Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1997, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1997, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING IISHll 25. tölublað — 72. órgangur EFNI Molde í Noregi er ár hvert vettvangur skálda- stefnu, sem ber nafn Björnstjerne Björns- son. Sumarið 1996 var Thor Vilhjálmsson gestur í Molde og í síðari hluta frásagnar sinnar tíundar hann ýmislegt, sem þar flaug í huga hans, og segir af kynnum sín- um af öðrum skáldum. Sýningasumar í Evrópu eru einkunnarorð greinaflokks, sem spannar 8 síður í Lesbókinni. Þar er um að ræða frásögn Einars Fals Ingólfs- sonar í myndum og máli af ferð hans á þrjár stórar myndlistarsýningar. Fjöldi athyglisverðra sýninga hefur verið opnað- ur í ýmsum borgum Evrópu í sumar, en eignaðist Konrad Maurer í Islandsferð mesta athyglin hefur þó beinst að þremur sinni 1858. Gefandinn var Guðmundur E. sem myndlistarheimurinn hefur beðið eftir Johnsen, prófastur í Amarbæli, en mágur með óþreyju. Fyrst var Feneyjatvíæringur- hans, Jón Sigurðsson, hafði falast árang- inn opnaður, sú 102 ára myndlistaruppá- urslaust eftir bókinni. En Maurer gaf Guð- koma, með ótal þátttökuþjóðum. Þá var mundur bókina með þeim orðum, að hann komið að Documenta 10 í Kassel, en sú gæti þá farið heim með þá minningu að sýning er haldin á fimm ára fresti og er hafa heimsótt Guðmund Johnsen í Ölfusi! viðamesta úttekt á samtímalist sem haldin Jóhann J. Ólafsson rekur þessa sögu og er reglulega. Loks var Skúlptúrtíæringur- heldur svo vestur um haf; í bókasafn Harv- inn í Miinster opnaður, en þar hafa um 70 ard háskóla. Þar fær hann að handleika listamenn komið fyrir verkum víðsvegar Jónsbókarhandritið; „Lögbók Islendinga um borgina. næst eftir Járnsíðu". SYNINCA- SUMAR flSn (or " v ■ Munster ■ Kassel ÞYSKA- LAND Feneyjarn ö A, IEVROPU Myndin á forsíðunni sýnir hluta verksins „32 bílar fyrir 20. öldina: Leikió sálumessu Mozarts hljóðlega" eftir Nam June Paik. Verkið er sýnt á skúlptúrtíæringnum í Múnster, þar sem Einar Falur Ingólfsson var á ferð með Ijósmyndavélina. ROBERT BURNS HARMLJOÐ EYGLÓAR (Wae in my heart) Jón Valur Jensson þýddi Hjarta mitt syrgir, á hvörmunum tár, horfín mín gleði um löng, löng ár. í napurri einsemd er þjáning mín þung, því þögnuð er rödd hans, svo mild og svo ung. Ást, hve þú gleður! af elsku ég brann! ást, hve þú hryggir! - hve trega ég hann! En hjartað, sem blæðir í brjósti mér enn, frá blóðugri kvöl fær nú hvíldina senn. Ó að ég lifði minn unað á ný við ána og rósfagra garðinum í! Þar gengur hann um, og að mér hann gá’r - Af Eyglóar hvarmi svo strýkur hann tár. Robert Burns, 1759-1796, er þjóðskáld Skota. í KJÖLTU HEIM- SKAUTSBAUGSINS RABB Eg veit ekki hvort það er þannig almennt, en mér finnst að eftir því sem árin færast yfir mig, þótt ég sé auðvitað síungur, að ég hugsi æ meira um nátt- úru landsins, legu þess og ná- lægðina við heimskautsbaug- inn. Fyrir nokkru var ég að koma með Flugleiðaþotu heim frá Banda- ríkjunum og fylgdist með því er við flugum til móts við dagrenninguna á tæplega 900 kílómetra hraða á klukkustund. Ég hef aldr- ei upplifað það fyrr, að skynja hve „ofar- lega“ ísland er á hnettinum og stundum fannst mér næstum að ég gæti kíkt norður og austur yfir Jarðarbrúnina. Þetta var mér ógleymanleg morgunstund og það rann upp fyrir mér að við vorum búin að fylgja Golf- straumnum frá Flórídaskaganum, upp að heimskautsbaug í 10 kílómetra hæð. Fyrir nokkrum árum sagði mér Ari Trausti Guðmundsson, einn fróðasti og fjölhæfasti jarðvísindamaður landsins, að Golfstraumur- inn færi með hraða gangandi manns á leið sinn frá Flórída upp með austurströnd Bandaríkjanna fram hjá Grænlandi og að íslandsströndum. Einhvers staðar las ég svo síðar, að maðurinn gengi u.