Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2000, Page 2
Caput frumflytur Kópíu
eftir HaukTómasson
CAPUT-tónleikar verða haldnir í Salnum í
Kópavogi annað kvöld, sunnudagskvöld, kl.
20.30. mars. Camilla Söderberg blokkflautu-
leikari frumflytur Sononymus II eftir Hilmar
Þórðarson, Tatu Kantomaa harmónikkuleikari
flytur Wood-Spirit eftir Staffan Mossenmark
og CAPUT hópurinn frumflytur Kópíu eftir
Hauk Tómasson. Þá verða ílutt af DVD nokkur
stutt tón-/myndverk eftir hollenska listamenn.
Verkin eru úr svokölluðu Flash marg-
miðlunarverkefni Bifrons stofnunarinnar sem
Þóra Kristín Johansen semballleikari veitir for-
stöðu og var frumsýnt í Stejdelijk listasafninu í
Amsterdam. Má þar m.a. sjá konu sem syngur í
kafi í 7 mínútur á 4 metra dýpi og hænu á dýra-
geðveikrahæli á Indlandi.
Verki eytt að
loknum tónleikum
Sononymus II eftir Hilmar Þórðarson er
samið að beiðni Camillu Söderberg árið 1999 og
er skrifað fyrir kontrabassa-, tenór- og alt-
blokkflautur og rafhljóð. Verkið var frumflutt í
Vín á síðasta ári og heyrist nú í iyrsta sinn á Isl-
andi. Verkið er sjálfstætt framhald af Sonon-
ymus I, samið fyrir óbó og tölvuhljóð og frum-
flutt nýlega í Salnum af Eydísi Franzdóttur
óbóleikara.
Kópía er samin fyrir CAPUT hópinn árið
1999. Verkið sem er eftir Hauk Tómasson er
skrifað íyrir flautu, hom, gítar, víólu, sembal,
harmonikku og kontrabassa og er í sex köflum,
sem allir fást við endurtekningu á einhvem
hátt. Kaflamir heita Örbrigð I, Innskot, Hlekk-
ir, Hringir, Déjá vu og Stúfar.Verkið var upp-
Morgunblaðið/Kristinn
Á tónleikum Caput kennir ýmissa grasa m.a.
verður nýju verki Hauks Tómassonar eytt.
haflega samið til flutnings 9.9. 99 kl. 9 en af því
gat ekki orðið. Verður verkinu eytt eftir fram-
flutninginn.
Sænska tónskáldið Staffan Mossenmark
samdi Wood-Spirit árið 1989 og fjallar verkið
um göngu í skógi og lýsir þeim upplifunum sem
göngumaður verður fyrir.
Caputhópinn skipa Kolbeinn Bjamasson
flauta, Emil Friðfinnsson horn, Einar Kristján
Einarsson gítar, Guðmundur Kristmundsson
víóla, Guðrún Óskarsdóttir semball, Tatu Kant-
omaa harmonikka og Hávarður Tryggvason
kontrabassa. Stjómandi er Guðni Franzson.
Miðaverð á tónleikana er kr. 1.200/800 kr. og
ókeypis er fyrir 12 ára og yngri.
Margar
tillögur að
Háskólasöng
Á FJÓRÐA tug laga barst í samkeppni
um háskólasöng, sem efnt var til í
tengslum við menningarborgarverkefni
Háskóla Islands árið 2000. Lögin eru
samin við erindið Vísindin efla alla dáð
úr kvæði Jónasar Ilallgrímssonar „Til
herra Páls Gaimard".
I nýútkomnu fréttabréfi Háskóla Is-
lands kemur fram að þátttaka hafi far-
ið fram úr björtustu vonum aðstand-
enda samkeppninnar en alls hafi borist
36 tillögur. Háskólakórinn undir stjórn
Egils Gunnarssonar mun nú æfa upp
lögin, þannig að dómnefnd geti metið
þau og valið þau tvö lög sem verðlaun
hljóta. I dómnefndinni sitja Páll Skúla-
son rektor, Guðrún Björk Guðsteins-
dóttir dósent, Reynir Axelsson prófess-
or, Örn Óskarsson M.A. og Egill
Gunnarsson, stjórnandi Háskólakórs-
ins.
Úrslit samkeppninnar verða kynnt á
opnunarhátíð menningar- og fræðahá-
tíðarinnar Líf í borg, 25. maí nk., og
verða þá jafnframt afhent tvenn verð-
laun. Áð því loknu mun Háskólakórinn
frumflytja verðlaunalögin og viðstaddir
gestir að því búnu taka undir með sam-
söng. Mun þá reyna á þá forskrift sem
tónsmiðum var gefin í lýsingu sam-
keppninnar að „lagið þarf að vera auð-
lært og henta vel til samsöngs við hin
ýmsu tækifæri".
