Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1976, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1976, Blaðsíða 16
/ Ef þér haldið að allar reiknivélar séu e' - íítið á hvað aðrir hafa að bjóða, áður en þér kaupið Ricomac. Sölumenn okkar eru ávallt reiðubúnir að veita yður hvers konar upplýsingar um verð og möguleika Rico- mac án nokkurra skuldbindinga af yðar hálfu. RICOMAC 1Q12P Sérstaklega lipur reiknivél, sem m.a. skilar rauðum mínustölum og hefur aflestrarkommu. Hringið eða komið og fáið upplýsingar um Ricomac, sem hæfir starfi yðar. . ( nfCOH ) SKRIFSTOFUVELAR H.F. + = % Hverfisgötu 33 Sími 20560 Að eiga sér rætur Framhald af bls. 15 hér sæti ég iðulega siðdegis og mændi á þingheim, liti upp til fárra þingmanna og niður á marga, en hefði gaman af þeim öllum. Svaraði hann fáu öðru en þvi, að húsið væri Ktið. Ég flýtti mér að reyna að afsaka smæð þinghúss og sagði honum. að þingið væri i stóru leiguhúsnæði um allan bæ. Úr þvi að Dómkirkjuförin hafði heppnast svo vel, héldum við nú i Landakotskirkju. Spigsporuðum við um hana góða stund, þar til sikinn nam staðar, setti hendur á mjaðmir, steig fram i hægri fót, sagðist hafa fengið nóg af kirkjum, spurði, hvort ekki væri dansað á fslandi. Fórum við nú t fslenskan heimiiis- iðnað. Skrifaði ég þar nafnið mitt á augiýsingableðil og rétti sikanum. en sleppti heimilisfanginu af skeyt- ingarleysi. Gerði hann slikt hið sama og skrifaði sitt nafn, sem reyndist vera George Singh. Siðar komst ég að þvi, að allir sikar heita Singh að ættarnafni. Hann þurfti að komast á Hótel Loftleiðir fyrir klukkan þrjú, svo að ég kom honum i leigubll og kvaddi elskulega. Ástæðan til þess að ég hef drepið á veruleg kynni mín af einum, — og mjög stuttaraleg kynni af öðrum manni af indverska kynstofninum i Afriku, er sú að eitthvað er i fari og framkomu þessara manna, sem höfðar mjög sterkt til min; eitthvað sem ég kann mjög vel við og gæti bent til þess, að maður eigi einhverj- ar duldar rætur á þessum fjarlægu slóðum. Þannig gæti Islendingur eins og ég átt heima og kunnað vtl við sig einhversstaðar óralangt t burtu vegna duldra tengsla við mannfólkið. Sælir eru þeir... Framhald af bls. 5 En hvar voru svörin við öllu því, sem hann hafði mátt heyra og þola um dagana? Og öllu því sem hann haiði ekki fengið að heyra, en vissi að sagt hafði verið? Nú fann hann allt í einu til þess nagandi sársauka og kvfðatilfinningar, sem alltaf hafði ásótt hann þessi síðustu ár. Þessi lamandi svarta þoka, sem lagðist yfir vitundar- lífið og skyggði á allt, afskræmdi allt og kreisti hjartað ísköldum kvalakrumlum. Flaskan. Ennþá einn sopi, stór, og glasið var tómt. Hann hallaði sér aftur makindalega að veggnum og beið eftir áhrifunum, meiri áhrifum, meiri slökun. Hann fann hvernig sjónarsviðið breyttist smám saman. Otlit hlutanna tók á sig aðra mynd. Birtan varð öðruvísi og flekkirnir á óhreinum veggnum á móti fóru að taka á sig ákveðnari myndir. Hann hellti ekki aftur í glasið. Beið rólegur. Slatti eftir ennþá. Svaréð? Já svarið. Hann vissu nú hvert það var. Peningar! Aðeins peningar og þá skyldi hann svo sannarlega fá. Nóg. Fúlgur, hauga, já fjöll af peningum. Honum létti snögglega við þessa hugsun, þessa stórkostlegu framtíðarsýn og nú fann hann vellíðan- ina svífa að sér eins og heilladís, sem aldrei sézt, en aðeins verður skynjuð. Hann hagræddi koddanum, sparkaði af sér skógörmunum og hallaði sér útaf. Þannig lá hann stundarkorn, reis svo upp við dogg og hellti einum sopa í glasið, bar það upp f birtuna og rýndi gegnum dökkgulan vökvann eitthvað út f herbergið. Svo var rennt f botn með velþóknun. Hann hafði aldrei lært að drekka af stút. Það var liður f viðhaldi viðsjállar sjálfsvirðingar. Hann hallaði sér á ný og krosslagði handleggina á brjóstinu. Lygndum augum lá hann svona og hugsanir sópuð- ust, — þyrluðust, að honum á ný. Peninga skyldi hann fá. Þetta helvítis drasl skyldi glápa úr sér glyrnurnar, þegar hann opnaði veskið. Hann ætlaði að heimsækja þau öll. öll með tölu. Hvert og eitt. Lesa yfir hausa- mótunum á þeim. Og svo ætlaði hann að safna þeim saman. Á ffnasta hóteli borgarinnar. Bjóða öllum. Halda veizlu. Sam- kvæmisklæðnaður. Konunglegar veitingar. Matur. Hann skyldi vera vingjarnlegur, elskulegur, heill- andi. Svo, allt f einu, átti hið ógnvekjandi þrumuvéður að skefla á. Það skyldi fá að standa nakið frammi fyrir sfnum eigin Iftilmótleika. Það skyldi hristast og skjálfa, já nötra í fskulda reiðinnar sem hann ætlaði að ausa yfir þau. Hugsunin varð þokukennd og honum var farið að reynast erfitt að halda saman þessum ákafamiklu hugsanabrotum, sem hrönnuðust upp f höfði hans. Hann strauk hendinni þreytulega yfir ennið og augun. Var svefninn á næsta leiti? Æ kannski. Nei, hann skyldi ausa peningum út á gólfið, hand- fylli eftir handfylli og svo ætlaði hann að hlæja brjálæðislega, já öskra, þegar hann sæi svínin fara að skrfða eftir gólfinu og krafsa eftir seðlunum. Og aftur skyldi hann ausa þeim út, meira, þangað til froðufellandi og ýlfrandi ófreskjurnar veltust um salina í leit að enn einum þúsundkallinum. Frá HONUM! Og ennþá einu sinni ætlaði hann að taka handfylli og þeyta yfir þessa slimugu maðka. Þeyta þeim yfir allt. Svona! Hægri handleggurinn sveiflaðist kröftuglega út f loftið, í stórum sveig. Flaskan rauk um koll, glas þeyttist út á gólf. Bréfið byrjaði að drekka í sig dökkt vinið, sem rann út um borðið. Fyrst eitt hornið, svo breiddist það út og innan stundar var það gegnvott. Nafn hans á umslag- inu tók að leysast uppog varð að lokum að einni, ólæsilegri blekklessu. Skammdegishúmið læddist að húsinu og hvarf inn um glugga á herbergi sofandi manns. En langt f suðri, yfir Keili, yfir Eldey, risu háar, silfraðar skýjaborgir, laugaðar köldu rauðgullnu skini hnfgandi sólar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.