Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2000, Síða 2
ÁSTÁ
MYND-
LISTARVORI
SIGURDÍS Arnarsdóttir opnar sýningn á
myndverkum sínum í Gallerí Áhaldahúsinu í
Vestmannaeyjum í dag, laugardag, kl. 17.
Sýningin er síðasta sýningin af fjórum í
sýningaröðinni Myndlistarvor íslandsbanka í
Eyjum 2000. Sigurdís er fædd í Eyjum árið
1964 og hefur lengstum búið þar. Sigurdís
hefur haldið fjölda einksýninga á íslandi og
erlendis,og tekið þátt í samsýningum heima
og erlendis.
Sigurdís hefur ekki haldið einkasýningu á
verkum sínum í Eyjum síðan hún flutti aftur
til Eyja fyrir tveimur árum eftir fjögurra ára
nám í Myndlistarskólanum á Akureyri, en
þaðan útskrifaðist hún 1994.
Sýning hennar ber yfirskriftina „Ást í
maí“, þar sem hún vinnur stórar myndir af
sjónvarpsskjá með aðstoð tölvu- og ljós-
myndatækninnar. Myndirnar fjalla allar um
ástina á einhverju stigi hennar og samskipti
fólks eða samskiptaleysi í þeirri tilbúnu ver-
öld sem sjónvarpið hendir inn í stofur á
hverjum degi.
„Hugurinn er sívirkur og allt á sinn tíma.
Þessi sýning og vinnan að baki hennar er því í
samhengi við hvernig ég hef alltaf unnið.
Þetta er mitt umhverfi, sem ég breyti til
Morgunblaðið/Sigurgeir
Frá sýningu Sigurdísar Arnarsdóttur í Vestmannaeyjum.
þess að tjá nýja sýn á veruleikann. Þannig er
þessi sýning í samhengi við annað sem ég hef
gert, nefnilega að stoppa ferli sem er í
ákveðnu samhengi, eins og kvikmynd sem
svo auðvelt er að stoppa á myndbandinu,
frysta augnablik og setja það í samhengi sem
lýtur sínum eigin lögmálum og listamannsins.
Þetta eru ekki sjónvarpsskjáir á veggjum
heldur stund sem maður stoppar og fínnst
falleg, eitthvað eitt sem snertir mann. eins
konar þögul snerting,“ segir listakonan.
„Þó ekki sé hægt að kalla myndir mínar
sjálfsmyndir, þá held ég að myndlistarmenn
séu á einhvern hátt alltaf að kljást við sjálfan
sig, eða hugarheim sinn og listamaðurinn
sjálfur verður aldrei slitinn frá þessum heimi
sínum. Myndheimur minn er mjög ólíkur og
mér finnst mjög gaman að reyna ólíka miðla
til þess að koma honum til skila, en þrátt fyr-
ir það er samhengi í öllu sem ég geri og hef
gert, þó miðillinn sé ólíkur. Þetta er bara
skynjun listamannsins og leit hans að sjálfum
sér og samhengi í veröldinni."
Sýningin stendur yfir helgarnar 27. og 28.
maí, og 3. og 4. júní. Hún er opin frá kl. 14-18
og er aðgangur ókeypis. Lokað virka daga.
Á opnuninni mun Björt Rúnarsdóttir tón-
listarmaður leika á selló.
Reuters
Maðurog málmur
BANDARISKI afstraktlistamaðurinn Frank
Stella fótar sig í höggmynd sinni „Chatal
Huyuk“. Verkið er unnið úr brotamálmi og
er á sumarsýningu Konunglegu Listaaka-
demíunnar í Lundúnum. Sýningin er stærsta
samtímalistsýning heims.
Myndlist
og látbragð
í Ými
RAGNAR Jónsson opnar sína sjöttu einkasýn-
ingu í tónlistarhúsi Karlakórs Reykjavíkur,
Ými við Skógarhlíð, í dag, laugardag, kl. 14.
Sýnd verða um tuttugu og fimm myndverk
sem eru unnin á þessu ári og nokkur eldri verk,
elsta frá 1995. Óll verkin eru unnin í olíu á
striga. Sýninguna nefnir listamaðurinn Fjör-
egg þjóðarinnar.
