Tíminn - 17.03.1967, Page 41
Myndagerð og prentun
FÖSTUDAGUR 17. mara 1967.
bæði. aldursforseti og fremstur í
flokki þeirra, sem eru fréttaritarar
íslenzkra blaða erlendis. Auk
fréttamennsku sinnar í Kaup-
mannalhöfn skrifar Geir Aðils
þáttinn ,,Borgin við sundið“ öðru
hverju hér í Tímann. Fréttaritari
Tímans í London er Páll Heiðar
en hann skrifar Lundúnabréf það
an einu sinni í hálfum mánuði. „í
spegli Tírnans", er vinsæll þáttur,
sem lengi hefir verið í Tímanum
Guðjón Einarsson
og birtist annan hvorn dag á blað
síðu þrjú. Hann annast nú Gerð
ur Bjömsdóttir, sem hefir verið
prófarkalesari hjá Tímanum.
Fastráðinn prófarkalesari hjá
blaðinu er frú Bjarghildur Stef-
ánsdóttir. M er ástæða til að geta
þess að Björn Teitsson er ritstjóri
Æskulýðssíðu, en hún birtist einu
sinni í viku í blaðinu.
Þótt starfið á ritstíórn Tímans
skipti miklu máli, eru þó mörg
önnur störf við blaðið eigi að
síður áríðandi. Tíminn á og rek
ur sérstaka myndagerð, þar sem
fjórir starfsmenn vinna. Forstöðu
maður myndagerðarinnar er Guð-
jón Einarsson, sem hefur jafnframt
í mörg ár verið aðal ljósmyndari
blaðisns. Undir þessa deild heyrir
ljósmyndun, ljósmyndasafn og
myndamótasafn, gerð myndamóta,
eftirlit með tækjabúnaði ritstjórn
ar og blaðasafn Tímans. í þessari
deild er nú mikið safn ljósmynda
og myndamóta og einnig töluverð
ur vísir að filmusafni, en það er
afar áríðandi að slík söfn séu fyrir
hendi á blöðum og í góðu lagi.
Guðjón Einarsson hóf starf við
Rafmyndir árið 1955, en 1960 var
gerð endurskipulagning á mynda
gerðinni og verkahringur hennar
stækkaður og urðu þá Rafmyndir
sérstök deild innan blaðsins og
heitir nú Myndagerð Tímans, en
Guðjón tók við deildinni eftir
breytinguna og hefur stjórnað
henni síðan. Fyrir utan Guðjón
Einarsson vinna þarna þau Róbert
Ágústsson, Guðmundur V. Andrés
son og Þóra Björk Jóhannesdóttir.
Róbert er safnvörður og vinnur að
framköllun, koperingu og gerð
myndamóta, og tekur einnig
íþróttamyndir fyrir blaðið. Guð-
mundur vinnur við framköllun og
gerð myndamóta, og Þóra Björk
Jóhannesdóttir vinnur að gerð
mynda. Eiginlega má segja að
myndagerðinni berist verkefni á
öllum tímum, þegar haft er í huga,
að undir hana heyra flestar af
'ieim myndatökum, sem blaðið
iarf á að halda. Vinnan við sjálfa
myndagerðina hefst kl. 9- að
morgni og er síðan fram eftir
kvöldi eftir þörfum. Að vísu vinn
ur ekki allt starfsliðið svo lengi, en
öll tæki og mannafli eru til reiðu,
hvenær sem er, ef blaðið þarf
á að halda. Myndagerðin er nú
orðin mjög vel búin tækjum, en
Guðjón Einarsson hefur alltaf
gætt þess að fyrirtækið fylgdist
vel með öllum nýjungum í mynda
mótagerð og myndaframköllun.
Þar eru nú þrjár vélar sem gera
myndamóí, tvær þeirra annast hina
venjulegu myndamótagerð, en ein
þeirra býr til strikamyndir. Fyrir
utan filmusafnið, Ijósmyndasafnið
og blaðasafnið. er þarna mikið af
tækjum til myndatöku, og einnig
er þarna ný gerð af fyrirsagnalet
urvél, þar sem gerð er mynd af
letrinu í stað þess að steypa það í
blý eins og í prentsmiðju. Mest
af þessum tækjakosti myndagerðar
innar hefur komið síðan 1960, að
Guðjón Einarsson tók við henni.
