Tíminn - 11.02.1967, Page 1
35. tbl. — Laugardagur 11. febrúar 1967. — 51. árg.
Aætlanír framkvæmdanefndar byggingaráæflana hafa gengið úr skorðum:
EKKERT FJÖLBVLISHUS TILBOtD Á ÁRINU?
EJ-Reykjavík, föstudag.
Áætlanir Framkvæmdanefnd
ar byggingaáætlana um fram
kvæmdir við íbúSabyggingarnar
í Breiðholtshverfinu hafa geng
ið all mikið úr skorðum, og
framkvæmdum því seinkað frá
því, sem upphaflega var áætlað.
Áætlað er að í fyrsta áfanga
verði reist sex fjölbýlishús með
312 íbúðum og 23 einbýlishús,
en ekki er talið sennilegt, úr
því sem komið er, að nokkurt
fjölbýlishúsanna verði tilbúið
til notkunar á þessu ári.
Blaðið ræddi um þróun þessa
máls við Hannes Pálsson, full-
trúa, sem á sæti í húsnæðismála
stjórn. Eins ræddi blaðið við
hann um ástandið í lánamalum
hins almenna húsbyggjenda og
um byggingakostnaðinn, og
birtist það viðtal á baksíðu
blaðsins.
Hvað líður hinni svokölluðu
byggingaáætiun, Hannes?
— Það væri kannski betra að
leita til einhverra annarra held
ur en mín varðandi fram-
kvæmdir hinnar svokölluðu
Framkvæmdanefndar bygging
aráætlunar, því að þannig var
um búið frá hendi löggjafans,
að framkvæmdanefndin skyldi
svo skipuð, að enginn fram-
sóknarmaður kæmi þar nærri.
Erum við þess vegna ókunnari
gangi málsins, heldur en búast
má við að aðrir séu, og hefði
þvi ef til vill verið bezt fyrir
Tímann að snúa sér beint til
formanns framkvæmdanefndar-
innar, Jóns Þorsteinssonar, al-
þingismanns.
En eftir því, sem ég veit bezt,
og flestum mun kunnugt um,
var í löggjöf ákveðið að rík-
ið beitti sér fyrir byggingu
1250 íbúða á fimm árum. Tii
þess að hafa yfirstjórn þeirra
mála var ákveðin 5 manna
stjórn, sem valin var eftir sér
stökum reglum, þannig úthugs-
uðum, að enginn framsóknar-
maður yrði í þeirri nefnd.
Tilgangurinn var sá, að með
því að byggja þetta margar í-
búðir, sem mest staðlaðar,
myndi mega ná ódýrari bygg
ingum, heldur en með því fyr-
irkomulagi sem tíðkast hefur
hingað til. Og við verðum að
vona að þetta takizt.
Framkvæmdanefndin hefur
Framhald bls. 14-
Milljóna
launatap
á Isborg?
FB—Reykjavík. föstudag.
í gær var auglýst upp-
boS á flutningaskipinu ís-
borgu, en því var frestaS,
eftir að stofnlánadeild
sjávarútvegsins hafði boðið
800 þúsund krónur í skipið,
en það mun ekki vera
nema einn þriðji hluti
þeirrar upphæðar, sem sjó
veðskröfur hljóða upp á.
Fór lögfræðingur sá, Gunn
ar Jónsson, sem er fyrir
ýmsa af þeim sjómönnum,
sem þessar kröfur eiga,
fram á frestinn, og fékk
hann fram til kl. hálf tvö á
mánudaginn.
Gunnar Jónsson tjáði blaðinu,
að í gær hefði átt að fara fram
uppboð á ísborginni, og búið
hefði verið að lýsa sjóveðskröf
um, sem aðallega eru vinnu-
launakröfur, fyrir hátt. á
þriðju milljón króna. Undir
venjulegum kringumstæðum
hafa lánastofnanir boðið upp
f^Tir sjóveð og upp í sinn veð
rétt, og síðan eru sjóðveðin
borguð, en þarna skeði það að
aðeins voru boðnar 800 þús.
krónur.
Hefði skipið verið selt fyrir
þessa upphæð, hefði orðið að
strika út meira en tvo þriðju af
mannakaupinu, en milli 15 og
25 sjómenn munu eiga þarna
kröfur vegna vangoldinna
launa, og hafa þau safnazt upp
á rúmu ári.
Auk sjóveðanna hvíla þing
lýst lán á skipinu fyrir 11 til
12 milljónir lrróna. Eigyndur
skipsins eru Borgir h. f. ísborg
var áður togari, en var síðan
breytt í flutningaskip.
Jörgensen- málið lamar
athafnalíf í Vestm.eyjum
1. Gísli Guðmundsson, alþingis-
maður, Hóli, N.-Þing.
