Alþýðublaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 30. mai' 1985 Kvennasögusafn íslands 10 ára Kvenmannslaus í kulda og trekki kúrir saga vor. Konurnar eru þar allavega ekki þótt ekki dræpust þær allar úr hor. Á þessari vísu hófst platan „Áfram stelpur“, sem gefin var út árið 1975, á kvennaárinu. í kjölfar þess kom svo kvennaáratugurinn, sem nú er að renna sitt skeið á enda. Sé saga þjóðarinnar lesin þá verður lesandinn fljótt var við að helmingur þjóðarinnar virðist vera fjarstaddur þegar sagan gerist. En auðvitað voru konurnar til staðar þótt þeirra sé að litlu getið í íslands- sögu karlanna. Til að fylla upp í þessa eyðu í sögu þjóðarinnar tóku þrjár konur sig til á fyrsta degi alþjóðakvenna- árs Sameinuðu þjóðanna, eða 1. janúar 1975, og stofnuðu Kvenna- sögusafn íslands. Það voru þær Anna Sigurðardóttir, Else Mia Ein- arsdóttir og Svanlaug Baldursdótt- ir. í stofnskrá safnsins segir að markmið þess sé að safna og varð- veita hvers konar prentað mál um konur að fornu og nýju og um mál- efni sem varða konur sérstaklega, bækur og rit eftir konur, óprentuð handrit og bréf kvenna svo og önn- ur skjöl þeirra, fundargerðir, starfs- skýrslur og skjöl kvenfélaga, og annarra samtaka kvenna, auk ýmiss konar nýsigagna, svo sem ljós- myndir, segulbönd, hljómplötur o. fl. Helsti hvatamaður að stofnun safnsins var Anna Sigurðardóttir. Það var hún sem lagði til stofn safnsins, bækur, handrit, skjöl og úrklippur, sem hún hafði safnað í fjölda ára. Auk þess að hýsa safnið í íbúð sinni á Hjarðarhaga 26, hefur hún starfað lang mest við safnið. Blaðamanni lék forvitni á að skoða safnið og rabba við Önnu þar sem safnið varð 10 ára í byrjun þessa árs. Upp á efstu hæð í fjög- urra hæða blokk tók Anna á móti blaðamanni og bauð honum til stofu þar sem hann varð að skrá nafn sitt í gestabók safnsins. Á vit kvennasögunnar Þetta var einn af þessum góðviðr- isdögum nú í byrjun sumars, þegar ekki blakti hár á höfði og sólin hellti geislum sínum yfir landið, svo gróðursprenging varð í öllum görð- um höfuðborgarinnar. Blaðamað- ur hafði því bara ætlað að gera stuttan stans í safninu og drífa sig svo í sólbað. En því var alls ekki að heilsa að sú yrði raunin. Áður en yf- ir lauk höfðu einir þrír og hálfur tími liðið og mál til komið að drífa sig heim í kvöldmat. Þessir klukku- tímar höfðu flogið hjá án þess að forvitinn skoðandinn hefði gert sér nokkra grein fyrir hvað tímanum leið. Fróðleikur safnvarðarins og frásagnargleði auk allra gagnanna sem dregin voru fram úr skúffum í dagsljósið hreif gestinn burt úr streitu augnabliksins inn í sögu ís- lenskra kvenna frá upphafi byggðar fram á okkar dag. Fjölskrúðugt safn Kvennasögusafnið geymir fjöl- skrúðugar heimildir. Þarna eru skjalaskápar fullir af úrklippum, bréfum, skjölum, samningum og ýmsum öðrum gögnum, sem snerta sögu kvenna, allt flokkað niður eft- ir efni. í hillum eru bækur og tíma- rit, uppsláttarrit jafnt á íslensku sem erlendum tungum og undir hillunum pappakassar fullir af óflokkuðu efni. Einn kassinn var til að mynda fullur af sýningarskrám íslenskra myndlistarkvenna. Þó þarna sé að finna hin margvís- legustu gögn er röð og regla á öllu, að minnsta kosti í kollinum á Önnu, því hún virðist geta gengið að öllu á vísum stað. En spjaldskráin er ekki bara inni í höfðinu á Önnu, því frammi á gangi er fullkomin skrá yfir þann hluta safnsins, sem búið er að flokka. Safnið er að mestu geymt í tveim- Launataitar V. R. frá 1. febriíar 1003 3. gr. A-liður. 