Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1998, Qupperneq 15
+
16 PEKKA PYYKÖNEN - CONNECTION
Ég fæst við það erfíði að lifá í tveimur löndum í einu. Hér er ég en þrái að fara aftur og sjá hitt
landið og ástvinina, en þegar þangað er komið þrái ég að koma til baka. Bátarnir tákna vonir
og væntingar. Þeir eru við festar en tilbúnir til farar og bíða óþreyjufullir þeirrar stundar að
verða leystir úr höfn. Blái og hvíti liturinn hefur mikla þýðingu bæði fyrir Island og Finnland.
15 BORGHILDUR ÓSKARSDÓTTIR - FLÆÐISKER
Núna þegar ég er að skila verkinu frá mér eru mér efst í huga ýmsar breytingar á útfærslu og
þróun hugmyndarinnar. í upphafí var hugmyndin nokkuð óljós. Meðgöngutíminn langur. Erf-
iðið og efnið tóku þátt í sköpuninni. Nú er hugmyndin skýi' og sýnileg. Ég hef afhent náttúr-
unni verkið til umönnunar og ætla mér að fylgjast grannt með.
>c
17 HELGA GUÐRÚN HELGADÓTTIR
SÓLSTÓLAR
Sjö sólstólar standa við laut vestan Nauthólsvíkur.
Stefna og halli hvers stólbaks miðast við stöðu sólar
á himni frá austri til vesturs. Þeir mynda hálfhring
um eina af sex sólbaðslautum sem gerðar voru fyrr
á öldinni fyrir borgarbúa sem stunduðu sól- og sjó-
böð í víkinni. Verkinu er ætlað að minna á þetta
ásamt því að vera áningarstaður fyrir vegfarendur
sem geta gert hlé á göngu sinni, tyllt sér niður, va!-lT
ið sér stól eftir stund dags og notið umhverfisins.
18 ÖRN ÞORSTEINSSON - SLEÐINN
Þegar ég hjó Sleðann í Skerjafírði nú í vor í granítið gamla frá Grænlandi varð mér hugsað til
listar fortíðar um leið og Sleðinn er tileinkaður börnum sem sækja hann heim.
19 VALBORG SALÓME INGÓLFSDÓTTIR, VALKA - KANÍNUHÚSIÐ
Ef einhver spyr hvort búið sé að reisa spillingarbæli í Öskjuhlíð þá er ekki svo. Þó er víst að *
þar takast á tvö öfl. Bleika aflið og gi'æna aflið. Jafnvel þó að arkitekt hússins hafi tekið mið af
nálægri húsagerð, staðsetningu, lífríki staðarins og veðráttu, hafa borist kvartanir. Sumum
þykir ekki sæmandi að húsið sé hurðalaust og það sem fram fari innandyra fari því fram fyrir
opnum tjöldum! Enn öðrum þykir full mikil léttúð hvíla yfir útliti hússins. En ég sem hönnuður
þess sannfæri ykkur um að þó að konur þær sem í skjóli nætur áttu rómantísk stefnumót við
bandaríska draumaprinsa hafi verið kallaðar kanínur og nafn Öskjuhlíðar oft sveipað dulúð þá
er tilgangur hússins einungis sá að veita minniháttar húsaskjól og bita á erfíðum stundum, gul-
rót fyrir að vera til sem kanína í Reykjavíkurborg.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. JÚNÍ 1998 1 5
h