þ.b. 6 km á klukkustund, þannig að nærri lætur að Golf- straumurinn, sem menn busluðu í við Flórídastrendur t.d. 1. júlí yrði kominn hing- að til lands í kringum 10. ágúst eða þar um bil, eftir að hafa kólnað um tæplega hálfa gráðu á dag á 5.500 km ferðalagi. Mér hefur verið tíðhugsað um gæði lands- ins að undanförnu um leið og ég fylgist með er sumarið losar um hramma Vetrar kon- ungs hægt og bítandi, eiginlega ótrúlega hægt. Okkur hættir til að gleyma að landið situr bókstaflega í kjöltu heimskautsbaugs- ins og meira að segja var það sagt í gamni og alvöru að baugurinn lægi á Básum um mitt hjónarúm Alfreðs Jónssonar fyrrum oddvita Grímseyinga og frú Ragnhildar. Þar á sjálfum baugnum upplifði ég sem trillu- kall á menntaskólaárunum okkar náttúru- undur, sem aldrei líður mér úr minni. Við höfðum verið að skaka NA af Fætin- um á eyjunni í hörkufiskiríi og létum tímann hlaupa frá okkur meðan við fylltum. Við vorum í samfloti með feðgunum Óla Bjarna- syni og Garðari Ólasyni og svo Hannesi Guðmundssyni og að því er mig minnir Guðmundi syni hans. Það var logn og sól- skin og allt í einu rann upp fyrir okkur, að svo virtist sem heimurinn hefði stoppað. Múkkarnir, sem höfðu barist öskrandi um lifrina og slógið sem við hentum til þeirra í aðgerðinni, voru þagnaðir. Við litum á klukkuna, sem var að nálgast miðnætti, og sáum að himinn og haf runnu saman í björtu báli. Óli Bjarna, sem var elstur okkar, kall- aði til okkar að nú skyldum við allir draga inn og fylgjast með undrum náttúrunnar. Við vorum með 3-4 golþorska á hverjum slóða og ég var ekki sérlega hrifinn af því að hætta, en hlýddi auðvitað Óla vini mínum. Líklega eru 35 ár frá því að þetta gerðist og enn þann dag í dag á ég erfitt með að finna lýsingarorðin til tjá mig um þessa töfrastund. Sjórinn var svo sléttur, að það var vart að heyrðist gjálfur við byrðinginn, ekki heyrðist múkk í múkkanum og það var einfaldlega eins og að tíminn hefði hætt að vera til. Við fylgdumst sem í dvala með því að kollurinn á sólinni hvarf að því er virtist eitt andartak bak við sjóndeildarhringinn og svo skaut honum upp aftur. Þá var eins og hefði verið ýtt á takka og múkkinn byrjaði að öskra á mat, nú og við að draga og lífið hélt áfram. Eftir að hafa landað fullfermi og gert að fram undir morgun fórum við örþreyttir að sofa. Er við vöknuðum síðar um daginn buldi NA-rigning með kulda- nepju á glugganum svona eins og til að minna okkur á hvar í heiminum við værum stödd. Þetta virðast vera andstæðurnar sem heilla okkur íslendinga og seiða, svo að við þrífumst í raun hvergi annars staðar til nok- kurrar tímalengdar. I fyrravetur viðraði svo unaðslega að við töluðum ekki um annað en veðursældina, en í vetur var það þveröf- ugt og veðrið ætlaði alla lifandi að drepa. Allir sem vettlingi gátu valdið og áttu til þess pening, komu sér úr landi þótt ekki væri nema eina til tvær vikur og svo hringdu menn heim til að spyrja um veðrið. Útsending þáttarins Good Morning Amer- ica hér á dögunum virtist gerð við skelfi- legri veðurskilyrði, en beina útsendingin frá Everest-tindi um svipað leyti. Bandarísku sjónvarpsmennirnir, sem voru að koma hing- að frá sólarútsendingum í Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð og Finnlandi áttu ekki orð til að lýsa hrifningu sinni, þótt okkar fulltrúar reyndu að fá þá til að flytja útsendinguna í hús. Útsendingarstjórarnir bókstaflega skipuðu þáttarstjörnunum að koma sér út í veðrið. Og hver voru viðbrögðin fyrir vest- an. Jú, fyrirspurnir um ísland eru sagðar miklu fleiri en um nokkurt hinna landanna og eftir því sem Sigmar B. Hauksson sagði mér á förnum vegi á dögunum, er von á einhverjum hellingi af Hollywood-stjörnum hingað til lands með börn og buru til að skoða þetta „svala“ land. Ekki skemmdi fyrir að Jerry Seinfeld kom hér við á Evrópu- reisu til að skoða íslenskt kvenfólk og sagði í þætti Jay Lenos