Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 13
steinflugudIsir SMÁSAGA EFTIR TRYGGVA V. LÍNDAL SIGURGEIR ÞORVALDSSON HVÍLD Myndlýsing: Guðný Svava. TÓR Chevro- let-bifreið er á leið eftir þjóð- brautinni til Missisauga. Is- lendingurinn við hliðina á bíl- stjóranum hlustar á sveitatónlistina í út- varpinu, sem passar svo vel við reyrgresislandslagið sem er að líða framhjá í kaldri morgunþokunni. Ameríska söngkonan Tanya Tucker er að syngja, og rödd hennar minnir hann á sína kæru hjá- svæfu og skólasystur frá menntaskóladögunum á Akureyri. AUt í einu stoppar bifreið- in, og Islendingurinn þýtur út í grámugguna, til að æla; í mjúkt hágresið. Hann hefur kúgast af kvíða yfír tilhugs- uninni um tölfræðitímann í líffræði sem hann er á leið- inni í. Skilur enda lítið í stærðfræði; máladeildarstúd- entinn fyrrverandi; en nemur þó líffræði af því hann elskar svo fuglana og náttúruna. („Hvað þykist þú vera að fara út í líffræðinám; máladeildar- maðurinn og skólaskáldið, sem getur ekkert í stærð- fræði?“ hafði ein bekkjarsyst- ir hans í MA líka ráðlagt hon- um.) Seinna um daginn er hann í kaffi með grísk-kanadísku bekkjarsystur sinni, Mary, í sjálfsalaher- bergi háskólans. Hann á erfitt með að venj- ast einnota plastglösunum. Pau eru að eta túnfiskssamlokur, og eins og vanalega hrífst hann af brosi hennar, mjóu mitti, og hennar dúnmjúku loðkápu úr kanínuskinni. Hún er þessa stundina að lesa yfir eitthvert bréf sitt sem hún vill ekki að hann sjái, og hann lætur sér líða vel í nemendaþvögunni. Svo stelst hann til að lesa bara svosem eina línu hjá henni: „Svo stóðst þú upp og skildir mig eftir, með mitt dunandi hjai'ta sem var að springa; en þú gast ekki skilið það; og neitaðir að skilja!" Valtýr gapir: „Þetta eru aldeilis heitar til- finningar! Eg hafði engan pata af því að svona lagað væri að gerjast innan í þér! Hverjum ert þú að skrifa þetta? Aldrei segir þú neitt svona við mig!“ Hún brosh- til hans sefandi með sínum rauða munni og ljósbrúnu augum, og segir værðarlega: „Heyrðu Walt- er minn, áttu ekki sígarettu?“ Seinna um daginn er hann á leið heim til Toronto í þéttpakkaðri skólarútunni. Hann er niðurdreginn; m.a. út af Jackie; bekkjar- systur hans sem fórst í eldsvoða; heima hjá sér; fyrir mánuði. Reykskynjarinn var víst bilaður. Hann hugsar með undarlega blendn- um tilfinningum um hvernig hennar ítur- vaxni bossi hefur kannski steikst. Skrítið hvernig dauðinn grípur inn í líf unga fólks- ins. Rétt í því sér hann út um gluggann til Mary, þar sem hún er gangandi með annarri stúlku, úti á megin háskólasvæðinu. Hann þýtur út við næstu stöð og hleypur hana uppi. Hún er að ræða óðamála við aðra stúlku á grísku sem er greinilega gömul vin- kona hennar, en sem markar hana ekki nema svona rétt mátulega, og er að reyna að hrista hana af sér. Mary litla virðist honum nú skjálfa eins og hrísla í vindi, en hin virðist vera eins og fjallið sem hríslan hennar Mary stendur á. Þær skipta yfir í ensku er hann slæst í hópinn. Hin talar um eiginmanninn sinn nýja, og hvernig hún sé á förum til framhaldsnáms í líffræði í Bandaríkjunum. „Ah, hún