Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1997, Blaðsíða 2
ISLENSK LJOÐI
ENSKUM
ÓKIN Voices From Across the
Water er komin út en hún
inniheldur þýdd ljóð eftir
Matthías Johannessen og ljóð
eftir Kristján Karlsson sem
hann hefur frumsamið á
ensku. Það er breska forlagið
Festival Books sem gefur
bókina út.
Ljóð Matthíasar eru tekin úr tveimur bók-
um hans, Árstíðaferð um innri mann (1992)
og Vötn þín og vængur (1996). Þýðendur
eru Joe Allard, prófessor við Essex-háskóla
á Bretlandi, og Bernard Scudder, þýðandi.
Þetta eru fyrstu þýðingar Aljards af íslensku
en Scudder hefur þýtt bæði íslendinga sögur
og íslenskar nútímabókmenntir.
Þýðendurnir sögðu í samtali við Morgun-
blaðið að verkið hefði verið unnið á síðasta
ári og þessu. „Við unnum þýðingarnar á frek-
ar skömmum tíma,“ segir Allard, „það var
mjög spennandi en jafnframt taugatrekkj-
andi. Sum ljóða Matthíasar voru erfiðari en
önnur í þýðingu. Hin stuttu og ljóðrænu voru
auðveldari viðfangs en hin löngu og breiðu.
Sum ljóðanna var jafnvel ómögulegt að þýða
því að þau byggja svo mikið á íslenskunni.
Matthías leikur sér mikið með málið og not-
ar líka mikið af vísunum í íslenskar bók-
menntir sem ómögulegt getur verið að koma
til skila í þýðingu."
„Það var geysilega skemmtilegt að vinna
„SUMAR-
KVÖLD
VIÐ ORGELIÐ"
í HALLGRÍMS-
KIRKJU
SUMARKVÖLD við orgelið" er
tónleikaröð sem Hallgríms-
kirkja og Listvinafélag Hall-
grímskirkju hafa staðið fyrir
undanfarin sumur. I sumar
verða haldnir samtals 30 tón-
leikar, 10 kvöldtónleikar á
sunnudagskvöldum og 20
hádegistónleikar á fimmtudögum og laugar-
dögum. Alls munu 18 organistar og einn
trompetleikari koma fram á þessum tónleik-
um.
Með tilkomu Klais-orgelsins í Hallgríms-
kirkju sem var vígt í desember 1992 sköpuð-
ust nýjar aðstæður til tónleikahalds við
kirkjuna.
Efnisskrá tónleikanna í sumar er fjöl-
breytt. Sjö erlendir organistar munu spila.
Bretamir David Briggs, dómorganisti í
Gloucester, og James Parsons og frá Þýska-
landi koma prófessor Hedwig Bilgram frá
Múnchen og munkurinn Clemens Hamber-
ger OSB, sem er aðalorganisti Múnstersc-
hwarzach-klaustursins í Bæjaraiandi. Hjón-
in Gustavo Delgado Parra og Olivia D. Go-
mes koma frá Mexíkó og frá Finnlandi kem-
ur Sixten Enlund, organisti við Gamla kyrk-
an í Helsingfors. Þá leika einnig íslenskir
organistar, þeir Bjöm Steinar Sólbergsson,
organisti Akureyrarkirkju, og Kári Þormar
og tónleikaröðinni lýkur með leik Marteins
H. Friðrikssonar, dómorganista í Reykjavík.
Trompel- og orgeltónleikar
Það er trompetleikarinn Einar St. Jóns-
son og Douglas A. Brotchie, organisti Dóm-
kirkju Krists konungs, sem hefja tónleika-
röðina sunnudaginn 29. júní kl. 17. Þeir
leika verk eftir Viviani, Telemann og Eben.
Inn á milli leikur Douglas á orgelið verk
eftir Bach og Wiederman.
Einar St. Jónsson er fastráðinn trompet-
leikari við Sinfóníuhljómsveit íslands.
Douglas A. Brotchie er fæddur í Edin-
borg í Skotlandi og starfar sem annar org-
anisti Dómkirkju Krists konungs í Reykja-
vík.
