Alþýðublaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 2. júlí 1983
Kenningin er röng
nn séu ekki forstoðu
iírmálastofnana^
Nýtt útibú
Landsbankans
á fitreksfiröi
Landsbanki íslands hefur opnað nýtt útibú á Patreksfirði,
Aðalstræti 75, sími: 94-1314.
Útibúið veitir alla almenna bankaþjónustu, innlenda og erlenda.
Afgreiðslutími:
Mánudaga til föstudaga kl. 9.15 til 12.30 og kl. 13.30 til 16.00.
LANDSBANKINN
Banki allra landsmanna
Nýbreytni Morg-
unblaðsins
Sú ánægjulega breyting hefur
orðið á Morgunblaðinu, að þröngir
flokkshagsmunir hafa verið látnir
víkja fyrir gagnrýninni umræðu um
þjóðmál. Kemur þetta hvað best
fram í skrifum blaðsins um hina
makalausu rikisstjórn, sem Stein-
grími Hermannssyni tókst að
mynda aðeins mánuði eftir kosn-
ingar. Er víst, að allir þeir sem unna
gagnrýninni opinberri umræðu,
fagna þessari nýbreytni Morgun-
blaðsins. Treystir breytingin Morg-
unblaðið enn fastar í sessi sem
framvörð íslenskrar blaðamennsku
og verður vart líkt við önnur blöð,
innlend. Samlíkinguna er helst að
finna úti í Evrópu þar sem beztu
borgarblöð hafa farið sama veg og
Morgunblaðið fer nú. Sjálfstæði
blaðs gagnvart flokki er til fyrir-
myndar. Verða flokksblöðin ís-
lensku á augabragði eins og rödd
fortíðarinnar eftir þessa breytingu.
í Morgunblaðinu er framtíðin. Nú
rís það svo sannarlega undir því að
vera kallað „blað allra Iands-
manna“
Ríkisstjórn Stein-
gríms
Um tíma var það afdráttarlaus
stefna Morgunblaðsins, að eina
færa stjórnarmyndunarleiðin væri
að dreifbýlisflokkarnir tveir færu
saman í ríkisstjórn. aðrir kostir
voru taldir slæmir kostir. Það kom
svo i ljós fljótlega eftir að skipting
ráðuneyta lá fyrir, og málefna-
samningur ríkisstjórnar Steingrims
Hermannssonar, að Morgunblaðið
treysti sér ekki til að verja þessa rík-
isstjórn. Hefur blaðið í fréttum og
stjórnmálaskrifum hvað eftir ann-
að tekið forystu um að benda á veil-
urnar í því sem ríkisstjórnin ætlar
sér að gera, og fjallað af mikilli
gagnrýni um störf einstakra ráð-
herra og embætta. í þessu er fólgin
hin ánægjulega breyting. Upplýst,
fordómalaus, opinber umræða er
nauðsynlegur þáttur hins borgara-
lega lýðræðis. Og hér setur blaðið
sig skör hærra en aðrir fjölmiðlar í
landinu. Gætu ríkisfjölmiðlar lært
nokkuð af Morgunblaðinu þessa
dagana.
Framtíð Alberts
fjármálaráðherra
Illgjarnir menn hafa haldið því
fram, að stefnubreytingu Morgun-
blaðsins megi rekja til þess, að Al-
bert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, er nú oddviti Sjálfstæðis-
flokksmanna í ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar. Það er af og
frá að slík skýring fái staðist og ber
aðeins vott um skilningsskort á
Morgunblaðinu og ritstjórnar-
stefnu þess.
Rétt er að Morgunblaðið fagnaði
ekki úrslitum prófkjörsins í Reykja-
vík, en það var vegna hraklegrar út-
komu formanns flokksins, sem nú
situr við Hverfisgötu í Reykjavík,
eins og hver annar embættismaður
í þjónustu hins opinbera. Menn
verða að minnast þess, að Morgun-
blaðið fagnaði kjöri Alberts í for-
ystugrein, strax eftir að úrslit próf-
kjörsins lágu fyrir. Síðan hefur
blaðið margsinnis sýnt Albert mik-
inn sóma. Stuttu fyrir kosningar
var birt við hann viðtal á áberandi
stað í blaðinu, og fráleitt að hugsa
sér, að slíkt hafi verið gert til að
koma höggi á forystumenn flokks-
ins í Reykjavík. Og nú síðast eru
birtar nær daglega fréttir af at-
hafnaþrá Alberts í embætti. Morg-
unblaðið er því ekki á móti ríkis-
stjórninni af því það er á móti Al-
bert, eða öfugt! Hér er um að ræða
nýbreytni i stefnu ritstjóra, sem
ekkert á skylt við lágkúruleg
bræðravíg. Morgunblaðið hefur
tekið breytingum. Góðan daginn!
Forysta Alberts
og yngri
mennirnir
Saga Sjálfstæðisflokksins er öðr-
um þræði saga sterkra forystu-
manna. Manna sem þora. Ólafur
Thors þorði 1939. Gunnar Thor-
oddsen þorði 1979. Og nú þorir Al-
bert. Á örskömmum tíma hefur
hann orðið að forystumanni þeirra
ungu þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins, sem fyrir kosningarnar
1979 vildu að báknið yrði fært burt
o.s.frv. Hann hefur enn á ný sýnt,
að þá vegnar Sjálfstæðisflokknum
best þegar styrk hönd heldur um
stjórnvölinn. Stjórnfesta hans verð-
ur án efa til þess að hvetja yngri
þingmenninga til dáða og verður
spennandi að fylgjast með þeim
strax í haust, enda langt síðan Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur getað horft
fram á veginn undir kjörorðinu: -
Eining er afl!
Að lokum þetta: í stað þess að
velta upp falskenningum um stjórn-
arandstöðu Morgunblaðsins væri
ykkur Alþýðublaðsmönnum holl-
ara að reyna að læra af Morgun-
blaðinu. Það hefur tekið forystu í
andstöðu við ríkisstjórn Stein-
gríms. Það hefur enn á ný sýnt, að
frjálsleg fréttamennska er framtíð-
in í opinberri umræðu. Á sama hátt
og Albert er nú framvörður ungu ó-
reyndu þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins er Morgunblaðið fram-
vörðurinn í íslenska blaðaheimin-
um. Því verður ekki breytt með illu
umtali Alþýðublaðsins.
— HMA
Aðalfundur Alþýðu-
flokksfélags Reykja-
víkur verður haldinn
mánudaginn 11. júlí í
Iðnó og hefst kl.
20.30
Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf.
Reikningar félagsins og tillögur uppstill-
inganefndar liggja frammi á skrifstofu
Alþýöuflokksins Hverfisgötu 10.
Stjórnin