Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1997, Síða 22
ekkert hafa að gera með þetta félag lengur,“
segir Gunnþórunn herská mjög. Og Friðfinnur
Guðjónsson, sem er ritari á þessum fundi, er
svo reiður útí vinkonu sína að hann kallar
hana alltaf „leikandann“ í fundargerðarbók-
inni. En á næsta fundi hafa tekist sættir, enda
heitir hún þar ekki lengur „leikandinn, sem
þykist ekki geta þetta eða hitt“, heldur heitir
hún nú aftur Gunnþórunn. Svo skýrt og lif-
andi verður þetta fólk í vitund manns aðeins
við að lesa fundargerðir þessa tíma. Mér finnst
ég næstum heyra rödd Gunnþórunnar þegar
ég les afgerandi yfirlýsingar hennar á fundum.
Á einum stað má sjá að á tveim fundum hafa
fundarmenn verið að draga við sig að svara
beiðni frú Stefaníu Guðmundsdóttur og Árna
Eiríkssonar um að fá að leika leikrit á eigin
vegum en fá samt að nota nafn Leikfélagsins.
Er japlað fram og aftur um þetta mál, bent á
að þetta væri brot á lögum félagsins yrði þetta
leyft, en samt treystir enginn sér til að svara
afdráttarlaust. Þar til loksins Gunnþórunn
mætir á fund og fær að heyra málavexti, og
er hún þá ekkert að lúra á sinni skoðun: „Mér
finnst bara að ekki eigi að leyfa þeim þetta,“
segir hún og fundarmönnum léttir stórlega.
Ákvörðun hefur verið tekin.
Já, í þessum sal stóð líka einu sinni upp
leikari og lýsti yfir óánægju sinni með það að
engum hefði dottið í hug að hækka við sig
kaupið. Samt hefði hann leikið betur en nokk-
ur annar hjá félaginu og þessi góði leikur
hans orðið þess valdandi að aðsókn að leiksýn-
ingum þann vetur hefði aukist stórlega. Voru
fundarmenn alveg sammála um hæfni og rök-
semdarfærslu þessa leikara og samþykktu
dijúga kauphækkun til hans þar og þegar.
Ég geng nú með plastpokann minn gegnum
gamla eldhúsið í Iðnó þar sem rauðgrautur
ástarinnar var matreiddur á sínum tíma. Og
sem ég geng niður þröngan stigann sem ligg-
ur niður af leiksviðinu verður mér hugsað til
leikkonunnar sem kom hingað heim útlærð frá
Konunglega leiklistarskólanum í Kaupmanna-
höfn á þriðja eða fjórða áratug aldarinnar.
Hún var víst fyrsta lærða leikkonan sem kom
til starfa í Iðnó. Og sökum þessara menntunar-
yfirburða naut hún ekki vinsælda hjá einni af
prímadonnum hússins. Sagan segir að eitt sinn
hafi þessi unga danskmenntaða leikkona verið
á leið upp þennan bratta stiga til að fá sér
kaffisopa uppi í eldhúsi. Hún var í síðu víðu
pilsi, búningi Dísu í „Galdra Lofti“. Eldri príma-
donnan á að hafa staðið niðri á pallinum, þrifið
í pils ungu leikkonunnar, lyft því hátt upp, og
sagt við viðstadda: „Hér sjáið þið uppundir
hreina mey.“
Nei, það hefur nú svo margt breyst, hugsa
ég á leið minni niður þennan sama stiga. Leik-
arar í dag hafa orðið svo miklu meiri sálar-
þroska - og þó! Og um leið og baksviðshurðin
í Iðnó skellur á eftir mér í síðasta sinn, og ég
stend ein með plastpokann minn í Vonarstræt-
inu, verður mér á að hugsa hvort það hafi
ekki verið þessari sömu hurð sem var svipt
uppá gátt árið sem „Skálholt" var frumflutt
hér á Islandi. Og inn um þessar dyr brunuðu
flórir vaskir slökkviliðsmenn í gúmmígöllum
mundandi slönguna. Þetta var undir miðri sýn-
ingu og hefði þeim tekist að ryðja sér braut
alla leið inn á leiksvið er hætt við að þeir hefðu
gert mikinn usla. Því Ragnheiður Brynjólfs-
dóttir var rétt í þann mund að sveija eiðinn
frammi fyrir klerkaveldi Skálholtsbiskups-
dæmis. En svo vel vildi til að Þóra Borg var
einmitt stödd þarna á ganginum á leið upp á
leiksvið. Gat hún rétt stöðvað þessa vösku
menn og spurt þá erinda. Sögðu þeir henni
að nafngreind kona hefði hringt í slökkviliðið
og sagt þeim að kviknað hefði í Iðnó.
