Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 15
HH<wrrM*Tí 'swc? «»Ati mwsimm&klt tm ipfniw *vi wrvt? mvuv d« w MöövuArf m *» mmxn (cwiwiifiiviaf %*it«)íS5,df«tt £ .»& frf *r^3VSsV*«f»íTf |MM»H WMMMtt íl»«*é m*Km |j*svfcxam simyéKm.um:m*mtnmmilmnm <nöí(wuo» i*KmiHA twf»i«í, ^nwjaucf i i «Kt»KÍ*fBÍ VMStW* MBMEMtf WMtWW Mtmm* w*® hmkm9: t-*i*f«iNíWiBt? w.*ii «*kSí ft iKftMwnt it* umm vvmmmmnfAm HKAFfHTVK tnm* mmf MM*m> mmiom mmm FRESKA af Inócentíusi páfa þriðja frá 13du öld í Sacro Speco í Subiaco fyrir austan Róm. og hafði yfirumsjón með samskiptum páfastóls útávið. Árið 1059 kom hann þeirri skipan á, að páfi var kjörinn af kardínálasamkundunni án íhlutunar aðals eða veraldlegra stjórnvalda, og árið 1074 fyrirskipaði hann ókvæni allra kirkj- unnar þjóna. Ári síðar forbauð hann símonsku (verslun með helga dóma, einkum eigur og embætti kirkjunnar) og áhrif leikmanna á bisk- upskjör. Leiddi það til hinnar hatrömmu og langvinnu skrýðingardeilu milli páfa og verald- legra valdhafa, einkanlega Þýskalandskeisara, um réttinn til að útnefna biskupa og ábóta. Skrýðingardeilunni lauk í Worms árið 1122 með sættargerð sem varð til að draga úr völd- um keisara. (Staðamálin íslensku á 12tu og 13du öld voru angi af hinni evrópsku kirkju- valdsstefnu.) Gregoríus hélt því fram af miklum ákafa að drottinvald páfa væri annað nafn á drottinvaldi Guðs almáttugs, og hann afréð að láta ekki staðar numið fyiren hann hefði fengið því framgengt að allt vald, bæði andlegt og verald- legt, lyti drottinvaldi páfa. Tíðarandinn var klerkaveldinu hallkæmur í þeirri baráttu. Munklífí stóð með miklum blóma. Hjátrú og hindui’vitni voru í algleymingi og auðsöfnun klerkastéttarinnar tók fram öllu sem áður hafði þekkst. Meðal þeirra sem fengu að kenna á ört vax- andi alræðishneigð páfa var Hinrik fjórði Þýskalandskeisari, sem lýstur var í bann af Gregoríusi árið 1077 og neyddur til að halda suðuryfir Alpa um miðjan vetur, ásamt konu sinni og kornungum syni, og standa í vetrar- hörkum berfættur og búinn iðrunarmöttli af líni fyrir utan hliðið á Canossakastala í þrjú dægur, þartil góðvild Matildu greifynju, sem hafði áhrifavald yfír Gregoríusi, fékk því til leiðar komið að keisaranum var leyft að koma fyrir páfa og auðmýkja sig með því að þiggja aflausn. Seinna átti Hinrik keisari eftir að hrekja Gregoríus frá Róm með þeim afleiðing- um að hann var landflótta í Salerno þegar hann kvaddi þennan heim árið 1085. Innócentius þriðji Hámarki náði alveldi páfastóls þó fyrst um daga Innócentíusar þriðja (1198-1216) sem gerði fjölmarga konunga og fursta í Evrópu háða sér. Hann skipaði sjálfur alla biskupa kirkjunnar og hafði persónuleg afskipti af öllu, stóru og smáu, jafnt háalvariegum málefnum voldugra ríkja sem einkamálum almennra borgara. Hann lýsti yfir því, að öll kaþólsk ríki væni lén páfastóls og allir konungar Íénsmenn páfa. Hann beitti vægðarlaust bannfæringum gegn öllum sem sýndu minnsta mótþróa. það er nánast hrollvekjandi að