er líka svo gáfuð,“ segir Mary í hugaræsingi og horfir á hann í fáti; annars hugar. Það er eitthvað að ganga hérna á sem Valtýr botnar ekkert í. Strax og hann kemur heim fer hann niður í kjallara til að sinna steinflugurannsóknum sínum. Þær eru í fiskabúri, þar sem í eru einnig nokkur smásíli úr læknum sem renn- ur gegnum skóginn hjá háskólalóðinni í Missisauga, en nú eru öll dýrin dauð nema steinflugudísimar. Þær streitast við að gera armbeygjur alla daga, eins og þær eigi lífið að leysa, af því þær eru að farast úr súrefnis- skorti; og eru að reyna að fá loft í tálknin sín meðfram búknum. Þetta er mjög einföld til- raun hjá Valtý; listilega einföld að hans mati: Hann hækkar einfaldlega hitastigið um eina gi-áðu á dag í búrinu, og athugar hvað það tekur hverja dýrategund langan tíma að drepast. Mjög vísindalegt: Allt er stöðugt nema ein breyta: hitinn. Að vísu stukku sum- ir fiskamir uppúr búrinu áður en þeir drápust. En Valtýr gerir þetta í þágu vísind- anna, og ekki tjóir að vorkenna fiskunum, þegar nasistarnir gerðu miklu verri hluti í sínum tilraunum á mönnum; fyrir rúmlega þremur áratugum. Og hér lætur Valtýr sér líða vel, í rökkrinu innan um gutlandi fiskabúrstækin, og reynir að greiða úr tilfinningastraumi dagsins. Svo fer hann að hugsa um Mary: það gengur ekki alltof vel með hana. Hún virðist stundum gera sér ferð út til að versla, þegar hann kemur í heimsókn til hennar í skóbúð mömmu hennar, þar sem hún vinnur í hluta- starfi. Og einn skólafélaga hans, Kevin, sem hann granar um að vera undarlegur í kyn- ferðisáhuganum, fullyrti að hann hefði ný- lega séð einhverja sem líktist Mai-y á ein- hverju þingi hjá kynferðislegum fríþenkjur- um, fyrir norðan Toronto: þar hefði hún staðið upp og lýst yfir að hún væri frjáls manneskja sem gerði og hugsaði það sem hjartað byði. Þessu hafði hún svo þverneitað, er Valtýr krafði hana sagna, en hún gat þó heldur ekki sannfært hann um að hún hefði sængað hjá karlmanni; til þess voru ástarlýs- ingar hennar of huglægar og efnislitlar. Og svo var það bíóferðin með Mary, þar sem hún hafði neitað að kyssa hann kveðju- kossi, á neðanjarðarbrautarpallinum, á eftir. Og dylgjurnar í bflnum hjá parinu sem ók þeim þangað: „Fannst þér þú sjá nógu mikla nekt, Mary?“ „Veit Walter það?“ Og reiði- svipur þeirra þegar Mai-y sagði: „Nei, og ég dreg þig ef þú segir honum það.“ „Ég skil ekki hvað þú ert að vilja með ragludall og hugleysingja eins og mig, Walt- er,“ hafði Mary líka nokkram sinnum sagt. Og af hverju sækist þú eftir að vera með okkur Grikkjunum, en ekki með þínum lík- um; Islendingunum? Allir eiga að vera með sínum líkum.“ Jólin eru að nálgast. Vinur Valtýs, þessi með skrýtnu kynferðishugmyndirnar, hring- ir til að bjóða honum á kráarrölt. Valtýr hef- ur mikið álit á gáfum og glæsileika þessa unga manns, sem virðist í senn svo uppfullur af hugsjónaákefð og tilvistarsöknuði; víðles- ins bókamanns sem hefur komið sér upp fá- gætu siðspekibókasafni heima hjá sér (sem hann hefur hnuplað úr bókasöfnum; í kjölfar dauða föður síns; í menntaskóla), og hyggur nú á framhaldsnám í