Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.2000, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.2000, Síða 7
I VAi M VARSITY —• Saturd<ty, May T956 Sylvia Plath tours the stores and forecasts AY WEEK FASHIONS WITH May Week Jusfc j áround the corner : likc some íaír Country ol C o c k algne — but barcly visibie through the present smog of Tripos exams-~we sefc out to discover what the weU-Uresséö Newn- hamite or Gtrtonian might wear for pimt- ing. coektaUs and bails. Prcm \ a r «t d«p ariaicnt siofti to «nal! íiXMtoUr thojs*. CanibdtÍRC otten n ftfit, to!* ourfu! j-flooUon ot spriníí íftshíons, whiclt alJouíd cuatait our C»nstaxWgo uiulcjKJ-aUu- fttcs to riva! U»* ntoai chtc am! chartnitJg wí ímpcrtcd Lotttíott tnotíctac We chmtt a difTcrtnt Cam- ta.idgc shup Vo outílt us íor tatíj occasiun tœd pícHcd fcahiíMl um! Javoumo slyJrs for phcuogfapljs. WhJle atvaje Uutt our awlgrmjcnt wsts íar a ncwspapcr ftxUclc ratHcr than íor privttte purihasc. úc- partnJcrtV J»8íiaRcrs kir.tity, (Jvmatwl ndvícc. intormaUujJ, ' an<! mucit tlfrte, irrttttrjg us, Slrupless whilc eoek- ijtil tlress. iotlced, Uite a. Eaturtiay Ci«* dcn?!!a. bathing suits To JíceitJ w«h taatJJitJs vuits, pcrfcct tor taeaeix Haiitíitys aiut Uj!u£ Xrtstrt pteijic :to stjn* biasscs (12/6); a flátniíO>a»iV rtsi-aiití-whUf wrípwi towcl. linft stole wUh btg pockcta attd blac't-tRs«1ctí írmgc <2f/P)t aád fttiftliy, to CöntiJlele Vh« •whole cnstUJbic. ft «)tite Urrycloth b«acJtcoav *Hh ol- iracvlvc íuil drcular vckc 03/6). Hapfiy fnviromiBjf. ftvcryoncl cockiail diess • Our cocxtoi! ftfttl tíftticc tírcís foaiuretí ai. Jcsituft Tay- Jor’jt («8 picturc) í» ft StratJ* !<S» vtc'hitc cotioti by Jeatt AlJ«n, pfttt*frt«d -ítUH ptJik jrtscbutís aitd grffn írftvcs: ■ tiie stíarveUoua peuí staHt bii* JCWÍ IrtÓSt bOUftttrtt cv«v U» IripJc crlochtjc tjcttfccals (CJO 1~V. (kJ.i. Dsapnl Xrem tJse íruut tO » pcrl taOJV trt taðcfc, Ují* tfftla ottith ftports itó own CöVerdip bcf«ro ftuji sn bccottjcs íultatalc íor ftUcntocjj gatdfta partí«s cr r.Jutiipftftrtc roirc«s ovcrlccfcitjg 0 r r tt t Cöúrt, TrUiíty. HuJJJWtfc-upí A popjjy-V«i bulton-drtwn JuJJiper tíit?* ht Frctich c.jtioji put ottt tay CoiJtiuíutala íav £4 7$. 6<l), wlih uViArt cp«J nctfc arttí ctaol. csfftn-cut ilar*u ftfcirt; aJ»j, a fijeen*aml-«hU« eVrlpcd cotton <1íí» »y bx t- rftvs. fresJt as ft rtttj'.v JuJ«i>. i. ,m..< i..«».iWihi.u;y.>v.. Þessi grein með myndum af Plath birtist í háskólablaðinu í Cambridge vorið 1956. Hún minnir um margt á andrúmsloftið í The Beil Jar. Hér situr Sylvia Plath við ritvélina heima hjá sér stuttu eftir heimkomuna frá New York. Mynd sem tekin var af Plath á kvennatíma- ritinu sumarið sem hún varð veik. í The Bell Jar lýsir hún því hvernig hún þvingar fram bros þó hún sé við það að bresta í grát. Sumarið 1954, heilbrigð á nýjan leik eftir andlega erfiðleika. Sylvia með móður sinni Aureliu og bróður Warren árið 1950. búning. Skilin á milli heilbrigðis og andlegs niðurbrots eru skýrt mörkuð í sögunni, er Esther ákveður kvöldið áður en hún snýr heim frá New York að henda öllum fötunum sem hún hafði eignast sem verðlaunastúlka í borginni fram af þakinu á hótelinu þar sem hún hefur dvalið. „Ég fleygði fötunum mín- um, flík eftir flík út í næturvindinn. Eins og aska þess sem maður elskar bárust gráar flygsurnar í burtu, til að tylla sér hér og þar, á stöðum sem ég myndi aldrei vita um, í dimmu hjarta New Yorkborgar." Þar með verður ekki aftur snúið. Á