Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1998, Blaðsíða 2
HELGI TOMASSON
DUSTAR RYKIÐ AF
BALLETTSKÓNUM
San Francisco. Morgnnblaðið.
SAN Francisco ballettflokkurinn,
undir stjórn Helga Tóraassonar, hóf
sextugasta og fimmta starfsár sitt
26. janúar síðastliðinn. Pað sem
einna helst gerir þetta starfsár frá-
brugðið öðrum er það að Helgi mun
sjálfur dansa með flokknum eftir að
hafa snúið sér alfarið að stjómun
fyrir þrettán árum.
Helgi, sem er 55 ára, mun dansa
hlutverk hringmeistarans í stuttum
og gamansömum ballett er nefnist
Sirkuspolkinn eftir Jerome Robb-
ins, lærimeistara Helga. Það var
einmitt Robbins sem fór sjálfur með
það hlutverk þegar ballettinn var
frumsýndur árið 1972. Tónlistin er
eftir Igor Stravinsky.
„Það verður undarlegt að dansa á
ný,“ segir Helgi í opnuviðtali dag-
blaðsins San Francisco Chronicle.
„En það verður gaman,“ bætir hann
við.
Ballettílokkurinn hefur nýlega
hafið sýningar í nýuppgerðu War
Memorial óperuhúsinu eftir tveggja
ára hlé og er Sirkuspolkinn hluti af
efnisskrá þar sem einungis verða
fluttir ballettar eftir Robbins. Beðið
hefur verið með mikilli eftirvænt-
ingu eftir nýju starfsári og hefur
flokkurinn hlotið mikla umfjöllun í
fjölmiðlum hér vestra.
Helgi lagði ballettskóna á hilluna
árið 1985. Áður hafði hann hlotið
mikið lof sem dansari hjá Joffrey
ballettinum, Harkness ballett-
flokknum og seinna hjá New York
ballettinum, þar sem hann endaði
feril sinn sem dansari. Það sama ár
tók hann svo við sem listrænn
stjómandi San Francisco ballett-
flokksins eftir að hafa hafnað boðum
um að taka við Konunglega ballett-
inum í Danmörk og Operuballetti
Parísar. Helgi hefur náð miklum ár-
angri með San Francisco ballettinn
og undir stjórn hans hefur flokkur-
inn skipað sér í fremstu röð bailett-
flokka heimsins.
HELGI Tómasson dansar á ný eftir margra ára hlé.
Tua Forsström hlýtur
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaróðs
„Ætla aS
kaupa mér
tíma til að
skrifa"
FINNLANDS-sænska skáldkonan Tua Fors-
ström hlýtur Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs árið 1998 fyrir ljóðabókina Eftir að
hafa dvalist eina nótt meðal hesta (s. Efter att
ha tillbringat en natt bland hástar). í greinar-
gerð dómnefndarinnar segir um bókina:
„Þetta er margræð ljóðabók sem lýsir í senn
kímni og sorg. Efnislega einkennist bókin af
samhengi og tónvísi. Bókin höfðar beint til
dagsins í dag.“
Jóhann Hjálmarsson, sem situr í dóm-
nefndinni fyrir hönd íslendinga ásamt Sigurði
A. Magnússyni, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að bækurnar sem tilnefndar voru
frá íslandi, Þorvaldur Víðförli eftir Árna
Bergmann og Vötn þín og vængur eftir
Matthías Johannessen, hefðu vakið mikla at-
hygli dómnefndarmanna.
Tua Forsström var stödd í Stokkhólmi í
gær og mætti á blaðamannafund sem haldinn
var eftir útnefningu hennar. Eftir að hafa
dvalið eina nótt meðal hesta er áttunda ljóða-
bók hennar en fyrsta bók hennar kom út árið
1972.
Þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin falla
Finnum í skaut. Verðlaunin verða afhent í
Gautaborg í Svíþjóð 26. febrúar. Þau nema
350.000 dönskum krónum.
Helsingfors. Morgunblaðið.
Tua Forsström, handhafi bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs, er sænskumælandi
Finni, en skáld úr þeim hópi Norðurlanda-
búa hlaut verðlaunin síðast fyrir rúmum
tuttugu árum.
Sænska síðdegisblaðið Expressen skrifaði
þegar á fimmtudaginn að Forsström væri
líkleg til að hljóta verðlaun. Samt sagðist
hún í fjölmiðlaviðtölum eftir útnefninguna í
gær vera furðu lostin og þurfa á ró og næði
að halda til að átta sig á þessu.
