Alþýðublaðið - 18.12.1986, Page 22
22
Fimmtudagur 18. desember 1986
Kynning
á nýjum
bókum
Bókaútgáfan Breiðablik er búin að
senda frá sér bókina Þriðja stúlkan
eftir Agöthu Christie. Þriðja stúlk-
an er síðasta verk Agöthu Christie
og kemur nú út í fyrsta sinn á ís-
lensku í frábærri þýðingu Elíasar
Mar rithöfundar. Um innihald bók-
arinnar:
„Ung stúlka, grunuð um morð, leit-
ar til leynilögreglumannsins Her-
cule Poirot. Hún missir kjarkinn í
miðju samtali og rýkur út. Poirot
ákveður að komast til botns í máli
hennar, heimsækir Restaricks fólk-
ið og kemst að raun um að þar er
ekki allt með felldu. Hvert var
leyndarmál blóðuga fjaðurhnífs-
ins? Eitraði Norma fyrir stjúpu
sína, eða var hún aðeins leiksoppur
annarra? Eitt er víst — það var
morð í uppsiglingu — eða var það
kannski þegar að baki? Meistara-
verk Agöthu Christie, í þýðingu Elí-
asar Mar.
Bókaútgáfan Breiðablik hefur sent
frá sér bókina Dómari og böðull,
eftir Mickey Spillane. Micky Spill-
ane er heimsþekktur sakamálarit-
höfundur og seljast bækur hans í
milljóna upplögum um allan heim.
Nokkur orð um innihald bókarinn-
ar:
„Félagi minn Jack er dáinn, —
myrtur af einhverjum sem hefur
horft á hann deyja með háðsbros á
vör, meðan honum blæddi út... Ég
hef svarið þess dýran eið að hefna
dauða Jacks vinar míns. Og þegar
ég hef gómað morðingjann mun
ekkert stöðva mig. Ég mun verða
allt í senn, kviðdómur, dómari og
böðull...“ Þannig talar Mike
Hammer, einkaspæjarinn. Nafn
hans eitt vekur ótta i milljónaborg-
inni... maðurinn sem framfylgir
réttlætinu, meðan lögreglan stend-
ur ráðþrota.
Bókaútgáfan Breiðablik hefur sent
frá sér bókina Laun ástarinnar, eft-
ir Caroline Courtney í þýðingu
Eddu Óskarsdóttur. Caroline
Courtney er þekkt nafn í dag sem
ástar- og spennusagna rithöfundur
og er þýdd á fjölda mála og núna á
íslandi í fyrsta sinn á vegum Breiða-
bliks. Um innihald bókarinnar:
Lavinia er full örvæntingar. Róbert
bróðir hennar hefur tapað öllum
eignum þeirra í spilum. Nú neyddist
hún til að giftast þessum andstyggi-
lega Saltaire greifa — manni, sem
hún hataði. „Ég hef ekki hugsað
mér að fara með yður, sagði Lavinia
og horfði reiðilega á hinn óboðna
gest. Hún greip andann á lofti, þeg-
ar hún sá, að byssuhlaupinu var
beint að gagnauga lafði Elísabetar.
Augu mannsins voru hörð eins og
steinn" Þegar hún hittir markgreif-
ann af Andover verður hún yfir sig
ástfangin. En til að hljóta þann
mann, sem hún elskar, verður hún
að leika á Saltaire. Spennandi saga
um ást og ævintýri.
ICEIÆD
BREAKTHROUGM
ICELAND
BREAK-
THROUGH
eftir Paul Vander-Molen
Ferð 12 ofurhuga yfir hálendi íslands á
svifdrekum og kajökum
Bókaútgáfan Örn og Örlygur dreif-
ir bókinni ICELAND BREAK-
THROUGH eftir Paul Vander-
Molen en bókin er samvinnuverk-
efni The Oxford Illustrated Press og
Arnar og Örlygs. Hún fjallar um 12
ofurhuga sem fóru norður yfir há-
lendi íslands á svifdrekum og kjök-
um. Dreginn er upp ógleymanleg
mynd af magnþrunginni náttúru
landsins og glímu manna við ógnir
öræfanna.
