Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2000, Page 19
Adam Zagajewski er eitt helsta skáld Pólverja nú.
Pólskt í Frankfurt
Skáldskapur
sem ekki a að
vera fallegur
Á Bókastefnunni í Frankfurt sem verður sett á þriðju-
daginn eru Pólverjar í t jrennidepli. JÓHANN HJÁI M-
ARSSON skrifar að Pólverjar muni leggja sérstaka
óherslu ó að kynna pólskar bækur í þýðingum en þeir
eru rótgróin bókmenntaþjóð i eins og kunnugt er.
PÓLVERJAR eru mikil bók-
menntaþjóð og hafa lagt drjúgt
af mörkum til bókmenntanna.
Leikritahöfundurinn Witold
Gombrowicz og nú Slavomir
Mrozek eru meðal hinna víð-
frægustu. Á sjötta áratugnum
var tími skáldsagnahöfundarins
Mareks Hlasko sem lést 1969.
Ekki er unnt að segja að pólskir rithöfund-
ar séu mjög þekktir utan Póllands nema
kannski í Eystrasaltslöndum. Kunnust eru
ljóðskáldin, enda hafa nokkur þeirra fengið
Nóbelsverðlaun og áður eða í framhaldi af því
verið þýdd, sum meii-a að segja á íslensku.
Heimsathygli vakti Vislawa Szymborska (f.
1923) þegar hún hlaut Nóbelsverðlaunin
1996, en árið 1980 fékk Czeslaw Milosz (f.
1911 í Litháen) þau.
Tvö mestu skáldin, Zbigniew Herbert
(1924-1998) og Tadeusz Rózewicz (f. 1921)
hafa aftur á móti verið sniðgengin.
Adam Wazyk var sá sem hóf uppreisnina
gegn stalínismanum með ljóðaflokki sínum
Ljóði handa fullorðnum 1955. Margir ungir
höfundar fylgdu í kjölfarið.
Þjóðskáldið var og er Adam Mickiewicz,
skáld og sjálfstæðishetja. Önnur merk róm-
antísk skáld voru Juliusz Slowacki, og Cypr-
ian Norwid. Það var þó prósinn sem í lok nít-
jándu aldar náði lengst út fyrir landamærin.
Sagnameistarar voru þýddir á mörg mál.
Tveir þeirra hlutu Nóbelsverðlaun: Henryk
Sienkiewicz og Wladyslaw Reymont. Raun-
sæisverkið Bændurnir er þekktasta verk
hans. Hann skrifaði líka um öreiga og byggði
á eigin reynslu sem starfsmaður í verksmiðju.
Tvær áhrifamiklar konur voru í þessum hópi:
Eliza Orzezkowa og Maria Dambrowska.
Skorinorð Ijóð
Seint á sjötta áratugnum og síðar fóru að
berast vestur á bóginn ljóð eftir pólsk skáld
sem vöktu mikla athygli. Þau voru yfirleitt
skorinorð og beinskeytt. Menn heilluðust af
Rózewicz og Herbert sérstaklega og undirrit-
aður og fleiri gerðu tilraunir til þýðinga, eink-
um úr sænsku og ensku að ég held. Þetta
hélst í hendur við minnkandi trú á sósíalisma
enda pólsku skáldin gagnrýnin og í andstöðu
við ríkjandi stjórnarfar.
Síðar þýddi Geirlaugur Magnússon pólsk
skáld og sendi frá sér athyglisvert safn
þýddra ljóða 1993. í Andófinu er dæmigert
heiti þess. Meðal þeirra sem Geirlaugur hefur
þýtt er hinn síreykjandi kattavinur Wislawa
Szymborska. Hann bætti um betur og gaf út
sjálfstætt safn ljóða hennar 1999, Endir og
upphaf nefnist það. Sama ár og Szymborska
fékk Nóbelsverðlaun birtist heilt safn með
ljóðum hennar, Utópía (Fyrirmyndarlandið),
þýtt af Þóru Jónsdóttur.
Szymborska er sögð háðsk og margræð í
skáldskap sínum. Hún leynir mjög á sér. Að
lesa hana í þýðingum segir kannski ekki svo
mikið. Skáldskapurinn gerist að stórum hluta
í málinu og Szymborska á marga leyniþræði.
í ljóðinu Gnægtum er frá því skýrt að fund-
ist hafi ný stjarna, „þar fyrir er óvíst að neitt
hafi skýrst/ né nokkuð bæst við sem skorti“.
Það virðist ekki skipta sköpum þetta nýstirni:
Sýndu mér að minnsta kosti hvar í ósköp-
unum hún er./ - Milli endans á þessu dökka
tætta skýi/ og akasíugreinarinnar lengst til
vinstri. - Er það - segi ég.“
I Börnum vorra tíma er háðið enn beiskara:
„Eða ráðstefnuborð, um lögun þess/ er deilt
svo mánuðum skiptir:/ við hverskonar borð á
að semja um líf og dauða/ á það að vera
kringlótt eða ferkantað?"