BUNINGI
að þessari þýðingu," sagði Scudder. „Við
unnum þetta hratt og skipulega og að nokkru
í sameiningu. Ljóð Matthíasar eru sum hver
erfið viðfangs en það gerði vinnuna bara
skemmtiegri."
Ljóð Kristjáns eru ort á árunum 1988 til
1991. „Af einhveijum ástæðum kom það
yfir mig um tíma að yrkja á ensku,“ sagði
Kristján í samtali við Morgunblaðið. „Það
má kannski segja að ég hafí verið að hvíla
mig frá því að yrkja á íslensku. Einnig má
vera að yrkisefnin hafi kallað á það að ég
orti á ensku. Sum ljóðanna átti ég til í upp-
kasti frá því ég bjó vestan hafs en ég get
ekki sagt að ég hafí haft neinar sérstakar
fyrirmyndir að þessum ljóðum."
GUÐRÚN Nielsen hefur
verið búsett í Englandi
undanfarin átta ár við
nám og störf á sviði
höggmyndalistarinnar
og nú fyrir skömmu
var hún ásamt tíu öðr-
um valin til verðlauna
af breska konunglega myndhöggvarafélag-
inu sem felast í ókeypis aðild að félaginu í
tvö ár. Úr þessum hópi tíu myndhöggvara
hafa nú hönnunarsamtökin Wybo Haas valið
Guðrúnu til að hanna verðlaunagrip sem
veittur verður ár hvert til listamanna sem
þykja hafa skarað fram úr. „Þeir sem hljóta
verðlaun frá Wybo Haas í komandi framtíð
fá afsteypu af verkinu mínu og þessu fylgir
einnig smápeningaupphæð og auðvitað mik-
ill heiður," sagði Guðrún í samtali við Morg-
unblaðið.
Hjálpar manni áfram
Guðrún hóf nám í höggmyndalist í Eng-
landi árið 1989 og hefur síðan einbeitt sér
algjörlega að listinni. „Ég held að það sem
vegi þyngst við verðlaun höggmyndafélags-
ins sé sú staðreynd að ég hef tekið þátt í
ERRÓ
STYRKIR
ÍSLENSKAR
LISTAKONUR
yndlistarmaðurinn
Erró sagði í samtali
við Morgunblaðið í
París í vikunni að
hann hefði ákveðið
að efna til sjóðs til
styrktar íslenskum
listakonum og hand-
verkskonum. Þetta verður minningarsjóður
um frænku hans, Guðmundu S. Kristinsdóttur
frá Miðengi í Grímsnesi. Þegar hún lést lét
hún Erró eftir íbúð í Reykjavík og andvirðið
verður stofnfé sjóðsins. Erró felur yfírmönn-
um Listasafns íslands, Akureyrar og Reykja-
víkurborgar úthlutanir og umsjá sjóðsins.
Ætlað er að veita fyrsta styrk á næsta vori
og halda svo áfram ár hvert eða annaðhvert
ár.
Fyrirkomulagið veður einfalt, að sögn Er-
rós, líkt Serra-sjóðnum, vextir notaðir í
greiðslur, sem nema munu í upphafi undir 400
þúsund krónum hvert sinn, og vonast til þess
jafnvel að sjóðnum bætist fé frá áhugafólki
um list og handverk íslenskra kvenna. Guð-
munda, sem þekkt var í Reykjavík sem Munda
í Haraldarbúð, var mikil stuðningskona kvenfé-
laga og lagði þeim til pijónles og pönnukök-
ur; þær bestu í bænum, sagði Erró, þegar
haldnar voru styrktarsölur eða fagnaðir. Guð-
munda lést í fyrra, níræð að aldri.
ótal samkeppnum og sýnt allt að sex sinnum
á ári og alltaf með eitthvað nýtt í gangi og
þetta hjálpar manni mikið áfram. Þetta ger-
ir mér kleift að koma verkum mínum að
með auðveldari hætti en áður og nú þarf
ég ekki lengur að standa sveitt og bíða eft-
ir að koma verkum mínum að á sýningum
á vegum félagsins og boð um sýningar ann-
ars staðar frá koma í auknum mæli.“ Tvisv-
ar á ári er gefin út söluskrá yfir þau verk
listamanna sem eru til sölu á vegum breska
konunglega myndhöggvarafélagsins.
