Alþýðublaðið - 18.12.1986, Side 15
Fimmtudagur 18. desember 1986
15
„Blessuð byggðastefna“
og fyrirgreiðslupólitíkin
Árni
Gunnarsson
skrifar
„Blessuð byggðastefnan“ eða
eigum við heldur að segja „bölvuð
byggðastefnan“? Það fer talsvert
eftir því hvaða augum við lítum ár-
angur eða afleiðingar þeirrar
byggðastefnu, sem stýrt hefur verið
eftir undanfarin ár. Varla geta
landsbyggðarmenn hrópað húrra
yfir niðurstöðunum.
Sannleikurinn er sá, að hin svo-
kallaða byggðastéfna eru rústir ein-
ar og þar stendur ekki steinn yfir
steini. Talsmenn núverandi byggða-
stefnu hafa lýst megintilgangi
hennar með þeim orðum, að
tryggja ætti jafnvægi í byggð lands-
ins, sem jafnasta afkomu og jafnan
rétt til hverskonar þjónustu.
Hvað gleymdist?
Byggðastefnan er lítið annað en
orð, sem notað er á stjórnmála-
fundum eða við hátíðleg tækifæri.
Það gleymdist nefnilega að skapa
þann grundvöll, sem unnt er að
byggja raunhæfa byggðastefnu á.
Það gleymdist m.a., að setja aðil-
um atvinnulífsins almennar leik-
reglur til þess að leiðrétta innbyggt
jafnvægisleysi markaðskerfisins.
Þetta hefur komið fram í ójöfnum
vexti landshluta, samdráttartil-
hneigingum og jafnvel tímabundnu
atvinnuleysi.
Það gleymdist að brjóta upp ein-
okun valds, sem er i höndum for-
réttindastétta embættismanna og
stjórnmálamanna. Afleiðingin hef-
ur orðið síþensla skrifræðis, sem
hefur hindrað alla ákvarðanatöku.
Afleiðingin er einnig víðtæk fjár-
málaspilling, fjárfestingamistök og
forréttindi nýrrar stéttar, sem beitir
ríkisvaldinu til að kúga aðra. Enn
ein afleiðingin er ójöfn þróun borg-
ar og landsbyggðar, vegna þess að
öryggi og forréttindi ríkisvaldsins
laðar til sín vinnuaflið í stórum stil.
Það gleymdist jafnframt, að
dreifa hinu efnahagslega og póli-
tíska valdi. Jafnaðarmenn hafa
hvað eftir annað gert kröfu til þess,
að ríkisvaldið yrði takmarkað og
því dreift til smærri eininga héraða
og sveitarfélaga. Hugmyndin er að
skapa mótvægi við miðstjórnar-
valdið og efla getu hinna smærri
eininga til sjálfsstjórnar og sam-
keppni. Aðeins með því verða fram-
farir sjálfvaknar. Þær geta aldrei
orðið fyrir tilverknað utanaðkom-
andi valdbeitingar.
Á meðal margra hinna fátækari
þjóða heims er ein helsta hindrun
fyrir efnahagslegum framförum of-
vaxið ríkisbákn, sem mergsýgur
sveitir og héruð og veldur ójafnri
þróun, ofvexti borga og uppdrátt-
arsýki sveitanna. Dreifing hins póli-
tíska valds er forsenda lýðræðis og
þar með framfara. íslendingar eru
ekki fátæk þjóð, en sömu lögmálin
gilda hér um miðstýringu.
Það var margt sem gleymdist.
Hvað er þá byggðastefna?
Raunhæf byggðastefna er fyrst
og fremst dreifing fjármuna í arð-
bærar framkvæmdir, sem geta
styrkt stoðir atvinnulífs og upp-
byggingu byggðarlaga, er annars
eiga undir högg að sækja. Raunhæf
byggðastefna á að tryggja það, að
eitthvað verði eftir í hcimabyggð af
þeim fjármunum, sem fólkið skap-
ar með vinnu sinni, eða að eðlileg-
um hluta þeirra verði skilað aftur.