Ránsfengur nasista finnst í Bretlandi
London, New York. AP, AFP.
VERK eftir mikilsmetna listamenn á borð við
Picasso, Van Gogh, Monet og Renoir era í hópi
um 350 listaverka í breskum listasöfnum sem
talið er að nasistar hafi haft af gyðingum á ár-
um síðari heimsstyrjaldarinnar.
Bretar hafa nú bæst í hóp rúmlega 40 þjóða
sem kveðast hafa hug á að skila ránsfeng nas-
ista til réttmætra eigenda sinna. Talið er að
verk í um tíu listasöfnum víðsvegar um Bret-
land, m.a. verk sem era í eigu National Gallery
og Tate-safnsins séu í þessum hópi.
Eigendasaga listaverka í eigu breskra safna
hefur verið könnuð undanfarið eitt og hálft ár
og virðist sem eigendasaga um 350 verka sé
ófullkomin. 100 listaverkanna er að finna í Nat-
ional Gallery og önnur 80 í Tate, en söfnin era
meðal stærstu listasafna Bretlands. Forsvars-
menn listasafnanna segjast þó telja litla hættu
á að öll þessi verk séu hluti af ránsfeng nasista
að því er fram kom í dagblaðinu Daily Tele-
graph í vikunni, en að sögn safnayfirvalda era
aðeins á milli 20 og 30 verk sem sannanlega má
telja að nasistar hafi haft af gyðingum.
Töluvert hefur borið á dómsmálum bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum vegna meints ráns-
fengs nasista undanfama mánuði. Réttinda-
hópar gyðinga telja m.a. að þúsundir lista-
verka, sem stolið hafi verið af gyðingum, sé að
AP
Verk Alfred Sisley, „Horft yfir þorpið Moret“,
er eitt 350 verka í breskum söfnum með ófull-
komna eigendasögu.
finna í Bandaríkjunum. En réttindahóparnir
telja bandarísk listasöfn ekki sýna mikinn
áhuga á að kanna eigendasögu verkanna.
„Hvernig má það vera að í Bretlandi sé mögu-
lega 350 verk að finna, en safnayfirvöld í
Bandaríkjunum finni ekki eitt einasta?“ sagði
Elan Steinberg framkvæmdastjóri Heimsráðs
gyðinga.
AP
„Tíminn afhjúpar Sannleikann", eftir 18. aldar
listamanninn Jean-Francois Detroy, er í hópi
100 verka í eigu National Gallery sem nasist-
ar kunna að hafa stolið af gyðingum.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Veruleikurinn Júlíus
ÆFINGAR standa nú yfir í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu á bamaleikverkinu
Júlíus. Þetta er samvinnuverkefni ís-
lenska leikhússins og Hafnarfjarðar-
leikhússins. í verkinu koma við sögu
leikarar, brúður, grímur og tónlist.
Þórarinn Eyfjörð er leikstjóri sýn-
ingarinnar.
Aðstandendur sýningarinnar
nefna leikverk sem þetta Veraleikhús
(„Object theatre“), en sú aðferð við
leiksýningar hefur ekki verið mikið
notuð hérlendis þó velþekkt sé í
Evrópu að þeirra sögn.
Efni verksins er sótt í samnefnda
barnabók eftir Anne-Marie Chapou-
ton og Jean Claverie sem Mál og
Menning hefur gefið út í þýðingu
Thors Vilhjálmssonar.
Sagan fjallar í stuttu máli um Júl-
íus, lítinn dreng sem lifir í sátt og
samlyndi við umhverfi sitt og fer svo-
Morgunblaðið/Jim Smart
Ásta Hafþórsdóttir og Tómas Lemarquie
með eina brúðuna úr Júlíusi.
lítíð sínar eigin leiðir í tilverunni, en
mætir stundum harkalegum viðbrögð-
um í samfélaginu. Hann er að leita að
samastað og í þeirri leit hittir hann
manneskjur, verur og náttúrakrafta
sem hafa áhrif á hann. Júlíus reynir að
aðlagast óskráðum reglum til að öðlast
viðurkenningu - en ekki er allt sem sýn-
ist og margt verður að læra af reynsl-
unni. Sagan er ljóðræn og full af sígild-
um boðskap sem á erindi til okkar allra.
Þegar er búið að bjóða leikhópnum til
Finnlands með uppfærsluna, á þekkta
alþjóðlega leiklistarhátíð.
