Alþýðublaðið - 18.12.1986, Side 10
10
Fimmtudagur 18. desember 1986
Kjartan Jóhannsson skilaði
séráliti í fjárhags- og viðskipta-
nefnd vegna nýs frumvarps um
breytingar á lögum um tekju-
skatt og eignaskatt.
Alþýðublaðið birtir í heild
minnihlutaálit Kjartans:
Það er heildarmyndin
sem skiptir máli
segir
Kjartan
Jóhannsson
Jaðarskattur %
Ljóst er að löngu er orðið tíma-
bært að endurskoða tekjukerfi rík-
isins frá grunni, þar á meðal ekki
sist að einfalda tekjuskatta hins op-
inbera í heild sinni og grisja frá-
dráttarfrumskóginn jafnframt því
sem tekjuskattur ríkisins af venju-
legum launatekjum yrði afnuminn.
Þetta verður ekki gert hér og nú.
Hins vegar verður að skoða þá
mynd sem við blasir við fyrirhuguð
áform um skattlagningu samkvæmt
gildandi kerfi og freista þess að lag-
færa hana.
Þegar ákveða á álagningu tekju-
skatts á vegum ríkisins er nauðsyn-
legt að hafa í huga aðra skatta á
vegum hins opinbera, ríkis- og sveit-
arfélaga, sem lagðir eru á gjaldend-
ur á grundvelli tekna. Heildarmynd-
in er það sem máli skiptir. Auk
tekjuskatts til ríkisins verður þannig
að líta á sjúkratryggingargjald,
sóknargjald og útsvar.
Jafnframt er nauðsynlegt að
skoða heildarálagninguna sem hlut-
fall af greiddum launum. í því felst
að Iíta á álagningarstofn sem hlut-
fall af útborguðum launum og jað-
arprósentur skatts miðað við þau
laun sem framteljendur fá í hendur.
Flestir munu nýta svonefndan
10% frádrátt frá tekjum til ákvörð-
unar á tekjuskattsstofni og verður
við það miðað hér. Á hinn bóginn
eru Iífeyrissjóðsiðgjöld, sem nema
yfirleitt um 4% af tekjum, ekki út-
greidd.
Af þessu leiðir að tekjuskatts-
stofn sem hlutfall af útborguðum
launum er 93,7% (0,90/0,96). Af
þessu leiðir jafnframt að álagning-
arstofn útsvars, sjúkratryggingar-
gjald er 2% og sóknargjald er
0,35%. Þá fæst svofelld niðurstaða
og er þá miðað við útgreidd laun:
1. Útsvarslausar tekjur eru 47.300
kr. á ári.
2. Persónuafsláttur nýtist til
greiðslu útsvars að fullu allt að
224.260 kr. á ári.
3. Skattleysismörk tekjuskatts eru
við árstekjurnar 345.900 kr.
4. Jaðarprósentur ofantaldra tekju-
tengdra skatta eru þessar:
Mánaðartekjur %
Allt að 18.700 kr____ 0
18.700 til 28.800 kr_0—11.3%'
28.800 til 36.600 kr_ 28.2%
36.600 til 42.200 kr_ 30.3%
42.200 til 73.300 kr_ 40.2%
73.300 kr. og meira 49.5%
Heildarmyndin verður þá þessi.
í tekjutengda skatta fara þannig
40,20 kr. af hverjum 100 kr. sem
menn vinna sér inn umfram 42.200
á mánuði, allt að 73.300 kr. mánað-
artekjum, en 49,50 af hverjum 100
kr. sem menn fá í útgreidd laun um-
fram 73.300 kr. á mánuði.
Samkvæmt upplýsingum um út-
greidd laun má af þessu ráða að
venjulegt fullfrískt vinnandi fólk
lendi að stórum hluta í þessum efstu
skattþrepum og greiði þannig 40 eða
50% af jaðartekjum sínum í tekju-
tengda skatta. Þótt hér sé einungis
tekið dæmi af einstaklingi er það
hliðstætt fyrir hjón því að tekjur
hjóna eru skattlagðar sitt í hvoru
lagi.
Undirritaður telur að hér sé of
langt gengið í skattlagningu á venju-
legar launatekjur og leggur til að
þessar jaðarprósentur verði lækkað-
ar um 4%. Flytur hann breytingar-
tillögur í samræmi við það.
Samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytis mundi tekjuskattur
einstaklinga þá lækka um 420 mill-
jónir króna.
Á hinn bóginn er ljóst að tekju-
skattar fyrirtækja eru óheyrilega
lágir á íslandi og einungis 2800 fyr-
irtæki af 10.600 sem telja fram
greidda tekjuskatta á líðandi ári.
Þetta gerist í skjóli frádráttarfrum-
skógar. Undirritaður telur að grisja
beri þann frumskóg og einfalda,
draga úr heimildum til frádráttar
vegna reiknaðra framlaga í vara-
sjóði og fjárfestingarsjóði og lækka
heimildir til fyrningarfrádráttar.
Með því ætti að hækka álagðan
skatt á fyrirtækin um 650 milljónir
kr. Yrði þá afgangur um 230 mill-
jónir kr. sem færi til þess að bæta
stöðu ríkissjóðs.