Ekki fegurð og fuglasöngur
Tadeusz Rózewicz er ekki síður hnitmiðað-
ur en Szymborska. Ljóð hans eru oft afar ein-
föld og rabbkennd en leyna líka á sér. Þau eru
stundum líkt og mælt af munni fram.
Þótt hann hafi lýst því yfir að hann vilji
ekki yrkja fögur ljóð kemst hann ekki hjá því.
Hann vill að ljóðið vitni um lífið og ósigra
þess.
Eitt sérkennilegasta skáldið er Adam
Zagajewski, f. 1945. Skáldskapur hans getur
Zbigniew Herbert
Bróðir minn
Þegar elsti bróðir minn
kom heim úrstríðinu
varhann með silfurstjörnu íenninu
og undir stjörnunni
hyldýpi
Það var sprengjubrot
sem hæfði hann við Verdun
eða kannski við Grunwald
(smáatriðum hefurhann gleymt)
Hann talaði býsnin öll
á mörgum tungum
en vænst þótti honum
um tungumái sögunnar
Hann hrópaði sig hásan
til að hvetja failna féiaga til orrustu
Roland Feliksiak Hannibal
hrópaði
að þetta væri seinasta krossferðin
brátt félli Karþagó
síðan viðurkenndi hann snöktandi
að Napóleoni geðjaðist ekki að sér
Við sáum
hann veslast upp
missa vitið
breytast hægt íminnismerki
Inn í fíngerðan kufung eyrans
ruddist skógur úr steini
og andlitshúðin
strengdist
upp á nagla augnanna
ósýnilega og þurra
Aðeins tilfinningin varð eftir
En hvílíkar sögur sagði hann ekki
með höndunum
í þeirri hægri ballöður
í þeirri vinstri minningar hermann-
sins
Þeh' tóku bróðurminn
ogfluttu hann burt úr borginni
Nú kemurhann hvert haust
hnýttur og þögull
vill ekki koma inn
ber á rúðuna hjá mér
Svo reikum við um göturnar
oghann segir
undarlegar sögur
snertir andlit mitt
með blindum fingrum táranna
Jóhann Hjólmarsson þýddi.
spurningum. í Án yrkir hann:
sýnst einfaldur á yfirborði, en er flóknari
undir niðri. Zagajewski orti um þyrnana og
komst svo að orði að vildu einræðisherrarnir
aðeins lesa reiðileg, heiftúðug og vandlega
fáguð ljóð okkar, þá myndi skáldskapurinn
sannarlega breyta heiminum. Zagajewski er
að mínum dómi eitt þeirra pólsku skálda sem
telja ekki að allt hafi leyst með meira frjáls-
ræði og minni kommúnisma. Hann hefur
marxískar tilhneigingar sem koma fram í
ljóðunum.
Þegar hann vaknar reynir hann að greina
hvaða fáni blakti yfir borg sinni: svartur, hvít-
ur eða grár eins og óttinn.
Zagajewski segist ekki vilja yrkja eingöngu
um fuglasöng þótt hann dái fuglsasöng en hið
sögulega standi sér nær.
Harmræn viðhorf hans geta minnt á Ewu
Lipsku (f. 1945) sem býr erlendis og yrkir
bölsýn ljóð. Ljóð hennar eru oft byggð á súr-
realískum draumum og fela í sér ógnir.
Að lifa án Guðs
Maður hefur á tilfínningunni að hin and-
ófssinnuðu pólsku skáld og rithöfundar fagni
ekki sérstaklega frjálshygjunni sem nú sækir
á í Póllandi. Líklega harma þau öryggið í
faðmi marxismans og örugga sölu í-itverka,
áhuga lesenda sem taka mark á rithöfundum.
Þetta er mótsagnakennt vissulega en kannski
eitthvað til í því?
Tadeusz Rózewicz er mjög evrópskt skáld
og sem slíkur upptekinn af mikilvægum
það mesta í lífi
sérhvers manns
er fæðingin og dauðinn
fæðing Guðs og dauði
faðir Faðir vor
hvers vegna
sem reiður faðir áP-
á nóttinni
án merkis án spora
án orðs
hvers vegna yfirgafstu mig
hvers vegna yfirgaf ég
þig
lifa án Guðs er mögulegt
lifa án Guðs er óhugsandi
Friðarverðlaun og íslendingar
Meðal árlegra viðburða í Frankfurt er af-
hending Friðarverðlauna þýskra útgefenda
ogbóksala.
Islendingar munu væntanlega ekki láta sitt
eftir liggja á þessari stærstu bókasýningu
heims. Mál og menning, Forlagið og Vaka-
Helgafell sýna nú saman í fyrsta sinn, en JPV
forlag verður með sér bás ásamt Iðunni,
Bjarti, Sölku, Muninn og fleiri útgefendum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 14. OKTÓBER 2000 1 f