Þegar þessi kona var innt eftir því hvað
hefði komið henni til að taka uppá því að fara
að plata slökkviliðið, hafði hún svarað því til
að hún væri alfarið á móti sýningunni. Sig
hefði dreymt biskupsdótturina sem hefði sagt
sér að Kamban færi ekki alltaf rétt með leynd-
ar staðreyndir um líf sitt. Og hafði beðið vin-
konu sína þessa heims að stöðva ósómann sem
hún reyndi að gera með svo áhrifaríkum hætti.
Er ekki alltaf verið að tala um í dag að leik-
húsið þurfi að hafa hönd á púls þjóðarinnar?
Vekja fólk til viðbragða? I þá daga logaði hér
allt í spíritisma. Og af miðilsfundum færðu
menn fréttir úm skoðanir hinna framliðnu á
atburðum beggja heima. Svo ætla má að leik-
húsið sem fékk slökkviliðið í heimsókn á frum-
sýningu, hafi verið í takt við sinn tíma.
Þegar ég geng í dag framhjá Iðnó fæ ég
svolítinn sting í hjartað því frammi fyrir mér
stendur gamalt, umhirðulaust, deyjandi hús.
Því hús deyja, gefi mennirnir þeim ekki um-
hirðu og líf. „Það er svo dýrt að halda þessu
gamla húsi við,“ er svarið sem fæst, fari ein-
hver að spyija um, hvað verði um Iðnó. „Svo
gæti það orðið baggi á bænum, taki fólk uppá
því að fara að leika þarna aftur,“ heyrist einn-
ig sagt. „Við lifum á erfíðum tímum.“
Höfundurinn er leikkona. Greinin birlist í ofmæl-
isriti Félags íslenzkra léikara 1991.
SÖGULEG STUND: Leikarar Leikfélagsins á sviðinu í Iðnó að lokinni síðustu sýningu þar. Sýnd var Sveitasinfónían eftir Ragnar Arnalds.
FLUTT ÚRIÐNÓ
EFTIR GUÐRÚNU ÁSMUNDSDÓTTUR
SKYLDU þeir hafa hugsað út í
það, iðnaðarmennimir, árið
1896, þegar þeir drifu sig í það
á atvinnuleysistímum að
byggja veglegt samkomuhús
við Tjömina, að þessir innfluttu
viðarbjálkar sem þeir voru að
handleika, myndu í 90 ár nötra
léttilega undir lófataki áhorfenda og söngvum
fluttum af misjafnlega tónvissum leikurum.
Nei, ég held að fyrir þeim hafi spýtumar í
Iðnó aðeins verið úrvalsviður og örugglega
hefur einhver þeirra tautað: „Óráðsía, af fá-
tæku fólki að bruðla svo með byggingarefni.
- Og hvað ætlar bær eins og Reykjavík að
gera við slíkt stórhýsi?"
Og tæpum hundrað árum seinna stöndum
við leikarar Leikfélagsins á þessu sama leik-
sviði, stillum okkur upp í hálfhring og syngjum
svolítið saman, því við erum að kveðja húsið.
Það er vor í lofti. Við ætlum að taka hvítu
stafína sem eru utan á húsinu og sýna svo
ekki verður um villst að hér er „Leikfélag
Reykjavíkur" til húsa. Og þessa stafí ætlum
við svo að bera í fanginu, yfír í hið nýja og
glæsilega hús sem nú bíður okkar í Kringlu-
mýrinni. Það er glaðvær hópur sem skálmar
af stað í skrúðgöngu á vit nýrra ævintýra.
Það var daginn áður sem við væfluðumst
um húsið með kökk í hálsinum á meðan við
vomm að tína saman hlutina okkar, sminkbox-
in, blævængina, bjánalegu þreyttu lukkutröllin
og fígúrurnar sem héngu á speglunum. Sem
ég var að tína þetta niður í plastpoka varð
mér allt í einu litið á litla skápinn sem stóð í
hominu á klefanum mínum. Eina læsta hirslan
sem fyrirfannst í búningsherbergjunum í Iðnó.
Þennan skáp átti Þóra Borg leikkona. Hún
sagði mér að hún hefði látið smíða þennan
skáp fyrir sig árið 1938, til að geta haft sitt
dót „prívat“. Ég fór að hugsa um tímabilið sem
við Þóra áttum okkur stefnumót í þessum klefa.