Bókafréttir
Kristján Albertsson
Margs er að minnast
Skráð hefur Jakob F. Ásgeirsson
Frásagnasnilld Kristjáns AI-
bertssonar er alkunn og nýtur sín
enn vel þó að árum fjölgi. En sjón-
leysið varnar honum ritstarfa og því
er þessi dýrlega minningabók til
orðin fyrir samstarf tveggja.
Kristján Albertsson kynntist
mörgum og var vinur manna eins
og Matthíasar Jockumssonar, Ein-
ars Benediktssonar, Jóhanns Sigur-
jónssonar, Jóhannesar Kjarvals,
Guðmundar Kambans, svo að ein-
hverjir séu nefndir af þeim sem
koma við sögu í þessari bók, að
njóta frásagnir hennar slíkra ná-
inna kynna í ríkum mæli.
Kristján Albertsson segir um-
fram allt frá því sem hann hefur
heyrt og séð innan lands og utan, og
er það bæði margt og minnisvert.
Bókin er 200 bls. og 24 myndasíð-
ur að auki. Hún er prentuð í Prent-
stofu G. Benediktssonar. Bókband
annaðist Félagsbókbandið hf.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið.
Bergið klifið
Minningar veiðimanns
eftir Hlöðver Johnsen
Hinn víðkunni Vestmannaeying-
ur Hlöðver Johnsen (Súlli á Salta-
bergi) skýrir hér frá því sem hann
hefur lært í lífsins skóla, hvort held-
ur sú lexía hefur verið gefin í tíræðu
berginu, við veiðimennsku í úteyj-
um eða Eldey, á sjó einhvers staðar
við ísland með Binna i Gröf, úti í
Fleetwood á stríðsárunum, í eld-
gosinu eða við landbúnaðarstörfin
fyrir ofan Hraun í Eyjum fýrir
50—60 árum.
En hver er þá þessi maður? Ævin-
týramaður? Veiðimaður sem hugs-
ar um það eitt að drepa sem mest?,
Nei, síður en svo. Hann er fyrst og
fremst náttúrubarn, sem unir engu
lífi betur en lífi úteyjanna og fugla-
bjargsins. Og svo er hann líka at-
huguli mannlífs- og náttúruskoð-
ari. Hann þekkir lífshætti fugl-
anna, sem hann hefur umgengist,
betur en flestir aðrir — að maður
ekki tali um mannlífið í Eyjum þau
tæp 70 ár sem hann hefur lifað þar.
Hlöðver var aðstoðarmaður vís-
indamanna í Eyjum í eldgosinu, og
er þáttur hans í sambandi við þau
mál og hraunhitaveituna eftir gos
bæði mikill og merkilegur.
Þrír vinir Hlöðvers, Páll Magn-
ússon fréttastjóri, Guðjón Ármann
Eyjólfsson skólastjóri og Svein-
björn Björnsson prófessor rita um
kynni sín af honum í formála fyrir
bókinni.
Bókin er 223 bls. auk 8 litsíðna og
prentuð í Prentsmiðju Árna Valde-
marssonar en Bókbandsstofan
Örkin annaðist bókband.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið.
Átján sögur úr
Álfheimum
eftir Indriða G. Þorsteinsson
Indriði hóf ritferil sinn með verð-
launaðri smásögu og síðan hefur
hann alltaf öðru hverju fengist við
smásagnagerð, og eru sumar af
þessum sögum í úrvalsflokki ís-
lenskra smásagna. Átján sögur úr
Álfheimum er fjórða smásagnasafn
hans.
Þessar sögur eru til orðnar á all-
löngum tíma, sú elsta er frá 1953,
þær yngstu fullgerðar fyrir tveimur
til þremur mánuðum.
Margra grasa og margs konar
blæbrigða kennir í þessum sögum.
Fjórar þeirra gerast í útlöndum,
aðrar í Reykjavík og sumar út um
sveitir. Sögutíminn er líka misjafn
— frá 19. öld til dagsins í dag.
Hér eru bæði harmsögur og gam-
ansögur, ástarsögur og ekki ástar-
sögur, lausamenn, miðlungsfólk og
höfðingjar í lífsins ólgusjó. En
hvert sem efnið er nýtur sín ávallt
jafn vel hinn skýri og stundum dá-
lítið háðski og svali stíll höfundar-
ins.
Bókin er 198 bls. að stærð og
prentuð og bundin í Odda.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið.
Leiðtogafundurinn
í Reykjavík
eftir Guðmund Magnússon
í þessu verki birtist skýr og grein-
argóð frásögn af því sem gerðist
hérlendis dagana fyrir leiðtoga-
fundinn í Höfða og á meðan fund-
urinn stóð yfir. Sagt er frá viðbún-
aði vegna fundarins, fréttamönn-
um, fundinum sjálfum og þeim
málum sem tekin voru fyrir og deilt
var um. Bókin er prýdd fjölda
mynda með textum bæði á íslensku
og ensku. Þá er í bókarlok útdrátt-
ur á ensku.