„Ávinningurinn er sá að nú aukast líkurnar
á því að ég komi í verð ýmsum verkum sem
safnað hafa ryki í geymslum," segir Guðrún
og hlær við.
Guðrún vinnur einkum í tré og gifs og
aðalviðfangsefni hennar síðustu átta árin er
hreyfing sem hún bindur í geómetrísk form.
Nú í byijun júlí mun Guðrún svo taka þátt
í fjögurra daga listahátíð á bökkum Thames-
ár þar sem margt verður um að vera. „Þama
er afmarkað svæði og verður tjaldað yfír
mismunandi viðburði eins og tónlist, mynd-
list, uppákomur og einnig verður flöt tekin
undir höggmyndir og þar mun ég eiga verk,“
segir Guðrún að endingu.
MENNING
LISTIR
í NÆSTU VIKU
Þjóðmiiyasafn íslands
Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðalda-
kirkjan í Noregi og á íslandi.
Listasafn íslands
Sögn í sjón; sýning á verkum sem byggð eru
á íslenskum fornritum.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar
Árbæjarsafn
í sumar verða sýndar ljósmyndir frá Reykja-
vík, ásamt ljóðum ^skálda.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, Freyju-
götu 41
Þórdís Alda Sigurðardóttir sýnir til 6. júlí.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
íslensk myndlist til 31. ágúst.
Safn Ásgrims Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím.
Norræna húsið - við Hringbraut
Sögn í sjón til 6. júlí.
Grímur Karlsson skipstjóri: Skipslíkön til 9.
júlí.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Opin sýning í öllum sölum nema f setustofu
þar er gestur safnsins Ásgerður Búadóttir.
Til 29. júní.
Gallerí Hornið
Tolli sýnir til 9. júlí.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 19.
Ragna St. Ingadóttir sýnir til 9. júií.
Handverk og hönnun
Georg Hollanders sýnir leikföng til 14. júlí.
Mokka - Skólavörðustíg
Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir til 6. júlí.
Stöðlakot við Bókhlöðustíg
Philippe Ricart sýnir til. 7. júlí.
Gerðarsafn - Hamraborg 4, Kóp.
Ása Ólafsdóttir, íris Elfa Friðriksdóttir og
Sigurbjörn Jónsson sýna til 6. júlí.
Tuttugu fermetrar, Vesturgötu 10
Bjarni Sigurbjörnsson sýnir til 29. júní.
Hafnarborg - Strandgötu 34, Hf.
Norræn farandsýning; Flóki án takmarka. í
Sverrissal sýnir Björg Pjetursdóttir verk
unnin í flóka. Til 29. júní.
Listasafn Siguijóns - Laugarnestanga 70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Inólfsstræti 8
Roni Horn sýnir til 29. júní.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd.
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýn. til 8. ágúst.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum - Af lífi hafnfirskrar al-
þýðu til 30. sept.
TÓNLIST
Sunnudagur 29. júlí.
Einar St. Jónsson og Douglas S. Brotchie
halda tónl. f Hallgrímskirkju kl. 17.
Þriðjudagur 3. júlí.
Eyþór Ingi Jónsson heldur tónl. í Hallgríms-
kirkju kl. 12-12.30.
Elísabet Waage og Wout Oosterkamp halda
tónl. í Listasafni Siguijóns kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Fiðlarinn á þakinu lau. 28.
Borgarleikhúsið
Krókar & kimar, ævintýraferð um leik-
húsgeymsluna frá 13-18 alla daga og til
kl. 22 sýningardaga.
Tristan og Isól frums. sunn. 29. júní.
Fös. 4. júlí.
íslenska óperan
Evíta, lau. 28. júnf, fim. 3. júlí, fös. 4. júlí.
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári, fim. 10. júlí.
Hermóður og Háðvör
Að eilífu, fös. 4. júlí.
Norræna húsið
Leikhúsið Tíu fingur sýnir Sólarsögu, lau.
28., sun. 29. júní kl. 16.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsend-
ir: 5691181. Netfang: Andrea @mbl.is.
BRESKA KONUNGLEGA MYNDHOGGVARAFELAGIÐ
GUÐRÚN NIELSEN
HLÝTUR VIÐURKENNINGU
2 1ESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. JÚNÍ 1997