Þrjú málverkanna eru í hópi málverka sem
listamaðurinn hefur kosið að kalla „lifandi mál-
verk“ „Metalismi". Það eru málverk sem
breytast á sýningartímanum. Myndirnar eru
unnar þannig að fyrirfram ákveðnar myndir
birtast á striganum, segir í fréttatilkynningu.
Elfar Logi Hannesson leikari mun túlka val-
in myndverk í látbragðsleik á opnuninni. Hann
sýnir í látbragði stíl, form og inntak valinna
mynda.
Sýningin stendur til 10. júni.
SÓTTIAGATHA CHRISTIE
POIROTI POIRET?
London. Morgunblaðið.
SPURT er: Sótti Agatha Christie söguhetju
sína, Hercule Poirot, í smiðju velsks rithöfund-
ar, Frank Howel Evans að nafni, sem skrifaði
fimm sögur um leynilögreglumanninn Poiret?
í The Sunday Telegraph er sagt frá leit
Margaret Obosa, sem staðið hefur í áratug eða
allt síðan hún rakst á grein í The New Maga-
zine frá 1909, þar sem lítt þekktur velskur rit-
höfundur tíundar ævintýri fransks leynilög-
reglumanns, sem búsettur var í Bretlandi og
hét Poiret. Hann rannsakaði mál með óhefð-
bundnum hætti og treysti fyrst og fremst á eig-
in gáfur til að koma upp um glæpamenn. Eftir
því sem Obosa las lengra fannst henni hún
kannast við þetta allt saman og þar kom að hún
taldi margt benda til þess að Ágatha Christie
hefði byggt sinn Poirot á Poiret að meira eða
minna leyti. Rannsóknir hennar hafa stutt
þessa tilgátu á margan máta og það skrýtnasta
er, að þótt Poirot líkist Poiret að öllu leyti nema
vaxtarlaginu, þá er það höfundurinn Frank
Howel Evans, sem á teikningu, sem birtist með
sögum hans í The New Magazine, kemur alveg
heim og saman við söguhetju Agöthu Christie.
Sjálf sagði Agatha Christie að hún hefði valið
sínum manni belgískt þjóðemi vegna belgískra
flóttamanna, sem setzt hefðu að á æsku-
stöðvum hennar í Bretlandi. Um nafnið sagðist
hún ekki vita fyrir víst, hvort því hafi bara skot-
ið upp í kolli hennar, eða hvort hún rakst á það í
einhverju blaði eða tímariti.
David Suchet í hlutverki Hercule Poirot.
Obosa, sem birtir grein um rannsóknir sínar
í tímaritinu Book and Magazine CoIIector, leið-
ir líkur að því að Agatha Christie, sem þá var 19
ára, hafi lesið sögur Evans í The New Magazi-
ne og séð teikninguna af honum. Hún segir að
þau hafi jafnvel hitzt, því ekki hafi farið hjá því
að Evans þætti söguhetja Christie keimlík
sinni, þegar sögumar af Hercule Poirot birt-
ust.
Það er varla á færi annarra, úr því sem kom-
ið er, en jafningja þeirra Poiret og Poirot að
komast að því, hvort Agatha Christie sótti sinn
Poirot í Poiret vitandi eða óafvitandi. En líkind-
in eru sláandi. Obosa segist hafa haft samband
við Matthew Pritchard, bamabarn Agöthu
Christie, sem hafi látið þau orð falla um rann-
sókn hennar að efnið væri vissulega umhugs-
unarvirði og of mikil tilviljun til þess að hægt
væri að horfa fram hjá því.
Margaret Obosa segist hafa komizt að því að
Poiret var söguhetja Franks Howels Evans í
fimm leynilögreglusögum, sem birtust á árun-
um 1909 og 1910. Fyrsta saga Agöthu Christie
um Hercule Poirot kom út 1920. Obosa komst
að því að Evans var sonur velsks námumanns,
hann reyndi fyrir sér sem leikari og blaðamað-
ur áður en hann lagði út á rithöfundarbrautina,
en eftir sögumar af Poiret samdi hann skáld-
sögur frá 1912 og einkum leynilögreglusögur
1917 til 1930. Um afdrif Evans hefur Obosa
ekki tekizt að grafa neitt upp ennþá.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinssonar. Til 1. nóv. Verk í eigu
safnsins.
