Tíminn - 25.01.1967, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.01.1967, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. janúar 1967 TÍMINN ÞEGAR RUSSAR STODVUDU SÓKN ÞJÓDVERJA Réttur aldarfjórðungur er liðinn frá því er blóðugir bar dagar stóðu skammt undan Moskvu milli hersveita Hitlers og sovézkra hermanna. Þýzku herirnir höfðu geyst inn í Rússland og haldið sömu leið og Napoleon forðum, en sókn þeirra var stöðvuð skammt frá höfuðborginni. í október 1941 fól Stalin Grigorij Sjukov marskálk yfirherstjórnina á miðvígstöðvunum, þar sem Þjóð verjar höfðu hafið sókn sina til Moskvu fyrr í mánuðinum, en Rússar höfðu tryggt varn ir höfuðborgar sinnar, og lið sveitir Sjukovs vörðust af mik illi hreysti og héldu fjandmönn unum í skógunum fyrir vestan Moskvu. í býrjun desember þegar Rússarnir hófu gagn- árás voru þýzku hermennirnir, .vo yfirkomnir af vetraikuld anum, að þeir neyddust til að hefja undanhald. Enda þótt bar dögunum við Moskvu linni ekki fyrr en um miðjan apríl 1942, var mesta hættan liðin hjá og Hitler tókst aldrei að komast inn í Kreml, eins og Napoleon á sínum tíma. Hér fata á eftir nokkrar glefs ur teknar upp úr greinum, er Sjukov hefur skrifað um þessa örlagaríku bardaga. Greinamar voru birtar í Söndags Politik en og í formála ritstjóranna segir, að hinn kommúnistíski þánkagangur höfundarins leyni sér hvergi, en þrátt fyrir það séu greinar fróðjegar mjög, það sem einkum gefi þeim gildi séu samtöl, sem höf undur átti við sjálfan Stalín símleiðis, meðan slagurinn stóð sem hæst. — Yfirstjórnin á vesturvíg- stöðvunum átti og varð að nýta liðssveitir sínar til hins ítrasta, því að hættan vofði yf ir. Á öllu hættusvæðinu varð að gera víðtækar vaniðarráð- stafanir og kalla saman vara- Uð við framlínumar. Allir urðu að vinna sem mest þeir máttu, jafnvel allan sólar hringinn. Fólkinu var ekki sýnd nein miskunn, en það gerði sitt bezta og vann ótrúlegustu af- rek. Herforingjiar og lið'foringj ar í aðalbækistöðvunum og stjórnmálafulltrúar af öllum gráðum sýndu þar í verki ein- stæða fómarlund og föðurlands ást. Þeir héldu uppi njósnum og höfðu frábærlega góða um- sjón með liðstyrknum á allri víglínunni. Þeir útveguðu lið- sveitunum allt sem þær þurftu, bæði vopn, matvæli og klæði, og síðast en ekki sízt gerðu þeir allt sem þeir gátu til að hvetja hina óbreyttu hermenn til dáða stappa í þá stálinu og brýna fyrir þeim, hversu mikilvægu hlutverki þeir hefðu að gegna. — Það var komið fram í miðjan október, og ekkert lát var á sókn óvinanna, en við urðum að hafa nægilegan tima til að skipuleggja varaarkerfi okkar, ef borgin átti ekki að og var það okkur mjög í vil. Hinar innilokuðu herdeildir fengu stuðning frá aðalbæki- stöðvunum og vígstöðvunum á framlínunni, sem sendu þeim mat og skotfæri með fallhlífum, og gerðu hvað eftir annað loft árásir á Þjóðverjana. Annan stuðning megnuðu þær ekki að veita þeim- Tvisvar sinnum fengu liðsforingjar herdeildanna tilkynningar á dulmáli gegnum talstöð, þar sem gefið var til kynna, hvar og hvernig þeir ættu að brjótast út úr víta- hringnum, og var Lukin hers- höfðinga 19. herdeildar skipuð yfirstjórn með þessum fram kvæmdum. Voru þeir beðnir um að tilkynna um hæl á dul- máli, hvemig þeir ætluðu að haga árásinni, og segja auk þess á hvaða svæðum þei. vildu að loftárásir yrðu gerðar