Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Page 8
■ Morgunblaðið/Kristinn UNDIR fjögur augu. Daniel Munoz, sem syngur hlutverk Calafs prins, og stjórnandinn, Rico Saccani, bregða á leik á æfingu. CALAF prins (Daniei Munoz) heillast af prinsessunni Turandot (Veronika Fekete). RÖGGSAMUR stjómandinn slær tónsprotanum í púltið, telur inn. Niðurlag Turandot, þessarar ódauðlegu óperu Puccinis, tekur að hljóma. Hendur sveiflast, tónar flæða. Það er tilkomumikil sjón að sjá þetta einstaka hljóðfæri, sinfón- íuhljómsveit, í ham - hvað þá að heyra. Bang! Svo er allt búið. Blaðamanni líður eins og eftir gott steypibað, hann er endumærð- ur. Eiginlega til í allt. Kliður fer um sviðið, góð æfmg er að baki. Stjói-nandinn, Rico Saccani, þurrkar svitadropa af enninu, svarar fáeinum spumingum hljóð- færaleikara og söngvara og gengur svo hröðum skrefum fram í salinn. Þar vindur hann sér að blaðamanni, glaðbeittur á svip. „Þú ert kominn!" Blaðamaður kinkar kolli, sæll yíir því að verða ekki síðastur til skips að þessu sinni. Þá hefði hann misst af miklu. „Mikil vika,“ segir blaðamaður við stjómand- ann meðan þeir ganga til afdreps. Hann hleypir brúnum, eins og blaðamaður hafi ekki valið rétt orð: „Svakaleg vika!“ Ekki nóg með að hljómsveitin sé að glíma við Turandot í fyrsta sinn, heldur þurfti hún einnig að leika á áskriftartónleikum, með allt annarri efnisskrá, síðastliðinn fimmtudag. Upphaflega var raunar íyrirhugað að setja Turandot á svið næsta laugardag en þar sem landsfundur Sjálf- stæðisflokksins fer fram í Laugardalshöll um næstu helgi varð að flytja óperuna fram um viku. Vikan hefur því að sönnu verið tvöfóld. Af því fór Saccani ekki varhluta síðastliðinn miðvikudag, þegar viðtalið fór fram. Engan bilbug var þó á honum að finna. ,A-uðvitað hefði verið betra að hafa aðeins lengri tíma en þetta mun ganga upp enda er Sinfóníuhljómsveit Islands ekki aðeins frábær hljómsveit heldur líka hamhleypa til allra verka. ítalskar ópembókmenntir liggja líka prýðisvel fyrir henni.“ Stjórnandinn neitar því eigi að síður ekki að teflt sé á tæpasta vað að þessu sinni. „Það segir sig sjálft. Við náum bara þremur hljómsveitar- æfingum fyrfr uppfærsluna og höfum bara einn dag til æfínga í Laugardalshöll. Það er þó hátíð miðað við það sem sviðsstjórinn og tæknimenn- imir fá tii að koma þessu öllu á svið. Ákjósanleg- ur tími til að setja upp sýningu af þessu tagi er tvær til þrjár vikur, þessir menn fá einn dag. Eftir að hafa kynnst þeim ber ég aftur á móti fyllsta traust til þeirra. Sýningin er í góðum höndum.“ Sviðssetningu annastRandver Þorláksson, að- stoðarmaður hans er Astrós Gunnarsdóttir og ljósameistari Jóhann Bjami Pálmason. Hljóð er á ábyrgð fyrirtækisins Exton. Saccani segir Turandot frá fyrstu tíð hafa ver- ið vinsæla óperu, einkum meðal rótgróinna óp- eruunnenda. Vinsældimar hafi hins vegar aukist til muna í seinni tíð. „Eiga „tenóramir þrír“ þar einhvem hlut að máli en á fyrstu tónleikum þeirra um árið, 1990 eða 1991 minnir mig, söng Pavarotti aríuna góðu Nessun dorma með