1. flokkur (karlar): Skrifstofustjórar og fulltrúar 1. floJcks: Byrjunarlaun kr. 7193.00 Eftir 1 ár — 7378.00 Eftir 2 ár - 7562.00 Eftir 3 ár - 7746.00 Eftir 4 ár - 7933.00 2. flokkur (karlar): Atalbókarar, adal- gjaldkerar, er hafa fullkomna bók- fœrsluþekkingu, sölustjórar, fuUtrúar II. flokks og bréfritarar, sem sjálfir geta annast bréfaskriftir á erlendum tnngumálum: Byrjunarlaun kr. 5635.00 Eftir 1 ár - 6083.00 Eftir 2 ár - 6454.00 Eftir 3 ár - 6824.00 Eftir 4 ár - 7193.00 .1. flokkur (karlar): Bókarar II. flokks, sölumenn úti og inni og gjaldkerur II. flokks: -ftyrjtmnrlttun Eftir 1 ár Eftir 2 ár Eftir 3 ár Eftir 4 ár 4. flokkur: AðstoZarfólk í skrifstofum. a. Skrifstofumenn (karlar) með verzl unarskóla- eöa hliöstœöa menntun, bókarar og gjaldkerar: Byrjunarlaun kr. 4165.00 Eftir 1 ár Eftir 2 ár Eftir 3 ár Eftir 4 ár llraöritarar (konur): Byrjunarlaun kr. 4437.00 Eftir 1 ár — 4672.00 Eftir 2 ár - 4954.00 Eftir 3 ár — 5239.00 Eftir 4 ár 5516.00 b. Vélritarar (konur og karlar), sem vinna að bréfaskriftum á erlendum tungumálum og annaó aðstofiarfólk me3 3ja ára starfsreynslu: Byrjunarlaun kr. 3514.00 Eftir 1 ár —• 3873.00 Eftir 2 ár . 4229.00 Eftir 3 ár - 4580.00 Eftir 4 ár 4932.00 kr. 4982.00 — 5193.00 — 5548.00 — 5912.00 — 6225.00 - 4411.00 — 4657.00 — 4901.00 — 5161.00 c. Byrjerulur og þeir, sem eru yngri en 18 ára, konur og karlar: Byrjunarlaun kr. 3212.00 Eftir 1 ár — 3556.00 Eftir 2 ár — 3894.00 5. flokkur: Scndisvcinar: 1972.00 til 2364.00 B-iiður. /. flokkur, a. Verzlunar- og deildar- stjórar (karlar): Byrjunarlaun kr. 6129.00 Eftir 1 ár — 6422.00 Eftir 2 ár — 6701.00 b. Verzlumir- og deildarstjórar (kon- ur): Byrjunarlaun kr. 5558.00 Eftir 1 ár - 5959.00 Eftir 2 ár — 6250.00 2. flokkur: Afgreiðslumenn meö verzl- ttnarskóla- eða hUðstceða menntun^ eða 3ja ára starfsreynslu: Byrjunarlaun kr. 5045.00 Eftir 1 ár — 5480.00 Eftir 2 ár - 5765.00 3. flokkur: Aörir afgreiÓslumenn: Byrjunarlaun kr. 4201.00 Eftir 1 ár — 4658.00 Eftir 2 ár — 5045.00 ‘t.flokkur, a. Afgrevóslustúlkur mcÖ verzlunarskóla- eÖa hliöstœöa menntun : Byrjunarlaun kr. 3907.00 Eftir 6 mán. — 4186.00 Eftir 1 ár - 4752.00 Eftir 2 ár - 4847.00 b. Aörar afgreiðslustúlkur: Byrjunarlaun kr. 3269.00 Eftir 6 mán. — 3652.00 Eftir 1 ár - 4310.00 Eftir 2 ár - 4607.00 Eftir 4 ár - 4809.00 Eftir 5 ár - 4847.00 5. flokkur: Unglingar að 16 ára aldrí: Byrjunarlaun kr. 2625.00 Eftir 1 ár 2917.00 Eftir 2 ár - 3177.00 6. flokkur: Sendisveinar. 1972.00 til 2364.00 Afgreiðslust. í söluturnum. Afgrciðslustúlkur með verzlunarskóla• eöa hliöstœÖa menntun: Tvískipt vakt: Byrjunarlaun kr. 4064.00 Eftir 6 mán. — 4353.00 Eftir 1 ár — 4941.00 Eftir 2 ár — 5041.00 Þriskipt vakt: Byrjunarlaun kr. 2709.00 Eftir 6 mán. — 2902.00 Eftir 1 ár — 3294.00 Eftir 2 ár — 3361.00 Aðrar afgreiðslustúlkur: Tvískipt vakt: Byrjunarlaun kr. 3401.00 Eftir 6 mán. Eftir 1 ár Eftir 2 ár Eftir 4 ár Eftir 5 ár — 3798.00 — 4482.00 — 4792.00 5001.00 — 5041.00 Þrískipt vakt: Byrjunarlaun kr. 2267.00 Eftir 6 mán. Eftir 1 ár Eftir 2 ár Eftir 4 ár Eftir 5 ár — 2532.00 — 2988.00 — 3195.00 — 3334.00 — 3361.00 Afgreiðslust. i apótekum. a. Nemar, 3ja ára námstími: Byrjunarlaun kr. 3269.00 Eftir 6 mán — 3652.00 Eftir 1 ár — 4310.00 Eftir 2 ár — 4607.00 b. Lærðar aðstoðarstúlkur eftir 3ja ára námstíma