Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.1997, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.1997, Síða 10
TVISTIGANDI MILLI STEINALD^R OG BORGARLIFS EFTIR SÓLVEIGU EINARSDÓTTUR Frumbyggjar Ástralíu geta reikaó um í náttúrunni svo mánuóum skiptir en líf eftir stimpilklukku er slíkum náttúrubörnum mjög óeólilegt. Aó eiga aó gera eitthvað á ákveðnum tíma er þeim óyfirstíg- anlega erfitt. Þó hafa nokkrir þeirra menntastog eru í góðum stöðum. GETURÐU hugsað þér að lifa án sjónvarps, útvarps, geisladisks, hamborgara, tísku- fatnaðar og annars þess sem þú telur til þæginda nútímaþjóð- félags? Að skipta al- gjörlega um mataræði og lifnaðaháttu? Að sofa úti í heitum sandi? Að mála líkama þinn með skrítnum táknum? Dansa í rökkrinu við eldinn? Borða lirfur, rætur, snáka og kengúr- ur? Ef svarið er já geturðu flutt smástund í huganum til nyrsta fylkis Ástralíu sem heitir Norðursvæðið eða „Northem Territory". Þar lifa frumbyggjar Ástralíu enn í dag eins og þeir hafa gert sl. 40.000 ár og jafnvel lengur. Ástralía er gríðarlega stór. Landflæmið er risavaxið. Það sést best þegar flogið er yfir álfuna í þotu eða þegar setið er klukku- stundum — jafnvel dögum saman — í bíl til þess að komast milli staða. Algengt er að áætlunarbílar aki um nætur til þess að sóa ekki tímanum. Á Norðursvæðinu og í fleiri fylkjum Ástr- alíu eru íjallgarðar, regnskógar og eyðimerk- ur. Þar má sjá hin furðulegustu dýr; bláa, rauða eða marglita fugla; köngulær, eðlur og slöngur — sem fæstir hafa áður heyrt getið um. Röndóttir og köflóttir fiskar synda á Kóralrifmu mikla. Þar má meira að segja kynnst siðum og venjum frumbyggjanna sem eru frábrugðið öllu því sem ferðamaðurinn hefur nokkru sinni reynt. Við skulum reyna að komast að einhveijum fróðleik um þetta þeldökka fólk. Því hver veit nema nema leiðin liggi þangað einhvern tímann í framtíðinni. Um f rumbyggja Ástraliu Þeir voru löngum kallaðir Ástralíunegrar, en þótt þeir séu dökkir á hörund eru þeir ekki negrar. Talið er að þeir hafi komið á litlum bátum frá Suðaustur-Asíu fyrir um 40.000 árum eða fyrr. Þá ríkti hér annað loftslag og álfan leit allt öðruvísi út. Gífurlegt íslag lá yfir norður- og suðurp- ólnum. Hafið var 120-180 metrum lægra en nú. Strandlína Ástralíu náði langt út þar sem nú er haf og í norðri voru Bomeo, Sum- atra og Java hluti meginlands Asíu. Þegar hvítir menn komu til álfunnar (árið 1788) voru hér fyrir u.þ.b. 300.000-500.000 frumbyggjar. Þeir voru safnarar og veiði- menn á steinaldarstigi. Höfðu þróað með sér einstaka þekkingu á náttúrunni. Hæfileika til þess að lifa af — meira að segja á þurr- um, sólheitum landsvæðum. Árið 1986 voru frumbyggjar Ástralíu að- eins 227.645 talsins eða 1,5% Ástrala. Þar af er helmingur kynblendingar. Þriðji hluti frumbyggjanna býr í sveitum eða litlum þorpum með færri en eitt þúsund íbúum. Aðeins einn af hveijum fjórum býr í stærri borgum á móti sex af hveijum tíu annarra Ástrala. Alls eru íbúar Ástralíu um 17 milljónir 414 þúsund (1992) og á hverju ári flytjat u.