Þetta er eigulegt verk fyrir alla,
hérlendis sem erlendis, er vilja varð-
veita minninguna um þá daga i
september og október 1986 er ís-
land var svið heimsatburða.
Bókin er 96 bls. að stærð og 8 lit-
myndasíður að auki. Hún er prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar
og bundin í Félagsbókbandinu hf.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið.
Jólasveinarnir
Út er komin jólasveinabók hjá
AB eftir Iðunni Steinsdóttur,
myndskreytt af Búa Kristjánssyni.
Bókin fjallar um íslensku jólasvein-
ana okkar. Það gerist margt sögu-
legt þegar þeir leggja af stað til
byggða með pokana úttroðna af
gjöfum. Þeir eru komnir í rauð föt
sem eru fínni heldur en mórauðu
ullarflíkurnar sem þeir gengu í í
gamla daga. Innst inni eru þeir samt
sjálfum sér líkir. Kjötkrók dreymir
um hangikjöt, Skyrgám um skyr,
Bjúgnakræki um bjúgu og þannig
mætti lengi telja. Þeir eru hættir að
hrekkja — en stundum gleyma þeir
sér.
Jólasveinarnir er bók fyrir alla
sem setja skóinn sinn út í glugga —
og líka fyrir hina sem langar til þess
en kunna ekki við það, af því að
þeir eru orðnir svo stórir.
Bókin er 69 bls. að stærð. Prent-
un og bókband annaðist Prent-
smiðjan Oddi.
ísland á 19. öld
eftir Frank Ponzi
Þeir komu með farfuglunum og
fóru með þeim aftur. Og hvort held-
ur þeir voru prinsar, vísindamenn,
skáld eða listamenn hafði ísland
mikil áhrif á þá, þannig að sumutn
entist það lífið á enda. Svo má ráða
af bókinni ísland á 19. öld, sem
Frank Ponzi listfræðingur hefur
samið um hina erlendu ferðalanga á
íslandi á öldinni sem ieið. ísland á
19. öld gerir grein fyrir þessum
sumargestum, ferðum þeirra um
Iandið og athöfnum þeirra hér, birt-
ir áður óbirtar dagbækur úr ís-
landsferðum tveggja prinsa, dansks
og hollensks, en umfram allt fjallar
hún um myndlist þessara ferða-
langa og birtir hátt á annað hundr-
að myndir sem hér urðu til á 19. öld.
Sumar þessara mynda höfum við
áður séð í bókum, aðrar hefur höf-
undurinn grafið upp í listasöfnum
víðsvegar í Evrópu eða Ameríku,
jafnvel á heimilum.
Ýmsar af myndum bókarinnar
eru eftir fræga málara sem ferðuð-
ust hingað á vit hins óþekkta til að
endurnýja list sína við íslenskt
Iandslag og öðruvísi birtu en þeir
voru vanir. Aðrar gerðu drátthagir
náttúruskoðaðar sem vildu festa á
blað þau stórmerki sem þeir urðu
hér vitni að. En hvort heldur var, þá
sýni,r þessi arfur frá liðnum tíma,
ásamt þeim texta sem fyigir, frá-
bæra mynd af landi og mannlífi hér
á 19. öld.
Að baki þessari bók liggja miklar
rannsóknir, enda ber hún því vitni
með sínu fagra yfirbragði og fjölda
nýrra sagnfræðilegra og listfræði-
legra upplýsinga.
Með þessari bók — ekki síður en
fyrirrennara hennar, ísland á 18.
öld — hefur Frank Ponzi unnið frá-
bært verk, þar sem nýtur sín í góðri
einingu sagnfræði, listasaga og ör-
ugg smekkvisi.
Bókin er h<eði á íslensku og
ensku, óskagjöf til vina erlendis.
Bókin er 164 bls. að stærð, prent-
uð og bundin í Prentsmiðjunni
Odda.
Hvað er tónlist?
Samtiningur um tónlist og tónlistar-
menn eftir Árna Kristjánsson.
Hvað er tónlist? er ekki aðeins
snilldarlega rituð bók, heldur er
hún einnig þannig fram sett að jafnt
tónelskir sem ekki tónelskir hljóta
að hafa unun af að lesa hana. Árni
Kristjánsson píanóleikari hefur af
sinni alkunnu hógværð kosið að
kalla efnið samtíning og afsakast
slíkt heiti af því einu að ritgerðirnar
eru til orðnar á ýmsum tímum og af
mismunandi tilefnum. En efnið er
eitt — tónlistin — og þeim þáttum
hennar sem hér eru teknir fyrir eru
vissulega gerð rækileg skil.
Fjallað er um þessa tónlistar-
menn og verk eftir þá: Bach,
Haydn, Scarlatti, Chopin, Wagner,
Schubert, Smetana, Berlioz, Grieg,
Sibelius, Sallinen, Nordheim. Einn-;
ig er ritgerð um tónlist almennt og
um íslenska tónlist.
Hvað er tónlist? er rúmar 200 bls.
að stærð, prentuð í Prentbergi og
bundin inn í Félagsbókbandinu.