með 2ja vetra bóklcgu námi: 1. ár kr. 5045.00 2. og 3. ár — 5285.00 4. ár — 5406.00 c. Aðrar afgreiðslustúlkur taki laun samkvæmt hinum almenna samningi V. R. við vinnuveitendur, B-lið 4. fl. a eða b, eftir því sem við á (sjá taxta hér á undan). Einsog sjá má á meðfylgjandi myndþá er ekkiýkja langt síðan gert var upp á milli kvenna og karla ílaunasamn- ingum. Myndin er af launasamningi verslunarmanna í Reykjavík frá 1. febrúar 1963. Fyrstu þrír flokkarnir eru eingöngu œtlaðir körlum. Konur komast fyrst á blað í 4. flokki. Sé litið á B-lið taxtanna, sjáum við að sérstakir samningar eru fyrir karla sem eru verslunar- og deildarstjórar, en aðrir gilda fyrir konur í sömu stöðum. Þó vissulega sé búið að leiðrétta misrétti á opinberum pappírum, einsog þessum launataxta, sýndi nýgerð könnun, að í raun gildir sama misréttið ennþá í samfélaginu. Konur og karlar í sömu stöðum eru langt frá að vera með sömu laun. Anna Sigurðardóttir, forstöðumaður Kvennasögusafns íslands. ur herbergjum. í öðru eru úrklipp- urnar, tímaritin, skjölin, bréfin og ýmislegt sem snertir sögu kvenna á einn eða annan hátt. í hinu herberg- inu eru fyrst og fremst bækur um og eftir konur, flokkað niður i ljóð, leikrit, ævisögur o. s. frv. Á gangin- um eru svo auk spjaldskrárinnar skáldsögur eftir íslenskar konur, auk þess sem einstaka íslensk skáld- saga eftir karlmann fær að fljóta með, fjalli hún um konur. Hlutverk safnsins Kvennasögusafnið þjónar ákaf- lega veigamiklu hlutverki, því þarna er á einum stað hægt að ganga að flestum heimildum um líf og sögu kvenna á íslandi í gegnum aldirnar. Sú hefur líka verið raunin að stærstur hluti gestanna er þarna í þeim tilgangi að verða sér úti um heimildir, sem hvergi annarsstaðar er að finna. Þetta eru fyrst og fremst skólakrakkar, mest úr menntaskólum og fjölbraut, en einnig úr Háskólanum. Fræðimenn leita líka fanga í safninu og þó nokkuð er um að safninu berist bréf erlendis frá, þar sem beðið er um heimildir varðandi eitt og annað i sögu íslenskra kvenna. í fyrra voru gestir safnsins 275 talsins og komu margir þeirra oftar en einu sinni. Þessi fjöldi sýnir að þörfin fyrir svona safn er fyrir hendi, þrátt fyrir það hefur gengið erfiðlega að fá hið opinbera til að styðja þessa starfsemi. Á þessu ári Framhald á bls. 11 Kosningaréttur íslenskra kvenna Byggt á Ártölum og áföngum í sögu íslenskra kvenna frá 1746—1975, eftir Önnur Sigurðar- dóttur, 1882: Konur, sem eiga með sig sjálfar, fá kosninga- rétt, sbr. lög nr. 10,12. maí 1882,3. gr.: Ekkj- ur og aðrar ógiftar konur, sem standa fyrir búi, eðaá einhvern hátt eiga með sig sjálfar, skulu hafa kosningarétt, þegar kjósa á í . hreppsnefnd, sýslunefnd, bæjarstjórn og á safnaðarfundum, ef þær eru 25 ára og að öðru leyti fullnægja þeim skilyrðum, sem lög ákveða fyrir þessum réttindum.“ 1886: Konur sem með lögum nr. 10, 12. maí 1882, fengu kosningarétt við hreppsnefnda- og sóknarnefndakjör o. fl., fá nú kosningarétt við prestkosningar. 1902: Konur sem fengu kosningarétt 1882 fá nú loks kjörgengi til sveitarstjórna og sóknar- nefnda. 1915: íslenskar konur og hjú fá kosningarétt til Al- / þingis með stjórnskipunarlögum. Er miðað við 40 ára aldur, en skyldi aldursmarkið lækka um eitt ár næstu 15 árin. 1920: Með stjórnarskrá konungsríkisins ísland, fá íslenskar konur og hjú full pólitísk réttindi 25 ára.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.