Tíminn - 11.02.1967, Side 7
LAUGARDAGUR 11. febrúar 1967
utanríkis- og
varnarmáium
Það vakti mikla athygli, er
Emil Jónsson, utanríkisráð-
herra kom á fund hjá Stúd-
entafélaginu nú á mánudaginn
óg fór þar mjög halloka í all-
hvössum umræðum. Var það
raunar að vonum, því að ekki
hefur reisn íslenzkrar utanrík-
isstefnu verið ýkja mikil undir
stjórn þeirra félaga Guðmund-
ar í. og Emils, og undirlægju-
hátturinn gagnvart Bandaríkja
mönnum verið opinheraður í
sjónvarpsmálinu og að því er
varðar afstöðuna gagnvart að-
ild Kína að Sameinuðu þjóð-
unum, svo að dæmi séu nefnd.
Furðulegt var, að utanríkis-
ráðherrann vissi ekki (eða vildi
ekki vita?), hvaða afstöðu ís-
land hafði tekið á Allsherjar-
þinginu í haust við afgreiðslu
tillögu mn aðild Kína. Þá má
telja jafn furðuleg orð ráð-
lierrans varðandi sjónvarpsmál
ið, en hann hafði ekki haft
fyrir því að búa sig hið
minnsta undir að svara fyrir-
spurnum um það mál, þó að
vita mætti, að um það hlytu
háskólastúdentar að spyrja
öðru fremur. Vegna fjölda fyr-
irspurnanna um þetta mál varð
ráðherrann að opinbera fá-
fræði sína og vandræðalega af-
stöðu í einstökum atriðum. Má
segjÉTalf íájílierranum myndi
ekkÞ veRaf^af því að kalla nú
Ioks saman eftir margra ára
hlé utanríkismálanefnd Alþing
is og leita hjá henni ráða um
þessi mál og mörg fleiri, því
að varla fengjust þaðan verri
ráð en þau sem ráðherrann hef
ur fengið til þessa og farið eftir.
Nú eru utanríkis- og varnarmál
þjóðarinnar enn til umræðu á
almennum fundi. Þegar ungir
Framsóknannenn samþykktu í
haust í einu hljóði á þingi sínu
ályktun um varnarmálin, þar
sem lagt var til, að gerð yrði
þegar í stað fjögurra ára áætl-
un um brottför varnarliðsins,
án þess þó að við segðum okk-
ur úr Atlantshafsbandalaginu
að óbreyttum aðstæðum, held-
ur skyldu íslendingar taka við
gæzlu ratsjárstöðva bandalags-
ins hér, þá urðu ýmis öfl lil
þess að rísa upp á afturfæt-
urna. Sérstaklega þótti komm-
únistum illt, að Framsóknar-
menn skyldu allt í einu verða
til þess að taka í sínar hendur
raunhæft frumkvæði í þessu
máli, sem kommúnistar liafa
löngum sjálfir viljað slá eign
sinni á. Hafa nú ungkommar
skorað á SUF til kappræðu-
fundar um broítför hersins og
Atlantshafshandalagið. Ungir
Framsóknarmenn töldu að
íhuguðu máli, að rétt væri, að
þessi mál væru rædd opinber-
léga sem mest, og tóku áskor-
uninni. Er nú fundurinn aug-
lýstur til hliðar hér á síðuuni.
Staksteinahöfundur Morgun-
blaðsins hleypur út undan sér
í fyrradag út af þessum fyrir-
hugaða fundi, og er ungum
Framsóknarmönnum þar álas-
að fyrir að vilja ræða við
kemiminista. Við þessu er það
að segja, að ungir Framsókn-
armenn telja tillögur sínar í
þessum málum svo athyglis-
verðar, að þær séu verðar um-
ræðna opinberlega, og eru þeir
þá að sjálfsögðu fúsir til kapp-
ræðna við hvaða stjórnmála-
BROTTFÖR
VARNARLIÐSINS
OG
ATLANZHAFS-
BANDALAGID
verður haldinn á Hótel Borg
n.k. sunnudag kl 15.30
Framsögumenn verða Ólafur R. Grímsson og Ragnar Arn-
aids. - Ölium heimiil aðgangur.
