Alþýðublaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 4
4 Laugardagur 2. júlí 1983 ■miðlJUmMHKllKCIN' Þeir hafa svikiö í húsnæðismálunum Mðstoð hins opinbera til þeirra sem standa í byggingaframkvæmdum eða íbúðakaupum er smánarlega lítil. Þetta er löngu viðurkennd stað- reynd og allir stjórnmálaflokkar höfðu hátt um það fyrir kosningarnar í apríl síðastliðnum, að á þeim málum þyrfti að taka myndarlega; það þyrfti að stórhækka almenóu húsnæöislánin að miklum mun. Ekki síst voru það núverandi stjórnarflokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, sem buðu kjósendum gull og græna skóga í þessum' efnum. Margir vildu benda á, að loforð þessara flokka bæru keim af yfirboðum. Því harðneituðu foringjar þessara flokka og sögðu að húsbyggj- endum og íbúðakaupendum væri ekkert of gott. En hvað hefur svo komið á daginn? Hvar eru nú öll stóru orðin, sem fólk heyrði glymja fyrir kosning- ar? Hvar eru nú hin stórhækkuðu framlög til hús- næðismálanna? Sannleikurinn er sá, aö ríkisstjórn íþalds og fram- sóknar, hefur lítið sem ekkert gert í þessum málum og fátt bendir til þess að nokkuð gerist a næstunm. Þrátt fyrireinhver loöin loforð um hækkun lánaein- hverntíma á næsta ári, dugar siíkt hjal skammt. Þessir flokkar hafa áður lofað og svikið jafnóðum. Ekki aðeins það, að lán úr Byggingarsjóði rikis- ins eru smánarlega lágt hlutfall byggingakostnað- ar, heldur og rýrna þau geysilega á því eina og hálfa ári sem tekur að fá þau útgreidd frá því hús- eignirnar eru fokheldar og þar með lánshæfar. Þegar reiknað hefur verið með rýrnum á lánstíma, þá er lánsupphæðin talin vera í kringum 12% af verði staðalíbúða. Við slíkar aðstæður er nánast ó- mögulegt fyrir ungt tekjulítið fólk að ráðast í íbúða- kaup. Alþýðuflokkurinn lagði á það ríka áherslu í kosn- ingabaráttunni, að þegar í stað yrði tekið á þessum málum. Flokkurinn knúði einnig fast á um lagfær- ingar á húsnæðislánakerfinu í stjórnarmyndunar- viðræðunum. En í þeim efnum eins og fleiri, var fyrir veggur hjá ihaldi og framsókn. Það mátti ekk- ert gera í húsnæðismálunum. Þetta var m.a. á- stæðan fyrir því að Alþýðufiokkurinn vildi ekki ganga til stjórnarsamstarfs með Sjálfstæðisfiokki og Framsóknarflokki. Alþýðuflokkurinn vildi ekki svíkja gefin fyrirheit — vildi ekki svíkja húsbyggj- endur eins og stjórnarflokkarnir gera. Tillögur Alþýðuflokksins í stjórnarmyndunarvið- ræðunum voru m.a. þessar: Ný lán Byggingar- sjóðs ríkisins til þeirra, sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn hækki strax um 50% og verði verð- tryggð frá þeim degi, sem lániö er samþykkt, þ.e. hækki á útgreiðslutíma lánsins. Á næstu árum láni húsnæðislánakerfið 80%. af brúttóbyggingarkostnaði. Greiðslubyrði af verðtryggðum lánum ráðist af tekjuþróun, svo að vinnutíminn sem þarf til að standa undir afborgunum fari ekki vaxandi. Þeir sem hafa fengið lán hjá Byggingarsjóði á s.l. 3 ár eigi kost á viðbótarláni, sem nemi 50% af láni Byggingarsjóðs. Þetta eru aðeins nokkur þau atriði sem Alþýðu- flokkurinn vildi að þegar yrði tekið á í húsnæðis- málunum. Alþýðuflokkurinn vill nefnilega, að það sé meira gert en talað um vanda húsbyggjenda og íbúöa- kaupenda; það þarf líka að leysa þann sama vanda. Alþýðuflokkurinn vill að orð og efndir fylgist að. Slík vinnuregla finnst ekki í kokkabókum íhalds og framsóknar. Þar virðast loforð gefin til þess eins að svíkja. Fyrir því hafa húsbyggjendur fengið að finna, svo um munar. — GÁS *KI IOIJUKIMHKUKlIN 1 Opið eða lokað XJpplýsingaskylda stjórnvalda er mál sem reglulega hefur komið upp í umræðum manna á meðal. Krafan um opnara og lýðræðis- legra þjóðfélag, þar sem.