heimspekilegri líffræði í París, við fótskör meistara Foucault. Þegar hann mætir Kevin á þessari afviknu bjórkrá, virðast þeir vera nánast einu við- skiptavinirnir. Honum finnst Kevin vera óþægilega tilfinningasamur, opinn og nær- göngull núna, og Valtýr gerist var um sig. Þegar Valtýr fer að tala um Mary, hlær Kevin kaldhæðnislega, og segir að hann hafi líka heimsótt hana í skóbúðina; nýlega; til að tala við einhvern sér til hugarhægðar, eftir að mamma hans dó. Kevin fullyrðir og að Valtýr sé að gelta upp í rangt tré hvað Mary varðar. Og glottir með sínu dökka írska yfir- bragði. Svo fer hann að gera lítið úr stein- flugutilraunum Valtýs: hvað með áhrif mat- arskorts og nýs umhverfis? Og að veraleik- inn sé miklu flóknari en hægt sé að mæla með einni breytu. Barþjónninn; með hring í öðru eyranu og mjúklegur í fasi, virðist kannast við Kevin. Hann segir að hann sé að bíða eftir vini sín- um, sem ætli að sækja sig í lok vaktarinnar. Þegar til kemur reynist sá ástvinur vera karlmaður líka. Nú er Valtý nóg boðið, og vill ólmur fara að rölta af stað. Þeir Kevin skunda því þegar áleiðis. Sem þeir ganga í átt til neðanjarðarbraut- arstöðvarinnai-, heldur Valtýr tilfinninga- hlaðna ádrepu um heimspekilega sinnaða unga vísindasnillinga, sem halda að heimur- inn gangi ekki fyrir öðru en ofurmannlegi'i óskhyggju; það sé ekki þannig; heldur snúist lífið um ófrumlega vinnu meðalgáfaðs fólks og smáborgaralega eftirsókn þess eftir til- breytingarleysi. Og hann vill ekki þýðast boð Kevins um að líta við á öðrum bar þar sem framin er einhver fríþenkjandi djass- tónlist. Kevin gerist nú æ þegjandalegri. „Þú ert vitlaus, Walter," segir hann að síðustu þegar hann er sestur inn í neðanjarðarlestina og dyi-nar eru að lokast milli þeirra: „Þú sérð ekki það sem er fyrir framan nefið á þér.“ Höfundurinn er ritiiofundur og þjóðfélagsfræðingur í Reykjavík. Allir fara einhvern tíma undir græna torfu ekki til að kanna jarðveginn eða skoða sig um heldur einungis til að hvíla lúin bein. HRING- RÁSIN Haustlaufið fellur hljóðlaust til jarðar - vindurinn feykir því burt. Þannig er lífíð - kemur og fer, tíminn hylur þessi spor. Höfundurinn er fyrrverandi lögregluþjónn í Keflavík. THOMAS HOLTON FYRIR UTAN GLUGGANN MINN Hvað er það sem ég sé út um gluggann minn? Friðsælt íslenskt landslag. A þessum sunnudagsmorgni er svo margt að sjá. Það virðist sem éggeti séð eilífðina. Það er heiðskír dagur einungis skýá stangli. I fjarska sé ég fjöllin blá með hvíta tinda sem eru eins og rjómaís. Eg sé líka einn eða tvo sveitabæi og litla bletti á hreyfíngu. Litlu blettirnir eru hús, kýr og kindm\ Börn og bíla sé ég einnig. Á rennur letilega hjá hlykkjast fyrir neðan mig. Fuglarnir hópa sig og syngja fyrir mig. Dásamlegt að byrja daginn þannig. Oghugsa sér að við Bíbí kona mín eigum ótal daga eftir til að njóta. Allir heimsins fjármunir jafnast ekki á við lífíð og gleðina fyrir utan gluggann minn. Höfundurinn er bandarískur að uppruna og búsettur á íslandi. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. MARZ 1999 1 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.