Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.1996, Síða 2
NÝ NORRÆN STOFNUN
FYRIR NÚTÍMALIST
NORRÆN stofnun fyrir nútímaiist verð-
ur opnuð í Helsinki í Finnlandi 1.
mars á næsta ári. Ráðherrar menning-
armála í norrænu ráðherranefndinni tóku
ákvörðun um stofnun hennar í maí síðastliðn-
um. Stofnunin kemur í stað Norrænu listamið-
stöðvarinnar í Sveaborg sem lögð verður niður
um næstu áramót. Ólafur Kvaran, deildar-
stjóri menningarmála í skrifstofu ráðherra-
nefndarinnar sagði að myndlistin sem sam-
starfsvettvangur væri mjög mikilvæg og áríð-
andi að stuðla að auknum samskiptum á þessu
sviði milli Norðurlandanna. „Það þarf að auka
upplýsingastreymi og möguleika listamann-
anna til að ferðast á milli landanna. A grund-
velli þessa er mikiivægt að hafa stofnun sem
samræmir og sýnir frumkvæði að samnorræn-
um listsýningum. Það er mikilvægt að hún
hafí gott samstarf við samskonar stofnanir í
hveiju landi og greiði sýningum leið um Norð-
urlöndin," sagði Ólafur.
Hann sagði að stofnunin yrði þónokkuð frá-
brugðin forvera sínum, með aðrar áherslur og
breytt skipulag. Til dæmis verður starfsfólki
fækkað úr 16 í 8. Stjóm hennar verður skipuð
fímm mönnum, einum frá hverju landi, og verð-
ur skipað í hana fyrir lok júní á þessu ári.
Auglýst verður eftir forstöðumanni fyrir lok
júlímánaðar og hann ráðinn fyrir septemberlok.
Stofnunin mun hafa umsjón með 12 vinnustof-
um listamanna sem eru dreifðar um öll Norður-
löndin, þar á meðal eru tvær á Islandi. „Stofnun-
in sér einnig um heimildasöfnun og upplýs-
ingamiðlun og gefur út Norræna listtímaritið
Siksi. Auk þess mun norræna listiðnaðarnefnd-
in þafa þar skrifstofu sína,“ sagði Ólafur.
í tillögum til fjárlaga fyrir árið 1997 er
gert ráð fyrir 90 milljónum íslenskra króna til
reksturs stofnunarinnar.
Listaverk
í Leifsstöð
Morgunblaðið/BBL
LISTAVERK eftir Kristján Davíðsson eru til sýnis í rananum í Leifstöð.
TONLIST
Laugardalshöll
David Bowie
Tónleikar breska rokkarans David Bowie á
Listahátið 1996. Með honum voru Gail Ann
Dorsey á bassa, Reeves Gabrels á gítar, Mike
Garson á hljómborði og Zachary Alford á
trommum. Hljómsveitin Lhooq hitaði upp.
DAVID Bowie gefst seint upp á að ögra
aðdáendum sínum. Tónlist hans er ekki auð-
melt og oftast þarf að hlusta nokkrum sinnum
á plötur rokkgoðsins tii að njóta þeirra til fulln-
ustu. Þó eru tveir kaflar á ferli listamannsinS
sem svo er ekki um. í byijun 8. áratugarins og
á þeim 9. sendi hann frá sér þijár hlustenda-
vænar plötur; The Rise and Fall of Ziggy Stard-
ust and the Spiders from Mars, Let’s Dance og
Tonight.
Að öðru leyti hefur Bowie ekki samið „popp-
tónlist". Gagnrýnendur hafa farið fögrum orð-
um um verk hans, en sjaldan hafa plötur hans
náð gríðarlegri sölu.
Nýjasta skífa Bowies heitir l.Outside. Þar
fetar hann enn nýja stigu og er mál manna
að töluverða hlustun þurfí til að grípa gripinn,
en þegar á annað borð sé búið að bijóta „hlust-
unarmúrinn" skipi platan heiðurssæti.
Nú hefur það alltaf legið ljóst fyrir að tón-
leikaferðalagi Bowies er ætiað að kynna plöt-
una l.Outside. Því var frumforsenda þess að
njóta tónieikanna að hafa hlustað
á þá piötu. Hins vegar hafa út-
varpsstöðvar lítið kynnt þann grip,
hinsvegar spilað „gömlu og góðu“
lögin, ef einhver. Það er því
kannski von að hinn venjulegi tón-
ieikagestur hafí orðið fyrir von-
brigðum, því þótt meirihiuti laga
Bowies þetta kvöld hafí verið
gamall voru útsetningarnar nýst-
áriegar og lítið var um gömlu
góðu vinsælu iögin. Einna helst
má segja að Under Pressure, sem
hann söng með Freddie Mercury
á sínum tíma, hafi verið í uppruna-
legri útsetningu. Jú og kannski
Look Back in Anger, sem er nú
BOWIE
BRÁST
EKKI
reyndar varla „popplag“ í væmnasta skilningi
þess orðs.
