Alþýðublaðið - 02.07.1983, Side 9
Laugardagur 2. júli 1983
9
lega ábyrgar og standi skil á við-
skiptum sínum við bændur jafn-
óðum og á hreinan og skilmerkan
hátt. Þetta er stórverkefni fyrir ut-
an það að draga úr útflutnings-
bótunum og afnema þær í áföng-
um eins og við Alþýðuflokks-
menn höfum lagt til, vegna þess
að þeir fjármunir, sem þarna eru,
þurfa greinilega að nýtast til ann-
arra hluta. Menn tala um að land-
búnaðarvörur séu líka niður-
greiddar hjá ýmsum Evrópuþjóð-
um eins og t.d. innan Efnahags-
bandalagsins en það er alls ekki í
sama mæli eins og hjá okkur og
að'staða okkar til þess að stunda
útflutning á t.d. mjólkurafurðum
er náttúrlega ekkert sambærileg
við það sem gerist hjá ýmsum
grannlöndum okkar. Á þessa
staðreynd verðum við að horfa og
aðlaga landbúnaðinn hjá okkur
að þessum viðhorfum. En það
hefur gengið grátlega seint og ég
held að það hafi í rauninni líka
bitnað á landbúnaðinum og þar
með á stöðu bóndans í þjóðfélag-
inu.
— Hvað er að segja svona um
þátt einstakra ráðherra í stefnu-
mörkun — nýrri stefnumörkun
frá því að ríkisstjórnin var mynd-
uð? Hvað um „útsölu“ ríkisfyrir-
tækja, stóryðjumálin, þar sem
fjármálaráðherra segir að eignar-
aðild íslendinga komi tæpast til
greina og breytingar í bankakerf-
inu o.s.frv. Sýnist þér að þarna sé
á einhverjum sviðum um verulega
stefnubreytingu að ræða?
Á hvaða verði?
— Um sölu á ríkisfyrirtækjum
verður að segja það, að mér finnst
það fráleitt að ætla að taka ein-
hverja ákvörðun um það fyrir
fram að selja svo og svo mörg rík-
isfyrirtæki. Það getur varla verið
vænlegt fyrir ríkissjóð að fara að
selja fyrirtæki á hvaða verði sem
er. Hitt er það, að að hve miklu
leyti ríkið skuli vera með atvinnu-
rekstur eða ekki hlýtur ævinlega
að vera álitamál og það er ekkert
trúaratriði frá okkur Alþýðu-
flokksmönnum að ríkið þurfi
endilega eiga svo og svo mikið af
fyrirtækjum í landinu. Það er
grundvallarmisskilningur ef ein-
hver heldur það. Hlutverk ríkisins
í þessum efnum getur verið það að
koma inn til þess að koma fyrir-
tækjum á fót eða sjá til þess að
þeim sé haldið uppi vegna at-
vinnustarfsemi á ákveðnum svið-
um eða stöðum. En síðan mega
þau fyrirtæki gjarnan ganga til
annarra aðila, þegar þannig að-
staða er í þjóðfélaginu. Ég held,
að það sé ákaflega varasamt að
ætla að halda einhverja sérstaka
heildsölu núna eða útsölu á ríkis-
fyrirtækjum eins og mér heyrist
að fjármálaráðherra sé að boða.
Við eigum náttúrlega eftir að sjá,
hvað býr að baki þessum orðum,
því að allt er þetta ákaflega al-
mennt orðað. En orðbragð eins og
„afsósíalísering“ í þessu sam-
bandi er náttúrlega gersamlega út
í hött.
Að því er stóryðjuna varðar, þá
er það skoðun okkar Alþýðu-
flokksmanna að það verði að
skoða í hverju einstöku tilviki,
hvort íslendingar og þá íslenska
ríkið, líklegast í flestum tilvikum,
eigi að eiga minni eða stærri hlut
í slíkum fyrirtækjum. Það verður
í fyrsta lagi að fara eftir stærð fyr-
irtækjanna, hvort það væri álit-
legt fyrir íslendinga að eiga hlut i
fyrirtækjunum. í annan stað eftir
því hversu arðvænleg þau eru.
Meginmálið er auðvitað að ná
tökum á stjórn fyrirtækjanna,
hafa afgerandi áhrif á stjórn
þeirra og geta haft gott eftirlit
með því hvernig þau eru rekin. Af-
dráttarlausar yfirlýsingar af því
tagi sem Sverrir Hermannsson
hefur gefið eru vafasamar að því
leytinu, að það er verið að lýsa því
yfir að ákveðnir hlutir komi alls
ekki til greina. Það er svona álíka
heimskulegt eins og þegar Hjör-
leifur Guttormsson lýsti því yfir í
sambandi við viðræður við eig-
endur ÍSAL, að stækkun á álver-
inu gæti alls ekki komið til greina.
Auðvitað er það einn af þeim hag-
kvæmu kostum sem fyrir hendi
Framh. á 18. síðu
ÍSLENSKIR
TÖLVUSPILAKASSAR
• Sterkir, vandaðir og
ódýrir.
• Mikið úrval leikja fyrir-
liggjandi. Hver leikur
aðeins 1500 kr.
• Samsettir úr eining-
um. Auðveldar
viðgerðir.
• Myntinntak stillanlegt
fyrir hvaða mynt sem
er.
• Stór myntkassi (3
mánuðir).
• Margir nýir leikir
koma á markaðinn í
hverjum mánuði.
• Hentugir fyrir sjoppur,
félagsheimili, spilasali
og billjardstofur.
• Sýningarkassi á
staðnum.
mm
•'áwifoiSS
TOLVUBUÐINHF
Skiphoiti 1, Reykjavík. sími 25410.
S^MUNDUR
FROÐI Ssk
að sigla með selnum forðum
ef Flugleiðir hefðu verið
byrjaðir
að fljúga til Parísar!
Eins og flestum er kunnugt lenti Sæmundur í umtals-
verðum samgönguerfiðleikum og varð að beita göldrum
til þess að komast yfir hafið.
Nú er öldin önnur því Flugleiðir bjóða PEX-farmiða á ótrú-
lega hagstæðu verði til Parísar, Luxemborgar og Frankfúrt.
París verð kr. 9.899.-
Luxemborg verð kr. 10.242.-
Frankfúrt verð kr. 9.993.-
Um PEX-miða gilda m.a. eftirfarandi skilmálar: Lágmarks-
dvöl er 1 vika. Bóka skal fram og til baka og greiðsla þarf
að fara fram samtímis. Allar nánari upplýsingar veita sölu-
skrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og feroaskrifstofur.
Af hverju ætli Sæmundur hafi ekki leigt sér örn?
Miðað er við gengi 1/7 1983
FLUGLEIDIR
Gott fótk hjá traustu félagi