þessu augnabliki hefur Esther með táknrænum hætti sagt skilið við sína eigin sjálfsmeðvit- und, dreift ösku eigin persónuleika með söknuði og sorg þess sem veit að hann fær engu breytt. Hún hafnar því hlutverki sem samfélagið hefur valið henni og hverfur inn í heim andlegra þrenginga sem andhverfa sjálfrar sín og undir nýju nafni sem Ellen Higginbottom. Persónuleikaklofningin er al- gjör því Ellen er tæpast læs né skrifandi, er hirðulaus um sjálfa sig og hefur mestan áhuga á sorpritum og slarki. Undanfara sjúkdómsins er glöggt lýst í myndmáli bókarinnar en Plath notar spegla til að sýna fram á hvernig sjúkdómurinn ágerist. Fyrst í stað er spegilmynd Estherar gerð framandleg með því að líkja henni við Kínverja og síðar indíána.j Þannig stangast sjálfsmynd Estherar og útlit sífellt meira á þar til hún er orðin svo ókunnugleg að hún ber ekki kennsl á eigin spegilmynd lengur. „Fyrst sá ég ekki hvað var að. Þetta var alls ekki spegill heldur mynd. Það var engin leið að átta sig á hvort manneskjan á myndinni var maður eða kona, því hárið hafði verið rakað af.[...] Ég brosti. Munnurinn í speglin- um geiflaðist í glotti.“ Geðrænum erfiðleikum Estherar lýsir Sylvia Plath þannig að þeir verða að teljast bein afleiðing þeiiTar togstreitu sem er á milli söguhetjunnar og samfélagsins. Sam- sömun hennar við Rosenberghjónin og þrá- látar hugsanir hennar um yfirvofandi aftöku þeirra í rafmagnsstólnum er stílbragð sem höfundur notar til að undirstrika hlutskipti Estherar sem fórnarlambs í svipuðum skiln- ingi og þau. Rosenberghjónin voru ákærð fyrir andfélagslegt athæfi, njósnir. Esther er einnig dæmd andfélagsleg, þegar hún fer að véfengja það verðmætamat og þau gildi sem ríkja í samfélaginu. Vitundarkreppa Estherar er því samofin siðferðiskreppu bandarísks þjóðfélags. Strax í upphafi bókarinnar veltir Esther þvi fyrir sér hvernig það sé að vera brennd- ur lifandi í rafmagnsstólnum. Þær vanga- veltur vísa síðar í söguna, til þess er Esther sjálf gengur í gegnum misheppnaða raflosts- meðferð hjá fyrsta geðlækninum sem hún leitar til. Það er því engin tilviljun að fyrr- nefnd skil á milli heilbrigðis og sjúkleika, þegar Esther stendur á „brúninni" í fleiri en einum skilningi og lætur myrkrið gleypa föt- in sín, eiga sér stað sama kvöld og Rosen- berghjónin eru tekin af lífi. Lýsingin á fyrstu raflostsmeðferðinni jaðrar við lýsingu á aftöku í rafmagnsstólnum; „með hverjum blossa fór ógnarmikill hnykkur í gegnum mig þar til mér fannst eins og bein mín myndu brotna og lífsvökvinn þeytast úr mér eins og úr jurt sem er klofin. Ég velti því fyrir mér hvað ég gæti hafa gert sem væri svona hræðilegt." Fordómar qagnvart geðsjúkdómum Geðsjúkir hafa iðulega þurft að sæta refs- ingum fyrir ástand sitt í gegnum aldirnar. Jafnvel á þeim tíma sem The Bell Jar á að gerast voru geðræn vandamál og þunglyndi nokkuð sem margir áttu erfitt með að takast á við á raunhæfan máta, jafnvel innan læknastéttar. Geðsjúkdómar hafa alla tíð verið mikið feimnismál, sem samfélagið hef- ur ýmist tilhneigingu til að fela eða gera lít- ið úr. Það viðmót sem mætir Esther þegar hún fyrst leitar sér hjálpar bæði hjá fjölskyldu sinni og heimilislækni bendir eindregið til að sjúkdómseinkenni hennar séu ekki álitin rista djúpt; Heimilislæknirinn spyr hana t.d. hvað hún sjálf haldi að sé að sér. „Hvað ég HALDI að sé að mér?“ hugsar Esther. „Það hljómar eins og það sé ekkert RAUN- VERULEGA að mér, ég HALDI það bara.