Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1997, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1997, Blaðsíða 7
Árni Eiríksson, Hans Mortensen, Borgþór Jósefsson, Davíð J. Heilmann, Friðfinnur Guðjónsson, Gunnþórunn Halldórsdóttir, Hjálmar Sigurðsson, Jónas Jónsson, Krist- ján Ó. Þorgrímsson, Sigurður Magnússon, Stefanía Guðmundsdóttir, Þóra Sigurðar- dóttir, Þorvarður Þorvarðsson og Þuríður Sigurðardóttir. Á fyrsta áratugi aldarinnar er aftur og aftur bent á það í blöðunum hvað Iðnaðar- mannahúsinu sé áfátt sem leikhúsi. Af bréfaskriftum Árna Eiríkssonar og Stefaníu Guðmundsdóttur, svo og fundargerð frá 1905, sést að talsverð hreyfing er þá með- al stúkumanna til að hrinda af stað sam- komuhúsbyggingu „í stórum stíl“. Guð- mundur Finnbogason var þess eindregið hvetjandi og svo langt náði málið, að Árni Eiríksson var kosinn í undirbúningsnefnd af hálfu félagsins og fé var lagt fram til að kosta nýjar teikningar. En sú hugsjón rann út í sandinn. Á öðrum áratugi aldarinnar skýtur aftur upp kollinum umræða um vöntun á alvöru leikhúsi; það sé „vansæmd og tjón“ fyrir ísland að eiga ekki leikhús. Indriði Einars- son fylgdi þessari skoðun eftir og hamraði á því að leikhópurinn í Leikfélagi Reykjavík- ur væri kominn til þess leikþroska, að hann ætti skilið aðra og betri aðstöðu. STEFANÍA Guðmundsdóttir og Árni Eiríksson í myndröð úr Lénharði fógeta árið 1913. Úr fórum Árna Eiríkssonar. „í nafni listarinnar; vegna íslensksþjóóemis, og vegna heiöurs þjóöarinnary krefst égþess, aö hjer veröi reist scemilegt leikhús, ogþaögert svo úr garöiy aö leikritþessara manna veröi leikin fyr hjer á landi en nokkursstaöar annarsstaöar. “ Indriði Einarsson Ótviraeóir yfirburóir Leilcfélagsins. Á stofnfundi Leikfélags Reykjavíkur - og frá honum eru liðin 100 ár í dag - voru félaginu sett lög og kosin þriggja manna stjórn. Þorvarður Þorvarðsson var formað- ur, Friðfinnur Guðjónsson skrifari og Borg- þór Jósefsson gjaldkeri. Enda þótt aðstaðan væri sumpart betri í Fjalakettinum - þar voru þá komin gasljós, -hélt Leikfélagshóp- urinn tryggð við sitt félag. Kúlissusjóðurinn lenti líka farsællega í höndum Leikfélagsins með því að þessir gripir höfðu verið afhent- ir Iðnaðarmannafélaginu til eignar og um- ráða. Aðeins einn vinsæll leikari starfaði áfram í Fjalakettinum: Ólafur Haukur Benedikts- son. Ekki lagðist heldur af með öllu leik- starfsemi í Góðtemplarahúsinu og reyndar hóf Guðrún Indriðadóttir sinn Ieikferil þar. Yfirburðir Leikfélags Reykjavíkur voru þó strax í upphafi ótvíræðir. Félagsformið var athyglisvert. Þar ríkti félagsveldi í stað þess að fela allt vald leikhússtjóra eða stjórn eins og þá tíðkaðist í Danmörku. í fyrstu var utanfélagsmaður ráðinn til að deila hlutverkum réttlátlega niður, en því var fljótlega hætt. „Leiðbeinendur“ stjórnuðu æfingum, en „leikstjóri" kom upp leikmynd og ljósum og hann sá kannski um miðasöluna einnig. Síðar kom til sögunnar „regissör", sem stjórnaði sjálfri sýningunni; sá til þess að leikarar væru tilbúnir og leik- munir á sínum stað. Borgþór Jósefsson tók þetta að sér og einnig það að draga tjaldið upp og niður. En því fylgdi að hann lék sjaldnar. Kona hans, Stefanía Guðmunds- dóttir lék þeim mun meira. Árekstrar milli manna hafa alla tíð fylgt leikhúsinu og starfsemin gekk heldur ekki hljóðalaust fyrir sig hjá Leikfélaginu á fyrstu árum þess. Áður en hægt var að koma upp fyrstu sýningunni varð ósam- komulag og ein leikkonan sagði lausu hlut- verki, sem hún var þó búin að æfa, og til- kynnti að hún væri hætt; yrði ekki með framvegis. Sættir tókust þó. Oft vildi kast- ast í kekki út af hlutverkaskipan; stundum svo að við sundrungu lá. Einkum urðu árekstrar milli leikkvennanna og Gunnþór- unn Halldórsdóttir hvarf til dæmis frá félag- inu um margra ára skeið. Fyrstu áratugina fram til 1920 komu alls fram 66 leikarar hjá Leikfélaginu, en gamli kjarninn - sjálfir burðarásarnir- voru aðeins 6-7 leikarar. I þessum kjarna voru Árni Eiríksson, Stefanía Guðmundsdóttir, Gunnþórunn Halldórsdóttir, Sigurður Magnússon og Kristján Ó. Þorgrímsson. Sveinn Einarsson telur í leiklistarsögu sinni, að í þessum kjarna hafi einnig mátt segja að væri Þóra Sigurðardóttir, kona Áma Eiríkssonar. Hún KEMUR TIL SOGUNNAR ----------- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1 1. JANÚAR 1997 T

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.