Prentsmiðja Tímans er búin
þremur setjaravélum og einni fyr
irsagnavél: Verkstjóri þar er Óð-
inn Rögnvaldsson vélsetjari, en
hann hefur unnið við blaðið í ein
17 ár. í prentsmiðju vinna 9
manns fyrir utan Óðinn, ýmist
handsetjarar eða vélsetjarar og
einn nemi í handsetningu. Tvær
af þeim setjaravélum sem eru í
prentsmiðjunni, eru venjulegar að
gerð, en ein þeirra er svokölluð
fjarsetjaravél eða teletype, og er
hún um tveggja ára gömul. Varð
mikil breyting við tilkomu hennar
vegna þess, hve hún skilar verkum
fljótt. Hér var um að ræða nýj-
ung í vélsetningu, sem þrefaldaði
afköstin. Þrjár stúlkur, Kristín
Guðmundsdóttir, Kolbrún Óðins-
dóttir og Þórey Þórðardóttir vinna
að því á vöktum að fóðra þessa
einu vél, en vinna við hana fer
þannig fram, að stúlkurnar setja
efnið á gatastrimil í sérstökum
ritvélum, en síðan er þessi gata
strimill settur í samband við setj
TÍMINN
aravélina, sem síðan steypir letrið
á venjulegan hátt, nema hvað hún
vinnur mikið hraðar heldur en
mannshöndin. Vinna í prentsmiðju
hefst á því á morgnana, að vélstjar
ar hefja setningu á því efni, sem á
að fara á innsíðurnar, en handsetj
arar byrja á því að leggja af, sem
kallað er, það blað, sem nýlokið er
við að prenta og kom út um morg
uninn. Vélsetningin stendur að
sjálfsögðu allan daginn og veitir
ekki af, því allt þarf að vinna,
lesefni, greinarefni, og auglýsing
ar, er fylla 16 síður á hverjum
degi. Vélsetjarar, auk Óðins, eru
Hjörtur Hjartarson, Sigurður Þor
kelsson og Finnbjöm Hjartarson.
Allt eru þetta þaulvanir menn með
langan starfsaldur að baki og
Vaidimar K. Guðmundsson
eru bæði fljótvirkir og velvirkir.
Mikið ríður á því að samstarf rit-
stjórnar og prentsmiðju sé gott.
Reyna allir að stuðla að því eftir
beztu getu. Mun þó enginn eiga
ríkari þátt í því, að svo sé en
Óðinn Rögnvaldsson. Verkefnin
hlaðast upp og mörgu þarf að
sinna Og þótt reynt sé að láta
ekki standa á efni til setningar,
berst það stundum seint Reynir
þá mjög á lipurð og þolinmæði i
prentsmiðju ef vel á að fara.Hefir
Óðinn alla tíð verið sérstaklega
samvinnulipur og bjargað mörgu
erfiðu máli í höfn fyrir blaðið.
í prentsmiðju eigi síður en á
ritstjórn gildir það að hraðinn
geti verið sem mestur.Verður það
að segjast eins og er, að stundum
geta afköst vélsetjaranna verið
lýgilega mikil, ef mikið liggur við.
Handsetjarar eru þeir Gestur G.
Árnason, Örn Einarsson, Sigurður
Fossan Þorleifsson, sem jafnframt
er fyrsti neminn er líkur prófi í
prentsmiðju Tímans. Bragi Garð-
arsson, Jón Hermannsson nemi í
handsetningu og Valdimar K-
Guðmundssori, sem hefur unnið
lengst allra við blaðið, eða í
47 ár. Skortir aðeins þrjú ár á,
að hann eigi 50 ára starfsafmæli
Valdimar hefur alla tíð verið
mjög ötull starfsmaður og af-
kastamikill, eftirgangssamur við
blaðamenn um að þeir standi í
stöðu sinni í prentsmiðju og hef
ur mörgum nýliðum í blaða-
meijnéku þótt mikið til vinnu-
bragða hans koma er þeir komu
fyrst í prentómiðjuna. Hefur þeim
gjarnán brugðið í brún þégar þeir
hafa séð þennan gamla garp slá
leturlínur inn í form með berum
hnefa, verk sem aðrir nota tré-
hamar við, og jafn hissa hafa þeir
orðið nýliðarnir, þegar búið hefur
verið að tíunda fávizku þeirra á
strangri vakt, er Valdimar hefur
fengið sér sæti og boðið þeim af
41
TÍMINN
í DAG
Óðinn Rögnvaldsson
Silja Kristjánsdóttir
Þessi mynd er at vélsetjurum og handsetjurum í PrentsmiSju Tímans. TaliS frð vinstrl: Gestur G. Árnason, SigurSur Þorkelsson, Örn Elnarsson,
SigurSur Fossan Þorleifsson, Bragi GarSarsson, ÓSinn Rögnvaldsson, Hjörtur Hjartaarson og Finnbjörn Hjartarson.