“ Sama viðhorf kemur fram hjá móður Esth- erar sem á erfitt með að horfast í augu við sjúkdóm hennar. Þegar Esther vill ekki lengur fara í sársaukafulla raflostsmeðferð- ina hjá geðlækninum, túlkar móðirin það sem batamerki; „Ég vissi að barnið mitt væri ekki svona. [...] Ég vissi að þú myndir ákveða að láta þér batna aftur.“ Rétt eins og slík ákvörðun væri á valdi Estherar sjálfrar. Vaxandi tilfinning um að enginn taki mark á henni og vonleysi um bata leiðir að lokum til þess að Esther felur sig í holu í skriðkjall- ara undir húsinu og gleypir fullt glas af svefntöflum. Þegar henni er bjargað fyrir al- gera tilviljun er hún flutt beint á ríkis- geðsjúkrahús. Á því sjúkrahúsi mætir Esther og öðrum sjúklingum lítill skilningur. Ríkisgeðsjúkra- húsið virðist þjóna þeim tilgangi helst að vera geymslustofnun fyrir fólk sem fallið hefur í gryfju sem það hefði kannski getað sneitt hjá ef samfélagið hefði veitt því þann stuðning sem það þurfti á að halda áður en það var orðið um seinan. í bókinni kemur greinilega fram hárbeitt gagnrýni höfundar- ins á ríkissjúkrastofnanir í Bandaríkjunum og ljóst er hve Plath álítur umönnun geð- sjúkra vera mikinn ábyrgðarhluta. Á þeim stað í sögunni þar sem Esther dvelur á þessu sjúkrahúsi, gerir hún sér það að leik að brjóta kassa með hitamælum vegna þess að henni finnst enginn hafa tíma til að sinna því sem raunverulega þjakar hana. Hún situr ein á rúminu sínu með allt kvikasilfrið úr mælunum í lófanum og hugs- ar: „Ef ég missi það niður, þá brotnar það í milljón litlar eftirmyndir af sjálfu sér, en ef ég svo ýtti þeim í námunda við hvor aðra þá myndu þær renna saman í eina sprungu- lausa heild á nýjan leik.“ Það sama á við um hana og aðra sem eru geðsjúkir; ef sleppt er af þeim hendinni verður niðurbrotið algjört, en með skilningi og nærgætni er hægt að sinna sjúkum og klofnum huga þannig að hann geti myndað sprungulausa heild á ný. Sem betur fer á Esther góða að (eins og Plath átti reyndar sjálf) því rík góðgerðakona, sem hafði stutt hana til háskólanáms lætur flytja hana á einkahæli þar sem hún fær þá umönnun sem hún þarfnast. Á einkahælinu birtist hjálpin í líki geð- læknisins Nolan. „Ég var hissa á að fá konu. Ég vissi ekki að til væru kvengeðlæknar," segir Esther. En það er einmitt sú stað- reynd að Nolan er kona sem skiptir höfuð- máli þegar haft er í huga af hvaða toga þau vandamál eru sem nærri riðu Esther að fullu. I kynsystur sinni Nolan, sem á að baki mikilvægan starfsferil, finnur Esther ekki einungis þá langþráðu fyrirmynd sem hún þarfnast heldur einnig lækni sem hefur skilning á vonbrigðum hennar með hlut- skipti sitt. Nolan ávinnur sér traust Esther- ar og fær hana til að fara aftur í raflosts- meðferð. í þetta sinn er beitt ýtrustu gætni og í stað þess að vera því sem næst brennd lifandi, rankar Esther við sér eins og af djúpum svefni: „Hitinn og óttinn hreinsaðist alveg í burtu. Ég var merkilega róleg. Gler- kúpan hékk í lausu lofti nokkur fet fyrir of- an höfuð mitt. Ég fann andrúmsloftið um- hverfis leika um mig.