Raunhæf, byggðastefna grund-
vallast á áætlanagerð um arðbærar
framkvæmdir, sem stuðla að því að
styrkja atvinnulíf, félagslega þjón-
ustu og til að auka samstöðu íbúa
einstakra byggðarlaga um betra
mannlíf.
Raunhæf byggðastefna er dreif-
ing valds og valdastofnana. Raun-
hæf byggðastefna er aukin sjálfs-
stjórn sveitarfélaga, sem best
þekkja til allra innri mála, en þurfa
um þessar mundir að taka við skip-
unum frá miðstýrðu valdakerfi á
höfuðborgarsvæðinu.
Raunhæf byggðastefna er einnig
að koma í veg fyrir útþenslu höfuð-
borgarsvæðisins, enda veldur sú
þensla ómældum erfiðleikum í allri
félagslegri þjónustu, eignalegu mis-
rétti og tekjuskiptingu, sem er for-
kastanleg.
Fyrirgreiðslupólitíkin
Því miður hafa alltof margir litið
á byggðastefnuna í gegnum gler-
augu fyrirgreiðslupólitíkusanna.
Aðstaða margra þeirra til óeðlilegr-
ar fyrirgreiðslu, sem ekki byggir á
neinu raunhæfu arðsemismati, hef-
ur valdið hinum dreifðu byggðum
meira tjóni en mælanlegt verður.
Hagsmunir heildarinnar eru fyrir
borð bornir, þegar „góðurn" ein-
staklingum eða fyrirtækjum eru
færðir fjármunir í vonlausri stöðu.
Slík dreifing á peningum heildar-
innar helur ottar en ekki komið í
veg fyrir að unnt hafi verið að gera
heildstæðar áætlanir um raunhæfa
aðstoð, raunhæfa uppbyggingu,
raunhæfa byggðastefnu. Slíkir fyr-
irgreiðslupólitíkusar, sem I störfum
sínum fara eingöngu eftir Iitarafti
stjórnmálamanna, valda oft meira
tjóni en þeir gera gagn.
Sjálfstæði
sveitarfélaganna
Alþingi hefur svikist um að
brjóta upp hið miðstýrða valda- og
efnahagskerfi, sem hefur orðið að
neikvæðu formerki fyrir framan
hugsjónir um jöfnuð og réttlæti,
sem er rauði þráðurinn í alvöru
byggðastefnu. Frekar hefur verið
gengið á hlut sveitarfélaganna en
hitt, og tekjustofnar þeirra rýrðir
stórlega. (Það væri fróðlegt að gera
úttekt á því hvert framlag Norður-
landskjördæmis eystra er til þjóðar-
búsins, og hve stóran hlut það fær
til baka til að moða úr.)
Þá hefur Alþingi einnig brugðist
þeirri skyldu sinni, að dreifa vald-
inu. Það er allt saman komið á
Framhald á bls. 23
Jólagjöfin í ár:
Braun
skeggsnyrtirinn,
Braun skeggsnyrtirinn (bartskeri
og klippur) gerir alla skeggsnyrt-
ingu létta og auðvelda. Stillanlegur
fyrir fjórar skegglengdir,
3—8—14—19 mm. Bæði fyrir
straum og hleðslu. 40 mín. notkun
á hleðslu.
BRAUN jólagjafir
Hentugar og ódýrar
Rakvélar
frá kr.
1.900.-
Krullujárn
frá kr.
á
1
BRflun
30 DAGA
SKILAFRESTUR
ef keypt er fyrir 31.12.86
TILBOÐ
k
r
Nýjung:
30 daga skilafrestur á Braun
rakvélum ef kaup eru gerð
fyrir 31.12.1986.
Hárblásarar
frá kr.
1.690.-
Verslunin
PFAFF
Borgartúni 20
sími 26788
og allar betri
raftækjaverslanir lar dsins