Alþýðublaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 23

Alþýðublaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 23
Laugardagur 2. júlí 1983 23 Nám í sjávarútvegsfræðum Framleiöni sf. og Samvinnuskólinn efna til náms í sjávarútvegsfræðum veturinn 1983-1984, frá október- byrjun til aprílloka. Námiö fer fram í húsakynnum Samvinnuskólans aö Suðurlandsbraut 32 í Reykjavík og í ýmsum fiskvinnslustöðvum, aö miklu leyti eftir venjulegan vinnutíma. Námiö er ætlað þeim, sem hyggjast taka aö sér stjórnunarstörf í sjávarútvegi, eöa vinna nú þegar slík störf í útgerðarfyrirtækjum, fiskvinnslufyrirtækjum eöa þjónustufyrirtækjum sjávarútvegsins. Námiö verður byggt á þekkingu á viðskiptafræðum úr há- skóla eða verslunarskólum, eöa á starfsreynslu. Ekki veröa þó sett skilyröi til inntöku aö ööru leyti en því að þátttakendur meö háskólamenntun ganga fyrir aö ööru jöfnu. Fjöldi þátttakenda veröur takmarkaöur. Námiö fer fram á þrennan hátt: 1. ífyrirlestrum, þar sem verður fjallaö um alla megin- þætti sjávarútvegsmála. Fyrirlesarar veröa viður- kenndir sérfræöingar, hver á sínu sviði. Fluttir verða 80-90 fyrirlestrar. 2. Meö sýnikennslu, þar sem fylgst veröur meö vinnslu helstu vörutegunda frá upphafi til enda, rakin þau vandamál sem upp kunna aö koma og rætt um úrlausnir þeirra, bent á möguleika til bættr- ar nýtingar og fjölbreyttari framleiðslu. 3. Meö verklegum æfingum, þar sem aðaláhersla veröur lögð á aö meta vörugæði. Kennarar í sýni- kennslu og verklegum æfingum veröa fagmenn í fiskvinnslu. Innritun fer fram hjá Framleiðni sf. Suöurlandsbraut 32 í Reykjavík fram iii i5. júlí. Þar eru einnig gefnar all- ar nánari upplýsingar. Kennslugjald er kr. 7.500 og greiðist fyrirfram. Framleiðni sf., Suðurlandsbraut 32, sími 85414 Samvinnuskólinn, Suðurlandsbraut 32. Hver er maðurinn? Hver er þessi ungi myndarlegi maður á myndinni hér að ofan? Lesendum til glöggvunar skul- um við gefa þeim nokkrar vís- bendingar. Hann á sæti á löggjafarsam- komunni og framámaður í verkalýðshreyfingunni. Rétt f'yrir lok fimmta áratugarins var hann kosinn formaður ungra jafnaðarmanna í heimabyggð sinni og hefur óslitið starfað í Alþýðuflokknum síðan. Jæja, þekkið þið manninn? Svarið er að finna annars staðar í blaðinu í dag. Minolta X-700 fullkomnasta og vinsælasta reflexmyndavél á markaðnum! bæra valkosti, en samt ótrúlega einfalda meðhöndlun - jafnt fyrir atvinnumenn sem áhuga- Ijósmyndara. Þú getur valið um algjöra sjálfstýringu á P-program sem stjómar bæði Ijósopi og hraða. Þú einbeitir þér að skerpunni og myndefninu - Bingó! Engin hætta á óskerpu vegna hreyfingar myndefnis eða óstöðugrar myndavélar. Þú getur líka notað venjulega sjálfstýringu (A-program) með vali á lokarahraða, eða einfaldlega látið gamminn geisa með sniðugum hugmyndum sem rætast best með M-stillingu. Eins og myndirnar sýna, getur þú fengið sjálftrekkjara (motordrive), algjörlega sjálfvirk leifturljós af mörgum gerðum, databak, auk 50 gerða jdHHHk jaf linsum og yfir 75 gerða af fylgihlutum. Að vísu höfum við ekki allt á MINOLTA X-700. MINOLTA LJÓSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SÍMI 85811 Margra ára reynsla sannar gæði ÞOL er framleitt í fjölbreyttu litaúrvali. þakmálningunar frá Málningu hf. Handhægt litakort auðveldar ÞOL er sérframleidd alkýðmálning, valið á réttum lit. sem innlend reynsla hefur ÞOL tryggir þér fallegt útlit skipað í sérflokk vegna endingar og góða endingu. og nýtni. ÞAKMALNING SEM ENDIST málning'f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.