þ.b. 150.000 innflytjendur til álfunnar, hvaðanæva úr heiminum. Frumbygginn var frábær veiðimaður. Frá barnsaldri lærði hann að þekkja slóð hvers dýrs. Kengúran var eftirlætisveiðibráð hans. Hún gaf af sér 13-45 kg af kjöti. Einnig veiddu frumbyggjarnir eðlur, snáka, ráneðlur (goanna), possum (sem e'r næturdýr, svolítið líkt apa) og emú-fugla (emúinn er stór fugl, dálítið strútslegur og ófleygur). Þegar þeir veiddu fisk í ánum eða sjónum stóðu þeir uppi á steinum eða klettum og köstuðu spjótum. Þessi spjót höfðu marga odda, oft fimm og líkust hönd eða gaffli. Þeir lifðu sem veiðimenn í litlum íjölskyldu- hópum, sem yfirleitt voru ekki stærri en 50 manns. Aðeins af sérstökum tilefnum, t.d. hátíðum, komu fleiri saman. Frumbyggjarnir birgðu sig aldrei upp af mætvælum; drápu aldrei fleiri dýr en þeir gátu borðað á fáeinum dögum. Brygðist veiði- gæfan létu þeir sér nægja rætur, smádýr og lirfur sem konumar fundu í jörðinni eða í berki trjánna. Hunang var talið sérstakt lost- æti. Líkamar þeirra aðlöguðust því að stundum var nóg að borða en á öðmm tímum sáralítið. Fóðursöfnun kvennanna var gífurlega mik- ilvæg. Þær söfnuðu betjum, ávöxtum, vatna- litljum og laufblöðum. Þær muldu hnetur í duft, blönduðu örlitlu af vatni saman við og bökuðu. Konurnar elduðu matinn undir heitri ösku við eldinn. Ofninn var gerður úr leir og litlum steinum. Ein grandvallarregla þessa þjóðlífs var að skipta fæðunni; deila með öðram og ekki að borða einn. Græðgi og eigingirni vora álitin óþolandi og ógnuðu tilveru hópsins. Þeim, sem gerðu sig seka um slíkt, var refsað harðlega. Enginn sérstakur höfðingi var yfir hópnum en almennt höfðu fullorðnu karlmennimir meira vald en konumar. Því eldri sem persón- an var þeim mun meira vald hafði hún. T.d. hafði eldri kona meira ákvörðunarvald en ungur karlmaður — einkum þó í sambandi við hátíðahöld og siðvenjur. Þannig lifðu þeir í sátt við náttúruna og náttúraöflin. Uns allt snerist á verri veg við komu hvíta mannsins. Hvíti maðurinn kom ekki aðeins með byss- ur og bólusótt heldur líka með ofbeldi og grimmd. Hann leit á frumbyggjana sem pest sem þyrfti að útrýma. Þeir vora ekki fólk. Grimmdarverk eins og að eitra mat (setja arsenik í hveiti eða kjöt) og gefa þeim þótti heillaráð. Fjöldamorð vora algeng. Ekki bara á eynni Tasmaníu, nálægt suðurströnd Ástr- alíu, þar sem útrýmingin var algjör heldur líka á meginlandinu. Fara af þessum aðföram ógnvekjandi sög- ur. Að 100 frambyggjum hafi verið smalað saman í rétt og þeir skotnir einn og einn í senn með köldu blóði er ekkert einsdæmi. Þeir frambyggjar, sem lifðu ofsóknimar af á meginlandinu, hröktust til þurrastu, heitustu og óbyggilegustu svæðanna; Mið-, Vestur- og Norður-Astralíu þar sem þeir búa flestir í dag. Ekki með öllu ósvipuð örlög og indíánar Bandaríkjanna hlutu. ÞjMsðgur frumbyggjanna Eins og forfeður okkar sátu í baðstofunni- og sögðu eða lásu sögur, þannig sitja frum- byggjarnir umhverfis eldinn enn í dag og segja sögur. Þannig hefur það verð öldum NEVILLE Bonner varð fyrstur úr röðum frumbyggja til þess að komast á þing Ástrala, The Federal Parliament, þar sem hann átti sœti 1984-89. saman. Oft þegar einhver þeirra byijar sögu sína segir hann: „Þessa sögu sagði afi minn.