Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2000, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2000, Side 2
Ævintýrið er vinsæl- ast bóka London. Morgunblaðid VINSÆLDALISTI þar sem Roald Dahl er fyrstur og William Shakespeare í fimmtugasta sæti hefur litið dagsins Ijós í Bretlandi í tilefni af Degi bókarinnar. Atkvæði til listans greiddu 40.000 manns i bókaverzlunum, bókasöfn- um, skólum og á netinu og er útkoman talin bera sterkan svip af bókakaup- um foreldra og barna og ungs fólks, en 15.000 þeirra, sem atkvæði greiddu, eru undir 17 ára aldri. Það er heimur ævintýrs- ins, sem blívur í þessum bókmenntum. Næst Roald Dahl koma JK Rowling, höfundur þriggja bóka um Harry Potter, og Terry Pratchett, sem sendir frá sér hverja metsölubókina á fætur annarri um Disc- world. I fjórða sæti er Cat- herine Cookson og Jacqu- eline Wilson í því fimmta, en hún semur bamabækur um félagsmál frá sjónar- hóli bamsins, og á sex af tíu mest seldu bamabók- unum í Bretlandi. Þegar aðeins atkvæði fullorðinna era tekin með lenti Cookson í efsta sæti og Pratchett, Maeve Bincy og Jane Austen komu næst. Samtímahöfundar setja mjög sterkan svip á listann og spennusögurnar era vinsælar. Af klassískum höfundum er Jane Austen ein meðal tíu efstu, Tolk- ien er númer 11, Dickens 13, Thomas Hardy 19, George Orwell 44, Graham Greene 45, PG Wodehouse 48 og Shakespeare 50. Ag- atha Christie er númer 23, Enid Blyton 17 og CS Lewis 24. Að öðra leyti lítur heildarlistinn svona út: 6. Maeve Binehy, 7. Jane Austen, 8. Diek Francis, 9. Stephen King, 10. Danielle Steel, 11. JRR Tolkien, 12. RL Stine, 13. Charles Diekens, 14. Wilbur Smith, 15. Patricia Comwell, 16. John Grisham, 17. Enid Blyton, 18. Dick King-Smith, 19. Thomas hardy, 20. Josephine Cox, 21. Rosamunde Pilcher, 22. Bemard Cornwell, 23. Agatha Christie, 24. CS Lewis, 25. Joanna Trollope, 26. Patrick O’Bri- an, 27. Bill Bryson, 28. Georgette Heyer, 29. Ruth Rendell, 30. Ian Banks, 31. Jack Higg- ins,32. Lucy Daniels, 33. Mary Higgins Clark, 34. Anne McCaffrey, 35. Brian Jacques, 36. Ellis Peters, 37. Ian Rankin, 38. Robert Good- ard, 39. Sebastian Faulks, 40. Tom Clancy, 41. Barbara Erskine, 42. Margaret Forster, 43. Dean Koontz, 44. George Orwell, 45. Graham Greene, 46. James Patterson, 47. Judy Blume, 48. PG Wodehouse, 49. Colin Dexter, 50. Willi- am Shakespeare. Jane Austen J.R.R. Tolkien William Shakespeare J.K. Rowling Morgunblaðið/Freysteinn Jóhannsson Þorsteinn Pálsson sendiherra, Ingibjörg Sólrún Gisladóttir borgarstjóri og Þór- unn Sigurðardóttir stjórnandi Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu 2000. íslenzkur menning- arvefur í London Verk CXKeeffe fölsuð? FOLSUÐ verk eftir íslenska myndlistarmenn hafa mikið verið til umræðu síðastliðin ár. Það eru þó ekki síður erlendir meistarar sem eiga á hættu að verða fölsuram að bráð og nú nýlega hefur uppruni verka sem áður höfðu verið eignuð listakonunni Georgia O’Keeffe verið dreginn í efa. Um er að ræða safn vatnslitamynda sem finna má í Kemper samtímalistasafninu í Kansas City, m.a. þetta verk „First Light Coming on the Plains“, sem má útleggja sem