Byggðasafn Árnesinga. Kirkjugripir
og kirkjustaðir í Ámesþingi. Til 4. júlí.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Vax-
myndasýning. Til 30. sep.
Galleri@hlenunur.is: Bjarni Sigur-
bjömsson.
Galleri Fold, Rauðarárstíg: Tryggvi
Ólafsson. Til 4. júní.
Gallerí OneoOne: Fos. Til 27. júní.
Gallerí Reykjavík: Soffia Árnadóttir.
Til 31. maí. Jón Baldvinsson. Til 11.
júní.
Gallerí Smíðar og skart: Jóhanna
Hreinsdóttir. Til 5. júní.
Gallerí Sævars Karls: Hallgrímur
Helgason. Til 8. júní. Bjami Jónsson.
Til 16. júní.
Hafnarborg: Elínborg L. Lutzen, Elsa
Stansfield og Madelon Hooykaas. Til
29. maí.
Hallgrímskirkja: Sigurður Örlygsson.
Til 1. júní.
i8, Ingólfsstræti 8: Gjörningaklúbbur-
inn.Til 28. maí.
íslensk grafík: Harpa Árnadóttir. Til
11. júní.
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Arkitektúr. Til 23. júlí.
Listasafn Akureyrar: Ur og í. Til 25.
júní. . ,
Listasafn ASI: I Skuggsjá rúms og
tíma. Til 11. júní.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið lau.
og sunnud. kl. 14-17. Höggmyndagarð-
urinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Nýr heimur - Staf-
rænar sýnir. Til 18. júní. Lífið við sjó-
inn. Til 25. júní.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu:
Öndvegishús og merkileg mannvirki.
Saga á vegg: Til 11. júní.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Daníel
Hjörtur.Til 27. maí.
Mokkakaffi: Kristinn Pálmason. Til 10.
júní.
Norræna húsið: Flakk. Til 13. ág.
Nýlistasafnið: „Blá“. Til 2. júlí.
Safnhús Borgarfjarðar, Borgarn. Jó-
hanna Sveinsdóttir. Til 31. maí.
Stöðlakot: Sigrid Ósterby. Til 11. júní.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TONLIST
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Kári Þormar organ-
isti. Kl. 17.
Salurinn, Kópavogi: Fjórir ungir ís-
lenskir tónlistarmenn: Ámi Björn
ÁRnason, Víkingur Heiðar Ólafsson,
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Ari Þór
Vilhjálmsson. Kl. 20:30. Þriðjudagur
Sýnishom íslenskra einsöngslaga frá
ýmsum tímum: Valgerður Guðrún
Guðnadóttir, Ásgerður Júníusdóttir,
Garðar Thor Cortes, Ágúst Ólafsson.
Jónas Ingimundarson píanó. Kl. 20:30.
Miðvikudagur Caput - Fótspor fugls í
sandi. Kl. 20:30. Fimmtudagur Há-
skólabió: píanóleikarinn Olli Mustonen.
Kl. 19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Jónsmessunótt, 27. maí.
1., 2. júní. Glanni glæpur, 28. maí. Abel
Snorko, 30., 31. maí. Hægan, Elektra,
31. maí.
Borgarleikhúsið: Kysstu mig Kata, 31.
maí. 1., 2. jún.
San Francisco ballettinn: Svanavatnið,
27., 28. maí.
Iðnó: Sjeikspír, 28. maí. 2. júní. Stjöm-
ur á morgunh., 27. maí. 2. júní.
íslenska óperan: Hinn fullkomni jafn-
ingi, 27. maí.
Loftkastalinn: Jón Gnarr, 27. maí.
Möguleikhúsið: Völuspá, frums. 27.
maí., 28. maí. 1. júní.
Leikfólag Akureyrar: Tobacco Road,
27. maí.
Kaffileikhúsið: Bannað að blóta í brúð-
arkjól, frams. 31. maí.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í
tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 27. MAÍ 2000