Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1997, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1997, Qupperneq 2
KLASSÍSK RÓMANTÍK Morgunblaðið/Ámi Sæberg Á tónleikunum f Háskólabíóinu koma fram Nicholas Milton, Jósef Ognibene, Einar Jóhannesson og Nína-Margrét Grímsdóttir. HÁSKÓLABÍÓ efnir til Brahms og Schubert kammertónleika í sal 2 á morgun, annan sunnudag í aðventu kl. 20:30. Fram koma Nicholas Milton fíðluleikari, Einar Jóhannes- son klarinettuleikari, Jósef Ognibene horn- leikari og Nína-Margrét Grímsdóttir píanó- leikari. Tónleikamir verða haldnir af tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Franz Schuberts (1797-1828) og 100 ára ártíð Jóhannesar Bra- hms (1833-1897). Víða um heim er nú haldið upp á afmæli þessara tveggja tónskálda og er það vel við hæfi að dagskráin verði helguð kammertónlist. Brahms og Sehubert byggðu báðir tónlist sína á grunni klassísku stefnunn- ar en þróuðu hana á stórbrotinn hátt sam- kvæmt tónmáli rómantískra strauma nítjándu aldarinnar. Andinn á tónleikunum verður að sögn Nínu-Margrétar klassísk-rómantískur. „Bra- hms var upprunninn úr klassíkinni og stúder- aði hana mjög mikið, bæði verk Beethovens, Mozarts og Bachs. Hann sem sé kemur úr þessu umhverfi en síðan er hann auðvitað bam síns tíma eins og Schubert, báðir eru þeir því fulltrúar „klassískáletraðrar" róman- tíkur ef svo má segja.“ Á efnisskránni verða fjögur meistarverk tónskáldanna. Hin velþekkta Arpeggione Sónata Schuberts verður flutt í afar sjald- heyrðri útgáfu fyrir klarinett og píanó. „Petta gæti verið í fyrsta skipti sem þessi sónata er flutt með þessari hljóðfæraskipan hér á landi,“ segir Nína-Margrét. „Hún er yfirleitt flutt á selló en hún var samin fyrir hljóðfæri sem heitir arpeggione og er nú orðið úrelt. Þetta hljóðfæri var einhvers konar sambland af gítar og sellói. En Schubert lét fylgja með parta fyrir önnur hljóðfæri, hefur sennilega grunað að arpeggione mynd.i ekki verða vin- sælt hljóðfæri lengi.“ Ennfremur verða tvær sónötur fyrir fiðlu og píanó á efnisskránni: Sónata Brahms í A- dúr og Sónata Schuberts í D-dúr. Og tónleik- amir í Háskólabíói munu enda á tríói Brahms í Es-dúr fyrir hom, fiðlu og píanó, ópus 40, frá árinu 1865. Að loknum tónleikunum í Háskólabíói munu fjórmenningamir halda til New York þar sem þau munu flytja Brahms og Schubert efnisskrána á tvennum tónleikum. Fyrri tón- leikamir verða í CAMI tónleikasalnum í New York þann 13. des. og hinir síðari í Greertón- leikasal Bloomingdale-tónlistarskólans í New York þann 14. des. Nýstofnaður kammerhópur í Neskirk|u OKKUR til gleði og guði til dýrðar er yfir- skrift tónleika sem samnefndur kammer- hópur gengst fyrir í Neskirkju á morgun, sunnudag, kl. 17. Verða þetta fyrstu tónleik- ar hópsins, en á efnisskrá er barokktónlist í bland við íslenska sálma og sálma sem út- settir era af íslenskum tónskáldum, svo sem Jóni Leifs, Sigursveini D. Kristinssyni og Jóni Ásgeirssyni. Öm Magnússon, píanóleikarinn í hópnum, segir að hér sé á ferð aðgengileg efnisskrá fyrir fjölskylduna og hvetur hann Vesturbæ- inga og aðra landsmenn til að láta sjá sig. „Okkur konuna mína, Mörtu G. Halldórs- dóttur söngkonu, hefur lengi langað til að gera eitthvað héma í sókninni okkar og þeg- ar ég viðraði hugmynd um tónleika á að- ventunni við Halldór Reynisson sóknarprest í haust tók hann mér strax vel. Að vísu hefur hugmyndin tekið nokkrum breytingum síð- an en nú höfum við fundið henni endanlegan farveg. Tónleikamir era samstarfsverkefni hópsins og kirkjunnar." Öm segir hug hópsins standa til að gera tónleika með þessu sniði að árvissum við- burði í Neskirkju á aðventunni og jafnvel geti þeir markað upphafið að fleiri tónleik- um utan hefðbundinna messugjörða í kirkj- unni. „Pað væri virkilega ánægjulegt ef af því gæti orðið, enda fer tónlistarlíf vaxandi innan safnaðarins. Fyrir dyram stendur að kaupa nýtt orgel, Sinifóníuhljómsveit áhuga- manna hefur þama aðsetur sitt, að ekki sé minnst á kór kirkjunnar. Við erum því í góð- um félagsskap." Auk samstarfsins við Neskirkju segir Öm hópinn hafa í hyggju að koma fram víðar í framtíðinni. „Pessi hópur á vel saman og við hugsum okkur framhald á samstarfinu.“ Auk Amar og Mörtu skipa Okkur til gleði og guði til dýrðar Hildigunnur Halldórsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikarar, Herdís Jónsdóttir víóluleikari, Ásdís Amar- dóttir sellóleikari, Hávarður Tryggvason bassaleikari og blokkflautuleikaramir Ragn- heiður Haraldsdóttir og Helga Jónsdóttir. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÆFT fyrir aðventutónleikana; fremst fara Jón Rúnar Arason, einsöngvari og Bern- harður Wilkinson.stjórnandi. Jón Rúnar Arason með Fílharmóníu JÓN Rúnar Arason verður einsöngvari með Söngsveitinni Fflharmoníu á aðventutónleik- um í Langholtskirkju á morgun, sunnudag, og á þriðjudaginn 9. desember. Á tónleikun- um nýtur kórinn fulltingis kammersveitar og er Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari konsert- meistari hennar. Stjórnandi er Bernharður Wilkinson. Á dagskránni er jólatónlist af ýmsu tagi. Jón Rúnar Arason sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann myndi syngja þessa „standard tenórslagara, eins og Helga nótt, Pies Angelicus og Ave Maria. Eg var bara pantaður eins og jólasveinninn og stend mína plikt.“ Eftir áramótin syngur hann í Madame Butterfly hjá Gautaborgaróperunni, en næst syngur hann hér heima á tónleikum hjá styrktarfélagi íslenzku óperunnar og auk þess nefndi hann þátttöku í Requiem eftir Verdi í Færeyjum, sem hann sagðist hlakka mikið til. Jón Rúnar sagðist kunna bezt við sig sem sinn eiginn herra. Hann hefði getað verið kominn á fastan samning í Þýzkalandi fyrir löngu, en hann vildi það ekki. „Þetta er mih sérvizka," sagði hann og hló við. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 báða dag- ana og miðar eru seldir hjá kórfélögum, í bókabúðinni Kitju við Háaleitisbraut og við innganginn. Morgunblaðið/Ásdís KAMMERHÓPURINN nýi sem kemur fram í Neskirkju á morgun. MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Þjóðminjasafn íslands í Bogasal: Allir fá þá eitthvað fallegt. Jóla- sýning, til 5. janúar. Listasafn Islands I öllum sölum safnsins er sýning á verkum Gunnlaugs Schevings og sýnd sjónvai’ps- mynd daglega um Scheving. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sig- uijóns Ólafssonai’. Safnið verður opið sam- kvæmt samkomulagi í des. og jan. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 - Ásmundarsalur Ásmundarsalur: Hafdís Ólafsdóttir sýnir tréristur. Gryfja: Hulda B. Ágústsdóttir sýnir skartgripi. Arinstofa: Jóhannes S. Kjarval. Verk úr eigu safnsins. Allar sýn- ingar tii 7. des. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins- sonar. Kjarvalsstaðir - FlókagStu Jóhannes Kjarval í austursal. Sýning á að- fóngum safnsins árið 1997 í vestursal og miðrými. Á sýningarvegg í austursal eru sýndar húsateikningar. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða- stræti 74 Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka. Stöðlakot, Bókhlöðustfg 6 Bjarnheiður Jóhannsdóttir. Til 21. des. Dada, Art Gallery, Kirkjutorgi 4 Sölusýning á nútímalist. Einnig antikmunir frá Vestur-Afríku. Til 24. des. Norræna húsið - við Hringbraut Skartgripasýning til 31. des. Hafnarborg Brian Pilkington sýnir til 23. des. Taru Harmaala og Ása Gunnlaugsdóttir sýna skart til. 23. des. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v/Suðurgötu Handritasýning til 19. des. Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b Guðjón Ketilsson. Svartisalur: Gunnar Ámason. f Bjarta sal og Súm sal: Kristín Blöndal. Setustofa: Gestur er Rúna Gísla- dóttir. Allar sýn. til 14. des. Gallerí Fold Haraldur (Harry) Bilson. Kristberg Ó. Pét- ursson. Til 7. desember. Gallerí Hom Bjami Þór Bjamason. Til 23. des. Galleríkeðjan Sýnirými Sýnibox: André Tribbensee. Gallerí Barmur: Ráðhildur Ingadóttir. Gallerí Hlust: Gunnar Magnús Andrésson. Síminn er 5514348. Gallerí ^O^m: Gabríela sýnir til 14. desem- ber. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Toon Michiels sýnir til 14. des. Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn Guðný Magnúsdóttir og sýning á nýjum að- föngum til 21. des. Listhús 39 Strandgötu 39, Hafnarfirði Samsýning 14 listamanna. Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnarsalur „Úr heiðskíru lofti“. Landmælingar íslands. Til. 15. des. Gerðuberg Valdimar Bjarnfreðsson. Til 18. janúar. Sjómiqjasafn íslands við Vesturgötu í Hf. Almenn sýning og sýning á olíumyndum Bjarna Jónssonar. TÓNLIST Sunnudagur 7. desember Langholtskirkja: Söngsveitin Fílharmónía, kl. 20.30. Neskirkja: Kammertónleikar kl. 17. Háskólabíó: Brahms- og Schubert-tónleikar í sal 2, kl. 20.30. Þriðjudagur 9. desember: Langholtskirkja: Söngsveitin Fflharmónía, kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Grandavegur sun. 7. des. Fiðlarinn á þakinu, lau. 6. des. Borgarleikhúsið Augun þín blá, frums. lau. 6., sun. 7. des. Galdrakarlinn í Oz, lau. 6., sun 7. des. íslenska óperan Hnetubrjóturinn, nemendasýning Guð- bjargar Björgvins, lau. 6. des. Loftkastaliun Á sama tíma að ári, sun. 7. des. Skemmtihúsið Ástarsaga lau 0., sun. 7. des. Möguleikhúsið, v. Hlemm Jólin hennar ömmu, lau. 6., sun. 7. des. Leikbrúðuland, Fríkirkjuvegi 11 Jólasveinar einn og átta, sun. 6. des. kl. 15. Leiklistarskóli íslands. Nemendaleikhúsið Böm sólarinnar, iau. 6. des. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. DESEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.