Forsström er um þessar mundir talin til
helstu skálda í Finnlandi sem skrifa á
sænsku. Hún segist ætla að nota verðlauna-
féð, 350.000 danskar krónur, til að kaupa sér
tíma til að skrifa, en hún vinnur til skiptis í
smábænum Ekenás á suðurströnd Finn-
lands og í Sigtuna í Svíþjóð.
Skáldskapur Forsström, sem er þjóðlegur
og hversdagslegur í senn, er talinn þaul-
hugsaður, enda segist hún endurvinna öll
ljóð allmörgum sinnum. Þessa bók sína hafi
hún endanlega skrifað á nokkrum mánuð-
um, en fyrstu drög að ljóðunum hafi hún
skrifað hjá sér í minnisbók fyrir fjölmörgum
árum.
itiíkM i:\vm;
L j» 0
EFTER ATT HA TILBRINGAT EN NATT
BLAND HÁSTAR
eftir Tua Forsström. Söderströms & co. Alberts
Bonniers Förlag AB. Helsingfors 1997.
TUA Forsström er ekki meðal afkastamestu
skálda en bækur hennar eru hver og ein afar
vel unnar og meitlaðar. Efter att ha tilbringat
en natt bland hástarer áttunda ljóðabók henn-
ar og hefur hún nú verið útnefnd til Bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1998.
Ljóðin í þessari bók eru mörg hver afar falleg
en það þarf vandlegan lestur til að kalla fram
hinn dulda galdur sem í þeim býr.
Bókin skiptist í fjóra kafla og hefst hver
þeirra á tilvitnun, oftast er vitnað til rússneska
kvikmjmdaleikstjórans Tarkovskís en einnig
er vitnað til Sextusar Propertiusar, Hómers
og Werners Aspenströms. Lesa mætti bókina
DULINN
GALDUR
sem eins konar samtal við þessa höfunda og þá
einkum Tarkovskí sem Forsström lítur á sem
sálufélaga sinn í skoðun á lífi og list.
Ljóð Forsström liggja ekki alltaf í augum
uppi þótt tónninn í þeim sé léttur og oft kím-
inn. Orðfærið er hversdagslegt og stfllinn
nálgast að vera prósaískur en það er blær orð-
anna og hrynjandin sem kveikir grun og for-
vitni lesandans um hið innra samhengi. Sem
heild hnita ljóðin svo þéttan hring um við-
fangsefni sín sem eru bæði tilfinningaleg og
samfélagsleg. Það er einmitt þessi þematíski
þéttleiki sem verðlaunadómnefndin hrósar í
greinargerð sinni við útnefningu bókarinnar
og kallar á sænsku að hún sé „tematiskt
sammanhállen".
Ljóð Forsström segja hversdagslegar sögur
með víða skírskotun. Yrkisefnin eru fjölbreyti-
leg; sorgin, þráin, fátæktin, glötuð tækifæri og
kannski umfram allt kærleikurinn og ástin
sem eru ofar öllu. Þótt hinn grái samfélagslegi
veruleiki sé áberandi þá er náttúran einnig
mikilvægt umfjöllunarefni, einkum hafið og
skógurinn. Hér er að finna samfélagslega
gagnrýni, heimspekileg ljóð, írónísk ljóð og
glettin.
Á síðasta ári komu út 200 titlar á finnlands-
sænsku en af þeim töldust 48 til fagurbók-
mennta. Bókmenntir Finnlands-Svía fylgja í
megindráttum alþjóðlegum meginstraumum í
bókmenntum. Tilraunir eru þó ekki algengar,
allra síst i lausamálsbókmenntunum og ljóða-
gerðin fylgir að mestu hinni módemísku hefð
eins og bók Forsström er raunar ágætt dæmi
um.
Þröstur Helgason
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sigur-
jóns Olafssonar. Safnið verður opið samkvæmt
samkomulagi í janúar.
Þjóðminjasafn íslands
Óþekktar ljósmyndir Sæmundar Guðmunds-
sonar í Bogasal. Til 15. febr.
Listasafn Islands
Ný aðföng. Salur 1-3. Til 3. mars.
Salur 4: Asgrímur Jónsson, Þórarinn B. Þor-
láksson, Jón Stefánsson, Jóhannes Kjai-val.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinsson-
ar.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, Freyjugötu
41
Ásmundarsalur. Riekoo Yamazaki: Japönsk
skriflist. Gryfja: Inga Rósa Loftsdóttir: Mál-
verk. Til 15. febr. Arinstofa: Ný aðfóng. Til 29.
mars.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Úr Kjarvalssafni - Sýningarstjóri Thor Vil-
hjálmsson.
