Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2000, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2000, Side 16
SJÁ, ÞAR ER MAÐURINN Fram undir þennan mánuð stóð stytta af ungum manni á einum hornstöplinum á Trafalgartorgi í Lund- únum. í fjarlægð gat hann verið hvaða Englendingur, sem er, en (: >egar nær d ró mátti sjá, að hann var með hendur bundnar fyrir a ftan bak, lendaskýlu og þyrni- kórónu. Fór þá ekkert á milli mála, að þarna stóð sá, sem Pílatus leiddi fyrir 1 ýðinn með orðunum: Sjá, þar er maðurinn. Um það leyti, sem þessi stytta vék fyrir annarri af • stöpli num, var opnuð sýning í National Gallery, sem stendur við torgið. FREYSTEINN JÓHANNSSON skoðaði sýninguna; Sjáið hjálpræðið, og fleiri myndir úr ævi Krists. HVERGI í Biblíunni er mér sagt að greint sé írá útliti Jesú Krists. Þó hef ég allt frá bamæsku vitað upp á hár, hvemig hann leit út. í Siglufjarðarkirkju er altar- istafla eftir Gunnlaug Scheving, sem sýnir Krist lægja vind og sjó á Genesaretvatni. Einhvem veginn er alveg sama, hversu margar myndir ég sé; í mínum huga er Jesús Kristur alltaf sá, sem Gunnlaugur Scheving málaði. Sýningin Sjáið hjálpræðið er í kjallara Sa- insbury-álmu safnsins og segja þeir safna- menn, að hún eigi að sýna okkur, hvernig Jes- ús Kristur hefur birzt í vestrænni listasögu. I líf hans, pínu, dauða og upprisu hafa listamenn > sótt endalausan efnivið til að tjá þjáningu og ást, dauða og endurlausn. Frá tákni til manns Fyrsti h lutisýn ingari n n a r hefst í katakomb- unum í Róm. I frumkristninni vora menn ekki að velta fyrir sér útliti frelsarans. Boðorðin bönnuðu skurðgoð og engar samtímamyndir vom gerðar af Jesú. Guðspjöllin geyma heldur enga lýsingu á því, hvemig hann leit út, aðeins hver hann var. Fyrstu myndverkin sýna því ekki útlit hans, heldur em þau tilvísanir til inn- rætis hans, táknmyndir klappaðar í marmara- hellur; krossankeri, fiskur og fangamark Krists svo dæmi séu tekin. Þessi tákn hafa haldið velli í listaverkum, þótt menn með tímanum fikmðu sig yfir til þess að tjá Jesúm í mannlegri mynd. A ámnum 1635-40 málaði Francisco de Zurbarán guðs- lambið í líki hrútlambs, sem liggur bundnum fótum. En einnig í þeim verkum, þar sem mað- urinn Jesús Kristur birtist, leggja listamenn- imir áherzlu á hans innri mann. Lítil mar- marastytta frá 4rðu aldar Róm sýnir góða hirðinn gæta sauða sinna ogí málverki William Holman Hunt - Ljós heimsins er Kristur lukt- armaður, sem bankar á hjartans dyr. Sú mynd, sem þarna er sýnd er frá ámnum 1900-1904 og er þriðja verldð, sem Hunt málaði af þessu tagi. Það á nú heima í Pálskirkjunni í London, en 1905-1907 sendi þáverandi eigandi, Charles Bototh, það í sýningarferð um Kanada, Ástra- líu, Nýja-Sjáland og Suður-Afríku. A þessu ferðalagi börðu milljónir manna það augum og með eftirprentunum og kortagerð er það nú talið vinsælasta Kristsmynd hins enskumæl- andi heims. Tvíeðli Krists, maður og guð, er listamönn- um ekki auðvelt viðfangsefni. Bartolomé Est- eban Murillo leysti málið 1681-82 með þvi að mála á einni og sömu mynd jarðnesku þrenn- inguna, Maríu, Jesúm og Jósef, og iyrir ofan þá himnesku; Guð föður, son og heilagan anda. í Opinbemnarbókinni stendur, að Kristur sé upphaf og endir. Slikir pólar hafa svo verið taldir til hans á fleiri sviðum; styrkur - veik- leiki, fátækt - ríkidæmi. Stundum