Fyrsta birtan fellur á sléttumar. En verkin, sem bankamaðurinn Crosby Kemper keypti fyrir 5,5 milljónir dollara eða um 350 milljónir króna, höfðu áður verið talinn með fyrri verk- um O’Keeffe. London. Morgunblaðid. ÞAÐ voru íslenzkir tónar sem hljómuðu út yfir Park Street í London síðdegis á miðvikudag, þegar Flugleiðir í samstarfi við sendiráð Isiands í London og Reykjavík 2000 kynntu brezkum blaðamönnum bækling um menn- ingu í Reykjavík og opnuðu menn- ingarvef á Netinu með upp- lýsingum um íslenzkt menningarefni. Kynningin fór fram á heimili sendiherrahjónanna, Þorsteins Pálssonar og Ingibjargar Rafnar. Magnús Magnússon var kynnir. Trio Islancio, Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafns- son, lék í upphafi og var svo aftur rúsinan í pylsuenda fundarins. Finnur Bjarnason og Elíza Geirs- dóttir sungu íslenzk lög við píanó- leik Eugene Asti. Avörp fluttu; Þorsteinn Pálsson sendiherra, sem einnig opnaði vefsíðu íslenzkrar menningar, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri, og Þórunn Sig- urðardóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík 2000 - menningarborg. Felix Bergsson leikari fór með vís- ur Vatnsenda-Rósu á íslenzku og las enska þýðingu á Ijóðum eftir Einar Má Guðmundsson, Gyrði El- íasson, Kristínu Ómarsdóttur og Braga Ólafsson. Emiliana Torrini söng með aðstoð Dave Randall, Charlie Beddows, Sigtryggs Baldurssonar og Charlie Vetter. Margrét Una Kjartansdóttir, Sólveig Kára- dóttir og Guðlaug Þorleifsdóttir gengu um meðal gesta og sýndu íslenzkan tízkufatn- að. Sigurður Jónsson, veitingastjóri í Bláa lóninu, annaðist veitingar og bauð m.a. upp á harðfisk og brennivín. Hannes Hilmarsson, svæðisstjóri Flug- leiða á Bretlandi og írlandi, sagði í samtali við Morgunblaðið, að Flugleiðir hefðu valið að fara þá leið Trio Islancio lék við kynninguna. við útgáfu bæklingsins að leggja áherzlu á nokkur meginatriði í dagskrá menningar- borgarinnar og yrði bækiingnum dreift til aðila í ferðaþjónustu. Og í ávarpi sínu, þeg- ar vefsíðan var opnuð, sagði Hannes, að hún væri hugsuð sem tenging milli Bret- lands og Reykjavíkur með upplýsingum um Iistir, menningu og tízku og reyndar hvað- eina, sem mönnum fyndist eiga heima á slíkum menningarvef. Um 50 brezkir blaðamenn, sem skrifa sérstaklega um ferðamál í blöð og tímarit, sóttu kynninguna. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn: Steinunn Þórarins- dóttir og Ásmundur Sveinsson. Til 14. maí. Englaborg, Flókagötu 17: Sigtryggur Bjarni Baldvinsson. Til 19. mars. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Sara Vilbergsdóttir. Til 19. mars. Galleri@hlemmur.is: Eirún Sigurðar- dóttir. Til 26. mars. Gallerí OnoOne, Laugavegi Nana Petzet. Til 30. mars. Gallerí Smíðar og skart: Hjörtur Hjartarson. Til 25. mars Gallerí Stöðlakot: Grímur Marinó Steindórsson. Til 19. mars. Gallerí Sævars Karls: íris Elfa Friðriksd. Til 5. apríl. Gerðarsafn: Ljósmyndarafél. ísl. Blaðaljósmyndarafélag íslands. Vigfús Sigurgeirsson. Til 19. mars. Gerðuberg: Sjónþing Önnu Líndal. Til 19. apríl. Hafnarborg: Ljósmyndasýning Ki'ist- ínar Loftsdóttur. Pétur Gautur. Til 