Alþýðublaðið - 30.05.1985, Síða 13
Fimmtudagur 30. maí 1985
13
Það er hœgt að leysa viðskiptahallann:
Með þvi að
kaupa íslenskt
Fyrir skömmu efndi verslunin
Hagkaup til svokallaðra íslenskra
daga þar sem lögð var áhersla á ís-
lenska framleiðslu. Samkvæmt
upplýsingum frá Gunnari Árnasyni
sölustjóra i Hagkaupum gekk þessi
iðnkynning vel; Hagkaup höfðu
sett sér það markmið að 150 þús-
und íslendingar kæmu til kynning-
arinnar, en lokaniðurstaðan varð sú
að hvorki fleiri né færri en 189 þús-
und manns létu sjá sig.
Síðan sagði Gunnar í þessu sam-
bandi:
„Við útbjuggum sérstaklega það
sem við kölluðum „íslenska inn-
kaupakörfu" með 13 íslenskum
vörum og fylgdumst með söluþró-
un hennar á sýningunni o§ miðuð-
um við það sem áður var. Utkoman
var stórkostleg, því á þessum hálfa
mánuði sem iðnkynningin stóð
varð söluaukningin á þessari ís-
lensku innkaupakörfu um 60%.
Strax í upphafi iðnkynningarinn-
ar veittum við iðnframieiðendun-
um vissar ábendingar varðandi
sölumál og þessi niðurstaða, um
60% aukning vegna iðnkynningar-
innar Hagkaup á heimavelli, sannar
svo ekki verður um villst að ábend-
ingar okkar voru réttar.
I rauninni er þetta samstarf okk-
ar við íslenskan iðnað alveg lýsandi
dæmi um það hvað hægt er að ná
miklum árangri ef vilji er fyrir
hendi. Söluaukning á íslenskum
iðnvörum hér innanlands hefur líka
margháttuð áhrif til góðs fyrir
efnahagslíf okkar. Þetta er oftast
að mestu leyti alíslensk verðmæta-
sköpun sem þýðir auðvitað atvinnu
fyrir okkur Islendinga sjálfa.
Auk þess er þetta í mörgum til-
vikum algjör gjaldeyrissparnaður
og stuðlar þannig að lausn megin-
vandamála íslensku þjóðarinnar á
■4»
efnahagssviðinu núna, sem er
gjaldeyrisöflun og gjaldeyrissparn-
aður“
Að lokum sagðist Gunnar Árna-
son sérstaklega vilja benda á, að
hefði íslensk iðnvara sömu mark-
aðshlutdeild og iðnaður nágranna-
ríkja okkar hefði í heimalöndum
sínum, þá myndi áætlaður við-
skiptahalli íslensku þjóðarinnar
uppá 4,7 milljarða króna á þessu
ári, einfaldlega sléttast út.
BÚNAÐARBANKINN OG LANDSBANKINN
KYNNA SAMSTARF UM REKSTUR
AfgrpjÁQh itapkji im i I,jy ^»1 verður komið
fyrir í áföngum á ýmsum stöðum á landinu í sumar og haust.
Þau lengja afgreiðslutímann og verða viðskiptamönnum
beggja bankanna til flýtis oq haqræðis.
í HRAÐBANKANUM
munu viðskiptavinir
Búnaðarbankans og Landsbankans hafa aðgang að
sparisjóðs- og tékkareikningum sínum á sama afgreiðslustað,
en í þessum tveimur stærstu bönkum landsins er um 65% af
innlánsfé viöskiptabankanna varöveitt.
HRAÐBANKANUM
Sjálfsafgreiðsla í
eftirfarandi bankaþjónustu:
★ úttektar af bankareikningi
★ innborgunar á bankareikning
★ millifærslu milli bankareikninga
★ greiðslu á reikningum með peningum eða ávísun
★ greiðslu á reikningum með millifærslu af eigin
bankareikningi
★ upplýsinga um stöðu bankareiknings
ná til