hugsa til þess, við hvaða aðstæður íbúar Vestur-Evrópu lifðu á [irettándu, fjórtándu og fimmtándu öld. Þeir voru ofurseldir alræðisvaldi, sem réð ekki ein- ungis yfir hugsunum og athöfnum sérhverrai- lifandi sálar, heldur teygði hrammana útyfir gröf og dauða og taldi sig geta ráðið eilífum famaði manna. I miðju þessu valdabákni trón- aði þríkrýndur einvaldur, óábyrgur gagnvart öllum lifandi mönnum, enda taldist hann mæla fyrir munn Guðs. Hér eru tvær tilvitnanir sem skilgreina kenn- ingarlegan grundvöll valdsins og mikilleikans sem páfastóll gerði tilkall til. Innócentíus sagði: „Einsog sólin og tunglið eru sett á festinguna, hið meira til að lýsa upp daginn, hið minna fyrir nóttina, þannig er tvöfalt vald í Kh’kjunni: páfa- valdið sem er æðra meðþví það annast sálimar, og konungsvaldið sem er óæðra meðþví það annast einungis líkama manna.“ I umburðar- bréfi, Unam sanctam (1302), segir Bónifacíus áttundi (1294-1303): „Sverðin em tvö, hið and- lega og hið tímanlega:... annað þeirra verður að vera undii- hinu - hið tímanlega undir því and- lega. ... Andlega valdið innleiddi hið tímanlega vald og dæmir hvort því valdi sé vel beitt.... Ef tímanlega valdinu fatast, þá er það dæmt af andlega valdinu. ... Þessvegna staðhæfum vér, skiigreinutn og úrskurðum að bráðnauðsynlegt sé til sáluhjálpar að trúa því, að sérhver mann- leg vera sé undirgefin Páfanum í Róm.“ Óskeikulleiki páfa Síðasta meiriháttar skrefið í þróun páfadóms var stigið á fyrsta Vatíkanþinginu í Róm árið 1870, þegar Píus páfi níundi fékk ssamþykkta sem trúarsetningu (dogmu) kenningu róm- versk-kaþólsku kh-kjunnai- um að páfinn sé óskeikull, þegar hann talar í embættisnafni (ex cathedra) um málefhi trúar og siða. Páfavalds- stefnan hafði verið á dagskrá innan kirkjunnar í kjölfar Tridentþingsins, sem haldið var 1545- 1563 í Trento á Italíu til að verjast gagnrýni siðbótarmanna, og fékk aukinn byr eftir frönsku stjórnarbyltinguna 1789, en dogman um óskeikulleik páfa komst ekki í höfn fyrren 1870. Við það tækifæri kvarnaðist úr kirkjunni þegar svonefndir gamalkaþólikkar sögðu sig úr lögum við páfastól í mótmælaskyni við dog- muna um óskeikulleik páfa og aflátskenning- una. Þeir stofnuðu eigin kh’kjudeild sem síðan hefur starfað í Þýskalandi, Áusturríki og Pól- landi, og á aðild að Alkirkjuráðinu. Hér hafa í mjög grófum dráttum verið rakin tildrög og þróun páfadóms. Enn situr páfinn í Róm og gerir tilka.ll til að vera umboðsmaður og málpípa Guðs á jörðinni, en vald hans hefur rýrnað til mikilla muna og er naumast nema skuggi af því sem forðum var. Það voru siðbót- armenn í Evrópu á sextándu öld sem brutu hryggsúlu páfavalds, mölvuðu hlekkina og inn- leiddu þann vísi að einstaklingsfrelsi sem verið hefur undirrót þess sem merkilegast hefur ver- ið afrekað í andlegum og verklegum efnum á liðnum fjórum til fimm öldum. HIN FAGRA VERÖLD ÓLAFS KÁRASONAR EFTIR EIRÍK JÓNSSON IÖÐRU hefti Tímarits Máls og menningar 1998 er grein eftir Halldór Guðmundsson