Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Síða 13
KARL Kvaran, 1980. ENDASPRETTUR KARLS KVARANS EFTIR GÍSLA SIGURÐSSQN Félag íslenskrg myndlistarmanna og Norræna Húsið standa aö sýningu ó úrvali verka Karls Kvaran frá árunum 1985-1989, sem jafnframt er síðasta tímabilið í lífi og á listferli málarans. Karl Kvaran var einn af formbyltingar- mönnunum um miðja öldina og hann hvarf aldrei frá sinni óhlut- bundnu túlkun í myndum sem í tærleika sínum minna oft á klassíska tónlist. FLESTIR málarar eiga sín tíma- bil, sem stundum eru auðkennd eftir lit' eða myndefni. Þeim er það líka sameiginlegt, einkum ef þeir ná háum aldri, að tímabil- ið eftir sextugt verði talið það bezta. Það sýnir betur en margt annað hvað þroskaleiðin í mynd- list er löng. Þar er ekkert til sem heitir að vera settur út af sakramentinu eftir fimm- tugt eða sjötugt eins og á vinnumarkaðnum, svo framarlega sem heilsan og vinnuþrek séu í lagi. Af þeirri ástæðu getur verið til- hlökkunarefni fyrir málara að eldast, vitandi það að eiga beztu árin eftir. Karl Kvaran var að vísu ekki einn þeirra sem forsjónin leyfir að ná háum aldri í fullu "fjöri eins og Titian sem dó 99 ára og Cha- gall sem dó 96 ára; báðir starfandi til hinsta dags. En starfsdagur Karls var þó orðinn nokkuð langur; hann fæddist 1924 og var því 65 ára þegar hann féll frá 1989. Það er vel við hæfi að Félag íslenzkra myndlistarmanna heiðrar nú listamanninn á Listahátíðinni sem yfir stendur og það er gert í góðri samvinnu við Norræna Húsið og sýningin stendur þar. Þetta er yfirlitssýn- ing, en ekki yfir allan feril Karls, heldur síð- asta tímabilið; árin 1985-1989. Síðasta árið getur þó naumast talizt með, sagði Guðrún * Kristjánsdóttir listmálari og formaður FÍM; frekar er hægt að tala um árin frá 1985-88.. Eins og áður er sagt og á sér margar hlið- stæður, var þetta eitt sterkasta tímabilið í list Karls Kvaran. Enda þótt árin sjö sem liðin eru frá láti Karls Kvaran séu ekki langur tími, er óhætt að gera því skóna að eitthvað sé strax farið að fenna í spor hans. Hvað veit yngsta kyn- slóðin í myndlist til dæmis um feril hans? Það er heldur ekki hægt að segja að Karl hafi verið einn þeirra málara sem naut al- mennra vinsælda. Hann varð þátttakandi í formbyltingu þar sem ströng hugmynda- fræði réði ferðinni og sú bylting fór afar illa fyrir bijóstið á þeim sem alizt höfðu upp við landslagsmálverk frumherjanna. En bæði Karl og flestir þeirra sem tóku þátt í þeirri byltingu, þoldu engar málamiðlanir lengi vel. Sumir þeirra kúventu að vísu og fóru að mála hlutveruleikann, jafnvel í raunsæis- útfærslu, en Karl hélt ótrauður sínu striki. Hann var einn harðasti talsmaður strang- flatastflsins, afar áhrifamikill rökhyggju- maður með alla sína hugmyndafræði á hreinu og góða skynsemi til þess að tala fyrir kenn- ingunni. Alla tíð hélt hann tryggð við hreina liti og skýrt afmörkuð form; myndir hans tærar og virtust stundum vera skyldar tón- list, enda var Karl afar tónvís og mikill unn- andi klassískrar tónlistar. Það var unun hans að koma sér upp beztu hljómflutningstækjum sem völ var á og hlusta síðan á eftirlætis verk sín. Margir sem aðhylltust strangflatastefn- una sneru sér síðar að ljóðrænni útfærslu, svonefndum abstrakt expressjónisma. Þá er VlTT sé ég land og fagurt. Olíumálverk. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ1996 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.