þegnarn- ir eigi greiðan aðgang að kerfinu svokallaða, hefur orðið háværari með hverju árinu sem líður. Þróunin hefur verið i rétta átt í þessum efnum, kannski mest vegna þess, að fjðlmiðlar eru um margt aðgangsharðari eftir upp- lýsingum, en áður gerðist. Einnig hafa augu margra fulltrúa kerfis- ins opnast fyrir því, að ef til vill sé það ekki af hinu vonda, að fólk fái að fylgjast grannt með þvi hvaða starfsemi fari fram innan þess. Ef litið er sérstaklega til ríkis- stofnana í þessum efnum, þá gef- ur það augaleið, ef allt er með feltdu, þá hlýtur það að vera til styrktar og stuðnings þeim störf- um, sem fram fara innan rikis- gcirans, að fólk hafi almennt góða og heillega yfirsýn yfir þá starf- semi sem þar er innt af hendi. Allt baktjaldamakk, öll upplýsinga- tregða kallar fram tortryggni og neikvæð viðhorf. f þessu sambandi er t.d. rétt að vekja athygli á furðulegri þver- sögn sem viðgengst í verklagi fjár- málaráðuneytisins og ríkisféhirð- is. Þeirri vinnureglu hefur verið komið á hjá þessum aðilum, að gefa ekki upp Jaunagreiðslur til kerfi? einstaklinga, sem þiggja laun hjá ríkinu. Það er fyrirliggjandi að fjölmargir ríkisstarfsmenn — einkum yfirmenn — þiggja laun á fleiri en einum stað; þeir eru t.a.m. margir hverjir fulltrúar í launuðum nefndum og ráðum. Hvers vegna má almenningur ekki fá um það nákvæma vitneskju, hvernig launagreiðslum til þessara manna er háttað? Hvers vegna mega skattborgarar ekki vita hvernig með fjármagn þeirra er farið hjá hinu opinbera? Það er eðlileg krafa, að upplýsingar af þessu tagi liggi frammi og verði veittar hverjum þeim, sem áhuga hefur á. Sú regla hefur þó verið tekin upp, að birta yfirlit um nefndir, stjórnir og ráð hins opin- bera og þóknanir til einstaklinga, sem þar sitja. Það er af hinu góða. En þær upplýsingar eru venjulega tveggja ára gamlar, þegar þær eru birtar. Hvernig má það vera að það þurfi eltingarleik frá Heródesi til Pílatusar til að fá það uppgefið, hvort fyrrverandi samgönguráð- herra hafi fengið greidd laun fyrir setu sína í flugráði frá 1980 til maí 1983? Og það fyrir fundarsetu sem hann sinnti ekki. Alþýðu- blaðið leitaði þessara upplýsinga í vikunni, en svörin voru rýr sem fengust hjá launadeild fjármála- ráðuneytisins og rikisféhirði; svona lagað sögðust þessir aðilar ekki mega gefa upp! Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum, sem þarf að taka á. Það þjónar ekki hagsmunum eins né neins að sveipa hluti sem þessa leýndarhjúp, nema ef vera skyldi að maðkar væru í mysu. Allt leyndarmakk skapar grunsemdir — oft ástæðulausar. Þess vegna er affarasælast að opna allar dyr upp á gátt og sýna fólki inn fyrir. Rikið er engin stofnun fyrir ör- fáa. Ríkið er fólkið i landinu. Þess vegna eiga landsmenn fullan rétt á að vita hvað þar er að gerast, hvernig rekstrinum er háttað. Það væri t.a.m. vel athugandi að athugasemdir ríkisendurskoð- unar við rekstur og fjárreiður ein- stakra ríkisstofnana yrðu gefnar út. Það er ekki nægilegt að tala um nauðsyn opins og lýðræðislegs þjóðfélags. Framkvæmdin veröur að ganga eftir í þá veru. Aukið upplýsingastreymi til almennings hlýtur að vekja aukinn skilning og jafnvel stuðning, ef allt er með felldu í kerfinu. — GÁS Það byrjar fallega — eða hitt þó heldur! 2 upp fyrir vegna ástandsins í Pól- landi“. Víst heyrast þær margar kynd- ugar skýringarnar, sem stjórn- málamenn gefa, þegar þeir eru i vondum málum, en þessi tilsvör Steingríms Hermannssonar for- sætisráðherra taka flestu fram í þeim efnum. Þessi fyrrum sjávar- útvegsráðherra og nú valdamesti maður þjóðarinnar, sem forsætis- ráðherra, segist hafa hreinlega gleymt skipakaupum upp á 100 til 200 milljónir króna! — Minna hefði það nú mátt vera, svo ein- hver hrykki við. Ekki þarf að fara mörgum orð- um um þessa eða aðra stjórnvisku Steingríms. Frægðarverk hans fyrr og síðar eru öllum kunn. Hann lætur plata sig, hann gleym- ir, hann gerir mistök. Og allt þetta hans eigin orð yfir eigin gjörðir. Og svo var það punkturinn yfir i-ið, þegar Alþýðublaðið greindi frá því í vikunni, að Steingrímur hefði alveg gleymt að afþakka laun fyrir setu í flugráði. Stein- grímur var kosinn í flugráð í árs- byrjun 1980. Nokkrum vikum síðar