Alþýðublaðið - 30.05.1985, Side 2
Fimmtudagur 30. maí 1985
JT
I alþýðu- Útgefandi: Blaö h.f. Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Árni Stefánsson. Ritstjórn: Friörik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson. Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Eva Guömundsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð. Síini:81866. Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síöumúla 12. Askriftarsíminn er 81866 í lausasölu 20 kr.
B-D-FT'IT' M
RITSTJÓRNARGREIN'
Eldheitur baráttufundur
Það er engin tilviljun að fylgi Alþýðuflokksins
hefur aukist hröðum skrefum síðustu mánuði.
Fimmföldun á fylgi flokksins frá því sem var
samkvæmt könnunum sl. haust og til dagsins
i dag á sínar ástæður. Sannleikurinn er sá, að
Alþýðuflokkurinn hefur boðskaþ að flytja fólk-
inu i landinu; stefnu og úrræði til framtíðar.
Aðrir flokkar eru hins vegar klossfastir í arga-
þrasi dægurmálanna; sjá ekki skóginn fyrir
trjánum.
Alþýðuflokkurinn hefur ennfremur lagt kaþþ
á að kynna almenningi á fullnægjandi hátt
stefnumið sín og tillögur um leiðirað markmið-
um. Formaður flokksins, Jón Baldvin Hanni-
balsson hefur farið um allt land og efnt til op-
inna funda á nánast hverjum þéttbýlisstað á
landinu. Og eins og allir vita hafa kjósendur
kunnað að meta þessi milliliðalausu boðskipti
formanns Alþýðuflokksins og flykkst á fund-
ina. Það eru engar ýkjur heldur kaldar stað-
reyndirað metaðsókn hefurverið á nánast alla
opna fundi Jóns Baldvins, en þeir eru orðnir 99
taisins. Á mörgum stöðum á landinu hafa jafn-
fjölmennir fundir ekki verið haldnir árum eða
áratugum saman. Sá hópur sem hlýtt hefur á
málflutning Jóns Baldvins Hannibalssonar á
opnum fundum hans, sem bera heitiö Hverjir
eiga ísland? skipta þúsundum og aftur þús-
undum. Fólk hefur kunnað að meta þetta fram-
tak jafnaðarmanna. Bæði sýnt ánægju yfir því
að stjórnmálamenn sæki fólk heim (sín heima-
héruð og einnig ekki síður hitt, aö það stjórn-
málaafl er til í landinu sem hefur á reiðum
höndum tillögurum raunhæfarog róttækarað-
gerðir gegn þeim vandamálum sem steðja að
og hafa hrúgast upp á undanförnum misser-
um.
Jafnaðarmenn eru ekki með neinar ódýrar
lausnirog engin yfirboð. Þeirviðurkennavand-
ann, greina hann, benda á framtíðarmarkmið
og raunverulegar leiðir að þeim. Alþýöuflokk-
urinn og formaður hans hafa mjög ítarlega
kynnt fólki það, hvernig við getum í samein-
ingu breytt þessu spillta verðbólguspilavíti í
velferðarríki vinnandi fólks.
Fólk tekur undir með jafnaðarmönnum. Átta
undanfarnar skoðanakannanir sýna það og
sanna. Fast að fjórði hver íslendingur vill nú
leggja jafnaðarmönnum lið við að breyta þjóð-
féiaginu. Stórsókn Alþýðuflokksins er varan-
ieg staðreynd. Og henni er langt frá því lokið.
Og til að staðfesta þennan sóknarhug og
sigurviljajafnaðarmannamunu þeirfylkjaliöi á
100. baráttufundinn í Laugardalshöll á föstu-
dagskvöldið 31. maí næstkomandi. Þar mun
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokks-
ins, talaog einnig JóhannaSigurðardóttirvara-
formaður. í kjölfar þeirrar stjórnmálaumræðu
verður blaðinu snúið við og eftir eldheitan bar-
áttufund verður efnt til ólgandi vorfagnaðar og
dunandi dansleiks í Höllinni. Þarmunu lands-
frægir skemmtikraftar og listamenn halda
uppi stemmningunni fram eftir nóttu.
Alþýðubiaðið hvetur alla þá er vettlingi geta
valdið að fjölmenna í Laugardalshöll á föstu-
dagskvöldið og taka þar saman höndum með
hinni pólitísku baráttu jafnaðarmanna, vera
með í stórsókn Alþýðuflokksins, en jafnframt
létta geðið og fagna sumri og sói.
