeim. Íslenskur starfsbróðir hans, Sigurður Nordal, tók á móti honum á hafnargarðinum í Reykjavík, en formaður stúdenta- ráðsins, Guðmundur Gíslason, tók á móti okkur óbreyttu stúdent- unum, sá sem árið eftir gaf út bókina „islensk endurreisn". Það er undarlegt að koma til íslands, einkum fyrir Norðmann. Landslag líkt og í Noregi og and- rúmsloft, sem minnti mjög á norskt fjallaloft og seljalíf. Samt sem áður var island eitthvað allt annað. Sama var með málið, það minnti einnig á norsku, en það var ekki mikið sem við skildum, þegar við gengum á land og stóðum á bryggjunni í Reykjavík. Þekking okkar á fornnorrænu nægði ekki hér, og framburður- inn minnti einna helst á Vossmál- lýskuna með sitt au og pau og gau. Einnig var það undarlegt að vera ávarpaður á eins konar skandi- navísku, sem líktist mjög gömlu stirðlegu „klukkudönskunni" okkar. En hún var sá eini mál- grundvöllur, sem við gátum fyrst í stað notast við, þvi miður. Fyrstu áhrifin af höfuðborg landsins voru heldur ömurleg. Hér voru ekki aðeins þökin klædd bárujárni, heldur öll húsin, frá grunni til mænis, þannig að hús við heilar götur stóðu eins og her- vædd til stríðs — striðs gegn vetri konungi, með stormbyljum sínum og isköldu snædrifi. Þegar ég sá Reykjavik aftur 48 árum seinna, trúði ég þvi varla að þetta væri sama borgin, sem ég var komin til. Nú voru bárujárnshúsin svo fá og sjaldgæf, að þau voru sýnd sem forngripir! Árið 1922 var island ennþá þró- unarland. Ekki höfðu landsmenn lært að búa til sement og ekki að stunda stórveiðar á úthafinu. Það voru aðallega Norðmenn, sem veiddu feitu Íslandssíldina, — ennþá. En gagnstætt norskum starfsbræðrum sínum, höfðu Ís- lendingarnir lært að vinna betur úr hinum litla afla sínurn og krydduðu hann bæði með salti og sykri og fengu þannig betra verð fyrir fiskinn. Gamall bóndi tjáði okkur, að islendingar gætu einkum þakkað tveimur dýrategundum það að Fyrstu áhrifin frá höfuðborginni voru heldur ömurleg. Hér voru ekki aðeins þökin klædd bárujárni, heldur öll húsin frá grunni til mænis.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.