Bókin er 140 blaðsíður og prent-
uð í Englandi.
NERÓ
eftir Michael Grant
í þýðingu Dags Þorleifssonar
Ný og óvœnt mynd dregin upp af einni
alræmdustu persónu sögunnar.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út bókina NERÓ eftir
Michael Grant í þýðingu Dags Þor-
leifssonar. í bók þessari skyggnist
Michael Grant gagnrýnum augum
gegnum mistur fornra sagna og
ímyndana og bregður upp hlutlægri
mynd af Neró sem manni og keis-
ara. Neró stýrði hinu tröllaukna
Rómaveldi á tímum mikillar auð-
legðar og menningardýrðar og tók
ekki í mál að ganga í slóð fornra
hefða. Hann tók gríska siði framyf-
ir rómverska, var upplýstur vernd-
ari myndlistar og fullur hrifningar á
íþróttum, tónlist og leiklist.
Þótt Neró væri illræmdur fyrir
ofbeldi og léti stjórnmálin mæta af-
gangi þótti hann að sumu leyti
skynsamur stjórnandi.
OftN & OftLrGCft
Lönd ogþjóðir
LÖND OG ÞJÓÐIR
í bókaflokknum Heimur þekkingar
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út bókina LÖND OG ÞJÓÐ-
IR í bókaflokknum Heimur þekk-
ingar. Höfundar eru Arthur Butter-
field, Ron Carter, Peter Muccini og
Peter Way. Gunnfríður Hermanns-
dóttir og Sigríður Stefánsdóttir ís-
lenskuðu.
Bókin er í allstóru broti með um
250 fallegum litmyndum. Lönd og
þjóðir er ítarleg skoðun á löndum
heims og menningu íbúa þeirra.
Fjallað er um loftslag, landshætti,
landbúnað, iðnað og efnahagslíf,
íbúa og lifnaðarhætti á hverju
svæði.
Fyrri bækur er komið hafa út í
bókaflokknum Heimur þekkingar
eru: Alheimurinn og jörðin, Þróun
lífsins, Þróun siðmenningar.
Pierre Bouile
BRÚVNYF8R
BRÚIN YFIR KWAI
eftir Pierre Boulle
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út bókina BRÚIN YFIR
KWAI eftir Pierre Boulle í þýðingu
séra Sverris Haraldssonar. Brúin yf-
ir Kwai er dramatisk saga og hlaðin
spennu en einnig lýsir hún
árekstri ólíkra heima og þrautseigju
og reisn manna þegar mest á ríður.
Jafnframt leiðir hún á kímin hátt
fram tilgangsleysi og fánýti styrj-
alda. Sagan naut þegar mikilla vin-
sælda í heimalandi höfundar og
hefur verið þýdd á fjölmörg tungu-
mál og ár'ð 1957 var gerð eftir henni
heimsfraeg, samnefnd kvikmynd
sem sýnd var hér á landi við miklar
vinsældir. Hlutu leikararnir Alec
Guinness og Sessue Hayakawa
mikla frægð fyrir túlkun sína og
Nicholson og Saito, svo og David
Lean fyrir leikstjórn.
íslenska lyfjabókin
Fimmtaprentun þessar feiknivin-
sælu íslensku handbókar eru nú að
koma á markaðinn, en hún er orðin
algjör metsölubók, — þegar seld í
yfir 10.000 eintökum á rúmu ári.
Höfundar bókarinnar eru lækn-
arnir dr. Helgi Kristbjarnarson, dr.
Magnús Jóhannsson og Bessi
Gíslason, lyfjafræðingur. í henni
eru ítarlegar upplýsingar um inni-
hald, notkun, áhrif og aukaverkan-
ir allra þeirra lyfja, sem skráð eru á
íslandi og er lyfjunum raðað í staf-
rófsröð. Útgefandi er Vaka-Helga-
fell.
