Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1999, Blaðsíða 11
FYRIR GUÐDÓMINN og konunginn: Hefðbundin taílenzk byggingarlist í gullslegnum musterum og höllum á hólmanum Rattanakosin í Bangkok.
Mörg lýsingarorð geta
átt við Bangkok. Hún er
bœði háreist og lágreist,
vtða glœsileg en annars
staðar ömurleg og and-
stæðurnar blasa alls
staðar við, t. d. í must-
erum og höllum frá liðn-
um öldum. „Feneyjar
austursins “ hafa breyzt í
nútíma bílaborgpar sem
umferðin er martröð.
VÍTISELDASKARÐ - Hell Fire Passage - Svo nefndu stríðsfangar Japana þetta skarð sem þeir
voru látnir höggva með handverkfærum fyrir „járnbraut dauðans" 1943. Meira en 100 þúsund
stríðsfangar létu lífið við brautarlagninguna.
HELGASTA helgimynd þjóðarinnar, Emerald
Búdda. Konungurinn skiptir um búning á
styttunni þrisvar á ári.
GULL-BÚDDA, 5 tonna, 3m há stytta úr gulli
í musterinu Wat Tramit.
UMFERÐIN í Bangkok þykir oft ganga með
hraða snigilsins. Til hliðar við götuna er und-
irstöður tveggja hæða hraðbrautar suður frá
Bankok, sem á að bæta úr umferðaraung-
þveitinu.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. MARZ 1999 1 1