Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 16
HÁRFÍN lína (The Thin Red Line) skilur milli feigs og ófeigs. Stríð og friður Regnboginr í hefur tekið stríðsmyndina Hárfín lína (The' fhin F ted Line) til sýningar en k sikstjórinn Terrence Malick hefur nánast farið huldu höfði í tvo áratugi. >ví tilefni fjallar JÓNAS KNÚTSSON um merkar stríðsmyndir í kvikmyndasögunni. SKOTGRAFAHERNAÐUR í fyrri heimsstyrjöld. Úr myndinni Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum. STRÍÐSMYNDIR eru oftast áróðursmyndir. í flestum tilvik- um er engum blöðum um það að fletta hvort höfundar þessara mynda eru æsingamenn eða menn friðar. Goethe hélt því fram að maðurinn yrði annað hvort að vera hamar eða steðji. Margur stríðsmaðurinn hefur eflaust ekki átt annars úrkosta en að gi'ípa til vopna. Stríðssögur eiga rætur sínar að rekja til söguljóða. Þremur árþúsundum fyrir Krists burð orti ónefnt skáld um garpinn Gilgames. Stríð var ill nauðsyn en glansmyndir af mann- vígum voru í þágu valdhafa. Skáld voru fengin til að mæra stríðshetjur. Virgill lýsir stríðs- hörmungum í Eneasarkviðu á raunsæjan og hispurslausan hátt. Sama máli gegnir um Ilí- onskviðu eftir hinn góða Hómer. Hvorugt skáldið reynir að fegra mannskæðar orrustur og báðir sýna stríðsguðina Ares og Mars í sinni réttu mynd. Skáldbóndinn Guðmundur Böðvarsson ju'kir af mikilli snilld um eðli stríðs í Smiðjuljóði: Inni í töfrum eldsins sé ég ógn og nauðsyn þá, sem er á, að sumir smíði sverð, en ekki ljá. Heraklítos sagði að stríð væri faðir alls sem er og konungur allra hluta en náttúruspeking- urinn virðist vísa til þess að öll fyrirbæri í sköpunarverkinu fæðist í einhvers konar ham- fórum. Rithöfundurinn Graham Greene sagði að allar framfarir yrðu á ófriðartímum. Þessu til staðfestingar benti hann á að Svisslendingar hefðu ekki staðið í stríði í hálft árþúsund og eina tillag þeirra til vestrænnar menningar væri gauksklukkan. Stríðsmyndir voru fyrst gerðar í áróðurs- skyni í fyrri heimsstyrjöld. Yfirleitt fela slíkar myndir í sér taumlausa hetjudýrkun og ala á þeirri hugsanaskekkju að menn geti unnið hvem hersigur á fætur öðrum án þess að mis- bjóða sæmd sinni. Kvikmyndamönnum hefur oft reynst erfitt að semja verk sín að duttlung- um stríðsherra. Sergei Eisenstein gerði ógleymanlega mynd um rússnesku hetjuna Alexander Nevskí sem rak tevtónskan óvina- her úr Rússlandi. Hætt var við gerð myndar- innar þegar Hitler og Stalín gerðu griðasátt- mála en Eisenstein var gert að hefjast aftur handa um leið og Þjóðverjar og Rússar rufu öll grið. Fyrr á öldinni gerði D.W. Griffíth stór- virkið Engum vægt (Intoleranee). Myndin var hátt á fjórðu klukkukstund að lengd og gríðar- stór í sniðum. Meginstef myndirinnar var að enginn er annars bróðir í leik en sagan er fjór- skipt og gerist á ýmsum tímabilum í mann- kynssögunni. Griffith lagði eigið fé undir þegar hann réðst í að gera þetta rándýra verk en þegar á hólminn var komið og myndin tilbúin til sýningar árið 1916 höfðu Ameríkumenn sætt sig við að Bandaríkin tækju þátt í hildar- leiknum í Evrópu. Friðarerindi Griffiths fór því fyrir ofan garð og neðan og leikstjórinn galt afhroð. Segir það sína sögu að tveir virt- ustu kvikmyndamenn á öldinni máttu síns lítils gegn tíðarandanum í þessum efnum. Að brytja blámenn fyrir fjandanum Stríðsmyndir hljóta að skoðast í nokkuð skrýtinni skuggsjá hér á landi. Þótt mörlandinn sé síður en svo seinþreyttur til vandræða hafa menn hér á Fróni ekki farið með ófriði á hendur hver öðrum með skipulögðum hætti frá því að land byggðist. Þess í stað söfnuðu forfeður vorir liði af einhvers konar bríaríi á árum áður og gerðu óskunda en sá siður hefur lagst af þegar fram liðu stundir. Islendingar hafa löngum látið undir höfuð leggjast að di'epa menn, nema þeim sé í nöp við þá. Sem betur fer hafa þeir ekki bor- ið andlegan þroska til að hljóta tilsögn í einu eða öðru en skipulögð mannvíg krefjast þess að menn hlýði skipunum skilyrðislaust. Snorri Sturluson segir frá mannjafnaði þeirra konunga Eysteins og Sigurðar í Heimskringlu. Eysteini farast svo orð: „Spurt hefi ek þat, at þú áttir or- rostur nökkurar útan lands, en nytsamligra var hitt landi váru, er ek gerða meðan. Ek reista fimm kii'kjur af grundvelli ... meðan þú brytj- aðir blámenn fyrir fjándanum á Serklandi. Ætla ek þat lítit gagn ríki váru.“ Rússneski björninn Rússar hafa hér pálmann í höndunum. Lenín taldi að kvikmyndirnar væru máttugasti áróð- ursmiðillinn; rússneskir leikstjórar fengu oft allt upp í hendurnar þegar þeir völdu sér hetjudáðir landa sinna á vígvellinum sem yrk- isefni. Bestu stríðsmyndir sem gerðar hafa verið voru festar á filmu í Sovétríkjunum sál- ugu. Þótt Rússar hafi framleitt legíó af áróð- ursmyndum hafa þeir forðast að draga glans- mynd af stríði. Stríð og friður og Komdu og sjáðu eru magnaðar sovéskar stríðsmyndir. Aðrar merkar myndir af sama tagi eru Sunnu- dagur í helvíti og Æska ívans eftir Tarkovskí. Stríð og friður er ein glæsilegasta stríðsmynd kvikmyndasögunnar. Hollywoodmyndin sem gerð var eftir sömu skáldsögu var ekki svipur hjá sjón. Leikarinn og leikstjórinn Sergei Bondarchuk reyndi að gera mynd af svipuðum toga um orrustuna við Waterloo en naut ekki sömu aðstöðu á Vesturlöndum auk þess sem Bondarchuk studdist ekki lengur við efni eftir Tolstoy. Bondarchuck fékk aldrei aftur tæki- færi til að gera jafnyfirþyrmandi verk og Stríð og frið. Sama má segja um höfund meistar- verksins Komdu og sjáðu, Elem Klimov. Sögu- þráðurinn í þeirri mynd minnir um margt á skáldsöguna Skræpótta fuglinn eftir Jerzy Kosinski. Segir þar frá grimmdarverkum Þjóð- verja í Hvíta Rússlandi. Rússar misstu tuttugu milljónir manna í seinni heimstyrjöld. Því 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 6. MARZ 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.