Alþýðublaðið - 18.12.1986, Page 1
alþýðu-
Fimmtudagur 18. desember 1986
244. tbl. 67. árg.
Upplag: 25 þúsund eintök
Þetta blað kemur út í 25 þúsund eintökum og er dreift ókeypis víða
um land. Eins og með fyrri blöð af þessu tagi er tilgangurinn að koma
á framfæri ýmsum fréttum úr starfi Alþýðuflokksins, baráttumálum
hans utan þings og innan og reyna að vega upp á móti áhrifum fjöl-
miðla annarra stjórnmálaflokka.
Landsvirkiun:
Hækkun gjaldskrár um 7,5% frá 1. jan.
Stjórn Landsvirkjunar fjallaði á
fundi sínum í dag um rekstraráætl-
un og gjaldskrá Landsvirkjunar
fyrir árið 1987, en áætlunin hefur
nú verið endurskoðuð með hliðsjón
af nýgerðum kjarasamningum og
þeim verðlagsspám, sem gerðar
hafa verið i kjölfar þeirra, þ.e.a.s.
að verðbólga verði ekki meiri en
7—8% á árinu og gengi verði stöð-
ugt.
Hin endurskoðaða rekstraráætl-
un ber með sér að óhjákvæmilegt er
að hækka gjaldskrá Landsvirkjun-
ar til að vega upp á móti almennum
verðlagshækkunum á næsta ári
miðað við þá 7—8% verðbólgu,
sem núverandi efnahagsspár gera
ráð fyrir, auk þess sem viðbótar-
hækkun gjaldskrárinnar væri æski-
leg vegna meiri lækkunar hennar að
raungildi á árinu 1986 en stefnt var
að fyrr á árinu.
Að fengnum tilmælum stjórn-
valda um að stilla hækkun gjald-
skrár fyrirtækisins eins mikið í hóf
og unnt er samþykkti stjórn Lands-
virkjunar að ganga ekki lengra í
hækkun gjaldskrár fyrirtækisins en
svo að hún yrði innan marka al-
mennrar verðlagsþróunar á næsta
ári miðað við þá 7—8% verðbólgu,
sem hinir nýgerðu kjarasamningar
gera ráð fyrir. í samræmi við þetta
sjónarmið samþykkti stjórnin
hækkun á gjaldskránni um 7,5%
frá 1. janúar n.k. og verður gjald-
skráin því aðeins tekin til endur-
skoðunar á næsta ári að verulegar
breytingar verði á þessum verðlags-
forsendum og núverandi gengi.
Hækkar því verð á rafmagni frá
Landsvirkjun til almenningsraf-
veitna um 7,5% um n.k. áramót,
sem svarar til um 4,5% hækkunar á
smásöluverði.
Sú gjaldskrárhækkun, sem nú
hefur verið ákveðin felur það í sér
að gjaldskrárverð Landsvirkjunar
helst óbreytt að raungildi út næsta
ár frá því sem það er nú. Hins vegar
hefur raunverð raforku frá Lands-
virkjun lækkað um 10% á því ári,
sem nú er að líða og alls um 40% frá
1. ágúst 1983 að telja.
Stjórn Landsvirkjunar er þeirrar
skoðunar að með því að takmarka
As
gjaldskrárhækkunina við 7,5% sé
henni stillt eins mikið í hóf og unnt
er, enda mundi minni hækkun
óhjákvæmilega leiða til erlendrar
skuldasöfnunar umfram forsendur
lánsfjáráætlunar ríkisins.
forsendur eru
7—8%
verðbólga 1987
ur Jónsson
Ásgrímur £/ff
Jonsson
Ásgrímur Jónsson er einn fremsti meistari
íslenskrar myndlistar. Myndir hans tala
skýrt til skoðandans, eru máttugar í hrein-
leik sínum, en dulúðin, sem býr undir
yfirborðinu, ljær þeim heillandi dýpt.
Ásgrímur var einkar ötull í listsköpun
sinni. Meginyrkisefni hans er ramm-
íslenskt: fegurð landsins og kynngi þjóð-
sagna.
í bókinni eru fjölmargar litprentanir af
málverkum listamannsins auk teikninga
eftir hann og ýmissa ljósmynda. Höfundar
ritaðs máls eru tveir, þau Hrafnhildur
Schram og Hjörleifur Sigurðsson. Á nær-
færinn hátt draga þau upp sína myndina
hvort af listamanninum.
Þetta er sjötta verkið í bókaflokknum um
íslenska myndlist.
LISTASAFN ASI
lögberg Bókaforiag
Þingholtsstræti 3