Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2000, Side 20
Uppstilling með tveimur skálum og könnu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Pétur Gautur og eitt verkanna á sýningu hans í Hafnarborg, Uppstilling með nokkrum ávöxtum.
SKIPTIRMIGI RAUN ENGU
AF HVERJU MYNDIN ER
Pétur Gautur opnar sína sjöundu einkasýningu í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar, í dag. MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR hitti lista-
„ manninn og komstað því að hann er alltaf að mála
sömu könnurnar, skálarnar og ávextina, þótt mikið
hafi breyst frá því á síðustu sýningu.
SÝNINGUNNI er á fímmta tug
málverka, hið elsta er frá því í des-
ember 1998 en á hinu yngsta er
málningin varla þornuð. Flest bera
þau nöfn á borð við „Uppstilling á hvítum
dúk“, „Uppstilling með nokkrum ávöxtum11,
„Uppstilling með tveimur skálum og könnu“.
Pétur Gautur kveðst hlynntur einfaldleika í
þessum efnum. „Fyrr á öldum drógu upp-
stillingar yfirleitt nafn af því sem var á mynd-
jjnum, t.d. pípa, ostur, dauður fugl, þrír fiskar,
og mér finnst það mjög heiðarlegt. Þannig að
ég læt þær bara heita Skál á borði eða Skál,
kanna og flaska og reyni að vera mjög hóg-
vær.“
Þótt hann hafi verið að mála uppstillingar í
um fimm ár ftnnst Pétri Gauti hann vera rétt
að byrja. „Það eru alltaf að opnast nýjar og
nýjar leiðir,“ segir hann. Best segir hann sér
þykja að hugsa ekki neitt þegar hann málar.
Hlusta á góða sögu í útvarpi eða af hljóðbók,
góða óperu eða djass. „Ég mála mínar bestu
myndir þegar ég gleymi mér. Best er að geta
slakað vel á og unnið skipulega, alla daga frá
klukkan níu til fimm, jafnvel þótt manni finn-
ist ekkert gerast og maður sé í engu stuði,“
segir hann.
Myndirnar orðnar yfirvegaðri
Pétur Gautur er loksins búinn að koma sér
upp góðri vinnustofu, eftir að hafa unnið í
pínulítilli kjallarakompu í þrjú ár. Á síðast-
liðnu sumri keypti hann gamla sjoppu steinsn-
ar frá heimili sínu, þar sem eitt sinn var sölu-
turninn Örnólfur. Hann opnaði vinnustofuna
með sýningu á menningarnótt í Reykjavík í
ágúst síðastliðnum. Hann segir það allt annað
líf að vera sinn eigin herra, hafa nóg pláss og
nærri fimm metra lofthæð. Þar getur hann
líka haldið litlar vinnustofusýningar.
„Bestu myndirnar á sýningunni hér hef ég
málað á nýju vinnustofunni. Myndirnar
breyttust mjög mikið, þær eru einhvern veg-
inn orðnar yfirvegaðri. Það hefur gerst heil-
mikið síðan á síðustu sýningu, þó svo að sum-
um þyki ekkert hafa breyst - þetta eru sömu
skálarnar, sömu könnurnar og sömu ávextirn-
ir,“ segir Pétur Gautur.
Enn sem fyrr segist hann vinna mikið með
birtuna og litina. „Það sem einkennii- mínar
myndir eru frumformin, femingar og hringir,
sterk form og myndbygging - það skiptir mig í
raun engu af hverju myndin er. Og svo er þessi
ósýnilegi þríhyrningur sem er í öllum myndun-
um án þess að maður taki beint eftir því,“ segir
hann.
Ekki mikið fyrir að hræra upp í fólki
Pétur Gautur vill skapa ró með myndum sín-
um. „Þær eiga að vera sálarstyrkjandi - ég er
ekkert mikið fyrir að hræra upp í fólki. Maður
sem keypti af mér mynd sagði einhvemtíma
við mig: „Alltaf þegar ég kem þreyttur heim úr
vinnunni sest ég niður í stól og horfi á myndina
þína, þá næ ég mér niður.“ Ég held að þetta
séu bestu meðmæli sem ég hef fengið,“ segir
listamaðurinn.
Við opnunina í dag kl. 16 leika djassararnir
Tómas R. Einarsson á bassa, Ómar Einarsson
á gítar og Stefán S. Stefánsson á saxófón. Ekki
er ólíklegt að þeir spili afmælissönginn því
Pétur Gautur fagnar 34 ára afmæli á opnunar-
daginn.
Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga
kl. 12-18 og henni lýkur mánudaginn 20. mars
nk.
UÓSMYNDASÝNING í HAFNARBORG
„HORNIN ÍÞYNGJA
EKKI KÚNNI"
tJÓSMYNDASÝNING mannfræðingsins
Kristínar Loftsdóttur verður opnuð í dag,
laugardag, kl. 16 í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar. Sýningin
ber heitið „Hornin íþyngja ekki kúnni: Vett-
vangsrannsókn Kristínar Loftsdóttur mannfræð-
ings meðal WoDaaBe-hirðingja í Níger“. Brugð-
ið er upp myndum af lífsháttum WoDaa-
Be-fólksins í Níger í Vestur-Afríku. WoDaaBe
em hirðingjar sem byggja sjálfsmynd og hag-
kerfi á tengslum við nautgripi, en lífshættir
þeirra eru vel lagaðir að hirðingjalífi enda
búferlaflutningar tíðir.
Kristín Lol'tsdóttir stundaði rannsóknir meðal
^oDaaBe-fólksins vegna doktorsnáms við Uni-
versity of Arizona og dvaldi í því skyni í Níger á
tímabilinu ágúst 1996 til júní 1998. Á meðan á
rannsókninni stóð bjó Kristín meðal WoDaaBe-
fjölskyldna á hirðingjasvæðinu, en einnig á með-
al WoDaaBe-farandverkamanna í höfuðborg
landsins. Mikill hluti vettvangsrannsóknar Kri-
stínar átti sér stað á meðal sömu stórfjölskyld-
unnar, þar sem heimilisfólk tók hana undir
verndarvæng sinn.
Kristín lauk BA-prófi í mannfræði frá Háskóla
íslands árið 1992, en hélt síðan til framhalds-
náms við University of Arizona og lauk MA-prófi
þar 1994. Hún varði doktorsritgerð sína, „The
Bush is Sweet: Identity and Desire among the
WoDaaBe in Niger“, 8. desember sl.
Nafn sýningarinnar er WoDaaBe-málsháttur
sem vísar í að rétt eins og kýrin er vön hornum
sínum þá íþyngir það okkur ekki sem við erum
vön. Eins og WoDaaBe sjálfir benda á eru lífs-
hættir þeirra, sem virðast Vesturlandabúum erf-
iðir, þeim eðlilegir og æskilegir.
Kristín heldur fyrirlestra í Hafnarborg um
dvöl sína meðal WoDaaBe-hirðingja. Fyrri fyrir-
lesturinn verður sunnudaginn 5. mars kl. 17 og
hinn síðari fimmtudaginn 16. mars kl. 20:30.
Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga
frá kl. 12-18 og stendur til 20. mars.
Morgunblaðið/Jim Smaii
Kristín Loftsdóttir vinnur að uppsetningu sýningarinnar í Hafnarborg.
20 LESBÓK MORGUNBLADSINS - MENNING/LISTIR 4. MARS 2000