Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1998, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1998, Síða 2
Morgunblaðið/Ámi Sæberg SVEINSSAFNI Sveinssafn - verka eins stærsta safn listamanns SVEINSSAFN, safn um verk Sveins Björns- sonar listmálara, verður formlega stofnað á sunnudaginn við opnun sýningar í Hall- grímskirkju á Passíusálmamyndum Sveins. Að sögn Erlendar Sveinsson hafa nú rösk- lega 7000 verk eftir Svein verið skráð og er safnið þar með stærsta safn verka eftir einn listamann hér á iandi. „Og enn eru ekki öll kurl komin til grafar,“ segir Erlendur. Markmið safnsins er að varðveita, skrásetja og kynna verk Sveins Björnssonar. Nú er unnið að því að koma safninu fyrir í nýju húsnæði að Trönuhrauni 1 í Hafnarfirði, þar sem verða geymsla og vinnuaðstaða. Ekki verður fjárfest í sýningarhúsnæði að sinni, heldur leitað eftir samstarfi um sýningar við þá, sem ráða sýningarsölum. Unnið er að skráningu verkanna og hafa nú um 7600 verk verið tölvuskráð, þar af 305 eftir aðra málara en Svein, og m.a. á að gera safnkostinn aðgengilegan á netinu. Að sögn Erlendar er notuð sama aðferð við skráningu safnsins og notuð hefur verið við skráningu verka Kjarvals, en til þess safns heyra rösklega 5000 verk með skissum og teikningum. Fyrirhugað er að rekstur Sveinssafns byggist einkum á styrktarframlögum, út- leigu og sölu á birtingarrétti. Sýningin í Hallgrímskirkju er fyrsta sýn- ingin, sem Sveinssafn efnir til. I Passíusálmarnir/15 Verk Braga Ás- geirssonar í SPRON SÝNING á verkum eftir Braga Ásgeirs- son listmálara verður opnuð í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Áifabakka 14 í Mjódd, á morgun, sunnudag kl. 14. „ÞETTA eru að hluta til myndir, sem ég hef unnið rólega í á undanförnum árum, en aðrar vann ég algjörlega á síðasta ári og sum- ar í einni lotu,“ svarar Bragi Ásgeirsson spumingu Morgunblaðsins um sýninguna og listamanninn. „Ein hefur sérstöðu, en er þó gott dæmi um vinnuferlið að baki sumra myndverka minna í tímans rás. Stofninn og hugmyndin var fyrir hendi eftir fjöruferðir með bömum mínum um 1970, en ég útfærði hana ekki fyrr en á miðju síðasta ári. Myndverkin geta þannig átt býsna langan aðdraganda og þar sem þetta er kynning á verkum mínum vildi ég að þessi þáttur kæmi fram og yfirleitt hvemig ég vinn í myndir um árabil. Eg vil að hver og ein mynd sé alveg sérstök en síður endurtekning eða endurómur þess sem ég var að gera áður, þótt myndefnið kunni að vera skylt. Allar era þessar myndir sóttar í hrif frá hlutveruleikanum og þannig er myndaröðin, Austrænar ásjónur, áhrif frá Kínaferð minni um árið, og ég geri ráð fyrir að flestar mynd- anna beri með sér skírskotanir til hlutlægra lifana í umhverfinu. Hugmyndin að stærstu myndinni á sýningunni, Himnaman, er sótt í teikningu frá 18. öld sem ég sá einhvern tím- ann í franskri uppboðsskrá, en hef ekki hirt að muna eftir hvem hún er, færði í stílinn og bætti ýmsu við frá eigin brjósti, eins og fugl- inum. Eg vinn afar sjaldan í myndröðum, en það Bragi Ásgeirsson er nú einmitt það sem ég hyggst stefna meira að á næstunni hvemig sem til tekst, getur allt eins verið dæmt til að mistakast. En þetta er nú að velkjast fyrir mér og hugmynd er hug- mynd og þá er að bretta upp ermarnar. Ég býst við að ég fylli þann flokk mynd- verkasmiða, sem hættir eru að hafa áhyggjur af því sem er að gerast í heimslistinni, þótt sitthvað láti mig engan veginn ósnortinn, en vinn út frá eigin hugmyndum, lifunum og skaphöfn.“ Sýning Braga mun standa til 5. júní nk. og verður opin frá kl. 9.15-16.00 alla virka daga, þ.e. á sama tíma og útibúið. Við slaghörpuna Sólrún Braga- dóttir syngur frönsk lög í Gerðarsafni :SÓLRÚN Bragadóttir og Jónas Ingimundar- son flytja franska söngva í Gerðarsafni, mánudaginn 9. febrúar kl. 20.30. Halldór Hansen flyt- ur inngangsorð og kynningar um franska sönglagið á tónleikun- um. Á efnisskrá eru lög eftir helstu höfunda Frakka, s.s. Bizet, Duparc, Povlence, Ra- vel, Satié og Fauré. Einnig verður brugðið upp tónmyndum úr frönskum óperum eftir Gounod, Massenet o.fl. Þetta eru fyrstu tónleikarnir af þremur sem fluttir verða á næstunni