Alþýðublaðið - 18.12.1986, Page 6
6
Fimmtudagur 18. desember 1986
Viljum ekki svona hrika-
legan virðisaukaskatt
Framhald á bls. 4
að útrýma undanþágum og
víkka út skattskyldusviðið,
áhrifin af því að kerfið á að
vera öruggara í innheimtu og
áhrifin af því að eftirlit með
innheimtu verður aukið —
hvernig stendur á því að menn
gera ekki ráð fyrir því, að það
auki tekjur ríkissjóðs um
meira en 400 milljónir króna?
Fjármálaráðherra
vanmetur tekjuaukann
Ég fyrir mína parta trúi því
ósköp einfaldlega ekki. Fyrir liggja
upplýsingar, varfærið mat í svokall-
aðri skattsvikaskýrslu hæstvirts
fjármálaráðherra, um skattundan-
drátt, bæði að því er varðar tekju-
skatt og söluskatt. Og eins og fram
kom í máli hæstvirts síðasta ræðu-
manns var gert ráð fyrir því að sölu-
skattsundandráttur væri um — 1,3
milljarður króna ef ég man rétt. Ég
trúi því ósköp einfaldlega ekki að
þessar aðgerðir, útvíkkun sölu-
skattssviðsins, afnám undanþága,
bætt innheimta og hert eftirlit, leiði
ekki til meiri tekjuauka fyrir ríkis-
sjóð í virðisaukaskattskerfi, en hér
er gert ráð fyrir. Af hverju segi ég
þetta?
Með vísan til þeirra upplýs-
inga sem fjármálaráðuneytið
hefur áður lagt fram sem svar
við fyrirspurnum mínum um
tekjuauka ríkissjóðs við af-
nám á undanþágum í óbreyttu
kerfi, eru þar rök fyrir því, að
unnt sé að lækka álagningar-
prósentuna í virðisaukaskatts-
kerfi til mikilla muna meira en
hér er gert ráð fyrir. Og það er
mjög þýðingarmikið atriði,
það er beinlínis lykilatriði.
Það nær ekki nokkurri átt, ef við
ætlum að gera samtímis breytingar
á tekjuskattskerfi og neysluskatta-
kerfinu, að ganga út frá því til
frantbúðar að við búum við neyslu-
skattastig á bilinu 20—30%.
Við erum hér að tala um
hæsta virðisaukaskattshlutfall
í heimi.
Ég segi það hreint út að ég
vil ekki kaupa fræðilega kosti
virðisaukaskatts umfram
óbreytt kerfi þessu verði. Ég
vil það ekki. Við erum ekki til
viðræðu um að taka upp virð-
isaukaskatt, sem er svona
hrikalega hár. Og við vefengj-
um röksemdir fjármálaráðu-
neytisins fyrir því að nauðsyn-
legt sé að halda virðisauka-
skattinum í 20—21% til þess
að halda óbreyttum tekjum.
Við sem gagnrýnum það að þeg-
ar hér er lagt fram frumvarp af
þessu tagi, sem snertir alla einstakl-
inga í landinu, alla neytendur og
aila forsvarsmenn fyrirtækja, skuli
ekki vera lagðar fram meiri töluleg-
ar upplýsingar, sem hægt er að
meta. Menn eru beðnir að trúa
þeim tölum, sem farið er með í
greinargerð, jafnvel þótt þær stang-
ist á við aðrar uplýsingar, sem fram
hafa komið frá ráðuneytinu.
Byggt á vanmati
Önnur meginröksemd okkar
gegn þessu frumvarpi er sú að við
teljum að það byggi á vanmati á
þeim tekjuauka, sem ríkissjóður
getur ætlað sér við afnám á undan-
þágum og útvíkkun á skattsviði og
hertu eftirliti.
Þriðja meginröksemdin er sú, og
leiðir af hinu sem þegar er sagt, að
verðhækkunaráhrif af þessari háu
prósentu eru of mikil. Jafnframt er
það mjög gagnrýnisvert, að ekki
skuli fylgja nánari úttekt, á töluleg-
um grundvelli, um hvaða áhrif upp-
taka virðisaukaskattsins hefði á
þær atvinriugreinar, sem hafa verið
undanþegnar söluskatti. Þau áhrif
geta komið fram í mjög mismun-
andi miklum mæli og það er auðvit-
að alveg óhjákvæmilegt að skoða
það, atvinnugrein fyrir atvinnu-
grein.
Hvað um
ferðamannaþjónustu
o.fl.?