útgáfustjóra sem hann nefnir: „Ofar hverri kröfu. Um fegurðarþrá í Fegurð himins- ins“. I greininni vitnar hann í minnisbók Hall- dórs Laxness frá samningu Fegurðar himins- ins, sem enn hefur ekki borist handritadeild Landsbókasafns. I minnisbókinni segir meðal annars að sögn Halldórs Guðmundssonar: Lesa mikla lýrik undir hreinritun Fegurðar- innar, Hölderlin, Stephan (svo) George, Verlaine, Baudelaire - þýða fagi’ar myndir og nota þær íslandi- séraðar. Þessar myndir hef- ur Halldór Laxness ætlað að fella íslandi- séraðar í skáldverkið, gæða það dulúðugri ljóðrænni fegurð, og - hin fagra veröld Ólafs Kárasonar lýkst upp. I ritdómi Kristins E. Andréssonar mag. art. um ljóðabók Tómasar Guðmunds- sonar, Stjörnur vors- ins, sem birtist í Tímariti Máls og menningar 1941 segir meðal annars: List Tómasar er „a pure gem-like flame“, mjög ónútímaleg, laus við siðræna al- vöru og mannúðar- kennd, skilyrðislaus dýrkun á óraunsæi, jafnvel dulúðugri ljóðrænni fegurð, eins konar framhald er- lendrar 19. aldar ljóðagerðar af skóla Verlaine og Baudelaire, og Rilke að nokkru leyti. Ef ljóðlist Tómasar Guðmundssonar er eins konar framhald af skóla Verlaine og Baudelaire, höfunda hinna fögru mynda sem Halldór Laxness hugðist þýða og fella í skáld- verk sitt, þá kynni einnig hin dulúðuga Ijóð- ræna fegurð ljóða Tómasar að hafa orðið Halldóri Laxness kveikja fagurra mynda sem hæfðu skáldverkinu. Hér verður það ekki kannað, aðeins bent á tvö hugsanleg dæmi. í samtalsbók þeirra Matthíasar Johannessen og Tómasar Guðmundssonar, svo kvað Tómas, segir Tómas meðal annars: Samt man ég ekki til að haí'a nokkru sinni ort kvæði í einni striklotu nema Morgun við Af- ríkuströnd. Ég orti það einn óvenjufagi-an morgun á Ieið um Miðjarðarhafið [...]. (bls. 69). Síðar í sömu bók segir Tómas: [...] ég kom til Þýskahtnds vorið 1935. Ég var á heimleið sunnan frá Miðjarðm-hafí [...]. (bls. 118). Ljóðið er því ort fyrri hluta árs 1935. Halldór Laxness var einn af „skáldbræðr- um og vinum“ Tómasar Guðmundssonar allt frá æskuárum þeirra að því er Tómas segir í kvæðinu „Við Laugaveginn". Um þá segir meðal annars í kvæðinu: ei leið svo kvöld að læsum við ei þar vort ljóð frá nóttinni áður. (Stjömur vorsins 1940, bls. 28) Vera má að Tómas hafi einnig síðar hal't sama hátt á, lesið eða lánað skáldbróður sín- um og vini Halldóri Laxness ljóð sín, og þá einnig sonnettuna „Morgun við Afríku- strönd". Hún birtist fyrst í tímaritinu Dvöl nokkru áður en Fegurð himinsins kom út. Ljóðið er þannig í lokagerð: í dag er eins og sólin sinni því einu að seiða fram ástljóð til vorsins í hjarta mínu, og það er eins og veröldin nenni ekki neinu nema því, sem hún aðhefst að gamni sínu. Því kornung ský fara í skemmtiferðir með blænum og skipin sigia um höfrn í meiningarleysi og ströndin speglar borgir sínar í sænum. Þar sindra í musterisdýrð hin jarðnesku hreysi. Og loksins upp af landafræðinni minni, sem ég las í bernsku en trúði’ ekki fyi-r en núna, Tómas Guðmundsson