Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Síða 6
JÓHANNES S. Kjarval: Litaspjald, sumar, 1963. KRISTJÁN Davfðsson: Án titils, 1992. Péturssonar, skúlptúra Jóhanns Eyfells, veðurtúlkanir Steingríms Jónssonar og manngerða náttúru Birgis Andréssonar. Ein aðferð í náttúrutúlkun er sú að nota beinljn- is náttúruna sjálfa. Það gerir Haildór Ás- geirsson; þó með þeim hætti að hann bræð- ir hraungrjót með logsuðutæki. í stað þess að mála myndir af steinum, málar Hrafn- kell Sigurðsson sjálfa steinana og dreifir þeim á stóran veggflöt. Fátt er eins samgró- ið íslenzkri náttúru eins og blessaðar þúfurn- ar, sem geta stundum orðið næstum því hnöttóttar. Á gólfinu í miðrými Kjarvals- staða er mikili þúfnakargi eftir Finnu Birnu Steinsson; þúfurnar allar eins og hvítar á litinn. Af sama tagi er og „Earthquake" (jarðskjálfti) Sigurðar Guðmundssonar. Þessi verk eru á nótum conceptlistar og sú grein á fleiri fulltrúa þarna, þar á meðal Kristján Guðmundsson og Hrein Friðfinns- son. Ein og sér og öðru ólík á sýningunni er svo geysistór, ónefnd ljósmynd Ólafs Elíassonar. !V Gunnar B. Kvaran segir svo um afstöðu conceptlistarinnar í fyrrnefndri ritgerð: „Conceptlistin, sem fram kom á sjöunda ára- tugnum, var upphaflega andsvar við fagur- fræðilegum áherslum Minimallistarinnar og almætti hlutarins eins og hann birtist m.a. í WmM EGGERT Pétursson: Án titils, 1991 Popplistinni. Conceptlistamenn álitu að form- rænn og huglægur þáttur listarinnar væri ekki það sem skipti máli heldur merking hennar." Þá forskrift ættu sýningargestir að taka með sér á sýninguna. Minnugir þess að verk af þessu tagi snúast um „merkingu“ en ekki formræna eða huglæga þætti, ættu þeir að hafa betri forsendur til að njóta verkanna. Það er ljóst að á þessum tímum hins algera frelsis í myndlist, g;etur náttúrusýn í mynd- list birzt á óteljandi vegu. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.