með franskri tónlist. Næst eru kammertónleikar með þeim Martial Nardeau, Sigrúnu Eðvalds- dóttur, Ingu Rós Ingólfsdóttur, Jönah Chang og Elísabetu Waage. Þeir verða 29. febrúar. Þriðju og síðustu tónleikarnir í þessari frönsku tónleikaröð verða 9. mars. Þá kem- ur til landsins franski píanistinn Désiré N’Kaoua, og flytur verk eftir Debussy og Ravael. MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Þjóðminjasafn íslands Oþekktar ljósmyndir Sæmundar Guðmunds- sonar í Bogasal. Til 15. febr. Listasafn Islands Ný aðfong. Salur 1-3. Til 3. mars. Salur 4: Asgrímur Jónsson, Þórarinn B. Þor- láksson, Jón Stefánsson Jóhannes Kjarval. Ásmundarsafn - Sigtúni Yfírlitssýning á verkum Ásmundar Sveinsson- ar. Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, Freyjugötu 41 Ásmundarsalur. Riekoo Yamazaki: Japönsk skriflist. Gryfja: Inga Rósa Loftsdóttir: Mál- verk. Til 15. febr. Arinstofa: Ný aðföng. Til 29. mars. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Ur Kjarvalssafni - Sýningarstjóri Thor Vil- hjálmsson. Líkamsnánd, norrænt sýningar- og safn- fræðsluverkefni til 1. mars. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74 Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Til marsloka. Nýlistasafnið Guðrún Vera Hjartardóttir, Jón Bergmann Kjartansson, Sólveig Þorbergsdóttir og Gretar Reynisson. Til 15. febr. Hafnarborg Björg Þorsteinsdóttir sýnir vatnslitamyndir og Kristján Jónsson sýnir málverk. Til 23. febr. Hallgrímskirkja, anddyri Passíusálmar Hallgríms Péturssonar í list Sveins Björnssonar. Stöðlakot Jóhann Jónsson. Vatnslitamyndir og teikning- ar. Til. 8. febr. Ráðhús Reykjavíkur Sigþrúður Pálsdóttir. Til 26. febr. Galleríi Sævars Karls, Bankastræti Margrét H. Blöndal. Til 4. mars. Gallerí Horn Söfnunarsýning til endurreisnar listasafni Samúels Jónssonar. Ti 11. feb. Galleríkeðjan Sýnirými Sýnibox: Þriðja árs nemar Grafíkdeildar MHÍ. Gallerí Barmur: Birgir Snæbjörn Birgisson. Gallerí Hlust: Hljóðmynd verksins „Afþreying fyrir tvo“ eftir Pétur Örn Friðriksson. Síminn er 551 4348. 20 m2: Birgis Snæbjarnar Birgisson. Til 15. febr. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Ólafur Gíslason. Deila með og skipta. Birgir Eggertsson, Baldur Gunnarsson, Ólafur Stef- ánsson, Finnur Leifsson, Magnús Skúlason og Erna Árnórsdóttir. Til 15. feb. SPRON, Álfabakka 14, IVb’ódd Bragi Ásgeirsson. Til 5. júní. Mokkakaffi Ljósmyndasýning Gunnars Kristinssonar. Til 5. mars. TÓNLIST Sunnudagur 8. febrúar Seltjarnarneskirkja: Strengjasveit Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Kl. 17. Grensáskirkja: Nýi tónlistarskólinn. Kl. 17. Grensáskirkja: Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík. Kl. 20. Mánudagur 9. febrúar Gerðarsafn: „Við slaghörpuna": Frönsk tónbst. Sólrún Bragadóttir og Jónas Ingimundarson. Kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Kaffi, sun. 8., mið. 11. febrúar. Meirí gauragangur, frums. 11. febr. Yndisfríð og ófreskjan, sun. 8. febr. Grandavegur 7, surt. 8., fim. 12. febr. Fiðlarinn á þakinu, fös. 13. febr. Borgarleikhúsið Galdrakarlinn í Oz, lau. 7., sun. 8. febr. Feður og synir, lau. 14. febr. Feitir menn í pilsum, lau. 7., fös. 13. febr. Hár og hitt, fös. 13. febr. Augun þín blá, fim 12. febr. íslenski dansflokkurinn: Útlagar, frums. lau. 7. febr. Fös. 13. febr. Loftkastalinn Bugsy Malone, sun. 8. febr. Fjögur hjörtu, fim. 12. febr. Listaverkið, lau. 7., fös. 13. febr. Islenska óperan Ástardrykkurinn, lau. 7. febr., fös. 13. febr. Leikfélag Akureyrar Á ferð með frú Daisy, lau. 7., fös. 13. febr. Hafnarijarðarleikhúsið Hermóður og háðvör Grafarvogskirkja Heilagir syndarar, frums. þrið. 10. febr. Mið. 11. febr. Síðasti bærinn í dalnum, lau. 7., sun 8. febr. Kaffileikhúsið Revían í den, lau. 7., fos. 13. febr. Möguleikhúsið Einar Áskell, sun. 8. febr. Nemendaleikhúsið Börn sólarinnar, sun. 8., mán. 9., fim. 12. febr Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn- ing/listir, Krínglunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning @mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. FEBRÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.