Krijiiati Káli
| ?/'ÍK f Jí.Níi. \
Lokabindi ritverksins
ÍSLENSKIR SÖGU-
STAÐIR
Norðlendingafjórðungur og
Austfirðingafjórðungur
komin út
Ritverkið allt fœst nú í fagurri öskju
Hjá Erni og Örlygi eru komin út
lokabindin í hinu merka riti
ÍSLENSKIR SÖGUSTAÐIR eftir
Kristian Kálund í þýðingu dr. Har-
aldar Matthíassonar. Þessi tvö síð-
ari bindi fjalla um Norðlendinga-
fjórðung og Austfirðingafjórðung,
en áður voru komin út tvö bindi
sem fjölluðu um Sunnlendinga-
fjórðung og Vestfirðingafjórðung.
í lokabindinu er auk þess kafli um
Miðhálendið, Fjarðaskrá frá því
um 1300, íslenskar hafnir á síðari
hluta 16. aldar og Fjarðaskráin í
sérstöku víkkuðu formi. Einnig eru
í ritinu ítarlegar skrár yfir staða- og
mannanöfn, atriðisorðaskrá og
ritakrá.
Bók fyrir verðandi mœður og feður:
NÝTT LÍF
meðganga, fœðing og fyrsta árið
Ritstjóri: dr. David Harvey
Þýðandi: Guðmundur Karl Snœbjörns-
son lœknir
HORFNIR HEIMAR og er eftir
Ólaf Halldórsson kennara. í bók
þessari leitast Ólafur við að varpa
nýju ljósi á ýmsa leyndardóma sög-
unnar. Framan á bókinni er mynd
af líkneski sem indíánar í Mið-
Ameríku gerðu af guði sínum
Quetzalcoatl, sem var hvítskeggj-
aður. Undir myndinni er varpað
fram þeirri spurningu hvort hér hafi
verið um að ræða Björn Breiðvík-
ingakappa.
Við lestur þessarar bókar fer les-
andinn um ýmsa baksali sögunnar,
allt frá spurningunni um það hverj-
ir námu ísland fyrstir, til bollalegg-
inga um það hvaðan frumstæðum
ættflokki í Vestur-Afríku barst víð-
tæk þekking í stjörnufræði, svo
sem fylgistjörnu Síríusar umferðar-
tíma hennar.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út bókina NÝTT LIF — með-
ganga, fæðing og fyrsta árið. Bókin
er bresk að uppruna og var tekin
saman undir ritstjórn dr. David
Harvey, sem er ráðgefandi barna-
læknir við Queen Charlotte’s
Hospital í London og yfirmaður
deildar sem hefur umsjón með yfir
4000 fæðingum á ári.
Þýðandi bókarinnar er Guð-
mundur Karl Snæbjörnsson lækn-
ir. Bókin er í stóru broti, 250 blað-
síður, og í henni er gífurlegur fjöldi
litmynda til skýringar efninu.
Ólafur Halldórsson.
HORFNIR HEIMAR
Nýju Ijósi varpað á leyndardóma sög■
unnar
Út er komin hjá Erni og Örlygi.bók
um forvitnilegt efni. Nefnist hún
Björo Þotsíejnsson
Handbók ura hetgísíað þjóðarinnar
Sa^ - NátómfrwsS - Staafraeðl ~ frjóðsögur - pöð
ÞIN G YALL ABÓKIN
Handbók um helgistað þjóðarinnar
eftir Björn Þorsteinsson sagnfrœðing
Bókaklúbbur Arnar og Örlygs hef-
ur gefið út ÞINGVALLABÓKINA
— Handbók um helgistað þjóðar-
innar eftir prófessor Björn Þor-
steinsson sagnfræðing. Efni bókar-
innar er mjög fjölbreytt. Þar er að
finna sagnfræði, náttúrufræði,
staðfræði, sögur og ljóð. Sérstakur
kafli er um Þingvallavatn eftir Sig-
urjón Rist vatnamælingamann og
annar um gróður á Þingvölum eftir
Ingólf Davíðsson grasafræðing.
Ásgeir S. Björnsson lektor ritstýrði
verkinu.