Verum öll með i stórsókn jafnaðarmannafyrir
réttlátara samfélagi, betra lífi. Mætum í Laug-
ardalshöllina á föstudagskvöldið á eldheitan
baráttufund og siðan ólgandi vorfagnað og
dunandi dans.
—GÁS.
Bæjarútgerð
arfjarðar seld
Tveir af togurum BÚH, Maí og Júní. Hefur Júní verið seldur Hval en Sam-
herji hf fœr að öllum líkindum Maí ásamt togaranum Apríl.
Bæjarfulltrúar AlþýAuflokksins
í Hafnarfirði, þeir Guómundur
Arni Stefánsson og Hörður Zóph-
aníasson, gengu af fundi bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar á tólfta tím-
anum sl. þriðjudagskvöld, ásamt
Rannveigu Traustadóttur, bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins, til að
mótmæla vinnubrögðum meiri
hluta bæjarstjórnar á málefnum
Útgerðarfélags Hafnarfjarðar.
Eftir að bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags höfðu
gengið af fundi samþykkti meiri-
hluti bæjarstjórnar ásamt Markúsi
Á. Einarssyni, bæjarfulltrúa Fram-
sóknar, að selja Samherja á Akur-
eyri eignir Útgerðarfélagsins.
Áður en til þess kom að bæjar-
fulltrúarnir gengu af fundi hafði
komið til harðvítugra deilna um
hvernig að þessu máli hefur verið
staðið. Bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags báru
fram tvær tillögur; önnur felld en
hinni vísað frá. f fyrsta lagi um að
málinu yrði frestað og í öðru lagi
báru þeir Guðmundur Árni Stef-
ánsson og Hörður Zóphaníasson
fram tillögu um að Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar standi við allar
skuldbindingar sínar og samþykkt-
ir gagnvart Útgerðarfélagi Hafnar-
fjarðar. Auk þess lögðu þeir til að
fyrirhuguð eignayfirfærsla til fé-
lagsins frá Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar fari fram hið allra fyrsta áð-
ur en framhaldsaðalfundur verði
haldinn hjá Útgerðarfélaginu.
í yfirlýsingu, frá bæjarfulltrúum
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags, sem færð var til bókunar, þeg-
Hafn-
Fulltrúar A Iþýðu-
flokks og
A Iþýðubandalags
gengu af fundi
ar þeir gengu af fundi, segir, að þeir
mótmæli harðlega hvernig margra
mánaða starfi og stefnu mikils
meirihluta bæjarstjórnar er breytt
fyrirvaralaust og óvænt, þegar að
því er stefnt að leggja niður allar
samþykktar fyrirætlanir um stofn-
un og rekstur ÚH og gera þar með
að engu allt það starf, sem búið er
að inna af hendi í þeim efnum.
I yfirlýsingunni var rifjuð upp
forsaga málsins, en Útgerðarfélagið
var stofnað með sérstakri samþykkt
10 bæjarfulltrúa þar sem ákveðið
var að bæjarstjórn beitti sér fyrir
sölu á eignum Bæjarútgerðarinnar
til félagsins. 13. janúar var svo fé-
lagið stofnað og fundir voru haldn-
ir með bæjarfulltrúum og starfs-
fólki Bæjarútgerðarinnar og á ýms-
an hátt stefnt að því að ÚH tæki yf-
ir eignir Bæjarútgerðarinnar, m.a.
með því að ráða framkvæmda-
stjóra og selja hlutabréf í fyrirtæk-
inu.
Fyrir viku síðan gerist svo það að
bæjarstjóri skýrir frá því að tiltekn-
ir aðilar hefðu áhuga á að kaupa
þær eignir sem ráðgert var að færa
til ÚH. Á annan í hvítasunnu er svo
bæjarfulltrúum sent fundarboð
þar sem ákveðið er að taka fyrir
sölu á eignum Bæjarútgerðarinnar
til Samherja hf. á Akureyri.
Framh. á bls. 2 1
SmuuESTanE
GERIR GÓÐAN BÍL BETRI!
Það er ótrúlegt hvaö góðir hjólbarðar eins og
BRIDGESTONE gera fyrir bílinn.
Með BRIDGESTONE fæst frábært veggrip,
rásfesta og mikið slitþol. Tryggðu öryggiþitt og
þinna settu BRIDGESTONE undirbílinn — þeir
fást hjá hjólbarðasölum um land allt.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23, Sími 81299