“ Þróunin í kynferðismálum hið jákvæða afl Nú er ekki langt í það að Esther geti rað- að saman brotum lífs síns og myndað heil- steypta sjálfsmynd sem gerir hana hæfari til að takast á við veruleikann. Fyrsta skrefið í þá átt er að losna við meydóminn, þann tví- ræða „hreinleika" sem í uppvexti hennar er svo mikils metinn í fari kvenna og stjórnar gjaldgengi þeirra á hjónabandsmarkaðnum. Samkvæmt ríkjandi viðhorfi ungs fólks í The Bell Jar virðist „dirty“ (spjöll) sam- svara reynslu á kynlífssviðinu en „pure“ (hreinleiki) samsvara reynsluleysi. Þetta tengist þó ímynd kvenna fremur en karl- manna þar sem stúlka sem „leyfir“ karl- manni að hafa mök við sig fyrir hjónaband er álitin lauslát, tekur áhættuna á óæski- legri þungun og á þar að auki á hættu að glata virðingu karlmanna. Esther neitar að taka þátt í blekkingarleik þessa tvöfalda sið- ferðis því hún vill hefja sitt lífstíðarsamband á jafnréttisgrundvelli á þessum sviðum sem öðrum. „Ég þoldi ekki þá tilhugsun að kona þyrfti að lifa flekklausu hreinlífi en karlmað- ur gæti lifað tvöföldu lífi; einu flekklausu og öðru sem væri það ekki,“ segir hún. Esther velur sér því ástmann af vísinda- legri nákvæmni og einn þáttur í uppreisn hennar er að hún sængar í fyrsta sinn hjá karlmanni sem hún elskar ekki. Eftir það er hún hvorki reynslulaus né viðkvæm, heldur lífsreynd og sjálfstæð kona sem getur séð um sig sjálf, óháð öðrum. Niðurstaða bókar- innar í kynferðismálum er mjög mikilvæg því sú þróun persónu Estherar helst í hend- ur við hið jákvæða afl í verkinu. Þegar hún fer til læknis til að verða sér úti um getnað- arvörn finnst henni hún vera að ganga á vit frelsisins; „frelsis frá ótta, frelsi frá því að giftast röngum manni, [...] frelsi frá því að lenda á heimili fyrir ógiftar mæður.“ Á leið- inni út af læknastofunni segir hún við sjálfa sig: „Ég á mig sjálf“ - hún er nú sinn eigin herra í heimi lítt hæfra karla sem meðvitað eða ómeðvitað beita konur félagslegri kúg- un. Það er í þessu tilliti sem The Bell Jar er femínistísk skáldsaga, því höfundurinn hafn- ar þeim tvískinnungi sem samfélagið notar í andstöðu sinni við hæfileikaríkar, sjálfstæð- ar konur. Konur uppgötva mátt sinn og megin Þessi fræga skáldsaga er afar margbrotin þjóðfélagsádeila, sem hefur fyrir löngu unn- ið sér sess meðal klassískra bókmennta tutt- ugustu aldarinnar, þó hún hafi því miður aldrei verið gefin út hér á landi. Sylvia Plath tæpir á mörgum veigamestu málefnum vest- ræns samfélags á síðari hluta aldarinnar og gagnrýnir ekki aðeins pólitískar ofsóknir kalda stríðsins, hræsni ríkjandi siðferðis og verðmætamats, heldur einnig tvískinnung varðandi hefðbundin kynhlutverk og stöðu kvenna í samtíma sínum. Jafnframt er bókin þungur áfellisdómur yfir aðbúnaði á ríkis- sjúkrahúsum, yfir skilningsleysi og fordóm- um gagnvart geðsjúkum. Það er því ekki að undra að menntaðar konur sem höfðu álíka væntingar til framtíð- ar sinnar og hin unga Plath, hafi litið til hennar sem málsvara síns. Þessar konur höfðu uppgötvað mátt sinn og megin í kvenfjandsamlegu umhverfi. Þær lyftu Sylviu Plath á stall sem „þöglu konunni", sem karlaveldið hafði þaggað niður í og dæmt geðveika þegar hún gerði sanngjarna kröfu til jafnréttis. Það sem þeim sást yfir var að sjúkdómur Sylviu Plath var ekki ein- ungis til kominn vegna þjóðfélagslegs órétt- lætis. Það sem hún barðist við átti sér djúp- stæðari rætur innra með henni sjálfri. Glerkúpan sem henni hafði á táknrænan máta tekist að lyfta upp yfir höfuð sér í skáldsögu sinni, svo hún gæti fundið ferskt loft leika um sig og dregið lífsandann léttar, seig hægt og þétt yfir hana á nýjan leik. „Fyrir þann sem er undir glerkúpunni, jafn tómur og óvirkur og dáið barn, er heimurinn sjálfur hinn vondi draumur," sagði Sylvia Plath. Á endanum laut hún því í lægra haldi í baráttu sem svo margir þurfa að há. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 22. JÚLÍ 2000 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.