“ Öll þeirra viska og þekking er fólgin í þessum sögum. T.d. hvar hægt sé að finna vatn og mat. Börnin læra hvernig þau eiga að hegða sér af sögunum. Læra reglur og siði ættar sinnar. T.d. að ekki megi stela. Þegar þau hafa heyrt sögurnar nógu oft kunna þau þær utanað. Seinna kemur röðin að þeim að segja sögu við eldinn. Ýmsa Iærdóma má draga af sögunum. Talandi land Þjóðsögur og helgisagnir frumbyggjanna, sem varðveist hafa mann fram af manni með frásagnarlistinni einni saman, era í nánum tengslum við landið sjálft, einstaka staði og fyrirbæri í náttúranni. Sögumar era líka um landið þar sem fram- Iiðnir forfeður reikuðu, hvíldu sig og skópu nýja lífshætti eða urðu fyrir myndbreytingum eða hamskiptum. Heimur ferðalaga, töfra og dularfullra fyrirbæra. Sagnaþulur og hlust- endur trúðu allir sem einn þessum sögum. Gátu lesið þær úr landslaginu sem þeir ferð- uðust um. Sögumar hafa líka dýpri og leynd- ari merkingar sem aðeins er ætlað innvígðum að skilja. Hvítir menn fá aldrei að vita ýmsa leyndardóma þeirra. Augljóst er að þessar sögur segja frá heimi sem ekki gæti verið frábragðnari heimi hvíta mannsins. Lögmálin og rökvísin era önnur. Þama er ekkert því til fýrirstöðu að vera á fleiri en einum stað í einu eða hverfa og birt- ast aftur á mismunandi tímum. Þessar sögur búa margar hveijar yfir mik- illi ljóðrænni fegurð. Við heyrum um trén (pandanus), sem standa meðfram ákveðinni á. Að þau hafí í raun verið menn sem breyst hafí í tré á yfímáttúralegan hátt. Eða um steina í vatni sem ekki má snerta. Snerti einhver þá á sundi af slysni kemur flóð. I Bláíjöllum, skammt frá Sydney, era mörg gljúfur. Við eitt gljúfrið standa „Þrjár systur“ — þrír tilkomumiklir klettar. Systumar vildi giftast mönnum úr ættbálki einum en máttu ekki. Það var ekki samkvæmt reglunum. Þeir hugðust ræna systranum en þá sló í bardaga milli ættbálkanna. Systranum var breytt í steina meðan á bardaganum stóð svo þær gætu ekki flúið. Til allrar óhamingju lét galdra- maðurinn lífíð í bardaganum og enginn hefur enn getað leyst þær úr álögunum. Samkvæmt helgisögnum frumbyggjanna búa andar í vatnsbólum og stórum klettum. Frægastur í þessu samhengi er rauði risaklett- urinn sem frumbyggjarnir kalla Uluru (Ayers Rock). Hann er stærsti staki klettur heims. Uluru-kletturinn er í suðaustur frá Alice KENGÚRAN gegndi lykilhlutverki f fæðu- öflun frumbyggjanna, en þess var vel gætt að veiða ekki meira en þurfti. Springs, sem er borg í „miðri“ Ástralíu. Rís hann í um 1000 feta hæð á sléttunni. Litbrigðin eru einkar fögur við sólarapprás og sólarlag. Þá ljómar kletturinn eins og glóandi viðarköstur í arni — appelsínugult yfir í fjólublátt; yndi ferða- manna og ljósmyndara. Meðal einstæðustu nátt- úrufyrirbæra heims. Hellar Uluru eru helgidómar frumbyggjanna. Langt inni í einum hellanna býr höggormurinn Wanambi. Reiðist hann rís hann upp til himins 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 4. JANÚAR 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.