Við vorum að leika í „Refunum" eftir Lilian
Hellman. Þóra lék blökkukonu í þessu leikriti
svo hún þurfti alltaf að mæta mjög snemma
til að sminka sig. En ég mætti alltaf klukku-
tíma áður en nauðsynlegt var, aðeins til að
sitja þarna hjá henni og fá hana til að segja
mér frá, hvernig var í gamla daga í Iðnó.
Þóra sagði alveg einstaklega skemmtilega frá
og ég fékk að heyra um erfíðleika frumheij-
anna við að forða kókossjörinu sem þá var
notað sem afsmink, undan ásælni frá rottum
sem litu á búningsherbergin í Iðnó sem hreina
paradís, því þau voru þá einnig notuð sem
matvælageymsla fyrir Hússtjómarskólann sem
var þá til húsa uppi á loftinu yfír leiksviðinu.
Já, það var stíll yfír leikurunum í þá daga.
Þóra, sem var dóttir aðalprímadonnu frumheij-
anna í Iðnó, frú Stefaníu Guðmundsdóttur,
sagði mér að móðir sín hefði aldrei sest til
borðs á heimili þeirra án þess að Borgþór
maður hennar drægi ekki fram stólinn fyrir
hana og biði við stólinn á meðan hún settist.
Og sem ég var farin að lygna aftur augun-
um undir frásögn Þóru og ímynda mér hve
gaman hefði verið að vera prímadonna í þá
daga og láta eiginmanninn sýna sér slík nota-
legheit áður en sest yrði að plokkfískinum,
upplýsti Þóra mig um það að leikaralaunin
hefðu verið enn lakari en nú, því móðir sín
hefði oft þurft að vinna Iangt fram á nætur,
eftir að hún kom heim úr leikhúsinu, við að
sauma líkklæði fyrir borgarbúa. Því að fyrir
stóru heimili þurfti að sjá, „og enginn gat
saumað líkklæði jafnvel og frú Stefanía", sagði
Þóra mér. „Hún hafði á þeim rétta stívelsið."
Og sem ég stóð þama í klefanum með læsta
skápnum hennar Þóru og með leikhúseigur
mínar í plastpoka, fór ég að hugsa um hvort
skemmtilegi sminkkassinn hennar væri þama
kannski ennþá, læstur inni ásamt öllum litríku
fjöðrunum, blævængjunum og nælunum sem
hún geymdi í honum. Svo kvaddi ég klefann
og skápinn og vonaði að þessir litlu leyndar-
dómar væru þama - og seinna, þegar þessi
klefí fylltist aftur af glöðum og „nervusum"
leikurum, mundi skápurinn halda áfram að
geyma sín leyndarmál.
Svo fór ég upp á loft aðeins til að kveðja
gamla fundarsalinn og kaffístofuna. Hve oft
hafði ég ekki óskað mér, þegar ég sat þama
ein og beið í hálfmyrkum salnum eftir innkomu
af svölunúm, að ég gæti séð aftur í tímann
og gæti verið stödd á fundi hjá Leikfélaginu
fyrir svona 85 árum. Við lestur á gömlu fundar-
gerðarbókunum er hægt að sjá að oft hefur
verið heitt í kolunum undir þessum stóru boga-
dregnu gluggum. Rétt eins og hjá okkur þegar
við sátum þar baráttuglöð og óskaplega ósam-
mála um hvort við ættum að þiggja lóðina sem
okkur stóð til boða í Kringlumýrinni fyrir lang-
þráð Borgarleikhús. Leikfélag Reykjavíkur
annars staðar en í gamla miðbænum og við
Tjöminalj þótti sumum fundarmanna fjar-
stæða. Ég man að áhrifaríkum slagorðum
hafði verið komið fyrir á veggjum þessa aldna
fundarsalar og á einu spjaldinu stóð: „Skal
íslensk menning í mýri grafín?“
Það er alltaf svo undarlegt að hugsa um
gömlu ágreiningsmál. Eftir á verða þau svo
léttvæg. Eitthvað sem okkur þykir spurning
um líf og dauða verður eftir nokkur ár að sjálf-
sögðum hlut. Mér verður hugsað til eins hita-
málsins sem hér var rætt um fyrir tæpri öld.
Gunnþórunn Halldórsdóttir stóð þá í eldlín-
unni. Á þeim fundi hafði hún lýst því yfir að
hún ætlaði sér hreint ekki að leika Constanse
í „Aprilsnarrene" þó svo hún væri byijuð að
æfa það. Því nú vildi hún bara umsvifalaust
hætta í Leikfélagi Reykjavíkur. „Ég vil bara
SAMLESTUR á Jesú guð dýrlingi í Iðnó.
22 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 11. JANÚAR 1997
L