2. Ingvar Gíslason, alþingismaður
Akureyri.
3. Stefán Valgeirsson, bóndi, Auð-
brekku.
4. Jónas Jónsson, jarðræktarráðu-
nautur, Reykjavík.
5. Björn Teitsson, stud- mag.
Brún, S.-Þing.
6- Sigurður Jóhannesson, verzl-
unarmaður, Akureyri.
7. Guðríður Eiríksdóttir, hús-
mæðrakennari, Syðra-Lauga-
landi, Eyjaf.
stendur sú rannsókn nú yfir.
Útvegsbankinn mun vera búinn
•að segja FriSrik Jörgensen upp
öllum viðskiptuim við bankann,
og getur það varla þýtt annað en
að einkafyrirtækinu Friðrik Jörg-
ensen sé mjög sniðinn stakkur
við þær aðgerðir.
Eftir því sem blaðið kemst næst
þá beinist rannsóknin fyrir Saka
dómi Reykjavíkur nú aðallega að
vanskilum Friðriks Jörgensen við
fiskvinnslufyrirtæki í Vestmanna-
eyjum, en búast má við að rann-
sóknin svipti hulunni af gjaldeyr
isviðskiptum Friðriks. Þá munu
þeir. sem Friðrik keypti af grá-
sleppuhrogn fyrir norðan, eiga eft
ir að fá uppgert, en Friðrik Jörg
ensen mun eiga nokkrar birgðir
óseldra grásleppuhrogna hér í
Reykjavík.
Frá Vestmannaeyjum berast
þær fregnir að launagreiðslur
dragist mjög á langinn hjá sumum
fyrirtækjum, og sums staðar er
jafnvel ekkert borgað út, og eiga
Framhaid s bls »4.
8. Þórhallur Björnsson, deildar-
stjóri. Revkjavík.
9- Björn Stefánsson, skólastjóri,
Ólafsfirði.
10. Ingi Tryggvason, bóndi, Kár-
hóli, S.-Þing. I
KJ—Reykjavík, föstudag.
Svo er nú komið að mál Frið-
riks Jörgensen hefur lamað at-
vinnulífið í Vestmannaeyjum að
nokkru. Launagreiðslur hjá fyrir-
tækjum dragast á langinn, við-
gerðir á bátum eru ekki greiddar
og fiskvinnslufyrirtæki standa
ekki í skilum mcð opinber gjöld.
Á meðan rannsókn málsins heldur
áfram, er búið að setja Friðrik
Jörgensen í farbann, og þá mun
vera búið að segja honum upp
öllum viðskiptum í Útvcgsbank-
anum.
Það mun hafa verið í nóv. að
viss fyrirtæki í Vestm.eyjum þóttu
skulda nokkuð mikið. Þessi fyrir-
tæki höfðu falið útflutningsfyrir-
tækinu Friðrik Jörgensen, sem
mun vera einkafyrirtæki, að selja
fyrir sig afurðir, en fyrirtækin
höfðu ekki fengið greiðslur frá
Friðrik Jörgensen þótt búið væri
að selja afurðirnar. og vitað var
að kaupendur erlendis væru búnir
að inna greiðslur af hendi. Útvegs
bankinn hafði samkvæmt venju
veitt afurðalán til fiskvinnslufyrir
tækjanna út á þessar afurðir, sem
voru veðsettar fyrir lánunum. Var
þá þegar hafin rannsókn á því
hvernig stæði á þessum vanskil-
um, og kom í ljós að Friðrik Jörg
ensen hafði ekki greitt fiskvinnslu
stöðvunum, eins og honum bar.
Fyrir jól óskaði svo Útvegsbank-
inn eftir rannsókn á máli þessu
fyrir Sakadómi Reykjavíkur, og
Þessi mynd var tekin í Hafnarfirði í fyrrakvöld af stjórn nýstofnaðs Felags Framsoknarkvenna i
Hafnarfirði, Garða- og Besstastaðahreppi. Talið frá vinstri: Jóhanna Helgadóttir, Ragnheiður Sveinbjörns
dóttir, Margrét Þorsteinsdóttir, formaður, Valgerð ur Guðmundsdóttir og Helga Guðmundsdóttir.
Frétt og myndir eru frá stofnfundinum á bls. 2.
12. Eggert Ólafsson, bóndi, Lax-
árdal, N.-Þing.
Birtur hefur verið framboðslisti
Framsóknarmanna í Norðurlands- j
kjördæmi eystra, við Alþingiskosn
ingarnar sem fram eiga að fara í
vor. Er listinn þannig skipaður:
11. Arnþór Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri, Akureyri.
FRAMBOD FRAMSÖKNARMANNA
í NORÐURL.KJÚRDÆMI EYSTRA
4