Það er talað um að virðisauka-
skatturinn eigi ekki að leggjast á
ferðamannaþjónustu. En hvað með
t.d. þann þátt ferðamannaiðnaðar-
ins sem heitir hótel- og veitingahúsa-
rekstur, svo að nefnt sé dæmi? Eða
þær spurningar, sem fram komu í
máli seinasta ræðumanns, um af-
leiðingar þess arna á byggingariðn-
aðinn, byggingarkostnað? Er svo
að skilja að endurgreiðslan eigi að
ná til þeirra einna, sem standa fyrir
nýbyggingum? Hvaða áhrif hefur
upptaka þessa kerfis að öðru leyti á
byggingariðnað og þjónustu, svo
sem eins og endurbætur og við-
hald? Hvaða áhrif hefur fjárbind-
ingin, sem trúlega verður aukin i
þessu kerfi á þeim greinum, sem nú
verða virðisaukaskattsskyldar, en
báru ekki söluskatt áður?
Það er gagnrýnisvert að
upplýsingar um þetta liggja
ekki fyrir. M.ö.o., vinnubrögð-
. in til undirbúnings þessu
frumvarpi og upplýsingarnár
sem fylgja því eru fjarri því að
vera fullnægjandi. Það þýðir
að þingnefndir, sem fá málið
til umfjöllunar, hljóta að gera
kröfu til að mikill fjöldi for-
svarsmanna fyritækja verði
kallaður til viðræðna við þing-
nefndir eða leitað verði eftir
upplýsingum frá þeim.
Þegar af þeirri ástæðu þykir mér
líklegt að þetta mál hljóti að verða
lengi í meðförum þingsins. Þar af
leiðandi er ólíklegt, eins og allt er í
pottinn búið, að það geti náðst
pólitískt samkomulag milli þing-
flokka um þær lágmarksbreyting-
ar.semgeraþarf á frumvarpinu til
þess að það verði afgreitt endanlega
á þeim tíma, sem eftir lifir þessa
þinghalds.
Haldlausar áætlanir
Þá er loks að nefna hliðarráð-
stafanirnar eins og þær eru hér
boðaðar. Þessar hliðarráðstafanir
byggja á þeirri forsendu að ríkis-
sjóður ætli sér að taka allt í allt 2650
milljónir króna i formi virðisauka-
skatts umfram það sem söluskatts-
kerfið hefur skilað ríkissjóði áður
og verja til verðlækkunaráhrifa. í
fyrsta lagi með því að verja tæpum
milljarði til niðurgreiðslna á hefð-
bundnum búvörum. Þar með er
fokin sú röksemd að virðisauka-
skatturinn eigi að vera hlutlaus
gagnvart atvinnufyrirtækjum og
atvinnuvegum í landinu. Vegna þess
að með hliðarráðstöfunum er verið
að verja fé til neyslustýringar, til
þess að hafa beinlínis áhrif á neyslu-
val, og þar af leiðandi innkaup og
markaðsstöðu fyrirtækja. Það er
verið að mismuna atvinnuvegum,
og er auðvitað megingalli. Um þetta
er einfaldlega það að segja að þing-
flokkur Alþýðuflokksins mun und-
ir engum kringumstæðum fallast á
þessa aðferð.
í annan stað er gert ráð fyrir
því að tollakerfið verði ein-
faldað og lækkað og vöru-
gjöld verði felld niður. Það er
út af fyrir sig góð ráðstöfun og
réttmæt og kemur t.d. til álita,
að því er varðar áhrif virðis-
aukaskatts á byggingariðnað-
inn, hvort ekki er hægt að
ganga mun lengra í þá átt
fremur en að taka upp þá til-
lögu sem hér er gert ráð fyrir,
sem er endurgreiðsla vegna
húsnæðisliðarins, hugsuð sem
endurgreiðsla á fermetra íbúð-
arhúsnæðis upp að tilteknu
hámarki. Samkvæmt okkar
upplýsingum hefur sú aðferð,
þar sem hún hefur verið reynd,
gefist illa.
Virðist þá vera nærtækara bæði í
þessu tilviki og almennt að ganga
lengra í lækkun tolla á ýmsum há-
tolluðum vörum, þar á meðal t.d.
hátolluðum byggingarvörum, svo
sem eins og baðherbergisáhöldum,
eldhúshúsbúnaði og fleira af því
tagi.
Röksemdir okkar fyrir því að við
getum ekki fallist á þetta frumvarp
eru því þessar upp að telja:
1. Vegna þess að skatt-
prósentan er allt of há.
2. Vegna þess að við tökum
ekki trúanlegan talnagrund-
völl frumvarps um það að ekki
sé unnt með bættri innheimtu
og niðurfellingu á undanþág-
um að tryggja ríkissjóði þegar
af þeirri ástæðu meiri tekjur,
þannig að unnt sé að lækka
prósentuna og um leið draga
úr verðhækkunaráhrifum.