mikl- um tilþrifum. Vakti það mikla athygli á Turandot." Hinu sjónræna hefur sjaldan verið haldið jaín hátt á lofti og einmitt nú á tímum og segir Saccani það koma sér vel fyrir Turandot. „Þessi ópera er dálæti sviðsstjórans því umgjörðin býð- ur upp á óþijótandi möguleika, lýsingu, búninga, tæknibrellur og hvaðeina. Turandot er ávallt sannkallað sjónarspil." En hvað um tónlistina? „Hvað er hægt að segja um tónlistina?" segir Saccani og lætur hugann reika, dreyminn. „Hún er stórfengleg! Eg er vel að mér í ítölsku óperubókmenntunum AFL ÁST- ARINNAR Sinfóníuhljómsveit Islands, Kór Islensku óperunnar og einsöngvarar 1 Djóða til veislu í Laugardalshöll í dag kl. 16. Á boðstólum er óperan Turandot ef tir einn helsta meistara óperubókmenntanna, Giacomo Puccini. ORRI PÁLL ORMARSSON komst að raur í um að ekkert hefur verið til s parað til að gera þennan flutning, elleg- ar „tónleikasýningu", eins veglegan og kostur er. Stjórnandi verður Rico Saccani. ALTOUM keisari (Þorgeir J. Andrésson) ræðir við dóttur sína, Turandot. Mandaríninn (Bergþór Pálsson) hlýðir á. og Turandot er án efa ein af mínum eftirlætis óperum. Það er alltaf gaman að setja hana upp, ekki síst þegar maður hefur svona vaska sveit fólks í kringum sig.“ Saccani segir jafnframt engum blöðum um það að fletta að Turandot prinsessa sé eitt erfið- asta hlutverk sópranbókmenntanna. „í gegnum tíðina hafa afar fáar söngkonur ráðið við þetta hlutverk og í dag eru í mesta lagi sex eða sjö söngkonur sem valda því með sæmd.“ Ein þeirra, að mati Saccanis, er hin ungverska Veronika Fekete sem hingað er komin. Hún hóf starf sitt í kór Ríkisóperunnar í Ungverjalandi 22 ára að aldri. Tveimur árum síðar var hún ráð- in sem einsöngvari við óperuna og hefur sungið mörg af helstu sópranhlutverkum þar, auk þess sem hún hefur sungið sem gestasöngvari við ým- is óperuhús í Evrópu. Auk óperusöngs hefur Fekete komið fram sem einsöngvari í mörgum hljómsveitarverkum, svo sem Sálumessu Bra- hms, Verdis, Mozarts, Webbers, í 9. sinfóníu Beethovens og Carmina Burana. Fekete þreytti frumraun sína í Turandot í Búdapest fyrir tveimur árum og velkist ekki í vafa um að prinsessan sé hennar eftirlætis hlut- verk. „Tónlist Puccinis er dýrðleg, algjör ger- semi. Lífleg en um leið dularfull. Hlutverk Turandot er mjög erfitt, eitt það erfiðasta í fag- inu. Það hentar mér aftur á móti prýðilega, á vel við mína rödd, þannig að ég er lánsöm - reglu- lega lánsöm.“ Hitt aðalhlutverk óperunnar, Calaf prins, er hér sungið af Daniel Munoz frá Argentínu. Hann hlaut eldskfrn sína í Evrópu með San Carlos-óp- erunni í Lissabon fyrir tuttugu árum en þaðan hefur leið hans legið um öll helstu óperusvið Evrópu og Bandaríkjanna. Hann hefur sungið mörg helstu tenórhlutverk ópei-ubókmenntanna undir stjóm hljómsveitarstjóra á borð við Friibeck de Borgos og með söngvurum eins og José Carreras, Grace Bumbry og Ghenu Dmitrovu. Munoz söng Calaf fyrst í Þýskalandi árið 1986 og segir hlutverkið í senn erfitt og skemmtilegt. Kveðst hann nálgast það á forsendum ævintýrs- ins, svo sem