Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1999, Blaðsíða 12
MINNISPUNKTAR FRÁ TAÍLANDI - 4. OG SÍÐASTl HLUTl
TRÚIN ER SNAR ÞÁTTUR
I LIFI TAILENDINGA
EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
Hluiverk munka er geysilega [ )ýðingarmikið í | þessu trú-
arsamfélagi. Það er heilög sk> 'lda að hver einasti ungur
maður lætur krúnuraka sig, klæðist munkakufli og býr í
klaustri einhvern tíma. Það getur skemmst verið vika,
oftar þó hólft ór, eða jafnvel allt lífið.
20
Fomleifar hafa leitt í ljós samfellda
byggð í Taflandi í 20 þúsund ár,
en ugglaust hafa menn búið þar
margfalt lengur. Frumbyggjar
landsins voru líklega ekki
mongólskir, heldur pólynesískir,
þ.e. af eyjum í Kyrrahafinu og
einnig með svörtu ívafí. Ummerki
hafa fundizt um háþróaða menningu í Norð-
austur-Taflandi frá því um 3.600 f. Kr.
Á löngum tíma komu hinir raunverulegu
Taflendingar til landsins norðan úr fjalldöl-
um Kína og hin viðtekna kenning er sú að
þeir hafi flúið undan ágangi Mongóla. Þróun
þjóðfélaga í allri Suðaustur-Asíu hefur hins
vegar orðið fyrir margs konar trúarlegum og
listrænum áhrifum frá Indlandi.
Þegar á 6. öld varð til konungsríki á slétt-
unni við Miklafljót og þá var tekinn upp
Teravada-búddismi, sem landsmenn hafa að-
hyllst síðan. Tvö konungsríki urðu til síðar,
en það var þegar Sturlungaöld ríkti á Islandi
að þjóðin sameinaðist og fékk þá bæði kon-
ung og höfuðstað.
Onnur tímamót urðu 1782 þegar Rama I
af Chakri-konungsættinni komst til valda og
gerði Bangkok að höfuðborg í stað Ayutt-
haya, sem áður hafði verið höfuðstaður. Þá
var lagður grundvöllur að höllum og muster-
um og stríðsfangar frá Laos og Kambódíu
hafðir í þrældómi við framkvæmdir. Þeir
ríktu síðan hver af öðrum, Rama II, III og
IV; sá síðasti heimsfrægur vegna þess að
Hollywoodkvikmynd með Yul Brynner í að-
alhlutverki fjallaði um hann og túlkaði hann
sem bersköllótt varmenni. Það var fjarri
sanni og því hefur þessi kvikmynd verið
' bönnuð í Taflandi.
21
Sá konungur sem nú ríkir í Taflandi,
Bhumibol, er ekki ekki í beinan karllegg frá
hinum Römunum. Ástæðan er sú að skömmu
eftir heimsstyrjöldina, eða 1946, fannst An-
anda konungur myrtur í rúmi sínu og hafði
verið skotinn. Það var hulin ráðgáta hver
morðinginn gat verið, en réttlætinu var full-
nægt með því að einn úr þjónaliðinu var tek-
inn af lífi. Hinn látni lét ekki eftir sig son og
niðurstaðan varð sú að Bhumibol bróðir
hans, sem þá var við laganám í Sviss, var
krýndur konungur 1950 og hefur ríkt síðan.
Bhumibol var á sínum yngri árum svo lið-
tækur djassleikari að hann lék opinberlega
með hljómsveit Dukes Ellingtons. Hann hef-
ur reynzt farsæll þjóðhöfðingi, en er nú kom-
inn yfir sjötugt. Hann á að vísu son sem telst
réttborinn til ríkiserfða, en meinið er að son-
urinn hefur ákaflega illt orð á sér; þykir ein-
hverskonar „mafioso“, og nú er talað um að
uppreisnarástand gæti skapazt ef hann yrði
krýndur. Dóttir konungshjónanna er hins
vegar afar vinsæl í landinu, en henni stendur
víst ekki til boða að erfa krúnuna.
Bhumibol hefur að ýmsu leyti stigið niður
af þeim háa tróni sem konungstigninni hafði
fylgt og má nefna til dæmis, að víðáttumikl-
um görðum umhverfis konungshöllina lét
hann breyta í tilraunareiti fyrir landbúnað.
Það hefur þó ekki komið í veg fyrir persónu-
dýrkun á konunginum sem virðist landlæg í
Taflandi. Myndir af honum eru um allar
trissur, en út yfir allan þjófabálk tekur að sjá
röð risastórra litmynda af Bhumibol og fjöl-
BHUMIBOL konungur á krýningardaginn
1950. Hann var þá ungur maður við nám í
Sviss, en var kallaður heim til að takast á
hendur konungstign eftir að konungurinn,
frændi hans, var myrtur. Bhumibol hefur
reynzt farsæll þjóðhöfðingi, en er nú kominn
yfir sjötugt.
UNGIR munkar við íhugun. í Taílandi eru um 300.000 munkar og allir ungir menn gerast
munkar í skamman tíma, fáeinar vikur eða hálft ár.
HVERSDAGSLEG sjón við bænastaði úti á götum eða inni í musterum: Taílenzk kona hneigir
sig frammi fyrir mynd af Búdda og býður fram fórnargjöf, blóm og ávexti.
skyldu hans, sem komið er fyrir í viðhafnar-
römmum milli akreina á einni af aðalgötum
Bangkok. Svo mjög þurfa landsmenn að
fylgjast með þessari tignu fjölskyldu, að ein
af sjónvarpsstöðvum landsins endar á hverj-
um einasta degi dagskrá sína með fréttum af
því hvað konungsfjölskyldan aðhafðist þann
daginn.
22
Lengst af í marga áratugi fóru herforingj-
ar með völdin ásamt með konungi. Þar kom
þó árið 1980 að víðsýnn herforingi ákvað að
deila völdum með kjörnu þjóðþingi og síðan
1992 hefur þingið kosið forsætisráðherra
sem fer með völd. Flokkar og flokkasam-
steypur koma og fara og þykja sjaldnast
hafa sannfærandi stefnu. Persónuleiki ein-
stakra manna þykir ráða mestu, svo og fjár-
magn. Svo er sagt að menn skipti um flokka
eins og skó.
Frá fornu fari er karlaveldi ríkjandi í Ta-
ílandi. Staða kvenna þykir þó að ýmsu leyti
skárri þar en til að mynda í Indlandi, Japan
og Kína og kosningarétt fengu taílenzkar
konur 1932.
Mörg dæmi eru um að taílenskar konur
séu forstjórar stórfyrirtækja og eru sagðar
ýmsar gamansögur af Japönum, sem gengur
illa að átta sig á því að konur séu ekki ein-
ungis upp á punt á forstjóraskrifstofum og
hafi raunveruleg völd. Gagnstætt því sem
gerist hjá lágstéttinni gætir yfirstéttin þess
að dæturnar í fjölskyldunni fái sömu mennt-
un og synirnir og í háskólum landsins er
nokkurn veginn jafn fjöldi karla og kvenna.
Réttindi kvenna eru þó ekki að öllu leyti til
jafns við karla og má benda á að kona getur
ekki krafizt skilnaðar vegna framhjáhalds
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 13. MARZ 1999