Fyrir Bowie-aðdáanda voru tónleikamir
stórkostlegir. Þeir hófust á hinum magnaða
Outside-seið Motel, sem náði hámarki með
þungum trommuslætti og kraftmiklum söng
meistarans. Undirritaður var reyndar einnig
viðstaddur tónleika Bowies í Dublin í nóvem-
ber og fullyrðir að söngur hans hafí aidrei
verið betri. Þó var eins og röddin væri hálf
kraftlítil á köflum, hann veigraði sér við að
syngja hæstu nóturnar, enda hefur hann hald-
ið ófáa tónleika upp á síðkastið. Hafa ber í
huga að hann er 49 ára gamall stórreykinga-
maður og hefur oft reynt á röddina.
Á eftir þessu fyrsta lagi komu nokkur göm-
ul, eins og fyrmefnt Look Back in Anger af
plötunni Lodger og Scary Monsters af plötunni
Scary Monsters and Super Creeps. Of langt
mál væri að telja upp öli lögin, en á efnis-
skránni voru til skiptis gömul og ný. Mesta
athygli vakti frábært nýtt lag, Telling Lies.
Stemmning var mestan tímann
ekki sérlega góð, nema ef til vill
fremst. Þar datt hún einnig tölu-
vert niður um miðbik tónleikanna,
þegar flutt voru hæg lög af l.Out-
side á borð við Wishful Beginn-
ings. Fólk tók þó vel við sér þeg-
ar nýjasta smáskífulagið,_ Ilallo
Spaceboy, tók að hljóma. I lokin,
þegar fólk heyrði iagið Under
Pressure og Heross ætlaði allt um
koll að keyra. Gestir í sætum risu
upp og klöppuðu móðursýkislega.
Eftir Heroes gekk Bowie af
sviði ásamt hljómsveit sinni. Hann
var klappaður upp og lætin urðu
ekki minni þegar hann tók lögin
SÚ nýbreytni hefur verið tekin upp í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar að listaverk
eftir íslenska myndlistarmenn prýða nú
ranann sem ferðalangar ganga síðasta
spölinn út í flugvél.
Guðrún Kristjánsdóttir, formaður Fé-
lags jslenskra myndlistarmanna, segir
að FIM hafi hætt að reka sýningarsal
fyrir nær tveimur árum, og hafi því ver-
ið að leita annarra leiða til að koma ís-
lenskri myndlist á framfæri. Sýningar-
nefnd FÍM fór þess á leit við forráða-
menn Flugstöðvarinnar að íslenskir
myndlistarmenn gætu haft verk sín til
sýnis í rananum og hlaut hugmyndin
góðan hljómgrunn.
Myndlistarmaðurinn Kristján Davíðs-
son reið á vaðið og verk eftir hann voru
sett upp í Leifsstöð í byijun maí. Ætlun-
in er að skipta um listaverk á þriggja
mánaða fresti, og næsti listamaður sem
sem sýnir myndir sínar verður Björn
Birnir.
White Light, White Heat, All the Young Dudes
og Moonage Daydream, eina lagið af Ziggy
Síardust-plötunni þetta kvöld.
Hljómsveit Bowies var geysiþétt, enda hefur
hann verið þekktur fyrir að velja aðeins úrvals
hljóðfæraleikara til samvinnu. Mike Garson
(sem er kannski ekki öllum að skapi) fór á
kostum í lögunum Motel og Aladdin Sane.
Reeves Gabrels sýndi ekki minni snilli á gítar-
inn. Undirritaður hreifst mjög af leikni bassa-
leikkonunnar Gail Ann Dorsey á hijóðfærið,
ekki síst í laginu Under Pressure þar sem hún
söng mjög krefjandi iaglínu með bassaleiknum.
Trommuieikur var einnig mjög góður.
Hljómur var hins vegar ekki góður, þótt
hann hafi heldur lagast þegar á leið. Aftast
var hljómburður holur og tómlegur. Erfitt er
að segja hveiju er um að kenna, en þó er ljóst
að höllin er ekki heppilegur tónleikastaður eins
og áður hefur komið í ljós.
Greinilegt var að Bowie var heldur lúinn á
tónleikunum og þótt sviðsframkoma hans hafí
verið lífleg var hún rólegri en oft áður. Hann
settist nokkrum sinnum niður, hvort sem um
er að kenna þreytu eða ekki, því hann gerði
það líka í Dublin í nóvember. Sviðið í Laugar-
dalshöll er frekar lítið og ekki pláss til mikillar
líkamsræktar. Ljósasýning var með ágætum
og dró athyglina frá berangurslegri sviðsmynd,
sem naktir hallarveggimir bættu ekki.
Margt má setja út á framkvæmd tónleik-
anna og má segja að þótt Bowie hafi staðið
fyllilega fyrir sínu, sé aðra sögu að segja um
tónleikahaldara. Það þarf kannski ekki að koma
á óvart eftir að einn þeirra lýsti opinberiega
yfír gelgjulegri aðdáun á kappanum, þannig
að margir fengu á tilfinninguna að tónleikarn-
ir væru yfírvarp fyrir dýrasta stefnumót í heimi,
að minnsta kosti framan af.