Ólafur Grímsson
Ragnar Arnalds
Frá fundi SUF og FUF í Vestmannaeyjum
Eins og auglýst var í Vettvang-
inum var í ráði að stjóm SUF
færi til Vestmannaeyja helgina 28.
og 29. janúar sl og gengist fyrir
almennum fundi um ný viðhorí
í íslenzkum stjórnmálum, ásamt
FUF þar. Veðurguðimir sáu hins
vegar fyrir því að ekki var flug
veður um þá helgi, en á mánudag
héldu tveir stjórnarmenn SUF
þeir Baldur Óskarsson og Ólafur
Ragnar Grimsson til Eyja og
var áður auglýstur fundur haldinn
þá um kvöldið. Við komuna til
Eyja hlutu þeir hinar ágætustu
móttökur og nutu leiðsagnar Her-
manns Einarssonar, kennara í
Vestmannaeyjum, en hann er
einnig í stjórn SUF. M.a. vom
þeim sýndar fiskvinnslustöðvarn-
ar og ræddu við ýmsa menn um
sjávarútveginn og vandamál fisk-
iðnaðarins. Einnig skoðuðu þeir
náttúrugripasafnið undir leiðsögn
Friðriks Geirssonar og Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja í fylgd
Arnars Einarssonar, kennara.
I Fundur FUF hófst kl. 8,30. For-
maður FUF í Vestmannaeyjum
|Pálmi Pétursson, setti fundinn og
^stýrði honum, en tilnefndi Örn
| Ólafsson fundarritara. I-Iann ávarp
; aði fundinn nokkrum orðum, en
síðan héldu ræður Hermann Ein-
arsson, Baldur Óskarsson og ól-
afur Ragnar Grímsson. Hófust síð-
an fjörugar umræður sem stóðu
til miðnættis. Var auk þess beint
fjölda fyrirspurna til frummæl-
enda. Meðal þeirra sem tóku til
máls voru: Sigurgeir Kristjánsson
Sveinn Guðmundsson, Ástvaldur
Helgason, Jóhann Björnsson,
Björn Baldursson og Sveinbjörn
Guðmundsson. Voru fundarmenn
sammála að hefja öflugt starf til
kynningar á stefnu og starfi ungra
Framsóknarmanna og væru þeir
líklegir til að geta orðið braut-
ryðjendur í baráttunni fyrir end-
urreisn íslenzks þjóðfélags.
Að fundi loknum var gestum
boðið að skoða lögreglustöðina í
fylgd Sigurgeirs Kristjánsson-
ar, yfirlögregluþjóns, og að lokn-
um viðræðum við hann var geng-
ið niður á bryggjur, þar sem
fyrstu línubátarnir voru að halda
á miðin.
Til Reykjavíkur var flogið iag-
inn eftir, en Vettvangurinn hefur
verið beðinn að flytja kveðjur og
þakkir stjórnar SUF fyrir inægju
legar móttökur og fjörugan fund.
Rifstjóri:
Björn Teitsson
samtök ungra manna önnur,
sem þess kunna að óska. For-
ráðamenn SUF telja, að með
slíkum fundum vekji þeir ein-
mitt bezt athygli alls almenn-
ings og þá einkum yngri kyn-
slóðarinnar á því mikla vinda-
máli, sem hér er um að ræða,
og sýni það svart á hvítu, að
þeir liafi með tillögum sínum
tekið raunhæft frumkvæði \ um
ræðum um málið. Hitt kemur
svo engan Veginn á óvart, þótt
bæði íhald og kommúnistar séu
Htt hrifnir af þeirri þróun
mála. —'i.
Vertíðar mynd frá Vestmannaeyjum.
Ný viðhorf í
mrnTSMM tíminn
Umræðufundur Sambands ungra Framsóknarm. og Æskulýðsfylkingar um