Alþýðublaðið - 18.12.1986, Síða 3
Fimmtudagur 18. desember 1986
alþýöu
Alþýðubluðið, Armúla 38, 108 Reykjavik
Sími: (91) 681866, 81976
Úlgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Arni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Uaníelsson og Ása Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf„ Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf„ Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 681866
f-RITSTJÓRNARGREIN-
Landsmenn haldivöku sinni
Þaö hefur örugglega ekki fariö fram hjá neinum
sem lætur sig stjórnmál einhverju skipta aö allar
skoöanakannanir sýna fram á stóraukið fylgi Al-
þýöuflokksins og virðist fylgið fara vaxandi eftir þvf
sem skoðanakönnunum þessum fjölgar.
Alþýðuflokksfólk er aö vonum stolt yfir þvi trausti
sem fólkiö í landinu sýnir þeim málefnum sem Al-
þýðuflokkurinn berst fyrirog veit fullvel að hann má
ekki bregðast þessu trausti og mun ekki gera það.
En vandi fylgir vegsemd hverri. Þessar niðurstöðu-
tölur skoðanakannanna hafa auðvitað gert það að
verkum að nú er herjað á Alþýðuflokkinn úr öllum
áttum. Þettavissum við reyndarfyrirog áforsíðu Al-
þýðublaðsins þann 6. desember s.l. segir Magnús H.
Magnússon í viðtali við blaðið orðrétt:
5,Og við skulum vera vissir um það, aö eftir þessar
skoðanakannanir þá komum við til með að liggja
undir stórskotahríð Sjálfstæðisfiokksins og þar
verður öllum fjölmiðlum og öllu beitt. Þetta er þegar
byrjað, Þorsteinn Pálsson er strax kominn meö
vinstri grýiuna sina á loft og Halldór Blöndal er byrj-
aður að skrifa iliþyrmislegar greinar og það er aug-
Ijóst að hér eftir verða allir sótraftar á sjó dregnir til
þess aö ráðast á okkur. Við getum verið vissir um
þaö. Það verður djöflast á okkur fram að kosning-
um.“
Og þetta eru orð að sönnu hjá þeim mæta manni
Magnúsi H. Magnússyni. Allt hefur nú verið sett í
gang til að gera málstað Alþýðuflokksins tortryggi-
legan. Morgunblaðið, Timinn og fleiri flokksmál-
gögn eyða nú um þessar mundir miklum svita og
prentsvertu i þeirri von að geta svert Alþýðuflokkinn
í augum landsmanna, — og ekki verður betur séð á
stundum en að fullkomin ör/ænting sé hlaupin í
málið. Þessi málgögn eiga reyndar óhægt um vik
þar sem eitt af grundvallarbaráttumálum Alþýðu-
flokksins er að koma lagi á þá málaflokka sem til-
heyra minnihlutahópum og öllum þeim sem ekki
geta myndað þrýstihópa til að knýja fram betri kjör
sér einum til handa. Alþýðuflokkurinn er ekki síst
flokkur lítilmagnans i samfélagi okkar og svo mun
verða hver sem kosningaúrslit verða í vor.
Nú þurfa allir að halda vöku sinni. Látum ekki ör-
væntingafullan lygaáróðurvilla okkursýn, — áróður
sem dynur nú i eyrum landsmanna úr sterkum og út-
breiddum fjölmiðlum afturhaldsins. Landsfólkið
hefur fengið nóg og meira en nóg af loforðaglamri
og loforðasvikum þeirra manna.
Tökum undir með Magnúsi H. Magnússyni í Vest-
mannaeyjum: „Nú er um aö gera að halda vöku
sinm"
O.B.
I
Nýjai bœkm írá Skuggsjá
I
I
■
I
Árni Óla
Reykjavík
íyrri tíma III
Hér eru tvœr síðustu Reykjavíkur-
bœkur Áma Óla, Sagt frá Reykjavík
og Svipui Reykjavíkur, geínar
saman út í einu bindi. Þetta er þriðja
og síðasta bindið aí ritinu Reykjavík
fyrri tíma. í þessum bókum er geysi-
mikill fróðleikur um persónur, sem
mótuðu Reykjavík og settu svip á
bœinn. Nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höfuðborg landsins
og forverunum er hana byggðu. Frá-
sögn Árna er skemmtileg og liíandi,
og margar myndir prýða bœkurnar.
OIL
VE>
MENN
SKUCGSJA
Helga Halldórsdóttir
írá Dagverdará
Öll erum viö menn
Helga Halldórsdóttir segir hér frá fólki,
sem hún kynntist sjálí á Snœíellsnesi,
og einnig íólki, sem íoreldrar hennar
og aðrir sögðu henni írá. Þetta em frá
sagnir af sérstœðum og eftirminni-
legum persónum, svo sem Magnúsi
putta, Leirulœkjar-Fúsa, Þórði sterka
o.íl. Kaíli er einnig um Jóhannes
Sveinsson Kjarval listmálara og sagt
er frá skáldunum Bólu-Hjálmari,
Sigurði Breiðíjörð, Jónasi Hallgríms-
syni og Símoni Dalaskáldi. Mikið er aí |
vísum í bókinni, sem margar haía
hvergi birst áður.
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjarœtt III
Þetta er þriðja bfndi nýrrar útgáíu af
Víkingslœkjarœtt, niðjatali Guðriðar
Eyjólísdóttur og Bjarna Halldórssonar
hreppstjóra á Víkingslœk. í þessu
bindi eru niðjar Jóns yngra Bjarna-
sonar. Alls verða bindin íimm í
þessari útgáíu af hinu mikla œtt-
írœðiriti Péturs Zophoníassonar.
Myndir aí þeim, sem í bókinni eru
nefndir, em íjölmargar eins og í íyrri
bindum ritsins, og mun fleiri heldur
en vom í fyrstu útgáíunni.
vl
NíWATAt Ol >OA퀻AKLV.l6úF#00¥rfcff<
Pétur Eggerz
Ævisaga Davíös
Davið vinnur á skrifstofu snjalls íjár-
málamanns í Washington. Hann.er í
sííelldri spennu og í kringum hann er
sííelld spenna. Vinur hans segir við
hann; „Davíð þú veist oí mikið. Þú
verður að íara írá Ameríku eins íljótt
og auðið er. Þú ert orðinn eins og
peningaskápur íullur af upplýsing-
um. Þeir vita að þú segir ekki írá. En
þeir óttast að einhverjum slóttugum
bragðareí takist að leika á þig, opna
peningaskápinn og hagnýta sér
upplýsingamar."
SKUGGSJA - BÓKABÚD OLIVERS STEINS
/
mwm
mW:
.