Tíminn - 17.03.1967, Síða 61
FÖSTUDAGUR 17. marz 1967.
TÍMINN
61
Við hraðpressuna Eddú-prentsmi3ju. Hér stendur Theo-
dór Ingólfsson við hraðpressuna, en hann hefur nú prentað Tímann síðan
1950. Prentunin er mikið vandaverk, en Theodór er mjög samviikusamur
í starfi, og ber mikla umhyggju fyrlr því, að Tíminn hafi fallega áferð.
Þakkar blaðið honum langt og gott starf.
Framhald af bls. 59.
En Fríða vissi ekkert um fund
inn, vegna þess að boðin um hann
höfðu lagzt til hliðar á blaðinu af
misgáningi.
Ritstj.: Við verðum að ná þessu
upp á eftir. Bjöm, taktu málið að
þér og fáðu mynd af húsinu.
(Bjöm Teitsson var hjá okkur
þessa viku af því að Guðrún Egil-
son hafði fengið frí til að fara til
London).
Bjöm: Hverjir eru með þetta.
Elías: Það er byggingamefnd
handritahússins.
Ritstj.: Jæja, hvað er á listan-
anum .
Fríða: Blaðamannafundur í Þjóð
leikhúsinu klukkan þrjú.
Ritstj.: Björn, þú ferð á hann.
Og þú tekur handritahúsið að þér
og Búnaðarþing.
Kári: Er ekki hægt að taka mynd
af æfingu á Marat/Sade í Þjóð-
leikhúsinu.
Ritstj-: Við vorum að láta taka
mynd. Er það ekki rétt Guðjón.
Guðjón: Ég var að því áðan.
Fríða: Svo er það jarðarförin.
Ritstjóri: Fríða, þú sérð um
hana, og þar er mynd.
Fríða: Og svo athuga ég í dag
með vatnsveitu Vestmannaeyja,
sem Austur-Landeyingar fá vatn
: úr. Það er að byrja núna. Og svo
< eru það þessir skattar í Esquire.
Ritstj.: Hver fær ritið.
• Kári: Það verður bara að kaupa
1 það í bókabúð
Ritstj.: Elías, þú sérð um skatt
ana.
Fríða: Svo þarf ég að athuga
um manninn, sem fór í bátsvind
una.
Ritstj.: Hvenær var það.
Fríða: Það var í gær.
Kári: Svo er það flugvélin.
Ritstj.: Flugvélin áfram — það
er Kári. Og þá þarftu að kanna
um leið hvað þeir verða lengi
þarna og hvernig menn hugsa sér
að ná þeim. Og hvort vélin er
glötuð.
Fríða: Flugfélagsmenn eru á
fundi í dag út af þessu.
Ritstj.: Eruð þið með með
meira.
Friða: Það þarf að athuga betur
hvernig þetta er í Vestmannaeyj-
um. Það er allt saman stopp.Frétta
ritarinn vildi að talað væri Við
bankann, af því hann vill ekki lána
fyrr en þeir eru vissir um að
þessi Vestmannaeyjafyrirtæki séu
ekki blöqduð í málið.
Ritstj.: Jörgensen — Það er þitt
mál Kári. Og taka með um lána-
stoppið á Vestmannaeyjar.
Kári: Þetta er áframhald af
því sem var um daginn.
Elías: Svo þurfum við að taka
olíuna áfram, og sjóinn í farmin-
um.
Ritstj.: Hver var með olíuna
— þú Elías?
Elías: Ég get tekið það.
Kári: Svo er það Seyðisfjarðar
málið áfram.
Ritstj.: Er það ekki búið.
Kári: Það v,antar heilmikið af
peningunum.
Ritstj.: Getum við gert nokkuð
í því?
Kári: Ja, ég veit það ekki. Við
verðum að fylgjast með málinu.
Fríða: Hvað með þennan sem
var til aðstoðar?
Kári: Hann er búinn að vera
fjórum sinnum í yfirheyrslum
núna.
Kári: Og svo barði maður konu.
Ritstj.: Ef það er rannsóknarmál,
þá þarftu að athuga það. Er það
fleira sem við getum tekið fyrir?
Elías: Eg ætla að athuga með
loðnumjölið í dag.
Ritstj-: Já, loðnumjöl og loðnu-
veiði.
Elías: Nú, svo er það vélbátur-
inn Kristján.
Ritstj.: Já, báturinn sem strand-
aði.
Kári: Það var ofsaveður í Vest-
mannaeyjum í nótt.
Elías: Og hvassviðri um allt
land skilst mér.
Ritstj.: Strandið og athuga með
veðrið. Annað hvort ykkar, Elías
eða Fríða getið tekið þetta tvennt.
Og er það svo eitthvað fleira, sem
þið getið gert.
Kári: Það er komið andskotans
nóg með öllu því sem bætist við
í dag.
Fríða: Það mætti náttúrulega
skrifa um það, að innheimtumenn
komu nýlega til skattgreiðanda,
sem hafði fengið aukaútsvar og
ætluðu að taka lögtak degi áður
es kærufresturinn rann út.
Ritstj.: Já, það er rammafrétt.
Hringferðir m/s Esju sumarið 1967
Frá Reykjavík: má. 5.6., mi. 14.6., fö. 23.6., má. 3.7., mi. 12.7.,
fö. 21.7., má. 31.7., mi. 9.8., fö. 18.8., má. 28.8., mi. 6.9.
Svo sem sjá má eru ferðir þessar á 9—10 daga fresti yfir sumarið, og
tekur hver ca. 7 daga. Komið er á ca. 25 hafnir í hverri ferð og venju-
lega er boðin þátttaka í kynnisferðum upp á Flgótsdalshérsð og Mý-
vatnssveit. — Nefndar hringferðir veita óvenjulega góð tækfæri til
kynna af landi og þjóð á skömmum tíma, og er það samróma álit flestra
innlendra og erlendra farþega, sem reynt hafa.
Skipaútgerð ríkisins
Sími 17650. — Reykjavík.
pr'í