Ásta Hafþórsdóttir er brúðuhöfund-
ur og brúðustjórnandi. Egill Ingibergs-
son hannar leikmynd og lýsingu. Pétur
Grétarsson semur tónlistina, og sér um
hljóðfæraleik og brúðustjórn. Tómas
Lemarquie er leikari, bráðu- og grímu-
stjórnandi. Frumsýning á Júlíusi er
fyrirhuguð þann 18. mars.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinssonar.
Englaborg, Flókag. 17: Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson. Til 19. mars.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Sara Vilbergsdóttir. Til 19. mars.
Galleri@hlemmur.is: Eirún Sigurð-
ardóttir. Til 26. mars.
Gallerí One o One, Laugavegi: Ás-
mundur Ásmundsson. Til 12. mars.
Gallerí Reykjavík, Skólavörðustfg:
Níu grafíklistamenn. Til 4. mars
Gallerí Stöðlakot: Grímur Marinó
Steindórsson. Til 19. mars.
Gallerí Sævars Karls:
Georg Guðni. Til 8. mars.
Gerðarsafn: Ljósmyndarafél. ísl.
Blaðaljósmyndarafélag íslands. Vig-
fús Sigurgeirsson. Til 19. mars.
Gerðuberg: Sjónþing Önnu Líndal.
Til 19. apríl.
Hafnarborg: Kristín Loftsdóttir,
ljósm. Pétur Gautur. Til 20. mars.
Hallgrímsk.: Sigurður Örlygsson. Til
l.júní.
i8, Ingólfsstræti 8: Ólöf Björnsdóttir.
Til 2. apríl.
Islensk grafík, Hafnarhúsinu: Alist-
air Maclntyre. Til 12. mars.
Kjarvalssstaðir (austursalur): Jó-
hannes S. Kjarval. Myndir úr Kjarv-
alssafni. Katrín Sigurðardóttir málar
á vegg miðrýmis til 16. mars.
Listasafn ASÍ: Norrit: Guðrún Gunn-
arsdóttir, Agneta Hobin, Ulla-Maija
Vikman og og Inger-Johanne Brauta-
set. Til 12. mars.
Listasafn Árnesinga: Kristur
Myndasaga. Til 19. mars.
Listasafn íslands: Svavar Guðnason
og Nína Tryggvadóttir. Til 26. mars.
Svava Björnsd. Til 2. apríl.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið
laug. og sun. kl. 14-17. Höggmynda-
garðurinn ppinn alla daga.
Listasafn ísl.: Roni Horn. Til 5. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listhúsið Laugardal: Sissú. Til 16.
mars.
Mokkakaffi: Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir. Til. 11. mars.
Norræna húsið: Gisle Frpysland. Til
12. mars. Elsku Helsinki: Ljósmyndir
og fatahönnun. Til 26. mars.
Nýlistasafnið: Kvikar myndir. Til 12.
mars.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning opin þriðjudaga-föstudaga
kl. 14-16. Til 15. maí.
Þjóðarbókhlaða: Stefnumót við ís-
lenska sagnahefð. Til 30. apríl.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir „Fréttir".
TONLIST
Laugardagur
Langholtskirkja: Karlakór Reykja-
víkur. Kl. 15.
Salurinn: Domenico Codispoti kl. 16.
Sunnudagur
Salurinn: Caput kl. 20.30.
Neskirkja: Kyi-jurnar. Kl. 17.
Miðvikudagur
Salurinn: Sigurlaug Eðvaldsdóttir og
Valgerður Andrésdóttir. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Glanni glæpur í Lata-
bæ, sun. 5. mars. Krítarhringurinn í
Kákasus, fös. 10. mars. Komdu nær,
mið. 8., fim. 9. mars. Hægan Elektra,
sun. 5., fim. 9., fös. 10. mars.Vér
morðingjar, lau. 4. mars.
Borgarleikhúsið: Afaspil lau. 4., sun.
5. mars. Sex í sveit, lau. 4. mars.
íslenski dansflokkurinn: Goðsagnirn-
ar, fim. 9. mars.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, lau. 4.,
fim. 9. mars. Sjeikspír... mið.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Salka, ástar-
saga, fös. 10. mars.
Loftkastalinn: Panodil, lau. 4., sun. 5.,
fös. 10. mars.
Kafflleikhúsið: Ó - þessi þjóð, lau. 4.
mars. Nornaveiðar, sun. 5. mars.
LA: Skækjan Rósa, lau. 4. mars. Gosi,
frums. lau. 4. mars. Sun 5. mars.
Félag eldri borgara. Ásgarður
Glæsibæ: Rauða klemman, sun. 5.,
mið. 8. mars.
Möguleikhúsið við Hlemm: Langafi
prakkari, mið. 8., fim. 9. mars.
Tjarnarbíó: Töfratívolí, sun. 5. mars.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. MARS 2000