20. mars. Hallgrímskirkja:Sigurður Örlygsson. Till.júní. i8, Ingólfsstræti 8: Ólöf Björnsdóttir. Til 2. apríl. Kjarvalssstaðir (austursalur): Jóhann- es Sveinsson Kjarval. Myndir úr Kjarv- alssafni. Ráðhildur Ingadótth'. Til 7. apríl. Listasafn ASÍ: Birgir Andrésson, Björn Roth, Eggert Einarsson og Óm- ar Stefánsson. Til 2. apríl. Listasafn Árnesinga: Kristur Myndasaga. Til 19. mars. Listasafn íslands: Salur 2: Cosmos: Jón Gunnar Árnason. Til 9. aprfl. Salur 3 og 4: Svavar Guðnason og Nína Tryggvadóttir. Til 26. mars. Svava Björnsdóttir. Til 2. apríl. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug. og sun. kl. 14-17. Höggmyndagarður- inn opinn alla daga. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson. Mokkakaffi: Lárus H. List. Til 8. aprl. Norræna húsið: Anddyri: Elsku Hels- inki: Ljósmyndir og fatahönnun. Til 26. mars. Nýlistasafnið: Andreas Karl Schulze, Hilmar Bjarnason og Ingólfur Ai'nars- son. Til 16. apríl. Ófeigur, Skólavörðustíg 5: Frumhóp- urin Zvefn. Til 28. mars. Safnahús Reykjavíkur: Ungt fólk í Reykjvaík á 20. öld. Til 15. maí. Stofnun Árna Magnússonar: Hand- ritasýning opin þriðjudag-föstudaga kl. 14-16. Til 15. maí. Þjóðarbókhlaða: Stefumót við íslenska sagnahefð. Til 30. apríl. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir „Fréttir". TONLIST Laugardagur Laugarneskirkja: Drengjakór Laugar- neskirkja. Kl. 17. Salurinn, Kópvogi: FÍT. Kl. 20.30. Sunnudagur Hveragerðiskirkja: Laufey Sigurðar- dóttir, fiðla og Páll Eyjólfsson, gítar.17. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Landkrabbinn, mið. 22., fim. 23. mars. Komdu nær, lau. 18., fös. 24. mars. Glanni glæpur, sun. 19. mars. Gullna hliðið, sun. 19. mars. Krítar- hringurinn, þrið. 21. mars. Elektra, lau. 18., fös. 24. mars. Vér morðingjar, lau. 18., fös. 24. mars. Borgarleikhúsið: Afaspil, sun. 19. mars. Sex í sveit, fös. 24. mars. Djöfl- arnir, sun. 19. mars. Litla hryllingsbúð- in, lau. 18. mars. Fegurðardr. frá Lín- akri, lau. 18. mars. íslenska óperan: Baneitrað samband, lau. 18. mars. Hellisbúinn, fim. 23., fös. 24. mars. Iðnó: Sjeikspír... lau. 18., mið. 22. mars. Leikir, sun. 19, mið. 22. mars. Hafnarfjarðarleikhúsið: Salka, ástar- saga, lau. 18., fös. 24. mars. Loftkastalinn: Panodil, fös. 24. mars. Jón Gnarr, lau. 18. mars. Kaffileikhúsið: Ó-þessi þjóð, lau. 18., fös. 24. mars. Leikfélag Akureyrar: Skækjan Rósa, lau. 18. mars. Gosi, lau. 18., sun. 19. mars. Möguleikhúsið við Hlemm: Langafi prakkari, lau. 18., sun. 20., mán. 21., þrið. 22. mars. Hafrún, mán. 20. Snuðra og Tuðra, mið. 22. mars. Ástralskur ballettstjóri til London London. Morgunblaðið. ROSS Stretton, stjórnandi Ástralska ballettsins, verður næsti listræni stjórnandi Konunglega ballettsins í London. Var hjá American Ballet Theatre Stretton er 48 ára, nam við Ástr- alska ballettinn, en fór til Bandaríkj- anna 1979 og var 1992 ráðinn aðstoðar- framkvæmdastjóri American Ballet Theatre. Fjórum árum síðar sneri hann aftur heim til þess að setjast við stjórnvöl Ástralska ballettsins. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. MARS 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.