er Kristur sá sem valdið hefur, en stundum er hann kúg- aður fanginn. Við sjáum fjárhirða fagna fæð- ingu hans í fjárhúsinu og konunga færa honum gull, reykelsi og myrra. Sjálf fögnum við fæð- ingu frelsarans, þótt við vitum, að barnið sé fætt til þess að þjást og deyja. Annað málverk Bartolomé Esteban Murillo minnir okkur á þetta; Jesúbarnið hvílir á krossi með hauskúpu undir handleggnum. Eins og í skuggsjá skynj- um við sakleysi barnsins, sem þama er komið til þess að þjást fyrir syndir okkar og deyja. En englarnir fyrir ofan minna okkur á upprisuna. Sagt er, að flestir geri sér þá mynd af Kristi, að hann hafi verið grannvaxinn maður, skeggj- aður og síðhærður. Þessi mynd er dregin af kraftaverkamyndum, sem kallaðar vom. Sú frægasta er á klútnum, sem kenndur er við hei- laga Veroniku og varðveittur er í Péturskirkj- unni í Róm. Veronika á að hafa þerrað andlit Krists á píslargöngunni og andlitsmynd hans birtist í klútnum, sem hún notaði. Fleiri slíkir klútar em til og hvílir á þeim mikil helgi, enda em þeir trúuðum áþreifanlegar sannanir um tilvist Krists á jörðu. A þessari sýningu sjáum við m.a. koparstungu franska listamannsins Claude Mellan (1598-1688) af ásjónu Krists á Veronikudúknum og málverk Spánverjans Francisco de Zurbarán (1598-1664) af Veron- ikudúknum. Málverk Zurbarán, sem er í eigu Listasafns ríkisins í Stokkhólmi, er blekking- armynd, þar sem dúkurinn virðist festur á yfir- borðið, sem hann í raun er málaður á. Myndskreytt bænahald Elztu myndir frá píslarsögunni leggja oft áherzlu á kraft Krists og hans guðlega eðli. En þegar nær okkur dregur í tíma, sjáum við Krist oft einmana og yfirgefinn, hrópandi á samúð okkar, eins og í málverki Correggio (Antonio AUegri) af Kristi, þegar Pontíus Píl- atus sýndi hann lýðnum. Og það hjarta má vera úr steini, sem ekki finnur til með þeim Kristi, sem í hollenzkri höggmynd frá því um 1500 tyllir sér á stein leiðinni til Golgata og sit- ur þar nakinn og umkomulaus með hönd undir kinn. Listamenn hafa verið iðnir við að gera písl- arsögunni skil, enda slíkar myndir vinsælar til að hafa við hendina, þegar beðizt er fyrir. Það var hald manna að þeim gengi betur að sam- sama sig þjáningum frelsarans í bæn, ef þeir hefðu þær fyrir augunum á meðan. Á síð- miðöldum var mikið beðið við mynd þá, sem þýzki myndristumaðurinn Israhel van Meckenem (1440-1503) gerði af sýn Gregor- íusar mikla páfa í messu dag nokkurn í Róm. Á myndinni krýpur páfi við altarið með kardinála allt um kring, en ofar altarinu, fyrir framan þrískipta altaristöflu með myndum frá píslar- göngunni og upprisunni, er Kristur sjálfur hinn sorgbitni maður. En þessar bænamyndir vom ekki aðeins stakar myndir af atburðum píslarsögunnar eða táknum henni tengdum, heldur vom þetta oft myndraðir, eins og sú hollenzka frá miðri sextándu öld, sem er ferða- skjóða og rekur píslarsöguna í tíu myndum. Með því að fylgja myndunum geta menn fylgt frelsara sínum, allt frá handtökunni í Getsem- ane til þess að María mey situr undir krossin- um með líkama hans í fanginu. Eftir upprisuna er líkami Krists þungamiðj- an í mörgum málverkum. Titian (1506-1576) málaði Krist, þar sem hann meinar Maríu Magdalenu að snerta sig, en í málverki Bern- 1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 18. MARS 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.