varð hann samgönguráð- herra og varamaður hans sat eftir það alla fundi ráðsins. Þrátt fyrir það lét samgönguráðherrann fyrrverandi sig hafa það, að þiggja nefndalaun fyrir þessa „setu“ sína i ráðinu, — sem engin var. Það mun hann hafa gert allt til þess tíma, að hann varð forsæt- isráðherra í lok maímánaðar. Hér er ekki um stórar upphæðir að ræða, en fjölmargar siðferðisleg- ar spurningar hljóta að vakna í kjölfarið. Er það t.a.m. víðar í kerfinu, sem svona háttar til um? Víst er það að fordæmi sam- gönguráðherrans fyrrverandi og forsætisráðherrans núverandi, er síst til eftirbreytni. Svo virðist sem ekkert lát verði í framtíðinni á uppákomum ríkis- stjórnarinnar. Og á meðan þessi ríkisstjórn situr við stjórnvölinn eru fyrirsjáanlegir erfiðir tímar fyrir launafólk í landinu. Þær geta verið dýrkeyptar sumar ríkis- stjórnir. Gunnarsstjórnin skildi eftir sig þrotabú og það var hald manna að neðar væri vart komist. Steingrímsstjórnin virðist hins vegar staðráðin í því að sökkva enn dýpra í fúafenið. — GAS. NiAurslaðan cr (<i i*i að IVt hærri en fjármílariðhrrra um korluaðar- fcrnungar. ftrðakosluaðwMfad Uk>aaii aai hrryti*|u I greiðslum rflirfarandi breyling var tilkynnt frá I. júni 1983 á greiSslum þeim lem þá hðíðu gill i þrjá minuði siað 1.060. »em nefndm hafði • vcðið. Skyrmgin sctn gefin var cr Ftamhald á 1. siðu ÚR EINU Albert œtlar að afsósíalísera þjóðfélagið: Nú á að koma félags- hyggjunni á kné ,Xt aetla að aftðslalisera þctta þjóðfílag". sagði Albert Cuð- mundsson fjármálaráðherra hróðugur i sjónvarpsvlðtali I fyrrakvðld. er hann var spurður um fyrirhugaða solu nkisfyrir- uekja og -stofnana. f jármálaráðherra Ift þeta getið i viðtalinu. að sennilega myndi þð ekkert nýtt gerast t þessu máli rursta hálfa mánuðinn, hann vieri oefnllega að fara I tveggja vikna hvtld. eins og hann orðaöi það. Eílir þvl sem Albcrt fjirmála- ráðherra — krossfari einkafram- Ukslnt — uppiýsti þáerunú aðrir ráðherrar riktssijórnarinnar með nsálið lii skoðunar. En eftir báifan mánuð arui sem si áð keyra á mái- in. En Alþýðublaðið vill segja þetla Við fjármálaráðherra: ..Flas er ckki til fagnaðar. bað er nefni- lega þannig, að hvorki Alberl Guðmundsson ná rikissijðrnin i heild sinni getur um það tekið á- kvorðun að selja eilt eða annað rikisfyrirtaeki. — nema náttúr- lega farin verði hin slgiida leið bráðabirgöalaga. Staðreynd máls- ins er sú, að það cr Iðgg jafar valds- ins að uka ákvðröun um atriði sem þessi, þvl lilvist og surfsemi rikisfyriruekja og rlkisstofntna isfyrlrtiekja; hann þarf að’saim fmi mcirihluu Alþingis um nauðsyn þess. Fliti er svo annað mál, að frant að þeisu hefur ilkissijðrn Siein- grims llermannssonar iiil eða ekki viljjð af Alþíngi viu. Sijórn- in vill e*i sjá Alþingi fyrr en i fyrsja U(11 október, enda þðu þá seu liðmr'. heilir sjð mánuðir. frá þvi Alþmgi kom siðau saman. Það þyrM þvl ekki áð koma nein- um á ðvan. þðn einhver runa briðablrgðaUga seiii efiir að sjá Ijðs á nscsiu vikum og mánuðum - og hvers vegna þá ckki bráða- birgðalög un fyriruekja? Albert lœtur sér fátt fyrir brjósti brenna; nú á að kollsteypa félagshyggj- unni ÚTBOÐ Landsbanki íslands óskar eftir tilboöum í aö klæöa aö utan eldra hús bankans á Höfn í Hornafiröi. Útboðsgagna sé vitjaö til skipulagsdeildar - Landsbankans, Álfabakka 10, eða til úti- bús Landsbankans, Höfn, Hornafirði, - gegn skilatryggingu aö upphæö kr. S.OOO? Tilboö veröa opnuð fimmtudaginn 14. júlí 1983 kl. 11.00 áskrifstofu skipulagsdeildar bankans og jafnframt í útibúi bankans, - Höfn, Hornafirði. Hugheilar þakkir eru fcerðar öllum hinum fjöl- mörgu sem sýndu okkur samúð og hlýju og sendu kveðju við andlát og útför Vilmundar Gylfasonar alþingismanns Valgerður Bjarnadóttir Guðrún Vilmundardóttir og Baldur Hrafn Vilmundarson Guðrún Vilmundardóttir og Gylfi Þ. Gíslason Þorsteinn Gylfason, Þorvaldur Gylfason

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.