sagan gefi tilefni til, það sé ekki dramatískt, eins og til dæmis Otello. En er Calaf hans uppáhald? „Nei, ekkert frekar. Ég á mér ekkert uppáhalds hlutverk. Óperan er mitt uppáhald." Munoz getur þó ekki leynt aðdáun sinni á Puccini og Turandot. „Með Turandot hófst nýtt skeið í óperusögunni, skeið sem hefði getað orðið frjótt og blómlegt. Af því varð þó ekld þai' sem Puccini lést áður en hann gat lokið verkinu. Við getum því aðeins ímyndað okkm- hvað hefði get- að orðið.“ Aðrir einsöngvarar í dag eru Sergio Fontana frá Italíu, Ungverjarnir Eszter Sumegi, Gábor Németh, Ferencz Gerdesits og István Rozsos og íslendingamir Þorgeir J. Andrésson og Bergþór Pálsson. Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitar íslands segir að auðvitað hefði ver- ið gaman að geta teflt fram fleiri íslenskum ein- söngvurum í uppfærslunni en aðstæður hafi neytt hljómsveitina til að fara aðrar leiðir að þessu sinni. Á hann þar við knappan tíma. Saccani, sem hafði umsjón með söngvaraval- inu, er á sama máli. „Þegar mér varð Ijóst hve skammur tími gæfist til æfinga lagði ég strax áherslu á að fá til liðs við okkur söngvara sem ég hef unnið með og treysti. Það myndi spara tíma. Þess vegna er þetta fólk hingað komið. Þetta eru allt frábærir listamenn.“ Alls tekur á þriðja hundi-að manns þátt í upp- færslunni og leitun er að eins viðamiklum við- burði í íslensku listalífi. „Þetta er stórt og metn- aðarfullt verkefni. Stærsta verkefni okkar á þessu starfsári og eitt það umfangsmesta sem hljómsveitin hefur ráðist í,“ segir Þröstm- Ólafs- son. „Þetta er mikill listviðburður. Þarna er Sin- fóníuhljómsveit Islands, sem er upp á sitt besta, aðalstjómandi hennar, sérhæfður í ítölskum óp- erubókmenntum, Kór íslensku óperunnar, sem er í fínu formi, og úi-valslið einsöngvara víðsveg- ar að úr heiminum. Á þessu sést að ekkert hefur verið til sparað. Að auki höfum við lagt í umtals- verðan kostnað til að bæta aðstöðu áhorfenda í Laugardalshöll og gera hljómgæði eins góð og kostur er. Lögð hefur verið áhersla á að ná góðri hljóðdreifingu, þannig að allir eiga að heyra jafn vel, sama hvar þefr sitja í húsinu. Við leggjum, í stuttu máli sagt, metnað okkai- í að gera Turandot að eins glæsilegri sýningu og við höfum fjárhagslegt bolmagn til. Ég hvet því fólk til að sjá þessa sýningu, því hér er tvímæla- laust um merkan listviðburð að ræða. Það verð- ur bið á því að Turandot verði sýnd með þessum krafti aftur á íslandi!“ Rétt er að vekja athygli á tímasetningunni, kl. 16, sem er heldur óvenjuleg fyrir óperuppfærslu. Eða hvað? „Hvaða ósköp! Þetta er frábær tími,“ segir Saccani hlæjandi. „Sýningin tekur um þrjá klukkutíma, með hléum, framkalli, blómum og öllu. Þannig að fólk getur án minnstu vand- kvæða farið út að borða að sýningu lokinni eða staðið við aðrar skuldbindingai-. Það verður meira að segja tími til að endurtaka Nessun dorma - ef eftir því verður óskað.“ Hvað á maðurinn við með „ef‘? 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. MARZ 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.