Tíminn - 17.03.1967, Síða 14
TÍMINN
KAUPFÉLAG SUÐUR-BORGFIRÐINGA
AKRANESI
SÍMAR: 2210-2211
MATVÖRUBÚÐIR:
Kirkjubraut 11. — Sími 2212
Stillholt 2 — Sími 2213
BYGGINGAVÖRUVERZLUN:
OLÍUSALA:
Sunnubraut 13. — Sími 2217
UMBOÐ FYRIR:
BIFREIÐAR: Chevrolet, Buick, Opel, Vauxhall, Bedford, Scout.
DRÁTTARVÉLAR: Ferguson, Farmall, ásamt hjálpartækjum.
HEIMILISTÆKI: Westinghouse-kæliskápa, frystiskápa, eldavélasett, s
járn, þvottavélar, þurrkara o.fl. — Frigidaire-kæliskápa,
þvottavélar. — Kitchen-Aid-hrærivélar (þrjár stærðir),
uppþvottavélar. — Levin-frystikistur, 250—280—410—
510 lítra— Wascator-þvottavélar fyrir stór heimili og
fjölbýlishús.
VÆNTANLEG: Luma sjónvarpstæki.
Öb 'í'riá H ■Ude-mii ítb
t> ilílBír 3
30 ÍT6S?0*ffí
: fö? ■■-.aA
KAUPFÉLAG
VESTUR-HÚNVETNINGA
Á HVAMMSTANGA
sendir TÍMANUM beztu óskir í tilefni af
50 ára afmæli hans, þakkar honum öflug-
an stuðning við samvinnufélögin og
væntir þess, að hann haldi áfram að
styðja heilbrigt samvinnustarf og annað,
sem til heilla horfir í þjóðfélaginu.
Bráðum er liðin ein öld síðan Vestur-Húnvetningar tóku fyrst
þátt í almennum félagssamtökum um viðskiptarekstur. Fé-
lagsverzlunin við Húnaflóa var stofnuð á fundi að Gauks-
mýri í Vestur-Húnavatnssýslu 15. marz 1870. Félagssvæði þess
var mjög stórt, eða frá Siglufirði vestur um sveitir og suður
í Borgarfjörð. Almenn þátttaka var í félaginu; t.d. gerðust um
100 Vestur-Húnvetningar þar félagsmenn. Félagsverzlunin
starfaði í tæplega áratug, og gerði mjög mikið gagn. Síðar
voru Vestur-Húnvetningar þátttakendur í Verzlunarfélagi Dala
sýslu, sem Torfi í Ólafsdal stjórnaði, og Kaupfélagi Hún-
vetninga á Blönduósi. En um áramótin 1907 og 1908 var stofn-
að sérstakt samvinnufélag í Vestur-Húnvatnssýslu, sem enn
starfar og ber nú nafnið Kaupfélag Vestur-Húnvetninga —
skammstafað K. V. H.
K.V.H. er þjónustufyrirtæki sýslubúa. Langflestir heimilis-
feður í sýslunni og margir fleiri eru félagsmenn í kaupfélaginu
og hafa þar sín aðalviðskipti. Félagið tekur framleiðsluvörur
þeirra til vinnslu og sölu, útvegar þeim vörur, sem þeir þuría
að kaupa og ávaxtar fé þeirra í innlánsdeildinni.
Á þessu ári kemur væntanlega út bók á vegum K.V.H.,
sem nefnist viðskiptasamvinna Vestur-Húnvetninga. Þar verður
í stórum dráttum, rakin saga samvinnusamtaka héraðsbúa á við
skiptasviðinu, allt frá stofnun Félagsverzlunarinnar fyrir
97 árum og til okkar daga. Þeim, sem vilja eignast þessa
bók, skal bent á að skrifa nöfn sín á lista, sem liggja frammi
hjá kaupfélögunum á Hvammstanga, Borðeyri og Blönduósi;
Fræðsludeild SÍS í Reykjavík og Skúla Guðmundssyni alþm.
FERÐAMENN. Þið ættuð að líta inn í K.V.H. Trúlegt
er að þið getið fengið þar eitthvað, sem ykkur vantar, fyrir
sanngjarnt verð. Það eru aðeins 5 km. af Norðurlandsveginum
til Hvammstanga, og ef þið farið um Vatnsnes, til að skoða
þá fallegu sveit, er kaupfélagið á leið ykkar.