rísa þau, Atlasfjöllin í forneskju sinni. Og falleg, skínandi þorp upp til hæstu brúna, glóa sem leikföng, er saklaus börn hafa borið við barm sinn einn fagran dag út í sólina og vorið. (Stjömur vorsins 1940, bls. 90-91) Upphaf átjánda kafla Fegurðar himinsins er lýsing á áhrifum morgundýrðar á Ólaf Kárason, ljóð undir yfirskini prósa, sem minn- ir um sumt á lýsingu Tómasar Guðmundsson- ar á morgundýrð við Afríkuströnd: Þegar Ólafur Kái-a- son gekk til skips með föggur sínar morguninn eftir, þá var sólin að bræða af sér hvítar þokur næt- urinnar. Landið sem fram sté grænt og blátt úr huliðshjúpn- um, það var þesskon- ar land sem ekki minnir á nytjagripi, heldur er umfram alt skartgripur. Ys hafn- arbakkans og skröltið í skipsvindunni áttu aungva aðild í þess- um heimi. Það glitti á bríngur svifmjúkra máva einsog silfur- fugla yfir spegilhvítri ládeyðunni. Guðirnir skapa að vísu heim- inn á hverjum degi, en sjaldan hafa þeir skapað morgun einsog þennan. Þetta var hinn eini sanni morgunn. Skáldið stendur utanvið mann- þraungina og horfir frá sér numinn í grænan hillíngarbláma ljósmóðunnar þar sem þetta ódauðlega morgunland er að skapast. (Heimsljós II. 1955, bls. 282) í Afríkuljóði Tómasar og prósaljóði Hall- dórs Laxness eru lesendur þeirra staddir fjarri litleysi daganna. Skáldin skynja um- hverfið sem vitnin. Það stígur úr huliðshjúpi vanans og fegurðin ríkir ein. Slík fagraveröld hæfir fyrsta fundi þeirra Beru og Ólafs Kára- sonar. Ljóð Tómasar Guðmundsonai- „Þjóðvísa" birtist fyrst í tímaritinu Samtíðinni 1934 og síðar í Stjörnum vorsins. Ljóðið fjallar um ást sextán ára smámeyjar sem missir unnusta sinn og hinn sársaukafulla söknuð hennar. Síðari hluti ljóðsins er þannig í lokagerð: Og seinna vissi ég betur, að birtan hverfur ótt og brosin deyja á vörum. Því seinna hef ég vakað við sæng hans marga nótt. Þeir sögðu hann vera á fórum. Þá talaði hann oft um hið undarlega blóm, sem yxi í draumi sínum. Og orð, sem gáfu tungu hans törfrabjartan róm, urðu tár í augum mínum. Svo tóku þeir úr örmum mér hinn unga fagra svein og eftir var ég skilin. Við sængina hans auða ég síðan vaki ein, unz sólin roðar þilin. En systur mínar. Gangið þið stillt um húsið hans, sem hjarta mitt saknar. Ég er dularfulla blómið í draumi hins unga manns, ogégdeyefhannvaknar. (Stjörnur vorsins 1940, bls. 65) Upphaf tuttugasta og annars kafla Fegurð- ar himinsins er eins konar áhersla á gildi hins dularfulla blóms: Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæst- ir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yf- ir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörunum. Hinn ungi fagri sveinn uppgötvaði það - og sá ekki annað blóm síðan. Allan daginn hugs- aði hann um það. Þegar hann svaf dreymdi hann það - hann dó með nafn þess á vörunum. Höfundurinn er lyrrverandi menntaskólakennari. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. MARZ 1999 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.