á fjand mennina. Þessi skilaboð komu greinilega alltof seint, því að við fengum engin svör við þeim. Um svipað leyti tók miðstjóm Flokksins þá ákvörðun, að flytja frá Moskvu tll Kuibysjev ýmsar deildir og stofnanir sín ar, svo og erlend sendiráð, og nokkuð af ríkisfjármunum. Framkvæmdir hófust 15. októ ber, og Moskvubúar flestir að- stoðuðu og sýndu fullan skiln- ing. En þó vom margir hugleys ingjar og svikarar, sem flúðu í allar áttir, og básúnuðu það út, að höfuðborgin mundi falla og íbúamir myndu eiga fótum sín um fjör að launa og orsakaði þetta talsverða ringulreið i borginni. Vaf því tekið það ráð að lýsa yfir útgöngu banni í Moskvu og nærliggjandi héruðum. Áætlun Þjóðverja um að taka Moskvu rann út í sandinn. Her mennirnir féllu í hrönnum, ellegar urðu undan að hörfa, og i októberlok var sókn þeirra gjörsamlega stöðvuð við fram línuna Turginovo-Aleksin. Úr endurminningum Sjúkovs, marskálks, er stjórnaði herjum Rússa í styrjöldinni falla í óvinahendur. Það er ekki að vita hvetnig farið hefði, ef 6 herdeildir hefðu ekki ver ið umkringdar óvinaherjunum vestur af Vyazma. Þarna var drýgð ein mesta hetjudáð í þessum bardögum. Þegar að hermömnum varð ljóst, að þeir vora að baki bakliði óvin anna, lögðu þeir ekki niður vopn, heldur héldu þeir áfram að berjast af mikilli hreysti og brjótast út úr þessum víta- hring og sameinast aðalheraflan um. Á þennan hátt töfðu þeir sókn margra þýzkra herdeilda Yfirstjórn herdeildanna var aug sýnilega í molum, og aðeins ein staka hópar gátu brotizt út úr vítahringnum. En staðfesta og áræði þessara liðsveita leiddi af sér, að sókn meginhluta óvinahersins var stöðvuð, þegar okkur var það helzt í hag, því að okkur gafst tími til að skipuleggja ver arlín umar umhverfis Mozhaisk. Fóm ir liðsveitanna 6 vora ekki til einskis færðar. Dáðin, sem þess ir sovézku hermenn drýgðu við Vyazma varð til ómetanlegs gagns fyrir föðurlandið. Fjandmennimir réðust nú að borginni Tula og ætluðu að taka hana með skyndiáhlaupi, og sækja þaðan til Yelets og Voronezh. Ekki tókst þeim það heldur, og var það Moskvu til ómetanleegs gagns. Fáar her- deildir voru til að verjia borg ina, en borgarbúar ungir sem gamlir tóku upp vopn og börð ust af dæmafárri hreystL En sjálf Moskva var ekki úr alM hættu, og gerðu íbúarnir sér það fyllilega ljóst. Allir sem vettlingi gátu valdið buðu fram kfafta sína og á tæpum tveim ákváðu á fundi 13. október, að myndaðar skyldu alþýðuher- deildir í hverju borgarhverfi, og á örfáum dögum fengust 12. 000 menn, aðallega ungkommún istar. Um 100-000 manns voru látnir stunda heræfingar, en héldu þó áfram að sækja vinnu sína- 17 þúsund konur voru látn ar sækja námskeið í hjálp í viðlögum. Karlmennimir höfðu stundað ýmiss störf, vora verkamenn, verkfræðingar, tæknifræðingar, vísindamenn eða listamenn. Framhald á bls. 12. Grigorij Konstantinovitsj Sjukov, — hlaðinn heiðursmerkjum ur mánuðum skipulögðu her- yfirvöldin 5 herfylki í Moskvu, til viðbótar þeim 17, sem verið höfðu frá stríðsbyrjun. Auk þessa vora skipulagðar fjöl margar fleiri deildir, og árásar flokkar. Forkólfar Flokksins í Moskvu Austurvígstöðvarnar (sem Rússar kölluðu Vesturvígstöðvarnar). Þjóðverjar klæddir til sumarstyrjaldar berjast gegn hinum harða og miskunnaríausa rússneska vetrl. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.