Líkamsnánd, norrænt sýningar- og safn-
fræðsluverkefni til 1. mars.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum úr
Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka.
Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Til marsloka.
Nýlistasafnið
Guðrún Vera Hjartardóttir, Jón Bergmann
Kjartansson, Sólveig Þorbergsdóttir og Gretar
Reynisson. Til 15. febr.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Steinunn Helgadóttir og Kjartan Ólafsson. Úr-
val bestu frétta- og blaðaljósmynda ársins
1997. Til 1. febr.
Stöðlakot
Jóhann Jónsson. Vatnslitamyndir og teikning-
ar. Til. 8. febr.
Norræna húsið
Sýning sex ungra listamanna í myndlistarsal.
Til 15. febr.
Mokkakaffi
Gylfi Gíslason. Til 5. febr.
Ráðhús Reykjavíkur
Vaxtarbroddar. Sýning arkitekta og hönnuða.
Til 3. febr.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Jón Óskar, Harlequin. Til 4. febr.
Sýning á Ijósmyndum á almanökum frá La-
vazza. Til 6. febr.
Gallerí Horn
Söfnunarsýning til endurreisnar listasafni
Samúels Jónssonar. Til 11. feb.
Galleríkeðjan Sýnirýini
Sýnibox: Þriðja árs nemar Grafíkdeildar MHÍ.
Gallerí Barmur: Birgir Snæbjörn Birgisson.
Gallerí Hlust: Hljóðm^nd verksins „Afþreying
fyrir tvo“ eftir Pétur Órn Friðriksson. Síminn
er 551 4348.
20 m2: Birgir Snæbjörn Birgisson. Til 15. febr.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Ólafur Gíslason. Deila með og skipta. Birgir
Eggertsson, Baldur Gunnarsson, Ólafur Stef-
ánsson, Finnur Leifsson, Magnús Skúlason og
Erna Arnórsdóttir. Til 15. feb.
Gerðuberg
Valdimar Bjarnfreðsson. Til 6. febr.
TÓNLIST
Þjóðleikhúsið: Hátfðarsamkoma STEFs. M.a.
Mótettukór Hallgrfmskirkju og Sinfónfu-
hljómsveil íslands undir stjórn Petris Sakaris.
Kl. 14.
Sunnudagur 1. febrúar
Grensáskirkja: Nýi tónlistarskólinn. Kl. 17.
Langholtskirkja: Kammersveit Reykjavikur,
Arvo Párt. Kl. 20.30.
Þriðjudagur 3. fcbrúar
Gerðuberg: Blásarakvintett Reykjavíkur. Kl.
20.30.
Listasafn Islands: Einleikstónleikar Gunnars
Kvaran. Kl. 20.30.
Fimmtudagur 8. febrúar
Háskólabíó: SÍ: Einleikari Thorleif Thedéen.
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Yndisfríð og ófreskjan, sun. 1. febr.
Hamlet, sun. 1., fim. 5. febr.
Grandavegur 7, lau. 31. jan. Fös. 6. febr.
Kaffi, frums. föstud. 6. febr.
Borgarleikhúsið
Galdrakarlinn í Oz, lau. 31. jan. Sun. 1. febr.
Feður og synir, lau. 31. jan. Fös. 6. febr.
Feigir menn í pilsum, frums. mið. 4. febr.
Njála, lau. 31. jan.
Hár og hitt, fim. 5. febr.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, frums. lau. 31. jan. Sunn. 1.
febr.
Á sama tíma að ári, lau. 31. jan.
Fjögur hjörtu, sun. 1., fös. 6. febr.
íslenska óperan
Ástardrykkurinn, frums. fös. 6. febr.
Leikfélag Akureyrar
Á ferð með frú Daisy, lau. 31. jan. Fös. 6. febr.
Leikfélag Kópavogs
Með kveðju frá Yalta, lau. 31. jan.
Hafnarljarðarleikhúsið
Hermóður og háðvör
Síðasti bærinn í dalnum. Lau. 3. jan. Sun. 1.
febr.
Leikfélag Mosfellsbæjar
Stálblóm, lau. 31. jan. Sunn. 1., þrið. 3. febr.
Listaklúbbur Leikhúslyíillarans
Dagskrá um Hamlet, mán. 2. febr.
Kaffileikliúsið
Möguleikhúsið
Einar Áskell, frums. sun. 1. feb.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. JANÚAR 1998