Til dæmis voru of margir miðar seldir í
sæti eða ofgnótt af boðsmiðum dreift. Þurftu
íjölmargir gestir að sitja á tröppum milli sæt-
anna, sem er að sjálfsögðu ekki boðlegt fyrir
tæplega 4.000 krónur. Þá voru allt of margir
gestir niðri á gólfi. Sömuleiðis var öryggis-
gæslu þannig háttað að sjá mátti, þegar birta
leyfði, gesti staupa sig. Einnig má nefna að
sviðið var of lágt og margir gestir í lágvaxn-
ari kantinum sáu Bowie illa eða alls ekki.
Viðvaningsbragnum á skipulagi tónleikanna
tókst þó ekki að spilla fyrir ánægjunni sam-
fara komu kappans til landsins.
ívar Páll Jónsson
David Bowie
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir
Náttúrusýn í ísl. myndlist til 31. ágúst.
Listasafn íslands
Veggmyndir Kjarvals í Landsbankanum til
30. júní. Sýn. á verkum Egon Schiele og
Arnulf Rainer til 14. júlí.
Ásmundarsalur
Svavar Guðnason sýnir til 23. júní.
Gallerí Borg
Jón Axei Björnsson sýnir til 23. júní.
Gallerí Sævars Karls
Húbert Nói sýnir til 27. júní.
Gallerí Fold
Ragna Sigrúnardóttir sýnir til 30. júní.
Gallerí Umbra
Robert Shay sýnir til 26. júní.
Gallerí Greip
Sýning á snögum til 23. júní.
Islensk grafík
Rachel Whiteread sýnir til 23. júnf.
Hafnarborg
íslensk portrett á tuttugustu öld til 8. júlí.
Norræna húsið
Pia Rakel Sverrisdóttir sýnir í anddyri og
kaffistofu. Karl Kvaran í sýningarsölum til
30 júní.
Þjóðminjasafnið
Sýning á silfri til sept.loka.
Mokka
„Dauðinn í íslenskum veruleika" samvinnu-
verkefni Mokka og Þjóðminjasafns íslands
til 30. júní.
Við Hamarinn
Brynja Dís Björnsdóttir og Gunnhildur
Björnsdottir sýna til 7. júií.
Nýlistasafnið
Marianna Uutinen og Arnfinnur R. Einars-
son. Gestir í setustofu eru Gé Karel van
der Stemen og Ingdrid Dekker til 7. júlí.
Sjónarhóll
Andres Serrano: „Eitt sinn skal hver deyja“
til 30. júní.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sumarsýn. á verkum Ásgríms til 31. ágúst.
Listhús 39
Kristín S. Magnúsdóttir sýnir til 1. júlí.
Listasafn Kópavogs
Liisa Chaudhuri sýnir til 7. júli.
Snegla
Elín Guðmundsdóttir sýnir verk sín í glugg-
um listhússins.
Ingólfsstræti 8
Ragna Róbertsdóttir sýnir til 30. júní.
Gallerí Fold
Ragna Sigrúnardóttir sýnir til 30. júní.
Laugavegur 20b
Kristín S. Magnúsdóttir sýnir til 27. júní.
Gallerí Gangur
Kocheisen og Hullmann til 29. júní.
Perlan
Heidi Kristiansen sýnir 18 myndteppi til
30. júní.
Ráðhúskaffi
Ingunn Benediktsdóttir sýnir til 30. júní.
Slunkaríki - Isafirði
Verk eftir Karólínu Lárusdóttur.
Kirkjuhvoll - Akranesi
Sýning frá Grænlandi til 30. júni.
Listasafnið á Akureyri
Karola Schlegelmilch sýnir.
Kaffi Hótel - Hjalteyri
Guðmundur Ármann Siguijónsson sýnir til
6. júlí.
Deiglan - Akureyri
Sýningin „Erótík“ til 3. júlí.
TONLIST
Laugardagur 22. júní
Dómkórinn í Reykjavík heldur tónleika í
ísafjarðarkirkju kl. 17.
Sunnudagpir 23. júní
Lista- og menningarfélagið Dægradvöl á
Álftanesi efnirtil djasskvölds i Haukshúsum
á Álftanesi kl. 21. Strengjakvartettinn
Arctic Light Quartet í Norræna húsinu kl.
15. Gítartónleikar í Deiglunni Akureyri;
Þórólfur Stefánsson kl. 20.30.
Mánudagur 24. júní
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju; Anna
Júlíana Sveinsdóttir mezzosópran og Sól-
veig Anna Jónsdóttir píanóleikari.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Taktu lagið, Lóa lau. 22. júní, sun.
Kaffileikhúsið
Ég var beðin að koma...og „eða þannig“
lau. 22. júní, fös.
Zita og Didier frönsk revíutónlist í fiutningi
franskra listamanna fim. 27. júní.
LISTAHÁTÍÐ í
REYKJAVÍK 1996
Laugardagur 22. júní
„Gulltárþöll". Bamaleikrit með brúðum.
Borgarleikhúsið: Frumsýning kl. 14.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 22. JÚNÍ 1996