3. Vegna þess að við teljum
mikið vanta á að við höfum í
höndunum nægilegar upplýs-
ingar um áhrif virðisauka-
skattsins á þau fyrirtæki, eink-
um smærri fyrirtæki í þjón-
ustugreinum, sem nú verða
skattlögð í virðisaukaskatts-
kerfi, en voru það ekki í sölu-
skattskerfi. Okkur skortir
beinlínis sérstakar úttektir á
atvinnugreinum og stöðu fyr-
irtækja, áhrifum skattsins á
samkeppnisstöðu og afkomu.
4. Vegna þess að hliðarráð-
stafanirnar eru af því tagi að
við getum ekki fellt okkur við
þær.
Verkefni nýrrar
ríkisstjórnar
Heildarniðurstaðan er sú, úr því
sem komið er, að það verkefni bíð-
ur nýrrar ríkisstjórnar að taka
skattakerfið í heild til allsherjar-
endurskoðunar. Fyrst og fremst
með þeim rökum að það hefur áhrif
hvað á annað, hvað gert er í endur-
skoðun á tekjuskattskerfinu, og
hvað gert er í endurskoðun á sölu-
skattskerfinu. Það er raunverulega
ógerningur, út frá málefnalegum
rökum, að taka endanlega afstöðu
til annars, án þess að hitt sé þekkt
stærð.
Að því er varðar hliðarráð-
stafanir vil ég bæta því við, að
það er augljóst mál, hvort
heldur við tökum upp virðis-
aukaskatt eða undanþágulít-
inn almennan söluskatt, að þá
er óhjákvæmilegt að grípa til
hliðarráðstafana. Ef við
stöldrum við fyrri hugmynd-
ina, undanþágulítinn sölu-
skatt, þá er það augljóst mál
að jafnvel þótt söluskatts-
prósentan yrði mjög lág, þá
yrðu verðhækkunaráhrif á
þeim vörum og þeirri þjón-
ustu, sem áður var undanþeg-
in söluskatti. Þetta þarf auð-
vitað að bæta almenningi upp,
neytendum, og þá ekki hvað
sist barnafjölskyldum, með
öðrum hætti.
Um það gildir sú almenna skoð-
un okkar, að þá á að beita skatta-
kerfinu í heild sinni til tekjujöfnun-
ar; ekki með því að veita sífellt fleiri
og fleiri undanþágur eða frádrætti,
og eyðileggja þar með skilvirkni
kerfisins, heldur með því að verja
hluta af skatttekjunum til út-
greiðslu til þeirra hópa, sem þyngst-
ar byrðar bera og þurfa mest á
tekjujöfnunaraðgerðum að halda.
Til þess að draga saman þessar nið-
urstöður.
Við þurfum í báðum tilvik-
um að beita tekujafnandi að-
gerðum. Þær þurfa hins vegar
að fullnægja því skilyrði, að
þær eiga ekki að þjóna undir
sérhagsmuni. Þær eiga ekki að
vera sértækar. Þær eiga að
byggjast á útgreiðslu á mjög
rausnarlegum barnabótum til
barnafjölskyldna og verulegri
hækkun á bótagreiðslum al-
mannatrygginga, einkum og
sér í lagi til ellilífeyrisþega.
En þær eiga ekki að vera í því
formi að skekkja neysluval og stýra
fjármagni þannig milli atvinnu-
greina. Enda væri það beinlínis í
hrópandi mótsögn við meginrökin
fyrir upptöku virðisaukaskatts, sem
eru þau að hann á einmitt að bæta
fyrir annmarka söluskattskerfisins,
uppsöfnunaráhrifin, og það að
hann er ekki hlutlaus, að því er
varðar efnahagsleg áhrif milli at-
vinnugreina.
Róttækar breytingar
nauðsynlegar
Herra forseti. Ég get látið máli
mínu lokið að svo stöddu. Ég end-
urtek það að þingflokkur Alþýðu-
flokksins getur ekki sætt sig við
þetta virðisaukaskattsfrumvarp. Til
þess að við getum fallist á upptöku
virðisaukaskatts þyrfti að gera á því
svo róttækar breytingar að það má
heita, að það þyrfti að semja nýtt
frumvarp.
Lausar stöður hjá Borgarneshreppi:
Verkstjóri
Starf verkstjóra við áhaldahús Borgarneshrepps er
laust til umsóknar. Umsóknir er tilgreini menntun og
fyrri störf berist skrifstofu Borgarneshrepps fyrir 31.
desember n.k.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri i sfma 93—7224.
Fóstrur
Nokkrar stööur fóstra við leikskólann í Borgarnesi eru
lausar til umsóknar. Umsóknir er tilgreini menntun og
fyrri störf berist skrifstofu Borgarneshrepps fyrir 31.
desember n.k.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður I slma 93—
7425 og sveitarstjóri I sima 93—7224.
Sveitarstjórinn í Borgarnesi.