að hann hefði enga ófríða séð. Kannski koma þeir næst Brad Pitt og Charlie Sheen með föruneyti til að beija land og lýð augum. Kveikjan að þessu rabbi, sem komið er út um víðan völl, er samneyti mitt við Langá á Mýrum í aldarfjórðung eða svo. Ég hef á hveiju ári ráðið til starfa sérfræðinga Veiði- málastofnunar til að kanna seiðabúskap ár- innar til að reyna að spá fyrir um laxagengd á komandi ári. Á þessu tímabili hef ég upp- lifað þokkaleg veiðisumur í bland við hörm- ungar tregfiskirí, en aldrei stórveiðisumur í líkingu við 1978 og almennt góða veiði á árunum 1970-79, árið sem veturinn stóð fram í miðjan júní. Við höfum séð ána bakka- fulla af seiðum, sem skiluðu sáralitlu og síð- an að því er virtist fá seiði á stangli, sem skiluðu meðalgöngum árið eftir. I tuttugu ár gengu fáar eða engar af okkar spám eftir og ekki var að finna nokkurt samhengi milli seiðafjölda og laxagengdar. Við keypt- um seiði dýrum dómi til að setja í ána en fengum almennt engar heimtur. Allt þetta hafði kostað veiðifélagið tugi milljóna króna, en var auðvitað hluti af herkostnaði við að halda ánni í hópi bestu veiðisvæða landsins. Hins vegar voru menn orðnir langþreyttir á peningaaustri, sem nær engu skilaði. Fyrir réttum fimm árum gaf vinur minn mér eins konar laxasjá í fimmtugsafmælis- gjöf. Þetta er svolítið sérstakur kassi með speglum, þannig að þegar ég sting honum niður fyrir vatnsborðið opnast nýr heimur lífríkis árinnar. Mér er minnisstætt er ég prófaði græjurnar í fyrsta sinn 28. júlí 1992. Þá var vatnið í ánni svo blátært og skyggn- ið slíkt að ég sá bakkana á milli og við urð- um skrýtnir á svipinn ég og bandarísku veiði- félagar mínir, er við horfðumst í augu við torfu af laxi, sem menn voru búnir að kasta flugu yfir daginn út og daginn inn án þess að verða varir. Ég man að einn þeirra, efna- fræðingur að mennt og forstjóri stórfyrir- tækis, sagði: „Þetta vatn lítur út eins og dauðhreinsað eða lífvana." Þetta sumar var léleg veiði, einnig næsta sumar og vatnið var jafntært. Ég var búinn að læra vel á tækið góða að ég vissi nákvæmlega hversu margir laxar voru á mínu svæði og hvar þeir voru. Sumarið 1994 varð svo allt í einu breyt- ing. Veiðin var áfram ekkert til að hrópa húrra fyrir, en hins vegar hafði skyggnið í ánni snarversnað og liturinn á vatninu orð- inn muskulegur og ég sá rétt útlínurnar á löxunum. Þetta vor fór ég fram á Grenjadal að setja niður veiðistaðamerki og lenti þá í þvílíku bitmýi að andlitið á mér varð ein hella. Þetta hafði aldrei gerst áður. Um haustið sagði Sigurður Már Einarsson fiski- fræðingurinn okkar í Borgarnesi, að seiðin í ánni væru úttroðin á bitmýslirfum, sem hann hefði aldrei séð áður á 13 ára rannsókn- um sínum á Langá. Sumarið 1995 fór veiðin úr 900 löxum í 1.400 og 1996 í rúma 1.500 og nú virðist muskan og þar með lífríkið í ánni í meiri blóma en nokkru sinni. Veiðibyij- unin er og eftir því. Og hér komum við að kjarna málsins. Eftir að laxveiðin hér á landi hrundi í kjöl- far fimbulkuldans vorið ’79 hélt ég á lofti þeirri kenningu, að þetta kuldakast jafnaðist á við náttúruhamfarir eins og eldgos eða jarðskjálfta og einhver hlekkur í lífríki Lang- ár og nágrannaá, hefði brostið með tilheyr- andi veiðihruni. Það tæki svo náttúruna einn til tvo áratugi að laga til fyrir nýtt blóma- skeið. Ég held að það sé svipað sem gerist fyrir norðan á kuldatímum. Þegar seiðin ganga til sjávar í kaldan og fæðusnauðan sjó má líkja því við að lömbin væru rekin á fjall í október og sótt að vori. En þannig er nú aðeins lífíð 5 kjöltu heimskautsbaugsins og eina lífið sem við viljum lifa þar til næsta kuldakast kemur og móðir náttúra þarf að byija nýja uppbyggingu á rústunum. INGVI HRAFN JÓNSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. JÚNÍ1997 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.