Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2000, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2000, Blaðsíða 9
Tilurð og hlutverk hellanna í Matala eru torráðin gáta. Smáþorpið Lakia er eitt af mörgum fjallaþorpum sem bókstaflega „hanga“ utan í snarbröttum fjallshlíðum. Saga, dóttir greinarhöfundar, virðir fyrir sér útsýnið. í „Járnhliðinu" ná hamraveggir Samaria-gljúfursins nánast saman. Þarna eru náttúruleg heimkynni síðustu „kríkrí“-viliigeitanna. leggjandi fyrir fullhraust fólk að taka út eins og tveggja daga harðsperrur fyrir það að upp- lifa þetta náttúrufyrirbæri, ekki síst Járnhliðið sem svo er nefnt, en það er sá staður þar sem gljúfrið er þrengst og segja má að veggir þess mætist. Þama eru heimkynni „kríkrí“ villi- geitanna sem nú eru einu íbúar gljúfursins. Fomleifafundir hafa hinsvegar fært heim sanninn um að mannabyggð hafi verið þarna allt frá forsögulegum tíma. Arið 1962 var Sam- aria-glúfrið gert að friðlandi og skógarhöggs- mönnum og búfjárræktendum stuggað þaðan burtu. Síðan hefur umferð ferðamanna aukist þar mjög - svo mjög að segja má að nú sé þar stöðugt gegnumstreymi fólks frá upphafi apr- ílmánaðar til loka september. Matala og Elafonisi Enginn akvegur liggur meðfram vestan- verðri stuðurströnd Krítar - og má segja að þar sé eina ósnortna landsvæðið á allri eynni. Hinsvegar er hægt að komast eftir akvegum þvert yfír eyna og að nokkram fallegum við- komustöðum sunnan megin. Elafonisi er lítill staður á suðurströnd Krítar sem innfæddir sækja í ríkum mæli, en á seinni áram verður æ meira áberandi að útlendir ferðamenn leggi þangað leið sína. Þarna eru klettóttar, sæbarð- ar strendur með útsýni yfir grænbláar grynn- ingar, háreist fjöll í baksýn með dökkgráum, tignarlegum klettabeltum ofan við skógivaxn- ar hlíðar. Auðséð er að Krítverjar kunna vel að meta þennan stað, sem er nokkurskonar „ást- arbraut“ innfæddra þar sem ungt fólk í til- hugalífi er í áberandi meirihluta strandgesta. Nálægt syðsta odda Krítar, skammt suður af hinum merku hallarrústum Festos-borgar, er annar lítill staður sem vert er að heimsækja. Smáþorpið Matala liggur í svolítilli vík um- girtri sendnum klettaveggjum þar sem gefur að líta sérkennilegar hellamyndanir. Víkin myndar náttúralega höfn þar sem arfsagnir herma að sjálfur Seifur hafi í nautslíki borið á land dóttur Póseidons, Evrópu, og getið henni soninn Mínos. Sá varð konungur á Krít og bjó í þeirri merku borg Knossos. Enginn veit um tilurð eða hlutverk hellanna sem liggja í þétt- um röðum hver ofan við annan í klettaveggn- um norðan megin í víkinni. Hvort þeir voru hí- býli manna ellegar grafhýsi, jafnvel birgðageymslur, er hulin ráðgáta. Hitt er auð- séð að tilhöggnar syllur meðfram veggjum þeirra era gerðar af mannahöndum í einhveij- um tilgangi. A sjöunda áratugnum lögðu ferða- langar af hippakynslóð gjarnan leið sína til Matala með bakpoka sína og hasspípur, og höfðust þar við í hellisskútunum, margir hveij- ir til lengri tíma. Skortur á salemum og ann- arri hreinlætisaðstöðu varð þó til þess að inn- fæddum þóttu þetta hvimleiðir búskaparhættir. Um síðir var bragðið á það ráð að takmarka aðgang að hellunum og um- gangast þá sem fornminjar. *íbúar á Krít búa að núkilli sögulegri arfleifð og þar er að fínna fornmiryar sem tvímælalaust eru með- al merkustu í heimi. Ber þar hæst höll Mínosar kon- ungs á Knossos; og hallarrústimar í hinni fomu hér- aðshöfuðborg Festos; hvort tveggja mörgþúsund ára gamlar minjar sem bera vitni háreistri fommenn- ingu. Er það efni í aðra grein - og hún mun birtast í Lesbók á næstunni. ANNAMARÍA ÞÓRISDÓTTIR í UÓSA- LANDI Lindadúnurt er ljúfa nafnið þitt. Bleik opnarðu blómaugu hjá bunulæknum góða. Ljósfjólubláu breiður hrafnaklukkur. Hve glöð ég varð að sjá ykkur komnar í túnið mitt, gömlu vinkonur sem égman svo vel við fjósið hennar Ömmu Stínu. Ég á mér leyndarmál úti í móa: Fyrir mörgum árum Fann égþau uppi í fjalli og flutti hingað heim, bleikdröfnótt brönugrös sem blómstra hvert sumar, hjónakorn sem halla höfðum saman. Sóley og fífíll, sólgullin systkin, fyrstu vorboðar blómanna. Enn fara börnin út að tína ykkur í vendi handa mömmu. Brekkusóley nefndi hann þig vinurinn væni. Stolt berðu þrOitt blóm á grönnum stöngli, ilmur þinn allri angan betri Lambagras, á dimmgrænum þúfum þúsund bleikar h unangsstjörn ur, ljúffeng fæða mjúkum lambasnoppum Höfundur er húsmóðir í Reykjavík. GUÐJÓN SVEINSSON BAK VIÐ SÍÐSUMARIÐ Vaktu fram við vötnin blá vaktu út við kvikan sjá vittu hvað þú heyrir þá -Sorgina svæfðu mína. Þér ég unni eina stund út við blá og lognvær sund þar við áttum ástafund -Þú sorgina svæfðir mína. Langt ersíðan, laufeysmá, langt síðan þú hvarfst mérfrá vestur yfir víðan sjá. -Svifar ei sorgina mína. Blá og blíðleg augu þín bak við leynast skýjalín þegar stormur sterkur hvín -Sefar hann sorgina mína. Legg við hlust, hlust við legg heyri röddina þína. Höfundurinn er skóld ó Breiðdalsvík. LESBÓK MORGUNBIAÐSINS - MENNING/LISTIR 14. OKTÓBER 2000 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.